Dagur - 19.06.1980, Blaðsíða 4

Dagur - 19.06.1980, Blaðsíða 4
Útgefandi: ÚTGAFUFÉLAG DAGS Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207 Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaöamaður: ÁSKELL ÞÓRISSON Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Ávarp forseta íslands á 100 ára afmæli M.A. Menntaskólinn á Akureyri er 100 ára um þessar mundir. í ávarpi sem forseti (s- lands, dr. Kristján Eldjárn, flutti á minn- ingarhátíð í Möðruvallakirkju í Hörgárdal 15. júní sagði hann meðal annars: „Saga Möðruvallaskóla, sem síðar nefndist Gagnfræðaskólinn á Akureyri og loks með nýrri réttarstöðu Menntaskólinn á Akureyri, varð ekki ýkja löng á þessum stað, en nógu löng til þess að staður og skóli næðu að setja svip hvor á annan, og nógu löng til þess að hér hlyti skólinn sína eldskírn, festi rætur í norðlenskri mold, sannaði tilverurétt sinn sem mennta- stofnun og áhrifamátt sinn til blessunar fyrir Norðurland og raunar landið allt. Það var hér sem skólinn stóðst það próf hvort honum yrði þess lífs auðið sem forvígis- menn hans vonuðu en sumir voru vantrú- aðir á. Eftir að þessi frumraun var yfir- stigin varð það Ijóst svo að engum fékk dulist, að með tilkomu skólans hafði Norðurland stækkað, það hafði risið og endurheimt í nýrri mynd þann metnað sem lægður hafði verið þegar hinn gamli Hólaskóli var lagður niður um aldamótin 1800. Þess vegna eru fyrir því góð og gild rök að nú á minningarári sé staldrað við í annríki daganna og þeirra manna minnst sem hér leiddu gott mál fram til sigurs, og þeirra sem síðan fylgdu þeim sigri eftir með þeirri reisn sem ætíð hefur verið í heila öld. Þeir sem stjórnuðu skóianum hér á Möðruvöllum voru eins konar land- námsmenn, þeir þurftu að kynna sér vandlega allar aðstæður, íhuga þær og finna sér búskaparform, eins og allir landnámsmenn gera, þeir voru braut- ryðjendur sem veginn mörkuðu og ruddu þá braut sem síðan hefur verið farin af kennifeðrum allra þeirra mörgu, sem fram á þennan dag hafa átt því láni að fagna að stunda nám í hinum norðlenska skóla. Ég tala hér sem einn úr þeim hópi. Ég sagði, að saga Möðruvalla í Hörgár- dal væri litrík. Saga skólans er það einnig. Ef til vill á það við um alla skóla, öðrum stofnunum fremur. Má vera að það liggi í hlutarins eðli. Skóli vor er að vísu einn og samur frá öndverðu, í senn gamall en þó alltaf nýr. Ef til vill liggur einnig það í hlutarins eðli. Hann er nýr af því að hann hlýtur ávallt að leitast við að svara þeim breyttu kröfum sem til hans eru gerðar á hverri tíð. Hann er nýr af því að á hverju ári koma nýir og nýir hópar æskumanna til að fylla bekki hans. En skólinn er meira en glæstar bygg- ingar, gamlar og nýjar, og þeir menn sem nú sinna þar sínum daglegu önnum, skólameistari, kennarar og nemendur. Hann er einnig í huga og minningum þeirra mörgu, sem enn eru lífs og eitt sinn voru þar nemendur. Áhrif hans lifa með einhverjum hætti í gerð sjálfra vor, hvort sem vér gerum oss þess skýra grein eða ekki, og þau birtast í verkum vorum og samskiptum við aðra menn. Sú er trú mín, að þeir sem nú ráða ríkjum í Menntaskól- anum á Akureyri muni verða þess varir á þessum tímamótum, og það svo um mun- ar, að skóli þeirra, skóli vor allra, með sínar traustu gömlu rætur í norðlenskri mold, á sér einnig lifandi frjókorn í þakk- látum huga fjölmargra þeirra sem telja sig hafa átt hamingju- og heillaríka æsku- daga innan veggja hans.