Dagur - 08.07.1980, Page 1
TRULOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
1 AKUREYRI
DAGUR
LXIII. árgangur.
Akureyri, þriðjudagur 8. júlí 1980
48. tölublað
Öllu starfsfólki L.A. sagt upp störfum frá 1. september
L.A. á barmi gjaldþrots
Innan skamms er von á fulltrú-
um frá fjármála- og mennta-
málaráðuneytinu norður til Ak-
ureyrar, en hér munu þeir ræða
við forráðamenn Leikfélags Ak-
ureyrar og Akureyrarbæjar.
Umræðuefnið verður fjárhagur
félagsins, sem rambar nú á
barmi gjaldþrots. Búið er að
segja upp öllum starfsmönnum
félagsins frá og með 1. septem-
ber, en að óbreyttu ástandi telja
forsvarsmenn L.A. ekki verjandi
að hafa fólkið á launaskrá öllu
lengur. Það er og þeirra álit að
ríkinu beri að leggja meir af
Hitaveitan:
Gjalda-
hækkanir
„Við endurskoðun á Iangtíma-
áætlun á fjárhagsafkomu Hita-
veitu Akureyrar, þar sem tekið
var tillit til þess stofnkostnaðar
sem orðinn er og þeirra láns-
kjara sem eru á erlendum fram-
kvæmdalánum hitaveitunnar,
kom f Ijós að grunnverð á
vatnsgjöldum varð að hækka að
minnsta kosti um 40%. Því var
sótt um 40% grunnhækkun á
vatnsgjöldum til iðnaðarráðu-
neytis í febrúar,“ segir í grein-
argerð sem samin var hjá Hita-
veitu Akureyrar, en þangað hafa
fjölmargir lagt leið sína og spurt
um af hverju afnotagjöld H. A.
hafi verið að hækka síðustu vik-
ur.
í greinargerðinni segir enn-
fremur að vísitala byggingar-
kostnaðar hafi hækkað 1. apríl
úr 398 stigum í 435 stig, þ.e. um
9,3% og sótti H.A. um þessa
hækkun í marslok með vísan í
11. grein H.A.
Þann 16. maí tók gildi ný
gjaldskrá, þar sem afnotagjöld
hækkuðu um 53% (1,4x1,093 =
1,53), en heimtaugagjöld hækk-
uðu um 9,3%. Eldra afnota-
gjaldið var 9.517 krónur fyrir
hvem mínútulítra á mánuði og
gilti til 15. maí, en frá 16. maí sl.
er afnotagjaldið 14.563 krónur
fyrir mínútulítra á mánuði.
Einingarverð á siðustu reikn-
ingum H.A. þ.e. fyrir tímabilið
1. maí til 30. júní er fundið á
eftirfarandi hátt:
9.517x0,5 = 4.758
14.563x1,5 = 21.844
Samtals fyrir tvo mánuði kr.
26.602 sem er 13.301 krónur
fyrir hvern mínútulítra á mán-
uði.
mörkum til félagsins og án auk-
innar aðstoðar frá hinu opinbera
sjái L.A. sína sæng upp reidda.
Guðmundur Magnússon, for-
maður Leikfélags Akureyrar sagði,
að staða félagsins hefði sjaldan
verið erfiðari en einmitt nú. „Við
höfum rætt það í gamni okkar í
milli að réttast væri að leggja starf-
semi L.A. niður í einn vetur“.
Alls komu um 12 þúsund manns
á sýningar L.A. á síðasta leikári.
Það þykir allgóð aðsókn sé það haft
í huga að aðsókn var ákaflega lítil
að „Herbergi 213“ og „Beðið eftir
Godot“. Hitt er svo aftur annað
mál, að forráðamenn L.A. eru ekki
alveg vissir hvers konar leiklistar-
smekk Akureyringar hafa og eiga í
vandræðum með að velja leikrit í
samræmi við hann. Það sést e.t.v.
best á því, að „Ofviti“ Leikfélags
Reykjavíkur gekk aðeins 5 sinnum
á Akureyri, en „Ofvitinn" hafði
verið sýndur 95 sinnum í Reykjavík
fyrir fullu húsi. Ekki var uppselt á
neina sýningu á „Ofvitanum" á
Akureyri.
