Dagur - 24.07.1980, Blaðsíða 4

Dagur - 24.07.1980, Blaðsíða 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207 Sími auglýsinga og afgreiöslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaöamaöur: ÁSKELL ÞÓRISSON Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Milljónavirði í ryki Um þessar mundir er mesti ferðatími ársins. Stórir fólks- flutningabílar þeysa um landið þvert og endilangt með út- lenda ferðamenn og landinn lætur ekki sitt eftir liggja. Við eigum fallegt og furðulegt land, sem við sýnum erlend- um gestum með stolti; falleg vatnsföll, sjóðandi hveri, tígu- leg fjöll í margskonar litbrigð- um og einstaka skógarrjóður. Andstæðurnar í náttúrunni eru stórfenglegar og vekja athygli útlendinganna. En við sýnum þeim einnig annars konar andstæður. Við sýnum þeim að við búum í nýtískulegum húsum, ökum fallegum, nýjum bílum og klæðumst tískuföt- um á erlenda vísu. Við sýnum erlendu gestunum á margvís- legan máta, að hér býr menn- ingarþjóð og að þetta er tæknivætt þjóðfélag. And- stæða þessa eru þjóðvegirnir. Þeir benda ekki til þess, að hér sé háþróað þjóðfélag. Ef til vill finnst erlendum ferða- mönnum það ævintýri líkast að ferðast á þessum holóttu, rykugu vegum. Þeir þekkja þetta ekki og líta ef til vill á þetta sem eitt af dásamlegum furðum og sérkennum þessa lands andstæðnanna. En Is- lendingar eru annars sinnis. Fyrir nokkrum áratugum var vegalagning um strjálbýlar sveitir og yfir öræfi ævintýri í augum fslendinga. Þá voru unnin kraftaverk með litlum og lélegum tækjabúnaði. I' dag er ekki hægt að tala um kraftaverk í vegamálum, því lítið hefur áunnist eins og raun ber vitni. Það liggur við, að líkja megi ástandinu við það, þegar mokað er sandi í botn- lausa tunnu. Hún fyllist aldrei og það er sífellt verið að vinna sama verkið. Á hverju ári fara þúsundir tonna af vegunum í formi ryks. Á hverju vori eru sömu drullupyttirnir fylltir og vegirnir eru vart orðnir færir, þegar vetur gengur í garð. Mikið hefur að vísu verið unnið við að byggja upp veg- ina á undanförnurfi árum, en það er hins vegar til lítils, eitt sér. Gera verður nú þegar stórátak í lagningu bundins slitlags á þá vegi, sem undir það eru búnir. Gífurlegu fjár- magni er nú kastað á glæ með síendurteknum bráðabirgða- viðgerðum á vegunum, svo ekki sé talað um meðferðina á bílaflota landsmanna, sem ekki þyrfti að endurnýja eins ört, ef þjóðvegirfíir væru betri. Akureyringar hafa víst flestir farið í kjörmarkað K.E.A. við Hrísalund. í lok vikunnar er það algeng sjón að sjá heilu fjölskyldurnar koma út úr versluninni, hlaðnar pinklum og pokum, en það er orðin nokkurskonar siður hjá mörg- um fjölskyldum að fara út að versla í vikulokin. Vöruverð í Hrísalundi er nokkuð lægra en í hinum hefðbundnu hverfa- verslunum, enda er allur til- kostnaður minni í Hrísalundi. „Við erum stöðugt með vörur á tilboðsverði. Þá er vöruverðið mun lægra en venjulega og fólk getur gert góð kaup“, sagði Steingrímur Ragnarsson, deild- arstjóri matvöruverslunarinnar í Hrisalundi er hann gekk með tíð- indamanni Dags um verslunina. „Við erum allsendis óhræddir að halda því fram að vöruverð hér er með því lægsta sem þekkist á Akureyri. Það sýna þærathuganir sem við og aðrir hafa gert, en bestu kannanirnar eru gerðar af viðskiptavinum sjálfum. 