“ Mjólkursamlag KEA: Mnirpeniiyar mena vixoi i Ávarp til nýstúdenta Kæru nýstúdentar Göngu ykkar er lokið í þessum gamla skóla, gamla skólanum ykkar. Þið eruð prúður hópur, þið eigið, gleði og þor og þrótt og mörg ykkar hafa unnið skólanum vel, en mörgu er þó ólokið. Nú er komið að kveðjustund. Það er oft sárt að kveðjast, en af sársaukan- um vitum við að við lifum. Jónas Hallgrímsson gat orðað þetta svo vel. Hann sá þetta með augum skáldsins, sem sjá hina sömu hluti og við en þó á annan hátt, raunar sjá þau hlutina með öðrum aug- um og í nýju ljósi og með því kenna skáld okkur ný fræði. í einu af eftirminnilegustu ljóðum sínum segir Jónas: „En heldur vil ég kenna til og lifa, og þó að nokkurt andstreymi ég bíði.“ Þar sem gestir við skólaslitin voru óvenju margir var brugðið á það ráð að slíta Menntaskólanum i lþrótta- skemmunni. Mynd: h.s. Úr skólaslitaræðu Tryggva Gíslasonar: ,Að efla mannvirðingu, góðan vilja og samstarf ‘ „Að kenna til og lifa. “ Ekki er ég að óska ykkur and- streymis í lífinu, en of mikið meðlæti getur skemmt okkur öll, því „það þarf sterk bein til að þola góða daga.“ Eitt sinn átti raunar sú kenning franska heimspekingsins og stjórnfræðingsins Montesquieus mikil ítök í þjóðum Evrópu að áhrif loftlags og landsgæða á skapferli fólks réði úrslitum um velgengni þjóðanna. I anda þess- arar kenningar Montesquieus orti Bjarni amtmaðurá Möðruvöllum í Hörgárdal sum nafntoguðustu kvæði sín, svo sem kvæðið ísland, þar sem segir: Fjör kenni’ oss eldurinn, frostið oss herði fjöll sýni torsóttum gæðum aö ná bægi sem kerúb með sveipanda sverði silfurblár Ægir oss kveifarskap frá. Ég vil ekki vera í hópi þeirra manna, sem stunda svartagalls- raus og telja, að allt hefði annan róm, áður í páfadóm, öllu fari aftur og heimur versnandi. Hvorttveggja er, að ég hef aldrei haft þessa trú og hitt, að reynsla ' mín hefur kennt mér hið gagn- stæða. Að vísu blandast þessi trú mín nokkurri bjartsýni, sem ég hef lengi ausið af, og allir vita, að við sjáum aðeins það sem við viljum sjá. En ég vona, kæru ný- stúdentar, að þið með lífi ykkar og starfi eigið eftir að auka mörgum bjartsýni og ég vona, að Menntaskólinn á Akureyri hafi með starfi sínu sáð til hinna þriggja fornu dygða í sálu ykkar: vísdóms, hreysti og sjálfsaga. Að svo mæltu kveð ég ykkur og óska ykkur gæfu og gengis á vegferð ykkar. Menntaskólanum á Akureyri er slitið í hundraðasta sinn. í ræðu sinni við skólaslit Menntaskólans á Akureyri 17. júní rakti Tryggvi Gíslason, skólameistari, sögu norðlenska skólans. Hann sagði m.a., að raunar tryðu menn því enn, eins og menn hafi gert fyrir 100 árum, að Möðruvallaskóli væri Hóla- skóli endurreistur. Rakti hann sögu Hólaskólans og sagði síðan: „En því er á þetta minnst nú, að Menntaskólinn á Akureyri vill viðhalda fornri hefð og rækja gamla menningu þjóðarinnar jafnframt því sem hann vill koma til móts við nýjar og breyttar þarfir i menningu og menntun þjóðarinnar. Þetta tvennt vill skólinn reyna að sameina, hið gamla og hið nýja, fornar dygðir og ný viðhorf. Stundum hefur verið sagt, að Menntaskólinn á Akureyri legði sérstaka rækt við tvennt: íslenska tungu eða nátt- úruvísindi nema hvort tveggja væri.