Dagur - 02.09.1980, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
1 AKUREYRI
DAGUR
LXIII. árgangur.
Akureyri, þriðjudagur 2. september 1980
60. tölublað
Blönduvirkjun að
missa forskotið?
Blönduvirkjun kom talsvert til
umræðu á fjórðungsþingi Norð-
lendinga um heigina, þegar rætt
var um orku- og iðnaðarmál, en
Hjörleifur Guttormsson, iðnað-
arráðherra, flutti framsögu um
þá málaflokka. I máli Hjörleifs
kom meðal annars fram, að nú
væri unnið að því að afla jafn
mikillar þekkingar á Fljótsdals-
virkjun og fyrir hendi væri um
Blönduvirkjun. Niðurstöðurnar
yrðu síðan settar inn í hliðstætt
kerfi og sömu aðilar ynnu síðan
að því að meta hvor virkjunin
kæmi fremur til álita.
Norðlendingar hafa lengi haldið
því fram, að næst lægi fyrir að
virkja við Blöndu. Hún væri meðal
hagkvæmustu virkjunarkosta utan
eldvirku svæðanna, auk þess sem
sem undirbúningur og hönnun
Blönduvirkjunar væri lengst á veg
komin. Nú er ljóst að þetta forskot
verður ekki lengur Blönduvirkjun
til framdráttar, ef miðað er við
ummæli iðnaðarráðherra.
Hjörleifur sagði ennfremur, að
ekki þyrfti að fjölyrða um nauðsyn
þess að greiða úr deilunum um
Blönduvirkjun, þar sem Norðlend-
ingar væru reynslunni ríkari í slík-
um málum. Hann sagði að finna
yrði hvaða möguleikar væru á
málamiðlun varðandi þessa deilu.
Það kom fram í umræðum að
lokinni framsögu ráðherra, að ef
ekki kæmi stórvirkjun á Norður-
landi núna í nánustu framtíð, væri
ljóst að Norðlendingar þyrftu að
bíða mjög lengi enn. Þá kom fram
sú skoðun, að ekki hefði verið tekið
nógu rösklega á því að leysa deil-
una um Blönduvirkjun og að ófært
væri að þóknast örfáum aðilum,
sem settu sig á móti þessari virkjun,
þannig að hún yrði með málamiðl-
un óhagkvæmari en Fljótsdals-
virkjun. Þess vegna ætti að láta
reyna á þessi mál.
Ráðherra sagði að hann áliti að
úr því yrði að skera næsta vetur,
hvar næsta stórvirkjun yrði.
Stórskemmdir á húsinu
vegna þess að steypt var á freðna jörð
í Glerárhverfi eru tvær nýbygg-
ingar stórskemmdar og má rekja
orsakir skemmdanna til að-
gæsluleysis eða trassaskapar.
Þess var ekki gætt þegar húsin
voru steypt upp, að klaki var enn
í jörð og því fór sem fór þegar
klakinn hvarf úr jörðu.
A.m.k. annað málið er komið til
bygginganefndar og er að vænta
bókunar frá henni á morgun. Sam-
kvæmt þeim heimildum sem blaðið
hefur aflað sér er líklegt að bygg-
ingasaga hússins verði rædd á fundi
hjá bæjarstjórn, þar sem svo virðist
sem verktaki hafi ekki farið eftir
fyrirmælum um frágang á undir-
stöðum.
I báðum tilfellum voru verktakar
að smíða hús fyrir nokkra einstakl-
inga. Búið var að reisa tvær íbúðir í
raðhúsi í öðru tilfellinu (því sem
komið er til bygginganefndar) og
nú er unnið að lagfæringum og
mun verktakinn bera skaðann að
öllu leyti. Ljóst er að þarna er um
að ræða gífurlegt tjón. Ekki tókst
að afla upplýsinga um afleiðingar í
hinu tilfellinu.
Ófremdarástand í símamálum
Fyrirsjáanleg ársbið
eftir símum á Akureyri
Miðbær Akureyrar hcfur löngum verið vinsælt myndefni. Hér sjáum við
gatnamót Hafnarstrætis og Kaupvangsstrætis og skuggar kirkjunnar teygja sig
niður stallana. Mynd: á.þ.
Tæplega 9,2% ódýrara í
Hrísalundi en Hagkaupi
Fyrirsjáanlegur er skortur á
símum á Akureyri. I dag eru til
um 150 númer og má gera ráð
fyrir að þau verði búin fljótlega
eftir áramót. Eftir það verður
ekki hægt að afgreiða síma til
almennings fyrr en á árinu 1982.
Gylfi Már Jónsson, tæknifræð-
ingur hjá Pósti og síma, sagði að
1982 yrðu væntanlega teknar í
notkun 1000 línur, en vegna pláss-
leysis í gömlu stöðinni verður fyrst
að byggja við húsið áður en við-
bótin kemst í gagnið. Samkvæmt
áætlun á að byrja byggingarfram-
kvæmdir næsta sumar og á þeim að
ljúka fyrir áramótin 1981-82. Um
þau áramót ætti að vera hægt að
hefjast handa um niðursetningu
tækjabúnaðar, en það verk tekur
a.m.k. þrjá mánuði.
„Það er því í rúmt ár sem við
getum ekki afgreitt síma. Svipað
ástand skapaðist síðast fyrir um
þrem árum,“ sagði Gylfi. En var
ekki hægt að sjá fyrir þessa þróun
og bregðast við vandanum? Gylfi
sagði að það væri í sjálfu sér auð-
velt, en fjárveitingar hins opinbera
eru skornar við nögl og því var ekki
hægt að ráðast í byggingarfram-
kvæmdirnar fyrr og því síður að
kaupa nauðsynleg tæki.
