Dagur - 23.09.1980, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
LXIII. árgangur.
Akureyri, þriðjudagur 23. september 1980
66. tölublað
Sncmma bcygíst krúkurinn. Þcssi ungi piltur var að vciða á bryggjunni lijá
Krossancsi um daginn og hcr prílar hann kampakátur í fjörugrjótinu mcð
vænan ufsa. Mynd: á.þ.
Aldrei færri en sex
tegundir í verslunum
„Við höfum hugsað okkur að
gera stórátak í að auka fjöl-
breytnina. Um jólin er gert ráð
fyrir að komnar verði tvær nýjar
tegundir af jógúrt á markaðinn
og á næsta ári koma fleiri teg-
undir, en hugmyndin er að aldrei
verði færri en sex mismunandi
tegundir af jógúrt í verslunum
hverju sinni,“ sagði Þórarinn
Sveinsson, framleiðslustjóri hjá
Mjólkursamlagi KEA, en for-
ráðamenn Mjólkursamlagsins
boðuðu til fundar fyrir helgi þar
sem gestum var boðið að reyna
tólf mismunandi tegundir af
jógúrt.
Þegar Mjólkursamlag KEA var í
Kaupvangsgili var aðstaða til
jógúrtframleiðslu mjög erfið, enda
húsnæðið lítið. Nýir möguleikar
opnuðust með tilkomu hins glæsi-
lega mjólkursamlags við Súlnaveg.
Gestir og starfsfólk Mjólkur-
samlagsins fengu að reyna eftirfar-
andi tegundir: hnetujógúrt, guave
(bragðefnið fengið úr suðrænum
ávexti), sveskjujógúrt, melónu-
jógúrt, kaffijógúrt, jógúrt með
blöndu af karamellu- og hnetu-
bragði, jógúrt með blöndu af
ferskjum og hindberjum, birki-
jógúrt, kókosjógúrt og loks ráku
lestina þrjár mismunandi tegundir
af jarðarberjajógúrt. Fólk varbeðið
um að gefa umsögn um hverja teg-
und og eftir lauslega athugun á
þeim virðist því hafa líkað einna
best við blönduna af ferskjum og
hindberjum og einnig fékk kókos-
jógúrtin góða dóma.
Þórarinn Sveinsson sagði að
Mjólkursamlag KEA hefði fullan
hug á að auka markaðshlutdeild
sína á þessu sviði, en fyrirtækið
framieiddi ekki nema 44 þúsund
lítra af jógúrt á síðasta ári. Nú
framleiðir fyrirtækið þrjár jógúrt-
tegundir, þ.e. bláberja-, manda-
rínu- og jarðarberjajógúrt. Þegar
nýju tegundirnar koma á markað-
inn er gert ráð fyrir að tvær hinar
fyrstnefndu hverfi.
Þegar jógúrtframleiðslan er haf-
in fyrir alvöru verður vinsælasta
tegundin fáanleg í 'ó ltr. umbúðum
og síðar verður e.t.v. sett á markað
I Itr. ferna.
Þórarinn sýpur á nýrri tcgund. T.h. er Kristján Kristjánsson auglýsingatciknari aó
smakka. Mynd: á.þ.
Ríkið eignaraðili að KJ?
— Við höfum ekkert heyrt frá
þessari nefnd ennþá og vitum
raunar ekkert livað hún er að
gera, sagði Mikael Jónsson,
framkvæmdastjóri K. Jónssonar
og Co. í viðtali við Dag, en sem
kunnugt er fóru forsvarsmenn
fyrirtækisins fram á það við
bæjaryfirvöld á Akureyri, að at-
hugað yrði hvort bærinn gæti
komið fyrirtækinu að einhvcrju
liði vegna mikilla rekstrarerfið-
leika.
Heyrst hefur að Helgi Bergs.
bæjarstjóri. hafi skrifað iðnaðar-
ráðuneytinu bréf þar sem farið var
frani á að athugað yrði hvort ríkis-
sjóðurgæti hlaupið undir bagga og
jafnvel orðið aðili að rekstri fyrir-
tækisins ásamt öðruni. Ilelgi er
erlendis og fékkst þetla þvi ekki
staðfest hjá honum. en Valgarður
Baldvinsson. bæjarritari. \ildi
hvorki játa þvi né neila að slikt biel'
hefði verið sent. Valgarður sagði
hins vegar að nefndin ætti að koma
saman til fundar i þessari viku.
Mikael Jónsson sagði að það
(Franthald á bls. 6).
SLÆM
ÁHRIF
Kristján Ásgeirsson, formað-
ur verkalýðsfélagsins á
Húsavík, sagði að félagið
væri þegar búið að mótmæla
ákvörðun ráðuneytisins,
enda hefði hún slæm áhrif á
atvinnulíf á Húsavík.
,,Ég er hræddur um að þeir
sem hafa byggt afkomu sína á
rækjuútgerð verði illa settir, því
þeirra bálar eru sérstaklega
búnir til rækjuveiða. Eins hafa
sumir hverjir verið í útgerð
vegna þess að þeir gátu stundað
rækjuveiðar," sagði Kristján
Ásgeirsson. „Hins vegar er eng-
inn kominn til með að segja það
að kvótinn verði ekki stækkaður
um 100 tonn á fyrri hluta vetrar
og þá er þetta orðið sæmilegt
fyrir tvær verksmiðjur. Ekki síst
ef samvinna yrði um hráefni
milli Húsavíkur og Kópaskers
— hvort sem það væri rækja eða
annar fiskur.
