Dagur - 26.06.1980, Page 6

Dagur - 26.06.1980, Page 6
Brúarframkvæmdir við Hrúteyjarkvísl hjá Fosshóli. Brn yfir Hrúteyjarkvísl Nú er unnið að brúargerð yfir Hrúteyjarkvísl. Áætlað er að verkinu ljúki í ágúst. Þegar þessi brú kemst i notkun er rutt úr vegi síðustu hindruninni á veg- Það er eiginlega sama hljóðið í okkur hérna og víðast hvar ann- ars staðar. Vorið hefur verið óskaplega gott og sauðburður gekk svona þokkalega. Spretta lofar nokkuð góðu, nema hvað kal er töluvert mikið. Víða í Reykjadal og Laxárdal er það óvenjumikið og margir bæir þar hafa orðið illa úti. Við vorum að gera okkur í hug- arlund að sláttur gæti hafist um mánaðamótin þ.e. ef tíðin batnar. Veiði byrjaði í Reykjadalsá 14. júní. Fyrstu dagana var reytingur og veiðibændur út við Vestmanns- vatn hafa fengið töluvert af laxi í net svo hann virðist vera farinn að ganga. Reykjadalsá er alveg þétt- setin en það er Stangveiðiféiag Húsavíkur sem hefur hana á leigu og það er bókaður hver einasti dagur í allt sumar. Hótelið á Laugum er að komast á skrið og það eru óvenjumargar pantanir í sumar. Aðaistraumurinn byrjar núna um mánaðamótin og að sögn hótelstjórans Óskars Ágústssonar hefur sjaldan verið eins mikið bókað og nú í sumar. Á Jaðri í Reykjadal er starfrækt tamningastöð í sumar. Það eru þeir Agnar Kristjánsson og Höskuldur Veiðist vel í Fnjóská Laxveiði í Fnjóská hófst þetta áríð 20. júní og er það töluvert fyrr en undanfarín ár. Veiðin fyrstu dagana lofar mjög góðu um áframhaldið en 24. júní voru komnir hátt í 30 laxar á land og þar af veiddust 10 fyrsta daginn. Sá stærsti sem veiðst hefur var 15 pund. Veiðimenn hafa orðið varir á efra svæði í Fnjóská en venju- lega hefur ekkert veiðst þar fyrr en komið er undir 20. júlí. En enn sem komið er hefur þó aðaliega verið veitt á neðri svæðunum. Að sögn Gunnars Ámasonar í Sportvöruverslun Brynjólfs Sveinssonar eru menn mjög bjartsýnir á góða veiði í Fnjóská í sumar. inum milli Fosshóls og Kross í Kinn, en í sumar var lokiö veg- arlagningu á kaflanum milli umræddra bæja. Þráinsson sem veita henni forstöðu. Þeir skipta sumrinu í tvö tímabil og nú á því fyrra eru þeir með 28 hesta. H. V. Bjarni Pétursson á Fosshóli sagði að gamla brúin hefði verið orðin hættuleg umferð og væru heima- menn ákaflega ánægðir að fá nýju brúna, sem er rúmir 40 metrar á lengd. Yfirsmiður við brúargerðina er Guðmundur Sigurðsson frá Hvammstanga. „Nú erum við komin í gott veg- arsamband við Kinnarvegamótin," sagði Bjarni. „Næsta stórverkefni á þessum slóðum hlýtur að vera veg- ur yfir Fljótsheiði en það er orðið mjög aðkallandi. Ekki er að fullu afráðið hvar nýi vegurinn kemur, en hann verður nokkuð sunnar en núverandi vegur yfir heiðina." Eiginkona mí'n, móöir og dóttir ÞÓRGUNNUR LÁRUSDÓTTIR, Arnarfelli, sem lést 19. júní síðastliðinn, verður jarðsungin frá Akureyrar- kirkju þriðjudaginn 1. júlí kl. 1,30 e.h. Jón Eiríksson, Sunna Vilborg Jónsdóttir, Eiríkur Ingvi Jónsson, Vilborg Pálmadóttir. Auglýsing um uppboð, sem fram fer á Lögreglustöðinni á Akureyri. Á lausafjáruppboði sem fram fer föstudaginn 4. júlí n.k. að kröfu ýmissa lögmanna og annara aðila verða eftirtaldir munirseldir: Bifreiðarnar: A-462, A-4224, A-1314, A-3820, A-5942, A-1622, A-5866, A-3440, A-3698, R-53287, A-4913, A-5320, A-3141, A-5060, A-330, A-4224, A-1314, A-696, A-3469, A-7358, Ó-236, A-6858, A-4198, G-4246, A-6391, A-6187, A-29, A-2765, A-4860, A-7028, dráttarvélin Ad-1333 ásamt loft- pressu, Plymouth roadrunner árg. 76 óskráður, 1 kll. Rubber klotjes 18 kg., Grater drink spared 76 kg, 1 pll refractory bricks 