Dagur - 24.06.1980, Síða 5
Þór og K.A. í gærkvölcfi:
ir Thorsteinsson
í
san
1. Að öðrum frambjóðendum
ólöstuðum hefur Pétur Thor-
steinsson mesta reynslu og þekk-
ingu á forsetaembættinu — bæði
af lærdómi og starfi sínu í utan-
ríkisþjónustunni. Hann er gagn-
menntaður og sannur íslendingur
— hógvær og fumlaus maður
óháður stjórnmálaflokkum og því
vel þeim vanda vaxinn að þurfa á
óróleikatímum að kljást við erfið
verkefni sem bíða forseta íslands
nú. Hann er verðugur arftaki nú-
verandi forseta sem treystandi er
til þess að taka af festu en fyrir-
hyggju á erfiðum stjórnarmynd-
unum. Þær hafa verið erfiðar og
ekki útlit fyrir að úr rætist.
Nauðsynlegt er að forsetinn hafi
til að bera reynslu og þekkingu á
þjóðmálum og stjórnmálamönn-
um.
Yfirleitt ber mönnum saman
um að Pétur hafi yfirburði í em-
bættið — en bæta því svo við, að
hann hafi ekki nóg fylgi. Síðustu
vikur hefur hann stöðugt sótt á.
Sennilegt má telja að nú — viku
fyrir kjördag — hafi bilið stytzt
milli allra frambjóðenda. Það
væri í fyllsta máta óeðlilegt með
þjóð, sem á öllum sviðum vill það
bezta — ef hún nú þegar hún
velur sér forseta, ætlar að lúta að
einhverju öðru en því sem hún
telur bezt. Mönnum verður það æ
ljósara með hverjum degi, að í
embættið þarf fastmótaðan
mann, lífsreyndan og iaginn —
sannmenntaðan og stjórnvísan —
mann sem treystandi er til þess að
vera í senn ráðgjafi ríkisstjórnum,
röggsamur við stjórnarmyndanir
og sannur faðir þjóðarinnar á
ólgutímum. Þennan mann hefur
Pétur Thorsteinsson að geyma.
2. Kosningabaráttan er rekin
í sjálfboðavinnu og með frjálsum
framlögum stuðningsmanna. Það
gefur auga leið að mikið fé fer til
auglýsinga, blaðaútgáfu og
ferðalaga. Þessar forsetakosning-
ar eru án nokkurs vafa hinar
kostnaðarsömustu í sögu lýð-
veldisins. Kemur það til meðal
annars af mjög lélegri frammi-
stöðu ríkisfjölmiðla — útvarps og
sjónvarps — sem hafa nánast lát-
ið sem þessar kosningar væru
hvergi í nánd.
Framlög til kosningabarátt-
unnar hér norðanlands hafa nær
eingöngu borizt frá stuðnings-
mönnum Péturs hér.
3. Svo virðist sem allir stjórn-
málaflokkar hafi skipzt í þessum
kosningum og flokksiínur er erfitt
að greina. Stuðningsmenn Péturs
eru hvað sem öðru líður úr öllum
flokkum — af öllum stéttum á
ýmsum aldri og af báðum kynj-
um.
4. Kosningabarátta okkar
hefur einkennzt af því að Pétur
Thorsteinsson var ekki eins
kunnur úr fjölmiðlum og aðrir
frambjóðendur. Hann hefur þvi
lagt á sig mikil ferðalög og
fundahöld til þess að kynna sig
þjóðinni. Hvarvetna hefur það
svo gerzt, að hann hefur jafnt og
þétt sótt á, og er það trú okkar að
munur á fylgi frambjóðenda sé
orðinn sáralítill og miklu minni
en svonefndar „skoðanakannan-
ir“ gefa til kynna. Við höfum alla
tíð verið þess fullviss að þegar
þjóðin eigi kost á þeim hæfasta —
þá kjósi hún hann.
Annað væri í algerri mótsögn
við fólk, sem alla tíð hefur stefnt
að því hæsta, mesta og bezta. —
SÍGANDI LUKKA ER BEZT —
í þeirri trú hefur kosningabarátta
okkar verið háð,
IKJOR 1980
1. Vigdís Finnbogadóttir
hefur alla þá kosti sem forseta
mega prýða. Hún hefur kjark
brautryðjandans ásamt víð-
sýni og reynslu þess sem á vel
unnin störf að baki. Hún
gjörþekkir menningu þjóðar-
innar að fornu og nýju, og
hefur unnið merkt starf á
þeim vettvangi. Menntun sína
byggir hún á traustum grunni
þjóðlegrar jafnt sem alþjóð-
legrar menningar.
Vigdís er af eigin reynd vel
kunnug íslensku þjóðlífi og
landsháttum og skilur vel lífs-
kjör og vilja þjóðarinnar.
Orðsnilld hennar á íslensku og
fleiri þjóðtungum samfara
djarflegri og virðulegri fram-
komu gera hana sannan full-
trúa íslenskrar þjóðar. Hún
mun því skipa forsetaembætt-
ið af þeim glæsileika og reisn
sem því ber, og verða það
sameiningartákn lands, þjóð-
ar og tungu sem forseti Islands
er.
2. Já, að sjálfsögðu er það
fremur erfitt, þar sem viðeig-
um enga stóra peningabrunna
í að sækja. Þetta er líkt og í
forsetakosningunum 1968
þegar alþýða manna flykkti
sér um dr. Kristján Eldjárn, en
allir toppar voru af skornir.
Peningamálin leysum við í
samræmi við máltækið: Margt
smátt gerir eitt stórt. Alltaf
berst töluvert af framlögum
einstaklinga og á fundinum í
íþróttaskemmunni á sunnu-
dag voru menn örlátir og
lögðu vel í kosningasjóðinn.
