Dagur - 25.09.1980, Síða 4
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamaöur: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÖHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Erfið leið
og vandrötuð
— en sú eina
Ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens
hefur setið að völdum í tæpa 8
mánuði. Það er ekki langur
starfstími, en gefur þó vísbend-
ingu um hvers vænta má að
óbreyttum aðstæðum. Fyrstu
mánuðirnir fóru í að afgreiða fjár-
lög og lánsfjáráætlun fyrir yfir-
standandi ár. Á þessu ári hafa
vandamálin blátt áfram hrannast
upp, svo iegið hefur við algjörri
stöðvun útflutningsatvinnuveg-
anna. Á sama tíma hafa staðið yfir
samningar um kaup og kjör til
flestra starfshópa í landinu. Staða
ríkisstjórnarinnar hefur því verið
erfið það sem af er og ekki verður
séð að sjólagið sé betra framund-
an.
Á þessa leið fórust Stefáni Val-
geirssyni, alþingismanni, orð í
grein sem nýlega birtist í Degi.
Stefán sagði ennfremur, að þrátt
fyrir erfiðleikana væri full atvinna í
landinu og mikil framleiðsla, og
þjóðin byggi yfirleitt við góð kjör.
Síðan sagði Stefán:
„En til að sýna fram á hvers
eðlis vandinn er, þá skai á þetta
bent. Fiskverð í Bandaríkjunum
hefur hækkað á síðustu tveim ár-
um um 5% miðað við dollar. Að
meðaltali hefur verð á útflutningi
okkar hækkað um 13%, en
innflutningur hefur á sama tíma
hækkað að meðaltali um tæp 40%
— allt miðað við erlenda gjald-
miðla. Þótt framleiðsluaukningin
hafi verið veruleg á þessum tíma,
þá ættu þessar tölur að segja það
sem segja þarf — við höfum
minna til skiptanna. Og þá þarf að
miða ytri umgjörð efnahagsmái-
anna við þær staðreyndir, ef tak-
ast á að feta sig inn á þá leið að
draga úr verðbólguhraðanum. Þó
verður að halda uppi fullri atvinnu
í landinu.
Leiðin er því erfið og vandrötuð
og engan þarf að undra þó að
hægt gangi miðað við aðstæður
sem fyrir hendi eru. En það sem
skiptir meginmáli er að þessi leið
er fær, ef ekki verður því stærri
björgum velt inn á veginn af ann-
arlegum hvötum. Þetta er eina
leiðin út úr verðbólguvandanum ef
koma á í veg fyrir meiriháttar at-
vinnuleysi og þær þrengingar sem
slíku ástandi fylgja jafnan. Það er
ekkert vafamál að ekki verður
hægt að verða við óskum manna
um ýmsar framkvæmdir og um-
bætur meðan við fetum leiðina að
settu marki, en það sem skiptir
meginmáli í því sambandi er að
fulls réttlætis sé gætt. Þá ætti að
nást sú samstaða sem til þarf, til
að ryðja veginn út úr óðaverð-
bólgunni.
Héreru þau Jóhann Konráðsson og Fanney Oddgeirsdóttir að taka lagið.
„Höfum raulað saman
öll okkar samvistarár1 ‘
I næsta mánuði er væntanleg á
markaðinn all sérstæð hljóm-
plata sem gefin er út á Akur-
eyri, en það er plata með söng
Jóhanns Kunráðssonar og
fjölskvldu hans, sem þekkt er
fyrir mikla söngglcði. Ásamt
Jóhanni syngja á plötunni
kóna hans, Fanney Oddgeirs-
dóttir og fjögur af sjö börnum
þeirra, þ.e. systkinin Anna
María, Jóhann Már, Svavar
og síðast en ekki síst Kristján
Jóhannsson sem hefur vakið
mikla athygli bæði hér og er-
lendis fyrir söng sinn.
Þetta er að líkindum einsdæmi,
að sex úr sömu fjölskyIdu syngi á
sömu hljómplötunni. Útgefandi
plötunnar er Snorri Hansson, seni
jafnframt átti hugmyndina að
þessari plötu. Upptaka fór fram í
Stúdíó Bimbó á Akureyri dagana
3.-20. september og hana annað-
ist Pálmi Guðmundsson, sem
einnig sér urn hljóðblöndun plöt-
unnar. Á plötunni verða nokkrar
gamlar einsöngsupptökur með
Jóhanni Konráðssyni, en að
mestu leyti er um nýtt efni að
ræða, ýmist einsöng eða tvísöng,
og lögin verða 12-15 að tölu.
