Dagur - 22.04.1980, Page 1
TRULOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMiÐIR
I SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
DAGUR
LXIII. árgangur Akureyri, þriðjudagur 22. apríl 1980
29. tölublað
paW"
AUKIÐ VATN
HJÁ HITAVEITU
AKUREYRAR
Þegar jarðborinn Narfi var við
borun fyrir Hitaveitu Akureyrar
að Ytri-Tjörnum í Eyjafirði á
fimmtudagsmorgun og kominn
niður á rösklega 1530 metra
dýpi, opnaðist nokkuð óvænt ný
æð, sem liggur dýpra en þær æð-
ar, sem áður hafa komið fram á
svæðinu. Við dælingu á föstudag
fengust 25 sekúndulítrar úr hol-
unni, en aðfararnótt laugardags
voru dælustangirnar dýpkaðar
og með því móti fengust 35
sekúndulítrar af 77 gráðu heitu
vatni. Talið er, að vatnið í þess-
ari nýju æð geti orðið allt að 50
sekúndulítrar og 90 gráðu heitt,
og að hér sé að mestu um viðbót
að ræða, við það sem áður var
talið að Ytri-Tjarnarsvæðið gæti
gefið af sér, sem voru 60
sekúndulítrar.
Gunnar Sverrisson, hitaveitu-
stjóri, sagði í viðtali við DAG, að
þetta væru mjög mikil tíðindi fyrir
hitaveituna og Akureyringa. Þessi
vatnsaukning hefur enn sem komið
er haft sáralítil áhrif á vatnshæðina
í öðrum holum á svæðinu, sem eru
þrjár. Til þessa hafa aðeins fengist
15 sekúndulítrar úr holu númer
tvö. Unnið hefur verið að hreinsun
á holu eitt í sjö mánuði og hola þrjú
er enn ekki fullboruð.
Vatnskerfið á Ytri-Tjamarsvæð-
inu er samtengt, þannig að aukið
vatnsmagn í einni holunni hefur
áhrif á vatnsmagn í annarri. Fyrstu
þrjár holurnar voru boraðar í gegn
um þrjá vatnsganga, en sú fjórða
opnaðist í fjórða vathsganginum,
og þess vegna eru taldar líkur á að
þarna sé um viðbótarvatn að ræða.
Aðfararnótt laugardags átti að
mæla hitann í æðinni, en mælitæki
biluðu og sandur eða svarf er nú
kominn neðst í holuna, þannig að
ekki er enn ljóst hvað úr verður.
Holan verður nú fóðruð niður á um
400 metra dýpi og síðan verður
væntanlega borað nokkru dýpra,
um 50 metrar, þar sem svarf og
önnur óhreinindi geta safnast fyrir
án þess að stífla holuna.
í dag er hitavatnsþörf Akureyrar
um 180 sekúndulítrar, þegar miðað
er við allt sem búið er að tengja,
sem er um 65% af heildarrúmmáli
húsa á Akureyri. Búið er að leggja
hitaveituna í um 75% húsa, miðað
við rúmmál, en fresta hefur þurft
tengingu vegna vatnsskorts. Mun
vænlegar horfir nú í hitaveitumál-
um Akureyringa. Nú þegar er talið,
að hitaveitan spari Akureyringum
rösklega 2 milljarða króna, miðað
við olíukyndingu.
Buðu bænum
Ikarus-vagna
Á fundi bæjarráðs í síðustu viku
var lagt fram bréf frá fyrirtæk-
inu Samafl í Reykjavík, þar sem
Akureyrarbæ er boðið að ganga
inn í tilboð um kaup á Ikarus-
strætisvögnum frá Ungverja-
Fyrsti maí undirbúinn
1. maí nefnd verkalýðsfélag-
anna er nú tekin til starfa og
undirbúningur í fullum gangi.
Stefnt er að því að fara í
kröfugöngu frá Hrísalundi nið-
ur á torg, þar sem haldinn
verður útifundur með ræðum
og söng. Kaffisala verður í Al-
þýðuhúsinu og barnaskemmtun
í Sjálfstæðishúsinu. Samstarfs-
hópur um dagvistunarmál og
Samtök hernámsandstæðinga
verða aðilar að aðgerðunum 1.
mai.
Formaður 1. maí nefndár er
Sigurður Randversson, tré-
smiður, og geta þeir sem áhuga
hafa á að starfa að undirbún-
ingnum haftsamband við hann.
Þegar vorar fara starfsmenn bæjarins á stúfana og gera við
þær götur sem hafa skemmst um veturinn. Þeir brugðu ekki
út af þeim vana sínum í vor, en myndina tók áþ af þcim við
vinnu sína í Skipagötu fyrir fáum dögum. Enn er eftir að
gera við göt í malbikinu og eru ökumenn hvattir tii að fara
varlcga því illa farnar götur geta verið stórhættulegar'
Bflstjórar neita að aka
um Öldubrjótinn á Siglufirði
landi, sem gert var Innkaupa-
stofnun Reykjavíkur.
Bæjarráð taldi ekki tímabært að
taka ákvörðun um kaup strætis-
vagna vegna endurskoðunar stræt-
isvagnaaksturs á Akureyri, en fól
bæjarstjóra að fylgjast með fram-
vindu málsins.
Ýmsir skipstjórnarmenn hafa nú
neitað að leggja skipum að
Öldubrjótnum á Siglufirði og
bílstjórar í bænum hafa neitað
að aka um hann, þrátt fyrir að
bráðabirgðalagfæringar hafi átt
sér stað nú nýverið. Vegna þessa
hefur hafnarnefnd samþykkt að
loka Öldubrjótnum, nema til
olíuuppskipunar og lýsisútskip-
unar. Jafnframt á að setja upp
skilti sem bannar alla umferð
um hann.
