Dagur - 25.09.1980, Qupperneq 3
25 FERÐIR
í HVERRIVIKU
Vetraráætlun innanlandsflugs
Flugleiða hefst 1. október n.k.
og stendur til loka aprílmánað-
ar. Innanlandsáætlun er í meg-
inatriðum hin sama og í fyrra-
vetur og viðkomustaöir allir þeir
sömu. Sætaframboð verður
ehmig svipað. Til flugsins verða
nptaðar fjórar Fokker Friend-
j/ship flugvélar. Þrjár af gerðinni
æIzVjÍJM) með 48 sæti og em-
^j|-27-500 með sæti fyrir 56 far-
þega. Sú síðasttalda verður að-
állega í flugi niilli Reykjavíkur
og Akureyrar.
i Til Akureyrar verða 25 flug þ.e.
þrjár ferðir á dag fimm daga vik-
unnar, en fjórar ferðir á fimmtu-
dögum og fimm ferðir á föstudög-
um.
Eins og undanfarin ár tengjast
áætlunarflug Flugleiða til Akur-
eyrar ferðum Flugfélags Norður-
lands til Vopnafjarðar, Þórshafnar,
Raufarhafnar, Kópaskers, Gríms-
eyjar og Siglufjarðar. ,
Á því tímabili vetrarins sem flug-
vélar Flugleiða fara í árlegar skoð-
anir er í ráði að leigð verði 19 sæta
Twin Otter flugvél til að annast
flug á leiðum félagsins. Flugmenn'
Flugleiða munu fljúga þessari
léiguflugvél. Talið er að í heildina
muni skoðanir Fokker Friendship
vélanna taka 3 mánuði.
Norðlendingafjórðungur:
Heildarafli
Heildarafli í Norðlendinga-
fjórðungi var tæplega 180 þús-
und lestir fyrstu 8 mánuði árs-
ins, eða tæplega 30 þúsund lest-
um meiri en á sama tima í fyrra.
Þorskafli bátanna minnkaði um
rösklega 3 þúsund lestir og varð
Helgar-Dagur kemur út á
morgun eftir nokkurt hlé.
Meðal efnis í blaðinu er grein
um barnateikningar eftir Helga
Vilberg, Guðmundur Gunnars-
son skrifar um tónlist og Eiríkur
Sigurðsson, fyrrverandi skóla-
stjóri, skrifar um Hamarkots-
klappir, auk greinar um gömul
hús. Umsjónarmaður Helgar—
Dags er Guðbrandur Magnús-
son, blaðamaður.
rúmlega 20 þúsund lestir, en
þorskafli togaranna minnkaði
enn meira á milli ára, eða úr
tæplega 42.900 lestum fyrstu
átta mánuðina í fyrra í 36.800
lestir fyrstu átta mánuðina í ár.
Heildarbotnfiskafli bátanna
minnkaði um 3.500 lestir og varð
rösklega 21 þúsund lestir, en heild-
arbotnfiskafli togaranna minnkaði
um eitt þúsund lestir og varð fyrstu
átta mánuðina í ár 56.600 lestir.
Mjög mikil aukning varð á
loðnulöndun í Norðlendingafjórð-
ungi fyrstu 8 mánuðina miðað við
sama tíma í fyrra. Þannig var land-
að í ár rösklega 99 þúsund lestum á
móti 65 þúsund lestum í fyrra.
JPbridge
Aðalfundur Bridgefélags
Akureyrar veröur haldinn
þriðjudaginn 30. sept.
í Félagsborg og hefst kl. 20.
Glæsilegar
hurðir á vægu
verði
Mikið úrval af
fulningaútihurðum
SÍMI22233
AKURVlK III
GLERÁRGÖTU 20 — 600 AKUREYRI — SlMI 22233
Nykomnar
vorur
Buxur
Bolir
Jakkar
Skór
Sporthú^id
AKUREYRINGAR - NÆRSVEITAMENN
Crvalaf
haustvörum:
Vattjakkarnir vinsælu
komnir aftur.
Ullarbuxur Dömu og
herra.
Wrangler og Bandidó
gallabuxur.
Leöurkápur og leður-
jakkar
Herraskyrtur og bómull-
arbolir
Dömu og herrapeysur
stórglæsileg jakkaföt —
dömuullarkápur og
margt, margt fleira.
Nýir eigendur — nýjar
vörur — góð þjónusta:
Frá plötudeild — vekj-
um athygli á B.A.
Robertsson — Gary
Newman — Diana Ross
ásamt fullt af öðrum nýj-
um plötum.
Afsláttarkortin frá Tísku-
sýningu Cesars gilda til
15. október
Sjón er sögu ríkari
Við bjóðum alla vel-
komna í CE§AR
CE$\R
toppurinn
ídag
DAGUR.3