Dagur - 23.09.1980, Blaðsíða 8
Kabarettinn
MIKILL HUG-
URI FÓLKI
„Við komum saman á laugardag
um 20 manns og lögðum á ráðin.
Það er mjög mikill hugur í öllum
og gífurlegur áhugi á að hrinda
þessu í framkvæmd. Það er
meira að segja svo langt komið,
að við stefnum á að frumsýna
11. október og ég leyfi mér að
segja frumsýna, því ég er mjög
bjartsýn á að þetta gangi og ég
held að sýningarnar geti orðið
talsvert fleiri en ein,“ sagði
Sunna Borg, leikari, í viðtali við
Dag um fyrirhugaðan kabarett í
Sjálfstæðishúsinu, sem greint
var frá fyrir helgina.
Á undirbúningsfundinum á
laugardag, sem haldinn var í Sam-
komuhúsinu, kom strax fram ýms-
ar hugnryndir. Gert er ráð fyrir
blönduðu efni af ýmsu tagi, þar
sem glens og gaman verður í fyrir-
rúmi. Nefna má stutta leikþætti,
tónlist, gamanvísur og dans.
Ýmislegt verður gert til að ná
upp stemningu meðal áhorfenda
en það verður ekki látið uppi, því
hluti af öllu saman verða óvæntar
uppákomur.
„Við stefnum að því að sýningin
fari sent mest frarn á gólfinu og
innan um áhorfendur og að þeir
taki að einhverju leyti þátt í sýn-
ingunni," sagði Sunna Borg.
Kabarettinn verður í nafni Leikfé-
lags Akureyrar og til fjáröflunar
fyrir félagið. Allt er unnið i sjálf-
boðavinnu og félagið þarf enga
greiðslu að inna af hendi vegna
leigu á Sjálfstæðishúsinu og
hljómsveit hússins verður hópnum
til afnota.
Um borð í Hríseyjarferjunni. Mynd: HSv.
VILJA FYRST VITA
LEGU NÝJA VEGARINS
„Vaðlaskógur er opinn hverjum
þeim sem í hann kemst. Fyrir
nokkrum árum var gönguhlið við
skátaheimilið Valhöll, en fólk
skildi það oft eftir opið og því
fylltist reiturinn af sauðfé. Því var
Tónlistar-
skólinn
settur
Tónlistarskólinn á Akureyri er
nú að hefja sitt 36. starfsár. Llm
470 nemendur eru innritaðir í
skólann, sem er nú fullsetinn, og
raunar ekki verið hægt að anna
allri eftirspurn. Kennt verður í
20 greinum hljóðfæraleiks og
söngs, einnig í allmörgum
kjarnagreinum eins og forskóla,
tónfræði, tónheyrn, hljómfræði
og tónlistarsögu.
Kennarar við skólann verða 22,
þar af eru 3 stundakennarar. Öll
kennslan fer nú fram á sama stað,
eða í húsnæði skólans Hafnarstræti
81. en með nýbyggingu skólans,
sem tekin var í notkun í mars sl. var
lögð niður kennsla á 3 stöðum úti i
bæ. Við það stórbatnaði aðstaða til
skólahalds. Nýir kennarar í föstum
stöðum eru:
Gunnar H. Jónsson gítarkennari,
en hann starfaði í mörg ár við
Tónskóla Sigursveins í Reykjavík.
Paula Parker píanókennari, sem
er bresk en stundaði á síðasta vetri
framhaldsnám í París.
Tom Larson frá Noregi kennari á
básúnu og horn. Upphaflega var
ætlunin að setja skólann á mið-
vikudaginn 24., en vegna ófyrir-
séðra tafa og þess hve erfiðlega
hefur gengið að fá upplýsingar um
stundaskrár nemenda i öðrum
skólum verður skólasetningu frest-
að til laugardagsins 27. sept, og fer
hún fram í Akureyrarkirkju kl. 17.
Kennsla hefst samkvæmt stunda-
skrá mánudaginn 29. sept.
hliðinu lokað og í stað þess settar
tröppur yfir griðinguna hjá Val-
höll“, sagði Oddur Gunnarsson,
formaður Skógræktarfélags
Eyfirðinga vegna klausu er birtist
í „smátt og stórt“ fyrir skömmu.