Hafnarnefnd Siglufjarðar hefur
beint þeim tilmælum til Vita- og
hafnarmálastjóra, að nú þegar
verði lögð drög að varanlegum úr-
bótum brjótsins og óskaði þess að
verkfræðingur Vita- og hafnar-
málastofnunar komi norður til
Siglufjarðar til skrafs og ráðagerða.
Þar sem búið er að loka Öldu-
brjótnum verður t.d. öll útskipun á
mjöli að fara fram um Hafnar-
bryggjuna og umferð vegna hennar
fer um bæinn. Athafnasvæiji á
Hafnarbryggjunni er tæplega nógu
stórt til að anna umferð á méstu
álagstímum.
Að sögn Boga Sigurbjörnssonar,
fréttaritara Dags á Siglufirði, er
það hugmynd bæjarstjórnarmanna
á Siglufirði að ekkert verði átt við
Öldubrjótinn fyrr en heildarskipu-
lag hafnarmála liggur fyrir. „At-
hafnasvæðið á Hafnarbryggjunni
er alltof lítið. Til þessa hefur þetta
bjargast þar sem Öldubrjóturinn
hefur verið notaður líka.“
Á Öldubrjótnum er stálþil sem er
nú að brenna í sundur með þeim
afleiðingum að sandurinn rennur
út i höfnina. Fyrir skömmu var
verið að skipa út og minnstu mun-
aði að yrði stórslys þegar ein vöru-
bifreiðin datt niður úr þekjunni.
Eftir þetía óhapp neituðu vörubif-
reiðastjórar að aka um bryggjuna.
Mikil fjölbreytni
á Húnavöku
Sumarmála-
skemmtun
Kvenfélögin í Öngulsstaðahreppi
efna til síðdegisskemmtunar á
sumardaginn fyrsta, kl. 14.30 að
Freyvangi. Tilgangurinn með
þessari skemmtisamkomu, er
bæði að fagna sumarkomu en
einnig er fyrirhugað að allur
ágóði af skemmtuninni renni til
byggingar endurhæfingarstöðvar
Sjálfsbjargar á Akureyri. Þarna
verður ýmislegt til fróðleiks og
skemmtunar. Ávarp flytur Edda
Eiríksdóttir, skólastjóri, Halla
Árnadóttir syngur einsöng við
undirleik Þórdísar Guðmunds-
dóttur.Ungmenni úr Hrafnagils-
skóla sýna Diskódans og ungt
fólk af Akureyri sýnir tísku-
fatnað. Einnig er boðið upp á
veislukaffi með heimabökuðum
kökum.
Húnavaka, hin árlega skemmti-
og fræðsluvaka Ungmennasam-
bands Austur-Húnvetninga
hófst að þessu sinni í dag
þriðjudaginn 22. apríl, og stend-
ur til sunnudags. Fjölbreytt efni
verður að vanda á Vökunm og
mikið um að vera. Leikritið
Skáld-Rósa verður sýnt fjórum
sinnum, barna- og unglinga-
skemmtanir verða tvisvar, guðs-
þjónusta verður á sumardaginn
fyrsta, Húsbændavaka á föstu-
Naglabyssuskot-
um stolið
Um síðustu helgi var stolið 300
naglabyssuskotum úr nýbyggingu
á sundlaugartúninu. Þetta eru
mjög hættuleg skot og því full
ástæða til að aðvara foreldra og
umráðamenn barna, ef þeir verða
varir við skotin í fórum barnanna.
Þeir sem geta gefið einhverjar
upplýsingar um málið eru vin-
dagskvöld, tvær myndlistarsýn-
ingar verða um Húnavöku, fjórir
þekktir söngvarar koma úr
Reykjavík og skemmta og sýnd-
ar verða nokkrar kvikmyndir. Þá
dunar dansinn i fjögur kvöld og
um miðjan dag á sumardaginn
fyrsta verður dansleikur, sér-
staklega ætlaður börnum innan
við 12 ára aldur, en öllum er þó
heimill ókeypis aðgangur og
foreldrar eru hvattir til þess að
mæta með börnum sínum.
samlegast beðnir um að snúa sér
nú þegar til lögreglunnar.
Vilja veiða
eftir 1. maí
Á fundi sem Útvegsmannafé-
lag Norðurlands hélt á Akur-
eyri á sunnudag var sam-
þykkt ályktun, þar sem þeim
tilmælum er beint til sjávar-
útvegsráðherra, að veiðar
með þorskanetum fyrir
Norðurlandi verði ekki
stöðvaðar 1. maí n.k.
Fundurinn bendir á, að afla-
brögð báta í fjórðungnum hafi
verið mjög léleg það sem af er
vertíðinni, eða 200 lestir á hvern
bát að meðaltali, og útgerðirnar
því engan veginn færar um að
mæta takmörkunum.
, ,F jórveldakeppn-
inni“ frestað
Svokallaðri „Fjórveldakeppni í
bridge sem fram átti að fara hér á
Akureyri 18. og J 9. apríl var frestað
af óviðráðanlegum orsökum til 9.
og 10. maí Fjögur félög taka þátt í
keppni þessari auk unglingasveita.
Frá ritstjórn
Dags
Þar sem sumardaginn fyrsta ber
upp á fimmtudag kemur Dagur
ekki út þann dag. Hins vegar
kemur Helgar-DAGUR út í ann-
að sinn á föstudaginn. Dagur
kemur út n.k. þriðjudag og eru
auglýsendur minntir á að skila
handritum fyrir klukkan 19 á
mánudag.