Dagur - 24.07.1980, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIDIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
1 AKUREYRI
DAGUR
LXni. árgangur. Akureyri, fimmtudagur 24. júlí 1980.
51. tölubiað
Hvað borga menn í skatta í ár?
Álagningarseðlar
koma í næstu viku
Skattaálagningu er nú að ljúka
hjá Skattstofu Norðurlandsum-
dæmis eystra og verða álagn-
ingaseðlarnir sendir út um eða
eftir næstu helgi, að sögn Halls
Sigurbjörnssonar, skattstjóra.
Gögnin eru nú í tölvuvinnslu i
Reykjavík. Skattskráin verður
hins vegar ekki lögð fram, eins
og venja hefur verið, fyrr en í
haust, þegar búið verður að úr-
skurða kærur.
Hallur sagði að skattskráin hefði
Reiðhjólakeppni
skemmtistaða
Skemmtistaðirnir gera ýmis-
legt til að auglýsa starfsemi
sína og það nýjasta í þá átt er
hjólreiðakeppni milli H-100
á Akureyri og Hollywood í
Reykjavík.
Tveir plötusnúðar munu
þreyta kapp á leiðinni milli Ak-
ureyrar og Reykjavíkur á reið-
hjólum og væntanlega mætast
um það bil á miðri leið. Lagt
verður af stað á sunnudags-
kvöld um kl. 23 frá H-100 og
Hollywood og hjólað í áföng-
um. Er gert ráð fyrir að marki
verði náð á miðvikudag.
Keppendurnir verða Davíð
Geir Gunnarsson fyrir H-100
og Halldór Árni fyrir Holly-
wood.
Nýja holan
lofar góðu
Nýja borholan að Ytri-
Tjömum í Eyjafirði, sem í
vetur gaf mjög góðar vonir,
hefur ekki brugðist þeim
vonum manna.
Fljótlega er að vænta mikiis-
verðs árangurs og áfanga, þegar
nýrri gerð af dælu verður sökkt
ofan í holuna, sem er 1540
metrar á dýpt. Að sögn Inga
Þórs Jóhannssonar, skrifstofu-
stjóra hjá Hitaveitu Akureyrar,
hefur holan verið prófuð, og
lofar hún góðu. Hún nær niður
á nýja og dýpri vatnsæð én
hinar holurnar, og því hefur
vatnsrennslið í þeim gömlu ekki
minnkað með tilkomu nýju
holunnar.
venjulega verið tilbúin í byrjun júlí,
en það mikla starf, sem liggur
henni til grundvallar, vannst mun
seinna núna, vegna grundvallar-
breytinga á skattalögum, sem auk
þess voru síðbúnar.
Kærufrestur er einn mánuður frá
því að álagningu lýkur og skatt-
stjóri hefur síðan tvo mánuði til að
úrskurða kærur. Má því búast við
því að allt að þrír mánuðir líði, þar
til skattskráin verður lögð fram og
þá jafnframt þar til birtur verður
listi yfir hæstu greiðendur.
Framtalsreglur fyrirtækja eru nú
mun flóknari en áður, en Hallur
sagðist ætla, að 70-80% launþega
notuðu 10% frádráttarregluna, og
sama gilti raunar um bændur. Það
væru aðeins þeir sem skulduðu
mikið og hefðu háan vaxtafrádrátt,
sem reiknuðu út frádráttarliðina.
Flestir mega gera ráð fyrir að
opinber gjöld hækki frá því í fyrra,
sem nemur verðbólgunni milli ára,
nema hvað skattar tekjulágs fólks
ættu að lækka eitthvað.
Fullt af fiski en
frystihúsin lokuð
Siglufirði, 23. júlí.
Togararnir báðir, Stálvík og
Sigluvík, liggja hér í höfninni í
Siglufirði. Annar var að koma úr
siglingu og er að liggja af sér
þorskveiðibann. Stálvíkin var á
þorskveiðum í nokkra daga og
kom með fullfermi. Hún þarf að
liggja hér í tvo daga, áður en hún
heldur í söluferð til Englands.
Þetta finnst okkur bæjarbúum
ansi hart að þurfa horfa á skipið
hér, fullt af fiski en bæði frystihúsin
lokuð. Það litla sem skrapað er á
trillunum fer allt í saltfiskverkun,
svo þeir sem unnið hafa í frysti-
húsunum svo og margt skólafólk,
hefur ekkert að gera. Sérstaklega er
þetta hart þegar við fréttum að
mörg frystihús, t.d. Ú.A. og frysti-
hús í Reykjavík og víðar eru farin
að vinna fisk af fullum krafti.
Hér er norðaustan átt og rigning
og fremur leiðinlegt veður. Ætlun-
in var að mála Sigluvíkina að utan,
hún er eins og skjöldótt belja,
greyið, en ef veðrið heldur svona
áfram verðum við líklega að senda
hana svona á veiðar. S.B.
Fyrsti laxinn á
land ofan virkjunar
Nú er verið að leggja síðustu núna, sem hálfeyðileggja laxinn.
hönd á laxastigann í Laxá við
Brúar. Vatni hefur nokkrum
sinnum verið hleypt í stigann og
teljara hefur verið komið fyrir.
Nokkrir laxar hafa þegar gengið
upp í Laxárdalinn og fyrsti laxinn
veiddist þar í fyrradag, rétt neðan
við Kasthvamm. Það var Karl
Kristjánsson frá Akureyri, sem
veiddi fyrsta laxinn, sem reyndist
vera um 11 pund. Lax hefur ekki
gengið þama upp áður.
