Dagur - 19.06.1980, Síða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
DAGUR
LXIII. árgangur. Akureyri, fimmtudagur 19. júní 1980
43. tölublað
ttmui m^4a'ic\a 1 papP'*
NLMUHOgyKM
Dr. Krístján Eldjárn, forseti íslands, og Þórhallur Höskuldsson, sóknarprestur, ganga í Möðruvallakirkju. Mynd: h.s.
100. starfsári M.A. lokið
Afmælishátíð Menntaskólans á Akureyri hófst með minningarhátíð
í kirkjunni á Möðruvöllum sl. sunnudag. Það var Kristján Eldjárn,
forseti íslands, sem ávarpaði fyrst samkomuna, en síðan var helgi-
stund í umsjá sr. Þórhalls Höskuldssonar, sóknarprests á Möðru-
völlum. Steindór Steindórsson, fyrrum skólameistari flutti hátíðar-
ræðu.
Fjölmargir komu til hátíðarinnar
að Möðruvöllum og hið sarna má
segja um skólaslit M.A. í íþrótta-
skemmunni á Oddeyri. í tilefni 100
ára afmælishátíðar M.A. var einnig
málverkasýning í Möðruvallakjall-
ara og á mánudag var skáli skólans
í Vaðlaheiði opinn og til sýnis. Um
kvöldið sama dag var hátíðarveisla
í salarkynnum heimavistar
Menntaskólans.
Skólaslit M.A. voru hin hátíð-
legustu. í upphafi flutti blásara-
kvartett verk eftir Rossini, fjölmörg
ávörp voru flutt og skólinn fékk
góðar gjafir frá ýmsum velunnur-
um.
Þess má geta að í hátiðarveislu
skólans sl. mánudagskvöld voru
forseti íslands, menntamálaráð-
herra og 6 gamlir starfsmenn skól-
Síðastliðinn mánudag afhentu
hjónin Arngrímur Ingimundar-
son, kaupmaður í Reykjavík og
kona hans Bergþóra Jóhannes-
dóttir Siglufjarðarbæ málverka-
safn til eignar. Afhending verk-
anna fór fram við hátíðlega at-
höfn í ráðhúsi kaupstaðarins, en
þar er þeim ætlaður staður.
anssæmdirgullmerkjum M.A. Þeir
eru Steindór Steindórsson fyrrv.
skólameistari, Hermann Stefáns-
son íþróttakennari, Hulda Stefáns-
dóttir, elsti núlifandi kennari skól-
ans, Margrét Eiríksdóttir, ekkja
Þórarins Björnssonar fyrrum
skólameistara, Brynjólfur Sveins-
son, kennari við skólann í yfir 40 ár,
og Árni Friðgeirsson gjaldkeri
M.A.
Þau hjónin hafa um áratugaskeið
safnað saman miklu úrvali mál-
verka eftir ýmsa höfunda. Að mati
listfróðra manna er safnið eitt það
vandaðasta og fjölbreyttasta, sem
er í einkaeign hér á landi. í safninu
eru um 120 verk eftir 70 höfunda.
Safnið verður opið almenningi til
sýnis frá kl. 20 til 22 hvern virkan
dag og frá kl. 14 til 18 um helgar.
Viðburður í norðlensku íþróttalífi:
Katalónski leikhópurinn Els
Comediants vakti almenna hrifn-
ingu á Húsavík, en þar skemmti
hópurinn á 17. júní. Leikararnir
dönsuðu með fólki á götum Húsa-
víkur í skrúðgöngunni og á sjálfum
hátíðarhöldunum. Um kvöldið
komu leikararnir óvænt frarn á
unglingadansleiknum og leiddu
dansgestina niður á bryggju og aft-
ur í danshúsið. Spánverjarnir
skemmtái Skemmunni á Akureyri
annað kvöld. Aðeins verður þessi
eina sýning. Forsala aðgöngumiða
er í Bókabúð Jónasar.
Nýja mjólkurstöðin vígð í dag
Þrír lands-
leikir eru
fyrirhugaðir
Grænlendingar leika landsleiki í fyrsta skipti
I dag klukkan 15 var hin nýja
mjólkurstöö Mjólkursamlags
KEA vígð. Það var forseti ís-
lands, dr. Kristján Eldjárn, sem
vígði stöðina. Þar hefur öll
mjólkurvinnsla Mjólkursam-
lagsins farið fram um nokkurt
skeið, nema mysuostagerð, sem
líklega verður flutt þangað á ár-
inu. Ostagerð var prófuð 4. des-
ember í fyrra, fyrsta smjörið var
strokkað 29. janúar, framlciðsla
neyslumjólkur hófst 21. apríl og
skyrgerð 29. apríl s.l. Nýja
mjólkurstöðin er mjög fullkom-
in og önnur stærsta mjólkurstöð
á landinu.
Mjólkursamlag KEA er elsta
mjólkursamlagið á landinu, stofn-
að 4. september 1927 og tók til
starfa 6. mars 1928 í gömlu slátur-
húsi í Grófargili, sem hafði verið
endurbyggt. Húsrýmið sem vinnsl-
an hafði til umráða var 351 fer-
metri. Samanlagður gólfflötur
nýju stöðvarinnar er 7533 m2 og þar
af eru kaldar geymslur 1118 m2.
