Dagur - 20.05.1980, Blaðsíða 6

Dagur - 20.05.1980, Blaðsíða 6
Kiwanisklúbburinn Kaldbakur almennur fundur í félags- heimilinu að Gránufélags- götu 49, fimmtudaginn 22. maí kl. 19.15. Ath. breyttan fundarstað. Stjórnin. Lionsklúbburinn Huginn. — Fundur fimmtudag 22. maí kl. 12.15 áHótelK.E.A. Frá Ferðafélagi Akureyrar. 24.-26. maí. Hvítasunnuferð ■ Herðubreiðarlindir. Brott- för úr Skipagötu 12 kl. 8.00 Hvítasunnuferð í Lamba. Brottför úr Skipagötu 12 kl. 10.00 1. júní. Náttfaravíkur. Ekið verður að Björgum í Kinn og helst alveg út að bjargi. Gengið þaðan 1 Náttfaravíkur og til baka. Þetta er um 6 tíma gangur, og brattalítið en urð er á kafla. Brottför úr Skipagötu 12 kl. 8.00 7. júní. Skagi. Ekið um Varmahlíð til Sauðárkróks og þaðan fyrir Skaga að Blönduósi. Á heimleið verður komið við í Víðimýrarkirkju. Brottför úr Skipagötu 12 kl. 8.00. Kom- ið verður heim kl. 22.00. Næstu viku verður skrifstof- an opin mánudag og fimmtudagkl. 18.00-19.00. Spilakvöld verður hjá Sjálfs- björg í Alþýðuhúsinu fimmtudaginn 22. maí kl. 20.30 Allir velkomnir. Nefndin. Plöntusala Plöntusala Skógræktar ríkisins í Vaglaskógi er hafin. Að venju er til sölu fjölbreytt úrval trjáa og runna. Að sögn ísleifs Sumar- liðasonar, skógarvarðar, er nú til mikið af Alaskaösp, en annars- staðar mun lítið vera til af henni. Einnig eru til stærri tré af lerki og hvítgreni. ísleifur gat þess að hjólhýsaeigendur væru vinsam- lega beðnir að koma ekki með hjólhýsin í Vaglaskóg fyrr en eftir 10. júní. Akureyrarkirkja messað á Hvítasunnudag kl. 11 f.h. (ath. breyttan messutíma) Sálmar nr. 171, 174, 177, 504. Sóknarprestar. Akureyrarprestakall: Hvíta- sunnudagur: Messað á Fjórðungssjúkrahúsinu kl. 10 f.h. B.S. Hátíðarguðs- þjónusta í Lögmannshlíðar- kirkju kl. 2 e.h. Sálmar: 248-241-238-240. Bílferð verður úr Glerárhverfi kl. 1.30. Messað verður að Dvalarheimilinu Hlíð kl. 4.30. B.S. möMiw Sjónarhæð. Almenn samkoma n.k. sunnudag kl. 17.00. Biblíulestur á fimmtudag kl. 20.30. Verið velkomin. Hjálpræðisherinn Hvítasunnu- dagur kl. 13.30 sunnudaga- skóli fyrir börn. Kl. 20.30 hátíðarsamkoma þar sem verður m.a. hermanna- vígsla. 2. hvítasunnudag kl. 11 f.h. helgunarsamkoma. Deildarstjórinn kapteinn Daníel Óskarsson og frú ásamt herfólki og ungling- um frá Reykjavík og Akur- eyri munu stjórna, tala og syngja. Allir velkomnir. Fíladelfía Lundargötu 12. Fimmtudag 22. samkoma kl. 8.30. Laugardag 24. safnað- arsamkoma kl. 8.30. Hvíta- sunnudag skirnarsamkoma kl. 8.30. Allir velkomnir. Brúðhjón: Hinn 8. maí voru gefin saman í hjónaband í Akureyrarkirkju Soffía Guðrún Ragnarsdóttir hús- móðir og Steindór Haukur Sigurðsson sjómaður. Heimili þeirra verður að Ásgarði Hauganesi. LHDBtrilNCAIÍ í síðasta tölublaði misritaðist símanúmer í auglýsingu á verslun í miðbænum og eru hlutaðeigandi aðilar beðnir velvirðingar á þessum mis- tökum og er auglýsingin birt rétt í þessu blaði. M öðru vallakl aust urspres t akal 1. Hátíðarmessa á Möðruvöll- um n.k. sunnudag, hvíta- sunnudag kl. 13.30. Ferm- ing: Þessi börn verða fermd. Dóra Bryndís Hauksdóttir, Þrihyrningi, Hanna Rósa Sveinsdóttir, Syðri-Reistará, Jónína Sverrisdóttir Skriðu, Níels Pétur Jósefsson Þrast- arhóli, Pétur Karlsson Grjótgarði, Sverrir Jóhann- esson Hjalteyri, Valgerður Brynjólfsdóttir Hjalteyri og Þórgunnur Stefánsdóttir Hlöðum. Sóknarprestur. Fermingarbörn í Laugalands- prestakalli: Grund á hvítasunnudag, 25. maí, kl. 12.00 Gunnhildur Helgadóttir, Glerárgötu 18, Akureyri, Guðrún Haralds- dóttir, Víðigerði, Laufey Haraldsdóttir, Víðigerði, Valgerður Anna