1 þessu sambandi má minnast á gos- drykki sem Sana h/f flytur til Akureyrar. Til þess að mæta aukinni samkeppni hefur verið ákveðið að sleppa flutnings- kostnaði norður og því geta við- skiptavinir keypt 7up, Pepsi og Mirinda á sama verði hér og í Reykjavík." Alltaf öðru hverju eru vöru- kynningar í kjörmarkaði K.E.A. Síðast kom starfsmaður Mjólkur- samsölunnar í Reykjavík og kynnti osta og ostarétti í Kjör- markaðinum og útibúi K.E.A. í Höfðahlíð. Fleiri slíkar kynning- ar eru fyrirhugaðar, enda njóta þær sívaxandi vinsælda. Þegar vöruúrvalið í verslunum er jafn mikið og raun ber vitni er það vel þegið af viðskiptavinum að geta reynt ákveðna vöruflokka alla á einu bretti. Steingrímur sagði að í verslun eins og í Hrísalundi væri nauð- synlegt að hafa gott kjötborð — það væri sjálfsögð þjónusta við almenning — og að auki er Kjör- markaðurinn sú verslun er fólk í næstu húsum kemur daglega í. „Við reynum að kappkosta að hafa aðeins það besta fyrir við- skiptavini okkar — á kjörmark- aðsverði", sagði Steingrímur að lokum. „Hér á neðri hæðinni eru ýms- ar breytingar fyrirhugaðar“, sagði Jógvan Purkhus, deild- arstjóri í sérvöruversluninni í Hrísalundi, en þar má finna ýmsar þær vörur, sem boðið er upp á í Vöruhúsi K.E.A. við Hafnarstræti. Breytingarnar sem Jógvan ræðir um eru aðallega fólgnar í nýjum innréttingum, sem vænt- anlega verða settar upp innan fárra vikna. Hér er um að ræða slár sem mynda hillur fyrir vörur og hengi fyrir fatnað, en á því sviði er hugmyndin að auka úr- valið til muna. Einnig verður lögð meiri áhersla á árstíðabundnar vörur. „Nú vorum við til dæmis að fá svefnpoka fyrir útileguna og í haust verður áhersla lögð á skólavörur af ýmsu tagi. Þegar líður á veturinn getur fólk keypt hér allar algengar skíðavörur." Á neðri hæðinni er að finna athyglisverð húsgögn sem bera heitið Combiflex. Jógvan sagði að þetta væru einingar sem seldar eru í kössum, en settar saman þegar heim kemur. Húsgögnin eru ódýr enda er salan í samræmi við það. „En ef þú vilt fá vandaðri húsgögn t.d. í skrifstofuna fást þau hér, því við höfum umboð fyrir 3K húsgögn. Og íslensk eld- húsborð og stólar eru hér einnig til sölu.“ Það kom fram í viðtalinu við Jógvan að neðri hæð Hrísalundar gegndi miklu hlutverki sem herfisverslun og því áhersla lögð á að hafa sem fjölbreyttast úrval vamings úr Vöruhúsinu. 1 því sambandi gat Jógvan ýmiskonar plastvara í eldhúsið, leikfanga og fatnaðar, en einnig er hægt að fá tölur og tvinna og fótboltaskó á bömin svo eitthvað sé nefnt. „Við höfum fullan hug á að gera þessa hæð að skemmtilegri verslun með fjölbreyttara úrvali en nú er. Innréttingarnar eru að koma og vöruúrvalið verður auk- ið hægt og bítandi og þess má geta að eftir 1. ágúst verður opið á neðri hæðinni fyrir hádegi á laugardögum.