Reynt verður að halda nokkrum
númerum til haga fyrir þá aðila
sem geta sannað að þeir þurfi
nauðsynlega á síma að halda. í því
sambandi má nefna lækna og
hjúkrunarfólk, en tæplega verður
starfsfólk Pósts og síma öfundsvert
að þurfa að fara í gegnum þær
umsóknir sem berast á næsta ári.
Um þessar mundir er verið að
leggja 100 lína streng í Glerár-
hverfi, en vegna skorts á línum út í
hverfið hafa nokkrir notendur þar
ekki fengið síma sína tengda. Þessu
verki er að ljúka og verður hægt að
tengja símana í þessum mánuði.
„Þessi strengur mun nægja þeirri
byggð sem fyrirhugað er að rísi í
Glerárhverfi næstu árin,“ sagði
Gylfi Már að lokum.
Vegna þeirrar miklu umræðu
sem orðið hefur um vöruverð á
Akureyri undanfarið, gerði
Verðlagsskrifstofan á Akur-
eyri könnun á vöruverði í stór-
verslununum i Hrísalundi og
Hagkaupi þann 11. ágúst sl.
Niðurstaðan varð sú í megin-
dráttum, að vöruverð í Hrísa-
lundi reyndist 9,13% lægra
heldur en í Hagkaupi.
Ekki er hægt að fá nákvæmar
niðurstöður úr könnuninni, þar
sem þær hafa verið meðhöndlað-
ar sem trúnaðarmál, nema hvað
viðkomandi verslanir hafa fengið
þær. Hins vegar hafði eitthvað
kvisast um þessa könnun og var
þá ákveðið 1 samráði við verð-
lagsstjóra, Georg Ólafsson, að
greina frá meginniðurstöðunum,
þegar eftir því var leitað.
Að sögn Níelsar Halldórssonar
á Verðlagsskrifstofunni á Akur-
eyri náði könnunin til sextíu og
einnar vörutegundar. Af þessum
tegundum voru 10 ekki fáanlegar
í Hrísalundi og 6 voru ekki fáan-
legar í Hagkaupi.
Nákvæmlega sambærilegar
vörur, bæði hvað varðar fram-
leiðanda, pakkningu og gæða-
flokkun, voru 39 talsins og er
meginniðurstaðan miðuð við
þessar vörur. Þetta eru matvörur
að langmestu leyti, sem notaðar
eru dags daglega. Meðalverð
þessara 39 vörutegunda, þ.e.
heildarverðið deilt með tegunda-
fjölda, var 643,31 krónur í Hag-
kaupi, en 589,44 krónur í Hrísa-
lundi. Frekari upplýsingar feng-
ust ekki hjá Verðlags$krifstof-
unni.
Samkvæmt þessu hefur heild-
arverð þessara 39 vörutegunda
numið 25.089,09 krónum í Hag-
kaupi og 22.988,16 krónum í
Hrísalundi.
Starfsmenn bæj-
ar og ríkis þinga
um samningana
I kvöld munu starfsmenn Akur-
eyrarbæjar og ríkisins halda fund
í Sjálfstæðishúsinu um kjara-
samningana. Á fundinn kemur
Haraldur Steinþórsson. At-
kvæðagreiðsla um samningana
fer fram n.k. fimmtudag og
föstudag.
Sjóstangaveiðimót
Á laugardaginn var haldið
sjóstangaveiðimót á Eyjafirði.
Áflahæsta sveitin fékk 421,6 kíló,
en í sveitinni voru: Konráð
Ámason, Matthías Einarsson,
Karl Jörundsson og Þorvaldur
Nikulásson. Aflahæsta konan var
Margrét Karlsdóttir frá Keflavík
með 85.4 kíló, en aflahæsti karl-
inn var Andri P. Sveinsson með
128.6 kíló. Flesta fiska dró Jó-
hannes Kristjánsson — 100 stykki
og stærsta þorskinn innbyrti
Bjarki Arngrímsson. Þorskurinn
sá arna vó fimm kíló eitthundrað
og fimmtíu grömm.
Alþingismenn
Alþingismennirnir Stefán Val-
geirsson og Guðmundur Bjarna-
son verða með almenna stjórn-
málafundi á ýmsum stöðum á
Norðurlandi nú næstu daga.
Héraðsfundur
Héraðsfundur Eyjafjarðarpró-
fastsdæmis verður haldinn
sunnudaginn 7. september á Dal-
vík. Fundurinn hefst í Dalvíkur-
kirkju með guðsþjónustu klukkan
13.30. Minnst verður 20 ára af-
mælis kirkjunnar. Á dagskrá
fundarins verða venjuleg héraðs-
fundarstörf. Erindi flytur Helgi
Símonarson, safnaðarfulltrúi,
Þverá, Svarfaðardal.
Utsvör á
Sauðárkróki
Á fundi bæjarráðs Sauðárkróks,
sem haldinn var fyrir skömmu,
var lagt fram yfirlit yfir álögð út-
svör 1980 og nema þau kr.
469.974.000. Álögð aðstöðugjöld
á einstaklinga 1980 nema kr.
19.850.000. Álagning aðstöðu-
gjalda fyrirtækja liggur hins vegar
ekki fyrir.