Góð veiði hefur verið í Laxá
neðan laxastigans, að sögn Helgu
Halldórsdóttur, í veiðihúsinu á~
Laxamýri. Rúmlega 900 laxar eru
komnir á land og þar af fengu
Reykvíkingar, sem voru í ánni á
dögunum, 178 laxa á 12 stengur á 4
dögum. Laxinn var allur stór og
jafn, 14—15 pund að meðaltali.
Óvenjumikil netaför eru á laxinum
Sumir telja að þau stafi af ýsunet-
um í Skjálfandaflóa, sem mikið er
af um þessar mundir.
Þessi bryggjupolli á nyrðri Torf unefsbryggjunni hefur nú heldur betur sett niður f tfmans rás.
Einu sinni var hann fallbyssuhlaup og spúði eldi og eimyrju. Það var á tfmum danskra hér á
landi og líklega hefur verið skotið úr þessari byssu á þjóðhátfð 1874, til heiðurs kónginum.
Nú er þessi stolti gripur notaður til að binda í ónýtt skip við ónýta bryggju, að þvf er flestir
telja. Annars er lítið vitað um þetta fallstykki og þrjú önnur, sem einnig eru á Torfunefs-
bryggju og væru ailar upplýsingar vel þegnar. Skyldi annars eiga aö varðveita þessa gripi ef
bryggjan verður rifin? Mynd: H. Sv.
Bflar skemmast
í Strákagöngum
sérstaklega ókunnugir, vara sig
ekki og stórskemma bílana sína.
Það er búið að kvarta við Vega-
gerðina en ekkert hefur fengist út
úr því ennþá, nema að það standi jú
til að lagfæra þetta og e.t.v. gæti
það orðið í haust. Siglfirðingar eru
að vonum óánægðir með undir-
tektir Vegagerðarinnar og finnst
slæmt að þeir sem ætla að heim-
sækja bæinn í sumarfríinu byrji á
því að skemma bílana.
Það er orðið þannig ástandið í
Strákagöngunum við Siglufjörð
að bílar, sérstaklega aðkomu-
bílar, skemmast þegar þeir aka
þar i gegn. Um síðustu helgi
komu til Siglufjarðar tveir slík-
ir, annar var með ónýta smur-
pönnu og smurdælu og hinn
hafði misst annað framhjólið.
Þetta stafar af því að vegurinn
gegnum göngin er orðinn svo
slæmur og holóttur að ökumenn,
56% skiluðu niðurstöðum
í þvagsykurskönnuninni
Nú er ljóst, að aðeins um 56%
þeirra, sem fengu send gögn
varðandi þvagsykurskönnun
Samtaka sykursjúkra á Akur-
eyri, hafa skilað niðurstöðum.
Þetta er mun minni þátttaka
heldur en menn gerðu sér vonir
um í upphafi, en um 5600
manns á Eyjafjarðarsvæðinu á
aldrinum 25-65 ára fengu send
þessi gögn.
Að sögn Ólafs H. Oddssonar,
héraðslæknis, skiluðu 3110
manns niðurstöðum þvagsykurs-
könnunarinnar. Af þeim þurftu
200 nánari athugunar við og þeg-
ar er lokið blóðsykursmælingum
stórs hluta þessa hóps. Innan við
10 manns eru nú í áframhaldandi
rannsókn, þar sem líkur eru á, að
þeir séu með skert sykurþol.
Nú hefur verið ákveðið að setja
aftur upp kassana í lyfjabúðun-
um á Akureyri, svo að þeir sem
ekki skiluðu niðurstöðum eigi
þess kost. Ólafur sagði, að þó
menn hefðu e.t.v. hent blöðunum
sem skila á niðurstöðum á; gætu
þeir sett miða í kassana með nafni
og upplýsingum um hvaða litur
hafi komið fram við könnunina,
hafi hún verið framkvæmd.
Ólafur sagði, að þessi könnun
væri einstök í sinni röð
Hvatti hann menn því til að
taka þátt í henni og skila niður-
stöðum.
Hestamannamót
á
Melgerðismelgjm
jjjf
H
■ .
Margir fljótustu hlaupagæðingar
landsins munu mæta til leiks á
hestamannamóti, sem verður
haldið á Melgerðismelum dagana
26. og 27. júlí. Keppt verður í sex
hlaupagreinum og að auki í gæð-
ingakeppni og gæðingaskeiði.
Ættarmót
í Hróarsdal
Ættarmót niðja Jónasar Jónsson-
ar, bónda og smáskammtalæknis,
sem bjó í Hróarsdal í Hegranesi í
Skagafirði, verður laugardaginn
9. ágúst og hefst kl. 12.30 með
guðsþjónustu að Ríp í Hegranesi,
en verður síðan fram haldið í
Hróarsdal. Þeir sem hafa hug á
því að gista, þurfa að hafa með
sér viðlegubúnað. Búist er við
fjölda manns víðs vegar að af
landinu, auk nokkurra Vestur-fs-
lendinga, sem eru niðjar Jónasar.
Hluti Akureyrar
í landsútsvörum
Skattstjórinn í Reykjavík hefur
tilkynnt bæjaryfirvöldum á Ak-
ureyri að hluti Akureyrarkaup-
staðar í landsútsvörum árið 1980
nemi samtals 38.727.079 krónum.
Brauðgerð KEA
flytur
í nýtt húsnæði
Bygginganefnd hefur samþykkt
að breyta megi 3. og 4. hæð eldra
húsnæðis Mjólkursamlags KEA
við Kaupvangsstræti fyrir starf-
semi Brauðgerðar KEA.
Fylgirit
um íþróttir
Með Degi í dag fylgir blað, sem
Knattspyrnudeild K.A. gefur út. í
blaðinu er mikið af myndum og
fróðleiksmolum um knattspyrnu
félagsins. K.A.-menn eru nú efstir
í II. deild í knattspyrnu með 17
stig og Þór í 2. sæti með 15 stg .
m
Mi