“ MJOLKURFRAMLEID- ENDUR LAUNALAUSIR Árið 1978 var mjólkurfram- leiösla á félagsbúinu Einars- stöðum, Sílastöðum, 290 þús. lítrar. Síðan er dregið úr framleiðslu niður í 230 þús. lítra á árinu 1979 og stefnum við að svipaðri framleiðslu í ár, sem mun vera nálægt okkar kvóta. í okkar verðbólgudansi eru allar tölur orðnar úreltar um leið og maður hefur sleppt þeim en ef við færum þetta til núverandi verðlags, sem er um 300 kr. pr. lítra, hefði framleiðsla ársins 1978 numið 87 milljónum króna. Samdráttur vegna kvóta, þar sem við fórum að lögum, mun nema um 18 milljónum króna. Ef við tökum síðan innvigtargjaldið, sem er 28 kr. pr. lítra, þá gerir það um 6 milljónir kr. Síðan kemur hinn frægi kjarn- fóðurskattur sém allan vanda á að leysa en sjálfsagt leggur hann alla mjólkurframleiðendur niður ef hann fær að standa. Hjá okkur má áætla hann um 12 milljónir, sem ég tel vel sloppið þar eð við höfum næga beit og mikil og góð hey. Þá er komið að útborguninni en samkvæmt skipun Fram- leiðsluráðs skal hún vera 60% yfir sumartímann, þegar megin fram- leiðslumagn búanna verður til. En við skulum setja meðalút- borgun 70% yfir árið en 30%, sem eftir standa, má reikna með að rýrni að raungildi um 50%, þar sem þessi 30% liggja að meðaltali í eitt ár. Við skulum nú gera dæmið upp. Samdráttur vegna kvóta er 18 millj. af 87 millj., eftir standa 69 millj. Af því er greitt út 70% sem gera 48 millj. 21 millj. rýrnar því í verðbólgunni um 10 millj. á næsta ári. Kjarnfóðurskattur nemur 12 millj. af 48 millj., eftir standa 36 millj., innvigtargjald 6 millj., eftir eru 30 millj. Þá er komið að hinum fasta rekstrarkostnaði og er hann sam- kvæmt útreikningum búreikn- ingastofu 65% af þeim 69 millj. sem við áttum að fá, sem gera um 45 millj. og laun þá 35% eða 24 millj. Ég tel þetta bú um þrjú ársverk svo útreikningar bú- reikningastofu eru mjög nærri lagi. En við 30 milljónirnar þarf að bæta því sem við áttum eftir ógreitt frá fyrra ári og samkvæmt verðbólgustigi yrði rauntalan um 10 millj., eins og fyrr segir, og vextir af eftirstöðvum um 3 millj. samtals. Verðá þetta þá um 43 Eiríkur Sigfússon, bóndi á Sflastöðum, lætur hér í Ijós álit sitt á aðgerðum í landbúnaði. millj. og vantar því 2 millj. upp á fastakostnað og öll laun okkar sem við þetta vinnum. Hefði kjarnfóðurskatturinn ekki komið til og útborgun verið hækkuð í 90% hefði mjólkur- framleiðslan skilað svo til fullum launum. En eftir lækkun útborg- unar og kjarnfóðurskatt verða mjólkurframleiðendur að lifa á skuldaaukningu og tel ég þó hæpið að þeim gangi vel að fá þau lán eða standa undir vöxtum af þeim. Reikna ég því með að mikil eftirspurn verði eftir líf- lömbum í haust. Það er sorglegt til að vita að maður úr bændastétt sem nú gegnir störfum landbúnaðarráð- herra, skuli gera mjólkurfram- leiðendur launalausa og mun það verða honum til ævarandi hneisu. Eiríkur Sigfússon. Bann við veiði göngusilungs í Eyjafirði