“ Skólameistari fór síðan nokkr- um orðum um baráttu Eyfirðinga fyrir endurreisn hins norðlenska skóla, ræddi um skólameistara hans frá upphafi, en þeir eru Jón A. Hjaltalín, Stefán Stefánsson, Sigurður Guðmundsson, Þórar- inn Björnsson og Steindór Stein- dórsson. Síðan sagði Tryggvi: „Ef litið er til þessara eitt hundrað ára, þykist ég geta leyft mér að segja, að skólinn hefur verið lánsamur af því hversu margir mætir menn hafa til hans ráðist, og þótt segja megi, að skólinn hafi herst bæði í eldi og frosti, eins og íslensk þjóð, hefur hann lifað af og borið margan fagran ávöxt. En orð mega sín lítils og þótt orð sé til alls fyrst, verður það starfið og hin daglega vinna, sem árangur ber, vinnan sem með sanni má kallast guðs gJöf- Frá fyrstu tíð hefur við hinn norðlenska skóla verið leitast við að efla mannvirðingu, góðan vilja og samstarf.” Undir lok ræðu sinnar sagði Tryggvi Gíslason, skólameistari: „Ég held því að skólinn, skóla- meistarar hans og kennarar hafi allir leitast við að gera Mennta- skólann á Akureyri að góðum skóla og kenna nemendum að virða hinar þrjár ævafornu dyggðir mannsins: vísdóm, hreysti og sjálfsaga. Persónuleg sam- skipti manna urðu einnig snemma mikil í þessum skóla, og það er trú mín og von, að með því að þekkja sjálfan sig og þekkja aðra, getum við þokað á veg skilningi fólks á gildi kærleikans, sem er ofar öllu öðru.“ Hæstu einkunnir í M.A. 1979/1980 Hœsta stúdentseinkunn: Árni Sveinn Sigurðsson.................. 9,01. 3. bekkur Ásrún Ýr Kristmundsdóttir.............................. 8,9 4. bekkur máladeild Selma Hauksdóttir ........................... 9,2 4. bekkur félagsfrœðideild Kristín Sóley Sigursveinsdóttir ...... 7,7 4. bekkur stœrðfrœðideild Ágúst Ómar Ágústsson .................. 8,5 Freygarður Þorsteinsson.................. 8,5 5. bekkur máladeild Erlendur Steinþórsson........................ 8,6 5. bekkur félagsfrœðideild Ármann Sigurðsson..................... 8,1 5. bekkur náttúrufrœðideild Álma Möller ......................... 9,0 5. bekkur eðlisfrœðideild Sólveig Ingólfsdóttir.................. 8,7 6. bekkur máladeild Matthías Ægisson............................. 9,3 6. bekkur félagsfrœðideild Jón Hjaltason ........................ 8,4 6. bckkur náttúrufrœðideild Auður Ingimarsdóttir................. 8,4 6. bekkur eðlisfrœðideild Alexander Kristinn Smárason ........... 9,1 Árni Sveinn Sigurðsson.................... 9,1 6. bekkur verslunardeild Laufey Lena Árnadóttir.................. 7,6 3. bekkur Ásrún Ýr Kristmundsdóttir.............................. 8,9 4. bekkur Selma Hauksdóttir...................................... 9,2 5. bekkur Alma Möller ........................................... 9,0 6. bekkur Matthias Ægisson....................................... 9,3 Tryggvi Gislason, skólameistari, ávarpar gesti við skólaslitin. Mynd: h.s. Agrip af framkvæmdasögu nýju mjólkurstöðvarinnar Gröftur fyrir kjallara nýju mjólkurstöðvarinnar hófst í júní 1965 ásamt up.pbyggingu vega- kerfis á lóðinni. Sumarið 1966 var steyptur upp 1800 m2 kjallari og honum lokað. Þá stöðvuðust fram- kvæmdir af utanaðkomandi ástæðum og lágu niðri þar til í ágúst 1973 að hafist var handa aftur. Áð- ur en vinna hófst að nýju voru allar teikningar endurskoðaðar og að- hæfðar nýrri og enn fullkomnari tækni í mjólkurvinnslunni. Við þessar aðgerðir var húsið einnig stækkað talsvert. Síðan 1974 hefir framkvæmdum verið haldið áfram óslitið, misjafnlega hratt þó eftir því sem fjárhagur og aðrar aðstæð- ur hafa leyft. Nú má heita að framkvæmdum sé lokið, bæði utanhúss og innan og keppt verður að því að frágangi á lóð ljúki fyrri- hluta sumars. Kostnaðarverð mjólkurstöðvar- innar var um síðustu áramót 2.147,0 MKr. og eru þá taldir vextir og gengismunur að upphæð 119,9 MKr. Á síðasta ári var varið til hennar 1.058,5 MKr. og fjárfest- ingar í ár verða u.