Guðmundur tók það fram að
engar deilur af neinu tagi væru
innan L.A. Þar væru allir sammála
um aðgerðir sem sést t.d. á því að
margir leikaranna eiga sæti í stjórn
L.A. og því sögðu þeir sjálfum sér
upp. Það eru fjármálin fyrst og
fremst, sem allt strandar á og áður
en þau verða leyst er t.d. ekki hægt
að ráða nýjan leikhússtjóra og
skipuleggja starfið næsta vetur, svo
eitthvað sé nefnt. Sunnlensku full-
trúarnir munu koma norður þegar
reikningar félagsins liggja fyrir og
aðalfundi er lokið.
Verður starfsemi L.A. stokkuð upp?
Ungmennafélag Svarfaðardals:
SAFNA SORPI
„Það var út úr fjárhagsvand-
ræðum að Ungmennafélagið fór
að safna sorpi á Dalvík og ná-
grannabæjum. Félagar i Ung-
mennafélaginu söfnuðu fyrst
saman sorpi um hvítasunnuna
og um hverja helgi síðan“, sagði
Vilhjálmur Björnsson á Dalvík í
samtali við Dag.
Fyrstu tekjurnar af sorphirðunni
munu hafa farið í að greiða gamlar
skuldir, en í framtíðinni eiga þær
að renna til starfsins. Vilhjálmur
sagði að það tæki hálfan tug manna
um 6 klukkustundir að hirða sorp-
ið. Til þessa hefur gengið vel að fá
mannskap, en aðalvandamálið er
að félagið á engan bíl sem nota má
til verksins og verður því að leigja
þá eða fá lánaða í hvert sinn.
Vilhjálmur sagði að ætlunin væri
að ungmennafélagið annaðist
sorphirðuna til áramóta. Þá verður
litið tll baka og ákveðið hvert
framhaldið verður. Ekki vildi Vil-
hjálmur meina að Dalvíkingar
gengju illa um sorptunnur sínar, en
sagði þó, að það sakaði ekki þótt
fólk bindi fyrir fulla poka.
Eitt blað
íviku
Kaupendur Dags eru beðnir að
athuga að næstu vikur kemur að-
eins út eitt blað í viku - þ.e.
þriðjudagsblaðið. Ástæðan er
sumarfrí starsfólks. Auglýsendur
eru beðnir að hafa í huga að aug-
lýsingar þurfa að hafa borist
auglýsingadeild blaðsins fyrir
klukkan 19 á mánudagskvöldum.
Olíumöl í fyrsta sinn
Raufarhöfn 4. júlí
I gærmorgun var hafist handa
við útlagningu á olíumöl hér á
Raufarhöfn. Þetta er í fyrsta
sinn sem varanlegt slitlag er lagt
á veg í þorpinu. Það eru menn
frá Akureyri sem annast útlagn-
inguna og hafa þeir haft með sér
tæki til hennar. Unnið er dag og
nótt og sækist verkið vel.
Olíumöl er m.a. lögð á aðalgöt-
una, á Ásgötu og nokkur plön svo
sem hjá bensínstöð og pósthúsi.
Raufarhafnarbúar eru að vonum
ánægðir með að fá olíumöl á vegi,
enda er af því mikill þrifnaður.
Þessi olíumöl er búin að vera hér
á Raufarhöfn í mörg ár. Var hún
geymd í haug og áttu margir von á
að hún væri orðin ónýt, en svo
reyndist ekki vera. G.Ö.R.
Frá Ræktunar-
félagi
Norðurlands
Bændur athugið að nýta súg-
þurrkun til hins ýtrasta. Látið
heyið ekki þorna of mikið á velli
þó vel viðri. Með því vinnst margt
og m.a. má nefna: Fljótari og ör-
uggari heyskapur, meira hey
kemst í hlöðuna og að síðustu er
það mest og best trygging fyrir
úrvals heyfóðri.