Fasteignasalan:
Samdráttur
— Fólk er hætt að kaupa íbúðir
með því hugarfari, að þetta
hljóti að hjargast einhvern veg-
inn, eins og hjá öllum öðrum,
sagði Ragnar Steinbergsson,
lögmaður og fasteignasali í við-
tali við Dag, en mjög dræm sala
hefur verið á fasteignum á Ak-
ureyri síðan í vor.
Ragnar sagði að áberandi væri.
hve lítið seldist af litlum ibúðum,
2ja og 3ja herbergja íbúðum, en
það væru einmitt íbúðirnar sent
ungt fólk byrjaði jafnan á að fjár-
festa í. Hann sagði að lánsfjár-
kostnaðurinn væriorðinnsvomikill.
að fólk sem ekkert ætti fvrir sæi
sér hreinlega ekki fært að kaupa
íbúð. Nokkru ntinni samdráttur
hefur orðið í sölu einbvlishúsa.
raðhúsa og stærri íbúða. enda er
þar á ferðinni kaupendur sem að
öllu jöfnu eiga ibúð fyrir. að sögn
Ragnars.
Httnn gat þess. að 2ja-3ja her-
bergja íbúðir í blokk k'osluðu 25-27
ntilljónir króna og 3ja lierb. ibúöir i
raðhúsi um og vfir 30 milljónir.
Nýtt rækjustríð í uppsiglingu
Húsvíkingar óánægðir
með nýja rækjukvótann
Rækjuveiðar hefjast í Öxarfirði
þann 1. október n.k. Hafrann-
sóknarstofnun hefur iagt til að
leyft verði að veiða 300 tonn á
komandi vertíð. í fyrra var
kvótinn 400 tonn. Fyrst um sinn
munu aðeins bátar frá Kópa-
skeri fá leyfi til að veiða og hef-
ur þetta valdið óánægju á
Húsavík, en þaðan hafa nokkrir
bátar stundað rækjuveiðar. Ef
bátunum frá Kópaskeri gengur
vel er hugsanlegt að Húsavíkur-
bátarnir fái að veiða eitthvað.
,,Við erum mjög óánægðir með
þessa ákvörðun. Hér er verksmiðja
sem er fullbúin til rækjuvinnslu og
var í henni unnin djúprækja í sum-
ar. Á Húsavík eru líka bátar sem
sérstaklega eru búnir á rækuveiðar,
enda hafa þær verið stundaðar
héðan um árabil og það má minna
á að Húsvíkingar uppgötvuðu og
nýttu fyrstir manna miðin í Öxar-
firði. I reynd þýðir þessi ákvörðun
að um atvinnuleysi verður að ræða
meðal verkafólks. Langir biðlistar
eru vegna vinnu í Fiskiðjunni og nú
verðum við að taka fyrst fólkið sem
vann í rækjuvinnslunni," sagði
Tryggvi Finnsson, framkvæmda-
stjóri Fiskiðjunnar.
Að sögn Tryggva óttast Húsvík-
ingar að þeir komi ekki til álita
þegar kvótum verður úthlutað síðar
— að Kópaskersbúar sitji einir að
rækjuveiðunum þegar stofninn
hefur náð sér úr þeirri lægð sem
hann er nú. „En við teljum að okk-
ar réttur sé ekki minni en þeirra.
Þegar rækjan fannst var engin út-
gerð á Kópaskeri," sagði Tryggvi.
„en þessi kvóti var ákveðinn eftir
nánast engar athuganir og því
gæti ástandið verið annað og betra
en búist var við.“
Dagverðarvík
boðin til kaups
Fyrir skömmu var Akureyrarbæ
boðin til kaups fasteignin Dag-
verðarvík í Glæsibæjarhreppi.
Hér er um að ræða ca 4 hektara
lands ásamt mannvirkjum. Bæj-
arráð samþykkti að fela bæjarrit-
ara að taka upp viðræður við
Franz Árnason, sem bauð fast-
eignina til kaups fyrir hönd
Norðurvcrks.
Vilja reisa Jóni
frá Ljárskógum
minnisvarða
Aðdáendur og vinir Jóns frá
Ljárskógum hafa ákveðið að reisa
honum minnisvarða. Nú er unnið
að því að safna fé á Akureyri og
víðar um land og að sögn
Brynhildar Björnsdóttur, sem
stendur fyrir söfnuninni, hafa
undirtektir almennings verið
góðar, en enn vantar töluvert á að
hægt sé að reisa minnisvarðann.
Þeim sem vilja láta fé af hendi
rakna er bent á að hafa samband
við Brynhildi, en hún býr í Norð-
urgötu 34. Einnig getur fólk lagt
fé á vaxtaaukareikning nr. 34 í
Sparisjóði Glæsibæjar, Akureyri.
Aðrir sparisjóðir taka einnig móti
framlögum.
Vildu leigja
Bæjarráð fékk fyrir skömrnu bréf
frá Guðmundi H. Frímannssyni
og fleirum þar sem farið var frant
á að fá til afnota Gránufélagsgötu
9. gamla verslunarmannafélags-
húsið. Ætlunin var að kynna þar
list af margvíslegu tagi. Bæjarráð
gat ekki orðið við erindinu þar
sem áformað er að rila húsið
þegar sú starfsemi sem þar hefur
verið hefur fengið athvarf annars
staðar.
SBB
Aðgangseyrir að
Sundlaug Akur-
eyrar
Bæjarráð hefur samþvkki að að- p
gangseyrir að Sundlaug Akureyr-
ar verði sem hér segir: Fullorðnir
kr. 550, börn kr. 220. gufubað kr.
9(X). sundföt kr. 450 og handklæði
kr. 450.
WM1
WlBiMllliÍlI
■