Skógræktarfélagið hefur ekki
séð sér fært að leggja í vegafram-
kvæmdir í Vaðlaskógi þar sem
skógræktarmenn telja ekki full-
víst hvar nýr vegur út á Sval-
barðsströnd muni liggja. Oddur
sagði að ef yrði lagður vegur frá
núverandi vegi gæti hann orðið
gagnslaus innan fárra ára og það
væri þvi að kasta fé á glæ að
leggja í slíkar framkvæmdir.
Það getur því orðið bið á því að
hver og einn geti komist með
góðu móti í Vaðlaskóg og notið
þar útiveru.
BYGGT
Á vegum Kaupfélags Lang-
nesinga er verið að byggja
nýtt hús er á að geyma bygg-
ingavöruverslun félagsins í
framtíðinni. Þegar nýja húsið
verður tekið í notkun er talið
að gólfflötur verslunarhús-
næðis á Þórshöfn aukist um
100% — hvorki meira né
minna.
En byggingaframkvæmdir
eru miklar á Þórshöfn um þess-
ar mundir. Iðnaðarmenn kepp-
ast við að ijúka við smíði
grunnskólans. f vor var lokið
við trésmíðaverkstæði og í nóv-
ember er gert ráð fyrir að lokið
verði við smíði leiguíbúða, sem
byggðar eru á vegum sveitarfé-
lagsins. Það er einnig verið að
byggja dagheimili á vegum
þess. Smíði elliheimilis stöðv-
aðist vegna fjárskorts á sínum
tíma, en heimamenn gera sér
góðar vonir um að Ijúka því
fyrir mitt næsta ár. Heyrst hefur
að nokkrir aðilar séu að bræða
með sér hvort hægt sé að ráðast í
byggingu iðngarða, en hvort af
verður er ekki vitað enn.
Fræðslufundir
og hausfþing
Árlegt haustþing og fræðslu-
fundir Bandalags kennara á
Norðurlandi eystra verður að
þessu sinni haldið í Dalvíkur-
skóla dagana 9.-10. okt.
næstkomandi. Námsstjórar og
leiðbeinendur í ýmsum greinum
munu koma og halda stutt
námskeið og fræðslufundi svo
sem venja er til. Þá mun Ingvar
Gíslason, menntamálaráðherra,
DAGXJR
Nú er yfirvofandi verkfall hjá
blöðunum. Fyrst munu dag-
blöðin í Reykjavík stöðvast,
en síðar landsmálablöðin. Ef
að líkum lætur mun Dagur
ekki koma út n.k. þriðjudag,
og eru auglýsendur beðnir
um að hafa það í huga. Næsta
blað kemur út á fimmtudag-
inn og þar næsta ekki fyrr en
2. október.
ávarpa fundargesti og erindi
munu flytja þeir Sturla
Kristjánsson, fræðslustjóri, Sig-
urjón Jóhannesson, skólastjóri
og Ásgeir Guðmundsson,
námsgagnastjóri. Auk þess mun
erindreki K.í. þinga með
trúnaðarmönnum og áhugafólki
og fulltrúi úr útgáfustjórn K.í.
þinga með trúnaðarmönnum og
áhugafólki. Fulltrúi úr út-
gáfustjórn K.f. verður gestur á
þinginu.
Gistiaðstaða, þ.e. svefnpoka-
pláss, fyrir þátttakendur verður í
heimavist Dalvíkurskóla og i
Húsabakkaskóla í Svarfaðardal, en
þangað er u.þ.b. 10 mín akstur frá
Dalvík. Matsala verður í Víkurröst.
Föstudagskvöldið þ. 10. okt.
verður árshátíð B.K.N.E. í Víkur-
röst, tími, dagskrá og verð auglýst á
staðnum.
Fræðslustjóri hefur fallist á að
gefa þeim kennurum, sem ætla að
sækja fræðslufundi leyfi frá störf-
unt dagana 9. og 10. okl.