Hjartagæska þeirra Eyfirðinga, sem búa við sjó, vestan Eyjafjarðar, gagnvart sportveiðimönnum, mun vera einsdæmi í íslandssögunni, þar sem þeir afhenda þeim hluta af jarðareign sinni. Auglýsing sú sem birtist í Degi 5. júní er mjög villandi því þar er ekki verið að banna nokkra silungsveiði heldur silungs- netalagningu og á ekkert skylt við neina vernd, heldur með hvaða tækjum silungur skuli veiddur. Það hefur aldrei þurft nein lög um silungsveiði í sjó, vegna þess að bændur hafa fullan rétt til þess að banna óviðkomandi mönnum slíka veiði í sinni landareign, hvort heldur er með stöng eða í net. Það sem hér hefur gerst er aðeins það, að bændur við vestanverðan Eyja- fjörð hafa afsalað sér þessum rétti. Um netaveiði er það að segja að það hefur heldur aldrei þurft nein lög þar að lútandi. Veðurfarið stjórnar því; netaveiði er ekki hægt að stunda nema í kyrru veðri. Mig hryllir við hve mikið er sært og drepið af smáfiski með stang- veiði í sjó og ef menn eru svo áfjáðir í að banna eitthvað, ættu þeir að athuga það mál. Jónatan Bencdiktsson Lofið þreyttum að sofa Tjaldstæði Akureyrar, „Hótel jörð“. Margir hafa, í sannleika sagt, notið lífsins hér, undanfarna daga og nætur. Dásamlegt veð- urfar, sólbað, sund og ilmur grængresis um daga, kyrrð og friður um bjartar nætur. En í nótt brá illa út af: „Stjáni" og tveir félagar hans voru hér á ferð, með óhljóðum, bölvi og ragni. Þeir spörkuðu í tjöldin, rifu sum opin, köstuðu grjóti og veltu tunnum um götuna m.m. Þessu héldu þeir út 4 tíma næturinnar, — um allt svæðið og vöktu íbú- ana unga og aldraða. Þeir komu ,neðan úr bæ‘, „Bakkus“ farar- stjóri, auðheyrilega Akureyring- ar, líklega 15-17 ára. : Það kom þarna einnig, líklega um Þórunnarstrætið, ung stúlka, klædd rauðum galla, á hjóla- skautum. Hún virtist þekkja pilt- ana og reyndi að fá a.m.k. einn þeirra burt með sér, en tókst ekki. Hér voru um 50 tjöld, íbúar hátt á annaðhundrað, útlending- ar í miklum meiri hluta, en þó nokkrar íslenzkar fjölskyldur, með 2-4 börn í tjaldi, sannarlega friðsamt fólk og hvíldarþurfi. Þessu lauk með því, að útlend- ingur einn hljóp ofan í bæ í leit að lögregluvernd. Þjónar réttvísinn- ar birtust þarna nokkru síðar e.t.v. á eftirlitsferð, en þeir náðu aðeins einum þessara spellvirkja, og ekki var það „Stjáni“. Sá sem náðist fékk víst fría bílferð heim til pabba og mömmu! En hvað meira? Einn af mörgum, sem sagði mér frá heimsókn þessari, rólegur landi, barmaði sér helzt yfir því, að hafa ekki vitað um aðra Is- lendinga í nálægu tjaldi, til hjálpar sér að taka strákana, fletta ofan um þá og rass-skella! Það hefði verið verðskulduð refsing — og skemmtiatriði fyrir ný- vaknaða með stýrur í augum! Þetta var áfall, álitshnekkir fyrir Akureyri, og fyrir þennan annars að mörgu leyti, ágæta stað, „Hótel jörð“. Þetta er auglýstur opinber gististaður, meðal allra staða bæjarins fjöl- sóttastur hluta úr sumrinu. Þar á bæjarstjórn ábyrgðar að gæta, af henni eru settar reglur handa þeim, sem þar dvelja, lengi