Kostnaður reiknaður til og
með 22. júní er um 1.500.000,-
krónur — stærstur hluti þess
vegna fundarins í íþrótta-
skemmunni, auglýsinga- og
símakostnaður.
3. Nei, það er af og frá,
a.m.k. ekki hvað framboð
Vigdísar áhrærir.
4. Hógværð, samhugur og
baráttuvilji. Þá hefur Gróa á
Leiti reynt að gera framboð
Vigdísar tortryggilegt og ýmsir
fleygt í hana bita með for-
dómafullum viðhorfum. Slíkt
er ljóður á þessari kosninga-
baráttu.
Finnbogadóttir
K.A.
tapar
Á föstudagskvöldið
léku á ísafirði heima-
menn og KA í annarri
deild í knattspyrnu.
Leikið var á maiarvelli í
roki og rigningu. í hálf-
leik hafði báðum leið-
um tekist að koma
boltanum tvisvar í mark
andstæðinganna, en
seint í þeim síðari bættu
ísfirðingar þriðja
markinu við, og unnu
með þremur mörkum
gegn tveimur. Mörk KA
gerðu Eyjólfur (úr víti)
og Óskar.
Enn sigrar Þór
Á föstudagskvöldið léku á
grasvellinum á Akureyri Þór
og Selfyssingar í annarri
deild. Leikið var í leiðinda
veðri, rigningu og strekkings
vindi. Framan af bar leikur-
inn þess glöggt vitni að að-
stæður væru erfiðar, og lauk
fyrri hálfieik án þess að mark
yrði skorað.
Fljótlega í síðari hálfleik fóru
síðan mörkin að koma. Fyrsta
markið gerði Nói Björnsson. Þá
sendi Óskar Gunnarsson góðan
bolta út á hægri kantinn til
Rúnars sem sendi boltann við-
stöðulausl fyrir markið og þar
kom Nói, tók boltann á bring-
una, og síðan niður og skoraði
af miklu öryggi. Glæsilegt
mark.
Annað markið kom úr víta-
spyrnu, eftir að einn Selfyssing-
urinn hafði handleikið boltann
innan vítateigs.
Nú brast Árna Stefánssyni
ekki bogalistin og hann skoraði
af öryggi. Tvö næstu mörk gerði
síðan markaskorarinn mikli hjá
Þór, Óskar Gunnarsson, en
hann hefur verið drýgstur Þórs-
ara að skora i sumar. Leiknum
lauk því með sigri Þórs, fjögur
mörk gegn engu.
Þórsarar eru nú efstir í deild-
inni eftir þennan leik með átta
stig af jafnmörgum möguleg-
um.
Fyrra markið staðreynd. Eiríkur gerir árangurslausa tiiraun til að verja skot frá Jóhanni Jakobssyni og varnar-
menn Þórs horfa ráðalausir á.
KA LAGÐI ÞÓR 2:0 I
SKEMMTILEGUM LEIK
Þeir skoruðu mörk KA, Jóhann Jakobsson t.v. og Ásbjörn Björnsson t.h.
í gærkveldi léku á grasvellinum
Þór og KA. Liðin hafa tvisvar
spilað saman í vor og sumar og
unnið í sitt hvort skiptið. KA
brást ekki vonum stuðnings-
manna sinna í þessum leik og
vann liðið sannfærandi sigur, tvö
mörk gegn engu. Enda höfðu
sumir stuðningsmanna liðsins
hótað að flytja úr bænum ef
leikurinn tapaðist. Staða Þórs
og KA í deildinni er mjög góð
eftir fyrstu fimm umferðirnar,
og vonandi er fyrsta deildin
framundan hjá þeim báðum.
Fyrsta marktækifærið kom á
13. mín., en þá komst Gunnar
Gíslason innfyrir vörn Þórs, en
hörkuskot hans fór yfir. Næstu
mín. einkenndust af miðjuþófi,
en á 27. mín átti Guðmundur
Skarphéðinsson hörkuskot að
KA markinu, en Aðalsteinn
varði með tilþrifum.
Á 28. mín komst Óskar Ingi-
mundarson innfyrir og renndi
boltanum til Gunnars Gisla-
sonar, en Eiríkur markmaður
hjá Þór, varði vel. Fyrsta markið
kom síðan á 35. mín. Dæmd var
homspyrna á Þór og Elmar
sendi vel fyrir markið og Jó-
hann Jakobsson skallaði í netið.
Eiríkur markvörður átti góða
tilraun til að verja en tókst ekki.
Á 43. mín komst Gunnar
Blöndal í marktækifæri en
skaut yfir.
Strax í byrjun síðari hálfleiks
fengu Þórsarar gullið tækifæri
til að jafna þegar Óskar Gunn-
arsson stóð fyrir opnu marki, en
á óskiljanlegan hátt skaut hann
framhjá.
Það var síðan varamaðurinn
Ásbjörn Björnsson sem var rétt
kominn inná fyrir Óskar Ingi-
mundarson, sem innsiglaði sig-
ur KA með góðu skallamarki.
Úrslit þessa leiks verða að
teljast sanngjörn eftir gangi
leiksins. Það var KA sem sótti
meira og vörn liðsins var góð og
Aðalsteinn markmaður átti
mjög góðan leik. Sömu sögu er
að segja um Eirík markmann
Þórs, en hann átti ágætan leik.
Leikinn dæmdi Magnús
Theodórsson og línumenn voru
Ómar Kristvinsson og Geir
Guðsteinsson og áttu þeir allir
góðan dag. Leikurinn var á
köflum hart leikinn, eins og
venjulega þegar þessir aðilar
mætast, en eftir leikinn tókust
allir í hendur eins og góðum
íþróttamönnum sæmir.
DAGUR.5