HEIMATILBUNAR BYSS-
UR ERU SKAÐVALDAR
ins hefjast á haustin. Byssur af
þessu tagi eru gerðáf úr gúmmi-
hanska og plaströri. Börnin setja
gjarnan baunir og þ.h. í hanskann,
toga í og skjóta bauninni af ótrú-
legum krafti út um rörið. Lög-
reglumaðurinn sagði einnig að það
hefði komið á daginn, að foreldrar
hjálpuðu börnum sínum að búa til
byssur af þessu tagi. Það væri líka
ljóst að þeir gerðu sér ekki grein
fyrir um hve hættuleg leikföng væri
að ræða. Magnús Stefánsson vildi
eindregið hvetja foreldra til að gera
byssurnar upptækar.
í síðustu viku var komið með
ungan dreng á Fjórðungs-
sjúkrahúsið. Drengurinn var
með alvarlegt meiðsl á auga af
völdum túttubyssu. Þetta er
annað tilfellið af þessu tagi á
árinu.
Magnús Stefánsson, læknir á
bamadeild FSA, sagði að drengur-
inn myndi ekki missa sjón á auga,
en meiðslin væru alvarleg.
Að sögn lögreglumanns á Akur-
eyri gengur gjarnan yfir „túttu-
byssufaraldur" þegar skólar bæjar-
0 Vegamál og
önnur mál
Þeir sem hafa hringt í Vega-
gerð ríkisins hafa sjálfsagt
rætt við Ijúfa rödd sem segir
þegar hún svarar: „Vegamál,
góðan dag“. Þetta er mun
auðveldara í munni en:
„Vegagerð ríkisins, góðan
dag“. Nú leggur Smátt og
stórt til að aðrar ríkisstofnan-
ir taki Vegagerð ríkisins sér
til fyrirmyndar. Til dæmis
gæti starfsfólk Pósts og síma
sagt: Póstmál, Símamál eða
Landsímamál. Hjá Rafveitum
ríkisins gæti fólk sagt:
Rafmagnsmál, Línumál eða
jafnvel Vandamál ef
rafmagnstruflanir eru tíðar.
Þeir sem hringja til Dags í
framtíðinni mega ekki verða
undrandi þótt svarað verði
Blaðamál eða jafnvel Dag-
mál, góðan dag.
0 Ljóslausir
staurar
Maður nokkur úti í bæ hafði
samband við blaðið og bað
um að eftirfarandi athuga-
semd yrði komið á framfæri.
Snemma í vor voru settir upp
staurar á gatnamótum Þór-
unnarstrætis og Hamarsstígs
og áttu þeir að verða að
gangbrautarijósum. En ekk-
ert hefur gerst í málinu og eru
staurarnir enn Ijóslausir. Nú,
þegar margir gangandi nýlið-
ar eru f umferðinni, á leið í og
úr skóla, væri ekki úr vegi að
koma þessum staurum í
gagnið því ekki koma þeir að
mikium notum Ijóslaustir.
0 Fýla
Það er engin ný bóla að Ak-
ureyringar — og þó sérstak-
lega þeir sem búa í Glerár-
þorpi — geti vart dregið and-
ann vegna fýlunnar sem berst
úr Krossanesi. Nú liggur yfir
bænum dag eftir dag bláleitt
ský sem ætlar menn hreint
lifandi að drepa. Sfðasta
dæmið um áhrif lyktarinnar
er saga sem maður einn
sagði okkur. Hún var einfald-
tega á þann veg að hann á
erfitt með að selja húsið sitt,
en það er utarlega í Glerár-
hverfi og á þeim stað þar sem
skýið liggur oftast yfir.
0 Stríðsletur
Kunningi blaðsins stakk því
að starfsmönnum Dags að
síðdegisblöðin í Reykjavík
gætu lent í erfiðleikum ef
heimsstyrjöld brytist út einn
góðan veðurdag. Þau hafa
nefnilega spanderað stríðs-
letri á rottustríð í Grindavík
og annað í þeim dúr og eiga
ekki til stærra letur í fórum
sinum.