Jónsdóttir, Espihóli, Ingvar Guðni Brynjólfsson, Reykhúsum 1 og Þröstur Heiðar Guðmundsson, Kristnes- hæli 13. Munkaþverá annan í hvíta- sunnu, kl. 12.00 Hrönn Vignisdóttir, Munkaþverár- stræti 18, Akureyri, Kolbrún Sigurgeirsdóttir, Staðarhóli, Finnur Aðalbj örnsson, Laugarholti og Gunnar Jónsson, Hömrum. Kaupangur sunnudaginn 15. júní, kl. 11.00. Gunnar Eg- ilsson, Syðri-Varðgjá og Þórður Friðriksson, Brekku. Ferming í Grenivíkurkirkju á Hvítasunnudag kl. 13.30. Fermdar verða Arna Gunn- arsdóttir Ægissíðu, Friðrika Ásmundsdóttir Höfða, Jór- laug Guðrún Heimisdóttir Gimli, Laufey Svavarsdóttir Borg, Sigríður Soffía Ás- geirsdóttir Stórasvæði 4. Ásgeir Halldórsson, Hjarðar- lundi 4, Hermann Björn Árnason, Hjarðarlundi 6, Arnarsson Björgvin Finns- son, Tjarnarlundi 18 b, hafa gefið Dvalarheimilinu Hlíð ágóða af hlutaveltu kr. 58.700,- Þessir heiðursmenn hafa áður gefið Hlíð gjafir og eru þeim færðar bestu þakkir fyrir dugnaðinn og hugulsemina. Forstöðu- maður. AÐALFUNDUR Kaupfélags Eyfirðinga veróur haldinn í Samkomuhúsi bæjarins föstudaginn 30. og laugardaginn 31. maí 1980. Fundurinn hefst kl. 10.00 árdegis föstudaginn 30. maí. DAGSKRA: 1. Rannsókn kjörbréfa og kosning starfsmanna fundarins. 2. Skýrsla stjórnarinnar. 3. Skýrsla kaupfélagsstjóra - Reikningar félagsins - Umsögn endurskoðenda. 4. Afgreiðsla reikninga og eftirstöóvar innlendra afurðareikn. 5. Skýrsla stjórnar Menningarsjóðs. 6. Sérmál aðalfundar. 7. Erindi deilda. 8. Önnurmál. 9. Kosningar. Akureyri, 19. maí 1980, Stjórn Kaupfélags Eyfirðínga. Litli sonur okkar og bróðir STEFÁN ÖRN HAUKSSON, Stórholtl 11, Akureyri, sem andaðist laugardaginn 17. maí verður jarðsunginn í Akur- eyrarkirkju þriðjudaginn 27. maí kl. 4 e.h. Haukur Hannesson, Elfa Stefánsdóttir, Ágústa Berglind Hauksdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför SVEINS FRIÐBJÖRNSSONAR Efstakoti Dalvík Pálína Friðbjörnsdóttir og systrabörn. Hugheilar þakkir fyrir veitta vinarhlýju á sextíu ára afmæli mínu þann 8. maí s.l. — heillaskeyti, gjafir, blómakveðjur og símaviðtöl. Sérstakar þakkir færi ég forstöðukonu og starfsstúlkum Sjúkrahótels R.K.Í. Reykjavík fyrir gullfallega gjöf ánœgjulega samverustund í völdu veilsuboði og alla alúð. Söngfélaginu Gígjunni á Akureyri sendi ég og sérstakar kveðjur og þakkir fyrir fagra blómagjöf Megi blessuð vorsólin verma ykkur öll. JÓRUNN ÓLAFSDÓTTIR frá Sörlastöðum AÐALFUNDUR Mjólkursamlags KEA verður haldinn í Samkomu- húsinu á Akureyri, miðvikudaginn 28. maí 1980. Fundurinn hefst kl. 13.00 en hádegisverður er framreiddur fyrir fundarmenn á Hótel KEA kl. 11.30. DAGSKRÁ: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnurmál. STJÓRNIN. Ék IfV IDK?VD Jft oD yCD #%«%,Em » mSÞJHEm 1 % Hitaveita Akureyrar óskar eftir starfskrafti til sumarvinnu á skrifstofu. Upplýsingar veitir Ingi Þór Jóhannsson á skrifstofu Hitaveitunnar í síma 22105 og 22106 fyrir hádegi. Umsóknir er greini aldur og fyrri störf skulu berast fyrir 28. maí 1980. Hitaveita Akureyrar TILKYNNING UM AÐSTÖÐUGJALD Á AKUREYRI Samkvæmt heimild í V. kafla laga nr. 8/1972, um tekjustofna sveitarfélaga með síðari breytingum, samanber reglugerð nr. 81/1962 um aðstöðugjald, verður innheimt aðstöðugjald í sveitarfélaginu á árinu 1980 samkvæmt eftirfarandi gjaldstiga: 0,33% — Af rekstri fiskiskipa og flugvéla. 0,65% — Af rekstri verslunarskipa og af fiskiðnaði. 1,00% — Af hvers konar iðnaðarrekstri öðrum. 1,30% — Af öðrum atvinnurekstri. Skattstjóri Norðurlandsumdæmis eystra. 6.DAGUR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.