und- irritaðar af bæjarstjóra. Skyldur hljóta að fylgja. „Hvar er lögreglan?" spurði einhver. Hún er of fáliðuð á þessum tíma árs til að geta fylgst með öllu, svo sem þyrfti. En ég tel að enginn staður í bæjarlandinu þyrfti fremur örugga lögvernd. Þjónar réttvísinnar fara þarna um á hverri nóttu, og a.m.k. stundum, ganga þeir um svæðið milli tjald- anna, og svo var líka gert sl. nótt, um tvö-leytið. Þá var þar friður og ró eins og flestar nætur aðrar á þessu sumri. En atvik sem þetta mætti ekki endurtaka sig. Afgirt svæði með vörzlu hverja nótt er það sem koma skal. Of lengi hef- ur dregist að ákveða og festa þessum sumargestum okkar næt- urdvalarstað síðan steinlíkanið mikla lagði undir sig græna flöt- inn sunnan við sundlaugina, illu heilli. Sá kastali hefði átt að standa uppi á gamla golfvellin- um. Túnið við Húsmæðraskólann (sem var) hefur mikla kosti sem tjaldstæði Akureyrar til fram- búðar, þarf bara ákvörðunar, skipulagningar og nokkurra framkvæmda til úrbóta. Tjaldstæði Akureyrar, 10. júlí 1980. Jónas Jónsson. íþróttamót þroska- heftra Félagar úr Eik fengu 9 verðlaun Dagana 23-26. júní sl. dvöldu 8 manns úr íþróttafélaginu Eik að Varmá, en þar voru samtals 36 manns, sem undu sér við íþróttir og leiki. Ásamt félögum úr Eik voru að Varmá íþróttamenn úr Björk í Reykjavík, Hvöt H.S.K. og nokkrir unglingar frá Skálatúni í Mosfellssveit. Félagar í Björk, Eik og Hvöt tóku þátt í íþróttahátíð Í.S.Í., en á hátíðinni var haldið sérstakt íþróttamót þroskaheftra. Mótið hófst með skrúðgöngu frá Sunnuvegi á Laugardalsvöll fimmtiidaginn 26. júní. Keppt var í sundi í Sundlaug Árbæjar daginn eftir. Tvær stúlkur úr Eik kepptu í 25 metra bringu- sundi og varð Anna Ragnars- dóttir í þriðja sæti. Laugardaginn 28. júní var íþróttamótið haldið í K.R.-hús- inu. Keppendur voru alls 25, 10 stúlkur og 15 piltar. Úti var keppt í köstum og hlaupi, en inni í hástökki og langstökki. Fer árangur þriggja efstu í hverri grein hér á eftir, en sam- tals unnu félagar úr Eik 9 verð- Anna Ragnarsdóttir, sigurvegari i hástökki. launapeninga. Mjög ánægjulegt var að taka þátt í þessum mót- um og færum við í Eik öllum þeim, sem studdu okkur fjár- hagslega og á annan hátt, kærar þakkir fyrir. (Fréttatilkynning). Boltakast 1. Ragnar Ragnarsson, Björk 41,2 2. Margeir Vernharðsson, Eik 37,4 3. Steingrímur Friðfinsson, Björk 35,2 Boltakast kvenna 1. Eygló E. Hreinsdóttir, Björk 19,2 2. Hanný Harðardóttir, Hvöt 17,7 3. Sigurbjörg Hákonardóttir, Eik 15,95 60 metra hlaup 1. Elva Björk Jónsdóttir, Hvöt 10,9 2. Ingibjörg Ármannsdóttir, Björk 11,4 3. Anna Ragnarsdóttir, Eik 11,8 Hástökk karla 1. Reynir Ingvar, Hvöt 1,15 2. Pétur Pétursson, Eik 1,10 3. ólafur Benediktsson, Hvöt 1;00 Hástökk kvenna 1. Anna Ragnarsdóttir, Eik 1,00 2. Aðalheiður Indriðad., Hvöt 1,00 3. Kristín Magnúsdóttir, Björk 0,90 Elfa Björk Jónsdóttir, Hvöt 0,90 Langstökk karla, án atrennu 1. Reynir Ingvars, Hvöt 2,20 2. Úlfar Ragnarsson, Eik 2,17 3. Pétur Pétursson, Eik 2,02 Langstökk