Rúmmál hússins er rösklega 37
þúsund rúmmetrar. Skrifstofu- og
starfsmannahús, sem lokið verður
við síðar, verður 764 m2 á tveimur
hæðum og 2731 m’.
Sjá ágrip af framkvæmdasögu
mjólkursamlagsins í opnu.
Um mánaðamótin verða þrír
landsleikir á Norðurlandi. Það
eru knattspyrnulið Færeyja og
Grænlands sem koma til lands-
ins og munu lið þessara þjóða
leika gegn íslendingum á Akur-
eyri og Húsavík, auk þess sem
Færeyingar leika gegn Græn-
lendingum á Sauðárkróki. Þess-
ir landsleikir eru þeir fyrstu, sem
fara fram norðanlands og jafn-
framt fyrstu A-landsleikir ís-
lands sem leiknir eru utan
Reykjavíkur. Mikið undir-
búningsstarf varð að vinna
vegna landsleikjanna, en nefnd
sú sem annaðist framkvæmd
keppninnar er skipuð þeim
Rafni Hjaltalín, Helga Daníels-
Els Comedi-
ants á Húsavík
og á Akureyri
syni og Helga Þorvaldssyni. Það
er óhætt að segja að þessir leikir
marki tímamót í íþróttasögu
Norðurlands.
Það kom fram á fundi sem hald-
inn var um sl. helgi að nauðsynlegt
er að fá 3500 til 4000 áhorfendur á
alla leikana svo K.S.Í. beri ekki
fjárhagslegan skaða af fyrirtækinu.
Ráðamenn fyrirtækja á Akureyri
og víðar, bæjarstjórnir og félaga-
samtök munu taka á móti erlendu
gestunum og létta þannig K.S.l.
róðurinn. Keppt verður um bikar
sem Fjórðungssamband Norðlend-
inga gaf til keppninnar. Vinnst
hann til eignar.
Grænlendingar virðast leggja
mikið upp úr þessum leikjum, sem
munu vera fyrstu landsleikirnir
sem þeir leika. Ákveðið er að hing-
að til lands komi útvarpsmaður
með grænlenska hópnum, en út-
varpsmaðurinn á að lýsa leikjunum
beint til hlustenda á Grænlandi.
Kostnaður við þetta fyritæki er
sagður vera á bilinu 30 til 40 þús-
und danskar krónur. Auk lands-
leikjanna munu Grænlendingarnir
leika við lið Magna frá Grenivík
sunnudaginn 6. júlí.
íslenska landsliðið mun leika við
Færeyinga á Akureyri mánudaginn
30. júní, við Grænlendinga föstu-
daginn 4. júlí á Húsavík, en Fær-
eyingar og Grænlendingar munu
leika á Sauðárkróki miðvikudaginn
2. júlí.
Fjögur útköll
hjá slökkviliði
Húsavíkur
Á síðasta ári voru 4 útköll hjá
slökkviliði Húsavíkur, þar af voru
3 æfingar og 1 útkall að Vöku-
holti, veiðiheimilinu á Laxamýri.
Slökkviliðið fékk til umráða nýj-
an bíl á síðasta ári. í bílinn voru
settar slöngur, samtals um 500
metrar að lengd, auk reykköfun-
artækja, lausrar dælu og annars
búnaðar sem nauðsynlegur er.
Skeljungur vill
byggja
Olíufélagið Skeljungur hefur
óskað eftir lóð undir svartolíu-
geymi á Siglufirði. Óskað er eftir
um 1.200 fermetra lóð undir
geymi, sem yrði um 880 rúm-
metrar á stærð. Hafnarnefnd
Siglufjarðar hefur fyrir sitt leyti
samþykkt erindi félagsins, með
því skilyrði þó að olíufélögin
standi öll saman að byggingu
svartolíugeymisins.
Húnavaka
Húnavaka, tuttugasti árgangur,
er komin út. í formála ritsins er
stutt yfirlit yfir það efni, sem birst
hefur í Húnavöku og þar kemur
glöggt í ljós að í ritinu er að finna
gagnmerkar heimildir um lífið í
Húnaþingi sl. 20 ár og raunar
miklu lengri tíma.
Hafnar-
framkvæmdir
Á þessu ári er áformað að vinna
að framkvæmdum við Húsavík-
urhöfn fyrir 68,4 milljónir króna
sem skiptist þannig: til dýpkunar
fara 44,0 milljónir. til grjótnáms
og undirbúningsframkvæmda við
ytri hafnarframkvæmdir fara 20
milljónir og til skipulagsmála og
frágangs á hafnaruppfyllingu 4,4
milljónir. Vonir standa til að á
næsta ári liggi fyrir nægjanlegar
upplýsingar, svo að framkvæmdir
geti hafist við ytri hafnarmann-
virkin og hefur þegar verið sótt
um fjármagn á fjárlögum ársins
1981 til þeirra framkvæmda.