427 kg, 1 cs Were term- opane 125 kg og 1 cs sama 80,1 pack Garage door parts 10 kg, 3 krt Ladies rubberboots 34 kg, 2 krt. radiotortilbehör 13 kg, 1 frystikista, 1 kvikmynda- tökuvél, 1 piano, 3ja sæta sófi, 2ja sæta sófi, hæg- indastóll, borð, 4 stólar og skenkur. Rauðskjóttur hestur (ca. 10 vetra). Þá verða einnig seldir óskila- munir í vörslum lögreglunnar á Akureyri. Uppboðsskilmálar liggja frammi á skrifstofu emb- ættisins að Hafnarstræti 107, Akureyri. Bæjarfógetinn á Akureyri. Vorið afskaplega gott og spretta lofar góðu Laugum, Reykjadal 24. júní Frystihúsin senda fólk í frí Alvarlegt ástand að skapast á Siglufirði Kauptryggingarsamningi hjá ísafold h.f. var sagt upp fyrir skömmu og stöðvaðist vinna þar að mestu í síðustu viku. Af Þor- móði ramma er þá sögu að segja að samningnum var sagt upp sl. þriðjudag og vinna feilur niður frá og með næsta þriðjudegi. Vinna stöðvaðist um stundar- sakir hjá Siglósíld, en vonir standa til að vinna hefjist á ný um mánaðamót. Bogi Sigurbjörnsson, bæjarfull- trúi á Siglufirði sagði að með þess- um aðgerðum fyrirtækjanna hefði skapast mjög alvarlegt ástand í at- vinnumálum á staðnum, þrátt fyrir að fólkið sé sent heim í sumarfrí eins og það er kallað. t einu Reykjavikurblaðanna var haft eftir Kolbeini Friðbjarnarsyni, verkalýðsleiðtoga á Siglufirði, að búið væri að vinna meira magn af grálúðu og karfa, en sem svarar gerðum samningum og bankar lánuðu ekki lengur út á þá vinnslu. Togarar Siglfirðinga hafa heimild til að stunda þorskveiðar í 15 daga í júlí og ágúst. Ferðamanna- straumurinn að hefjast Þrátt fyrir norðanátt er nokkuð um ferðamenn á Norðurlandi. Sam- kvæmt þeim upplýsingum sem blað- ið hefur aflað sér virðist vera minna um gangandi bakpokamenn en t.d. í fyrra. Sólarlagsferðir Flóabáturinn Drangur fer í fyrstu sóiarlagsferðina á morg- un. Lagt verður af stað frá Akureyri klukkan 15 og tekur siglingin um fimm og hálfan tíma. Dvalist verður í Grímsey um nóttina og þar geta menn fengið svefnpokapláss. Siðan verður lagt af stað frá Grímsey um hádegisbilið á laugardag. Næstkomandi þriðjudag fer Drangur aftur til Grímseyjar með ferðamenn, en þá verður komið til Akureyrar samdægurs. Þá er farið kl 8 að morgni, komið við í Hrísey, stoppað um fjóra tíma í Grímsey og komið aftur til Akureyrar um mið- nætti. Hægt er að kaupa mat um borð og kaffi og með því í félags- heimilinu í Grímsey. Ferðin kostar 12 þúsund krónur fram og til baka og hálfvirði fyrir böm 12 ára og yngri. Sólarlags- ferðir Drangs verða út júlí, síðasta ferðin 29. júlí. Læknaritari óskast á Handlækningadeild F.S.A. sem fyrst. Góð vélritunar- og íslenskukunnátta skilyrði. Reynsla af skrifstofustörfum æskileg. Skriflegar umsóknir sendist til læknafulltrúa Hand- lækningadeildar F.S.A., 600 Akureyri, sem einnig veitir upplýsingar um starfið í síma 22100. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Góð laun Óskum að ráða fyrir viöskiptavini vora starfsfólk í eftirtalin störf: Til skrifstofustarfa hjá fyrirtæki í byggingariðnaði. 9 Nokkur bókhaldskunnátta nauðsynleg. % Sjálfstæð vinna. % Bílpróf nauðsynlegt. Til skrifstofustarfa hjá iönfyrirtæki. £ Vélritunarkunnátta nauðsynleg. £ Kunnátta í meðferð reiknivéla æskileg. 0 Nokkur tungumálakunnátta æskileg. Umsóknir liggja frammi á skrifstofu vorri. Bókhalds- og rekstrarráðgjöl Strandgötu 7, pósthólt 748, s(ml 25455. Atvinna Vantar starfskraft hálfan eða allan daginn, þarf að vera vanur reiknivélum og ritvél. Uppl. í síma 21022, frá kl. 1.15 til 4.00 síðd. 6.DAGUR

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.