kvenna, án atrennu 1. Anna Ragnarsdóttir, Eik 1,95 2. Ingibjörg Árnadóttir, Björk 1,88 3. Elfa Björk Jónsdóttir, Hvöt 1,68 60 metra hlaup karla 1. Kristján M. Ólafsson, Hvöt 9,5 2. Ragnar Ragnarsson, Björk 9,7 3. Reynir Ingvarsson, Hvöt 9,9 Urslit Get- rauna Fyrir leik Þórs og KA á föstu- dagskvöldið gátu vallargestir getið sér til um úrslit leiksins. Hann fór eins og menn muna þrjú mörk gegn einu fyrir KA. Sjö vallargestir gátu sér rétt til um úrslit leiksins og geta þeir sótt 1760 krónur til ör- lygs ívarssonar formanns knattspyrnudeildar KA. Þau sem gátu rétt heita: Bjöm Arason, Einar P. Sigmundsson, Björn Friðriksson, Blönduósi, Harpa María Örlygsdóttir, Lúðvík Áskelsson og örvar örlygsson. Getraunaseðlar K.A. Næstu leikir Ellefta umferð annarrar deild- ar verður leikin um næstu helgi. Á föstudagskvöldið leika á Akureyri, Þór og Austri, og á laugardaginn fer KA til Neskaupstaðar og leik- ur við Þrótt. Sama dag leika einnig saman Haukar og ís- firðingar, Völsungar og Ár- menningar og Fylkir og Sel- foss. Seinni umferð er að hefjast Síðari umferð KA getrauna er nú að hefjast og er fyrsti leikurinn á seðlinum á laug- ardaginn þegar KA sækir heim Þrótt frá Neskaupstað. Þór-KA -Þróttur Um síðustu helgi var annar flokkur Þróttar úr Reykjavík hér á Akureyri og keppti við Þór og KA i íslandsmótinu í knattspyrnu. Þórsarar unnu Þrótt með þremur mörkum gegn engu en KA strákarnir töpuðu með einu marki gegn engu. Siglfirðingar og Breiðablik Á þriðjudagskvöldið léku á Siglufirði, K.S. og Breiðablik. Þetta var bikarleikur í átta liða úrslitunum og lauk leiknum með sigri Breiðabliks, tvö mörk gegn engú. Dómari var að sunnan og voru Siglfirðingar mjög óánægðir með hans þátt í leiknum. Þeir höfðu átt von á Rafni Hjaltalín, frá Akureyri, en að þeirra dómi, svo og margra annarra, er hann með bestu dómurum landsins, sök- um hlutleysis og röggsemi. Þangað til verða seðlarnir til sölu í Sport og Hljóð, Sport- húsinu, Shell við Mýrarveg, Glerárstöðinni og hjá ýmsum forsvarsmönnum knattspyrnu- deildarinnar. Seðlarnir kosta þúsund krónur og er 25% greitt í vinning þannig að sá sem getur um tólf rétta, getur átt von á umtalsverðum vinningi. KA-getraunlr *einnf umferð þrAitur-KA 26. jó» KA KR 28. júlf 2.11 KA-Haukar 8. áaúst KA-Stjainan 14. óy. 2.ÍI. Fiam-KA 16. ég. 2.11 Fylkif-KA IS.ésös; KA-ÍBÍ 22. ógúst KA- Þif 25. ág. Ak.mót XA-So!ío$s 29. ágúst Atislfi-KA 10. s«pt. KA-Aímann 12. sept. Völsunöur'KA 20. sápt, Vetð kt. 1CÖ0 55 U.S.A.H. Bikarkeppni FRÍIII. deild Bikarkeppni FRÍ í III. deild verður háð á Blönduósi laugar- daginn 16. ágúst n.k. USAH annast alla fram- kvæmd mótsins og auglýsir hér með eftir þátttökutilkynningum frá þeim liðum sem hyggja á þátttöku. Þátttökutilkynningar skal senda undirrituðum sem fyrst og eigi síðar en 31. júlí. Karl Lúðviksson, Húnavöllum, 541 Blönduós, sími 95-4416. •%•••••••••••••*•*•**•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• 4.DAGUR DAGUR.5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.