Dagur - 25.09.1980, Blaðsíða 6
Búmark. kvóti og
kjarnfööurgjald
Borgarbfó er nú að hefja sýn-
ingar á hinni sprenghlægi-
legu og djörfu, dönsku
mynd, I Bogmannsmerkinu.
Aðalhiutverk leikur Ole
Söltoft, en margir kannast
við hann úr „Rúmstokks-
myndunum." í Bogmanns-
merkinu fer Ole með hlut-
verk njósnarans Jensen nr.
69 og reynir ásamt njósnur-
um stórveldanna að komast
yfir teikningar af leynilegum
eldflaugastöðvum neðan-
sjávar í Norðursjó. Leikur-
inn berst til Norður-Afríku
og kemur þá upp úr dúrnum
að teikningarnar eru í púð-
urdós magadansmeyjar.
Jensen karlinn kemst yfir
dósina en þá hefur eltinga-
leikurinn borist til megrun-
arhælis dr. Schmierkáse,
sem viðhefur næsta sér-
kennilegar aðferðir til
megrunar. Kl. 11 sýnir
Borgarbíó myndina Varalit-
ur sem er mjög spennandi
Frá Sjálfsbjörg Akureyri og
nágrenni. í gjafalista bygg-
ingarsjóðs Sjálfsbjargar yfir
tímabilið 1.1-30.6 1980, urðu
þau leiðu mistök að gjöf frá
Svarfaðardalshreppi misrit-
aðist. Hið rétta er að Svarf-
aðardalshreppur gaf kr.
500.000,- I nýútkomnum
kynningarbæklingi félagsins
féll niður nafn einsvgefand-
ans. Lionsklúbburinn Vit-
aðsgjafi gaf kr. 400.000,- Eru
hlutaðeigendur innilega
beðnir afsökunar á þessum
leiðu mistökum. Stjórnin.
Við sendum öllum þeim sem
studdu okkur við fjáröflun
félagsins, sunnudaginn 21.
sept., bestu þakkir. Lifið
heil. íþróttafélag fatlaðra,
Akureyri.
UJREimtS Prssants a FREDOtE FIELOS proAt
Lipstlck
'he story of a woman's outrage
and a woman's revonge.
kitrodudng MARGAUX HEMINGWAY
«IS SAflANOON PERRY KING and ANNEBAI
0S Directed by LAMONT JOHNSON ScrBtmp
HEl P0LNAREEF TECHNIC0L0R' A PARAM0
Sölubörn óskast til að selja blað
og merki Sjálfsbjargar,
sunnudaginn 28. sept. Vin-
samlegast komið í Bjarg kl.
10 f.h. Sölulaun. Sjálfsbjörg.
I.O.O.F. 2 162268 'A — 9 = III
Innritun á
dagvistarheimili
hjá Félagsmála-
stofnun
Ákveðið hefur verið að innritun
bama á dagvistarheimili Akur-
eyrarbæjar verði á einum stað frá
og með 1. október n.k.
Undanfarin ár hefur verið
mikil umræða I félagsmálaráði
Akureyrarbæjar um hvernig dag-
vistarmálum hér í bæ væri best
komið. Að undangenginni könn-
un ákvað ráðið á fundi sínum 10.
sept. s.l. að flytja innritunina til
Félagsmálastofnunar Akureyrar,
sem síðan I vor hefur starfað í
stærri og betri húsakynnum en
áður. Er vonast til að þessi breyt-
ing spari dagvistarheimilunum
mikið ónæði og leiði til betra
innra starfs og jafnframt að auð-
veldara verði að leiðbeina for-
eldrum og jafna biðtímann, sem
núna er oftast á annað ár.
Umsóknum verður veitt mót-
taka í síma 25880 á þriðjudögum
og miðvikudögum kl. 10-12, í
fyrsta sinn miðvikudaginn 1. okt-
óber.
í síðasta mánuði var lokið við að
reikna „Búmark“ allra bænda
landsins. Það er byggt á fram-
leiðslu bænda á sauðfjár- og
nautgripaafurðum á árunum
1976, '11 og 1978. Bændum er að
sjálfsögðu gefið tækifæri til að
gera athugasemdir við þessa út-
reikninga, og „Búmarkið“ er
leiðrétt ef það hefur reynst
ranglega rnetið. Þessa útreikn-
inga, og „Búmarkið“ er leiðrétt
ef það hefur reynst ranglega
metið. Þessa dagana er verið að
fara yfir athugasemdir, sem
borist hafa frá bændum og
gerðar leiðréttingar, þar sem
þær eru taldar réttmætar. Þetta
starf er unnið á vegum Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins.
Næsta skref er að reikna kvóta
fyrir alla framleiðendur í þessum
hefðbundnu búgreinum. Verulegar
líkur eru á, að kvótinn verði nokk-
uð rýmri en fyrirhugað var í upp-
hafi, þegar ákveðið var að beita
kvótanum. Næstu daga mun
Framleiðsluráð landbúnaðarins
taka endanlega ákvörðun um
framkvæmd kvótans.
Mjög fljótlega munu mjólkur-
framleiðendur fá í hendur kjarn-
fóðurskort, sem gefur þeim rétt til
að kaupa ákveðið magn af fóður-
blöndu með gjaldi, sem er rúmlega
33% af cif verði kjarnfóðurs.
Eins og er miðast magnið við 175
g af fóðurblöndu á móti hverjum
innlögðum mjólkurlítra. Það sem
keypt er umfram greiðist með 200%
gjaldi. Sama regla hefur verið
ákveðið, að komi til að gilda um
aðrar búfjárafurðir. Það verður
ákveðinn skammtur á hvern grip
eða afurðaeiningu með þessu lægra
gjaldi en það sem er umfram
greiðist með 200% álagi. Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins ákvað í
sumar að mjólkurinnlegg fyrstu 8
mánuði þessa árs skyldi gera upp
sérstaklega, þannig að nýtt kvóta-
tímabil í mjólkurframleiðslu hófst
I. september s.l.
..:
Mikil aðsókn að
Hvanneyri
Mikill áhugi er á búnaðarnámi,
meiri en hægt er að anna á
Hvanneyri. Það er hægt að taka á
móti í mesta lagi 110 nemendum,
en um 130 sóttu um skólavist.
Nú um nokkuð mörg ár hefur
almennt búnaðarnám verið einn
vetur á Hvanneyri, en nú verður
einnig um tveggja ára nám að
ræða, eða tveir vetur og sumarið á
milli sem verður varið til verk-
náms. í búvísindadeild verða 22
nemendur, þá munu 38 nemend-
ur hefja tveggja ára nám og 50
eins vetrar nám.
— Sex kílómetrar ..
(Framhald af bls. 1).
árið 1981 og 410 milljónum á
5ðhr.tals er þá eftir að undirbyggja
5,9 km af Víkurskarðsvegi. Ef
þessar fjárveitingar verða hækkað-
ar í samræmi við verðbólgu er ekki
útilokað að vegurinn verði tilbúinn
árið 1982. Eftir er að endurbyggja
veginn milli Svalbarðsstrandar og
Víkurskarðs og einnig veginn í
Fnjóskadal. Ekki er gert ráð fyrir
neinum framkvæmdum við þessa
vegi á næsta ári, en hugsanlegt að
þeir verði teknir á áætlun við end-
urskoðun vegaáætlunar í vetur.
WMMÉMÍÉ
HM
.<¥S?kv>::
AKUREYRI
\ÍT ui
.íi 040 ". i jt ÍOO
100
140
i I 100
105
1<0
6.DAGUR