þ.b. 300 MKr. Framreiknað kostnaðarverð, í samræmi við reglur skattalaga, var umsíðustu áramót 3.696,1 MKr. Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga í samráði við Mjólkursamlagsráð hefir ákveðið að láta gera listaverk, sem sett verður upp á lóð mjólkur- samlagsins norðan aðalhúss. Verk- ið er höggmynd eftir Ragnar Kjartansson, myndlistamann, af mjólkurkú og mjaltakonu að störf- um. Myndin verður steypt í brons og reist að því loknu, en líkan af henni var sýnt við vígslu stöðvar- innar. Hönnun og teikningar bygginga voru unnar af fyrirtækinu Svenska Mejeriernas Rigsförening í Stokk- hólmi, en þegar byggingafram- kvæmdir hófust að nýju 1973 var Teiknistofa Sambandsins fengin til liðs við sænska fyrirtækið. Byggingarstjóri, frá upphafi, hefir verið Gísli Magnússon. Burð- arþolsteikningar gerði Birgir Ágústsson, byggingarverkfræðing- ur. Hann teiknaði einnig aðkomu- leiðir, bílastæði og frárennslislagnir utanhúss. Rafmagnsverkfræðingur var Aðalgeir Pálsson. Hann gerði vinnuteikningar af lýsingu inni og úti. Pétur Valdimarsson, tæknifræð- ingur, gerði vinnuteikningar af lögnum fyrir neysluvatn, hita, gufu og frárennsli innanhúss. Einnig teiknaði hann kerfi fyrir loftræst- ingu og kælingu og hafði eftirlit með lögnum þessum. Trésmíði annaðist Reynir s/f. Trésmíðameistari Ingólfur Jónsson og verkstjóri Guðmundur Valde- marsson. Skipasmíðastöð KEA smíðaði hluta af innréttingum. Múrara- meistari var Hannes Pálmason. Einnig önnuðust múrverk og flísa- lögn Gunnar Óskarsson og Magnús Gíslason. Ljósgjafinn h/f sá um raflagnir. Rafvirkjameistari Ólafur Jónsson. Pípulagningameistari Óskar Ásgeirsson. Málarameistari Stefán Jónsson. Vélsmiðjan Oddi h/f hefir ann- ast framkvæmdir við loftræsti-, kæli- og þrýstiloftsbúnað ásamt gufulögnum og víðari vatnslögn- um. Einnig hefir Oddi annast alla jám- og málmsmíði. Flutning á vélum og geynium úr eldra samlagi, og tengingu þeirra í nýju stöðinni, hafa starfsmenn mjólkursamlagsins annast með hjálp manna frá Odda. Gluggar og málmhurðir >voru smíðaðar hjá verkstæðinu Plast- og stálgluggar á Dalvík og starfsmenn þaðan sáu um uppsetningu. Garðyrkjustjóri Akureyrarbæj- ar, Árni Steinar Jóhannsson, hefir verið til ráðuneytis um ræktun lóð- arinnar og gerir tillögur um plönt- un trjágróðurs. HRÍSALUNDI 5 Weetabix 200 g......................... Kr. 540,- All Bran 285 g......................... Kr 700,- Trix 340 g............................. Kr 585,- Rise Krispies 190 g.................... Kr. 861,- Hafrafras 380 g........................ Kr. 934,- Alpen340g Kr. 1094,- Ónnur deild Þór eina taplausa liðið í annarri deild Á mánudagskvöldið fóru Þórsarar tii Eskifjarðar og léku þar við Austra. Var þetta leikur úr fyrstu umferð Ís- landsmótsins í knattspyrnu sem var frestað þegar Þórs- arar komust ekki austur. Þórsarar unnu þennan leik auðveldlega, en þeir gerðu þrjú mörk gegn einu. Mörk Þórs gerðu Óskar Gunnarsson tvö, og Guðmundur Skarphéðins- son eitt. Þórsarar hafa nú leikið þrjá leiki og unnið þá alla og er eina liðið í deildinni sem ekki hefur tapað stigi. Sigur á síðustu stundu hjá K.A, Á föstudagskvöldið léku í annarri deild í knattspyrnu, KA og Fylkir og fór leikurinn fram í góðu veðri á grasvell- inum. KA byrjaði leikinn af fullum krafti og segja má að þeir hafi haidið stanslausri pressu á Fylkismarkið allan fyrri hálfleikinn. Þrátt fyrir nokkur marktæki- færi, vildi boltinn ekki í netið en markmaður Fylkis stóð sig eins og hetja og stjómaði vörninni af mikilli einurð. Eitt sinn munaði þó aðeins hársbreidd að einn Fylkisleikmaðurinn skoraði sjálfsmark, er hann ætlaði að hreinsa frá marki sínu með miklum tilþrifum, en boltinn fór í öfuga átt og rétt slapp yfir Golf- kennsla Dagana 20. til 30. þ.m. mun Þorvaldur Ás- geirsson golfkennari halda námskeið á Golfvellinum á Akur- eyri. Þar mun hann kenna nýliðum og einnig þeim er lengra eru komnir. Upplýs- ingar um námskeiðin fást í Sport og hljóð- færaversluninni við Ráðhústorg. þverslána. Gunnar Blöndal átti góð skot að markinu, en mark- maðurinn varði vel. Fylkir átti ekkert umtalsvert marktækifæri í fyrri hálfleik. í þeim síðari byrjuðu KA menn vel en smám saman náðu Fylkismenn betra valdi á leiknum, og áttu nokkrar hættulegar skyndisóknir, og nokkrum sinnum skall hurð nærri hælum við KA markið. Þegar rúm mínúta var til leiks- loka braust Gunnar Blöndal upp hægri kantinn af miklu harðfylgi og alveg upp að markinu og skaut hörkuskoti, og að þessu sinni hafði hann heppnina með sér því boltinn kom í einn varnarmann Fylkis og í markið. Þetta var kærkomið mark, og gaf KA mönnum tvö stig úr þessari viðureign og verður það að teljast sanngjarnt eftir gangi leiksins. Elmar Geirsson yljaði áhorfendum með gömlum tökt- um, en Fylkismönnum reyndist ógerlegt að stöðva hann öðru- vísi en að brjóta á mnum, og fannst þeim er þetta skrifar að leikmaður nr. 3 hjá Fylki hefði mátt fara að sjá gula spjaldið eftir margítrekuð brot á Elmari. Dýrfinna Torfadóttir hefur dvalið í Bandaríkjunum í vetur við æfingar. Hún mun verða meðal keppenda í öllum helstu frjálsiþróttamótum sumarsins. Mynd: Ó. Á. Af f rjáls- íþrótta- fólki Frjálsíþróttafólk KA hefur nú hafið keppni og rekur nú hvert stórmótið annað. Oddur Sig- urðsson og Dýrfinna Torfadótt- ir kepptu á 17. júní mótinu í Reykjavík, og margir munu keppa á Reykjavíkurleikunum á fimmtudaginn. Meðal kepp- enda frá KA verða Oddur Sig- urðsson, Hjörtur Gíslason, Að- alsteinn Bernharðsson, Egill Eiðsson og munu þeir keppa í spretthlaupum. Dýrfinna Torfadóttir og Ás- gerður Ólafsdóttir munu keppa í kastgreinum, og það mun Vé- steinn Hafsteinsson einnig gera. Steindór Tryggvason keppir i lengri hlaupum. Þór stöðvar Völsunga! Þór og Völsungur léku í ann- arri deild í knattspyrnu á laugardaginn. Skömmu áður höfðu þessi lið leikið saman í bikarkeppninni, og þá vann Þór eftir þrjár vítaspyrnu- keppnir. Vöslungar skoruðu fyrsta markið í leiknum, en Óskar Gunnarsson jafnaði fyrir Þór skömmu síðar. Hafþór Helga- son tryggði síðan Þór bæði stig- in með góðu marki, og í hálfleik var staðan tvö gegn einu fyrir Þór. Hvorugu liðinu tókst að skora í síðari hálfleik svo tvö- eitt urðu lokatölur leiksins. I Kjörmarkaði KEA Hrísalundi 5 MAARUD kartöfluflögur 100 g pokar Aðe\n s Kr 450,- Matvoeudeild 4.DAGUR DAGUR.5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.