Kristján kom í heimsókn frá
Ítalíu og var þegar gripinn til
upptöku. Bræður hans Jóhann
Myndin var tekin um siðustu helgi þegar unnið var að hljóðblöndun plötunnar, sem verður skorin í Bandaríkj-
unum og líklega pressuð hér á landi. F.v. Jóhann, Pálmi, Anna María, Fanncy og Snorri Hansson. Myndir: HSv.
Már og Svavar eru bændur í
Húnavatnssýslu og Skagafirði og
voru þeir kallaðir úr haustverk-
unum til að syngja inn á plötuna.
„Mig hefur lengi dreymt um að
við rauluðum inn á band til að
geyma til minningar, því við höf-
um gert talsvert af því að.syngja
saman í fjölskyldunni. Viðhjónin
höfum t.d. raulað saman meira og
minna öll okkar samvistarár, sem
eru víst orðin 40. Mest hefur þetta
nú verið í þröngum hópi, en einu
sinni höfum við sungið opinber-
lega saman bæði tvö, og það var í
Gimli í Kanada. Það kom mér
hins vegar algjörlega á óvart þeg-
ar Snorri hringdi og bar upp
erindið. Ég trúði þessu tæpast, en
ég er mjög ánægður með að þetta
skyldi hafa komist í gegn og vona
að platan geti orðið sem flestum
til ánægju," sagði Jóhann Kon-
ráðsson í spjalli við Dag.
Undirleikarar á plötunni eru
Kári Gestsson og Dýrleif Bjarna-
dóttir.
Ný hljómplata væntanleg á markað með Jóhanni Konráðssyni og f jölskyldu.
r
Minning
Halldór Sveinbjörnsson
F. 20. 7. 1959. - D. 18. 7. 1980
Hann Halldór er dáinn. Það er svo
ótrúlega stutt milli lífs og dauða og
erfitt að sætta sig við þegar ungt og
lífsglatt fólk, í blóma lífs síns er
kallað burtu. Hann ætlaði aðeins
að skreppa í veiðiferð með félögum
sínum, tveir af þeim komu ekki
aftur til baka og annar þeirra var
Halldór. Við vitum að þetta eru
aðeins vistaskipti, og það er af
kærleika til þess sem farinn er sem
sorgin og tómleikinn gerir vart við
sig. En ótal margt minnir á og það
eru þær myndir og minningar frá
liðnum samverustundum sem ætt-
ingjar og vinir eiga að muna og
rækta í huga sér.
Fyrstu kynni min af Halldóri
voru haustið 1965, þegar ég kom á
heimili hans, sem þá var í Hleiðar-
garði. Hann var þá sex ára gamall,
stór eftir aldri og sterklegur, með
breitt bros, sem hann var óspar á og
þannig sé ég hann alitaf fyrir mér í
huganum. Síðan þetta haust hefur
mikil vinátta verið á milli mín og
fjölskyldu hans og hér í sveitinni
settist ég að og hef því verið honum
samtiða þessi ár og séð hann vaxa
og þroskast, úr barni í ungling og
síðan ungan mann, skapheitan,
viðkvæman en hlýlegan og góðan
mann. Mig langar að minnast á at-
vik sem sýnir hve hann var góður
og gjafmildur. Þegar hann var tólf
ára gamall kom ég einu sinni sem
oftar á heimili hans og sá hjá hon-
um platta úr krossviði sem á voru
brenndar rósir og málaðar í lit.
Hann hafði búið þá til í handa-
vinnunni í skólanum. Ég fór að
dáðst að því hvað þeir væru fallegir
og þá vildi hann endilega gefa mér
þá. Ég sagði að hann hefði kannski
gaman að þessu þegar hann yrði
fullorðinn, „. . . ég bý þá bara til
aðra — eigðu þessa". Þeir voru
gefnir með mikilli ánægju og mér
hefur alltaf þótt vænt um þessa
platta. Þeir hanga í eldhúsinu hjá
mér, sem eitt af mörgu sem minna
mun á Halldór.
Eftir að skyldunámi lauk fór
hann í skóla að Hólum í Hjaltadal.
Hann hafði alltaf áhuga á búskap,
undir niðri, og þó að hann ynni
ýmisleg störf inni á milli, vann
hann við bústörfin bæði heinia
fyrir og á öðrum stöðum. Halldór
var sannur vinur og félagi og hafði
gaman af félagsmálum, starfaði
fyrir Ungmennafélag Saurbæjar-
hrepps og tefldi mikið á þess veg-
um og einnig utan þess. Hann hafði
líka mjög gaman af að spila bridge.