Sífellt fleiri
fá heitt vatn
Unnið er að lögn bakrásar í Þór-
unnarstræti, verktaki Norður-
verk h.f. og Gunnar Birgisson.
Unnið er að lagningu dreifikerfis
í miðbæ (norðan Ráðhústorgs) og
í Kaupvangsstræti og verður unnt
að tengja hús við Hólabraut,
norðan Gránufélagsgötu, Laxa-
götu, Geislagötu og Gránufé-
lagsgötu milli Glerárgötu og
Brekkugötu eftir 20. júlí n.k.
Verktaki í miðbæjarlögn er
Norðurverk h.f. og Gunnar Birg-
isson.
Hafinn er undirbúningur að
lagningu dreifikerfis í innbæ.
Verktaki við lagnir í innbæ er
Barð s.f.
Nú standa yfir dæluprófanir í
síðustu borholu að Ytri-Tjörnum
(hola nr. 4) og lofa þær tilraunir
góðu um holuna.
Vinnuskóli Akureyrarbæjar
(15 ára unglingar) vinna að
snyrtingu og sáningu á virkjunar-
svæðum H.A. og meðfram að-
veituæð. Engar borunarfram-
kvæmdir hafa verið frá 6. júní sl.
Bakkus við
stýrið
Um helgina voru fjórir ökumenn
teknir grunaðir um ölvun við
akstur. Nokkrir árekstrar urðu
um helgina, en samkvæmt upp-
lýsingum lögreglunnar var eng-
inn þeirra alvarlegur. Að venju
gistu fáeinir fangageymslur lög-
reglunnar um helgina.
Afkastamikil
bruggtæki
Á laugardagskvöldið fann lög-
reglan á Akureyri afkastamikil
bruggtæki f húsi einu í Glerár-
þorpi. Málið hefur verið sent til
ríkissaksóknara sem mun úr-
skurða hvort bruggarinn verður
sakfelldur.
Sigurður Eiríksson, fulltrúi
hjá bæjarfógeta syjði að lög-
reglan hefði handsamað drukk-
inn mann á laugardagkvöldið
og í vasa hans fannst flaska með
ókennilegum vökva. Farið var
að athuga málið og við rann-
sókn á heimili hins ölvaða
fannst 180 lítra tæki, sem smíð-
að er m.a. úr þvottapotti. Sig-
urður sagði að tækið væri vel
gert, en ekki er vitað hve mikið
magn af vínanda má framleiða í
því.
Bruggarinn hefur harðlega
mótmælt að hafa selt nokkuð af
framleiðslu sinni, og sagði Sig-
urður að ekkert benti til að
bruggsala hefði áttsér stað.
Hand-
lækninga-
deild FSA
er lokuð
Handlækningadeild sjúkra-
hússins á Akureyri hefur nú
verið lokuð um nokkurt ske-
ið. Meginástæðan er sú, að
verið er að gera við og lag-
færa húsnæði og húsgögn
deildarinnar. Tækifærið er
notað til þessara hluta, þar
sem takmarka þarf starfsem-
ina af annarri ástæðu, þ.e.
vegna þess að ekki er hlaupið
að því, að fá sérfræðinga og
annað starfsfólk til afleys-
inga yfir sumarleyfistímabil-
ið.
Að sögn Guðfinns Magnús-
sonar, fulltrúa framkvæmda-
stjóra sjúkrahússins, mun þetta
vera í fyrsta skipti sem gripið er
til þess ráðs að loka deildinni
hér á Akureyri af þessum
ástæðum, en í Reykjavík er
deildum spítalanna lokað, enda
hægara um vik, þar sem hægt er
að koma við verkaskiptingu
milli sjúkrahúsanna.
Þessi lokun hefur þau áhrif,
að ekki eru gerðar aðgerðir, sem
má fresta. Bráðatilvik eru hins
vegar leyst á öðrum deildum
sjúkrahússins, en sjúklingar
sendir suður, ef nauðsynlegt er
talið. Mikið plássleysi er á
sjúkrahúsinu á Akureyri, eins
og kunnugt er.