Hann var ráðinn dyravörður í Sól-
garði og vann við það þegar þess
var þörf. Einnig var hann búinn að
vinna mikið á gröfu og jarðýtu og
þau verk sem hann vann halda áf-
ram að vera til þó hann sé horfinn.
í fyrravetur tók hann meirapróf-
ið og keyrði eftir það ýmsar vörur
til sveitunga sinna. Þarsem nokkuð
mörg ár voru á milli okkar Halldórs
og ég orðin fullorðin og gift kona
þegar hann fullorðnaðist, gefur að
skilja að við átturn ekki mikla
samleið, en ég veit að hann átti
rnarga vini og kunningja sem gætu
sagt svo margt um persónuleg
kynni við hann og samverustundir
frá þessum árum. Ég veit að hann
er nú koniinn á nýjan og bjartan
stað þar sem allir hittast að leiðar-
lokum.
Ég og fjölskylda mín biðjum
Guð að styrkja alla ástvini hans og
hjálpa þeim í sorg þeirra.
Það eitt fœr í sorginni svalað
að sál vor við hann gelur talað,
sem Ijósyfir grafrökkri glœðir
og grœðir, er hjarlanu hlœðir.
G.G.
ÁIfheiður Karlsdóttir.
Styðjum byggingu heilsu-
hælisins í Kjarnalandi
Svo sem kunnugt er hefir
Náttúrulækningafélag Ak-
ureyrar hafið byggingu
heilsuhælis í Kjarnalandi
við Akureyri. Engum sem
um velferðarmál hugsar
blandast hugur um nauðsyn
slíks hælis í því álagsþjóð-
félagi sem við búum. Ekki
er einungis þörf á slíkri
stofnun er getur tekið við
sjúklingum eftir sjúkrahús-
dvöl til framhaldsbata,
heldur leggja helbrigðisyf-
irvöld síaukna áherslu á
fyrirbyggjandi aðgerðir. Má
telja fullvíst, að með nokk-
urra vikna dvöl á heilsuhæli
sem slíku, mætti æði oft
koma í veg fyrir sjúkra-
hússlegur og væri það þjóð-
arbúinu til ómældra tekna.
Það er líka mikill kostnaður
fyrir Norðlendinga að sækja
hressingardvöl til ' Suður-
landsins og biðlistinnlá hælinu
í Hveragerði sýnir, áð full þörf
er á að sams konar stofnun
taki til starfa annarsstaðar á
landinu.
Þegar er búið að leggja
marga tugi milljóna: í þann
hluta heilsuhælisins, sem nú
er í byggingu í Kjarnalandi.
Ennþá vantar að ljúka við að
steypa plötu yfir neðstu hæð-
ina, sem nauðsynlegt er að
gera nú þegar. Senn fer vetur
að og því má ekki dragast að
ljúka við þennan áfanga, áður
en frost og snjóar koma.
En peninga vantar og fá-
mennt áhugamannafélag
megnar ekki að lyfta siíku
Grettistaki, sem heilsuhælis-
byggingin er, nema til komi
aðstoð sem flestra Norðlend-
inga og annarra, sem sjá
nauðsyn slíks framtaks. Því er
heitið á alla sem línur þessar
lesa, að hlaupa nú undir
bagga og styðja bygginguna
með fjárframlagi, hver eftir
sínum efnum og getu. Það ætti
líka að vera metnaðarmál
allra sem bæ þennan byggja
og næstu byggða, að heilsu-
hælið í Kjarnalandi rísi sem
fyrst af grunni.
Fjárframlög má leggja inná
gíróreikning Náttúrulækn-
ingafélags Akureyrar nr.
2300-3, senda þau stjórn
félagsins eða til Árna Bjarn-
arsonar, Bókaversluninni
Eddu, Akureyri.
(Frá Náttúrulækningafélagi Akureyrar).
Knattspyrnufélag Akureyrar
SIGURHÁTÍD
S.l. laugardagskvöld héldu
knattspyrnumenn í KA sig-
urhátíð í Sjálfstæðishúsinu,
en KA menn sigruðu aðra
deild fengu samanlagt 31 stig
út úr leikjum sínum, sem er
mesti stigafjöldi sem deildin
hefur unnist á. Á hátíðinni
mættu Jens Sumarliðason og
Gylfi Þórðarson frá KSÍ, og
afhentu þeir fyrirliða KA
Elmari Geirssyni bikarinn
sem fylgir sigri í annarri
deild. Þá fengu einnig allir
leikmenn verðlaunapening.
t stuttri ræðu sem Elmar
Geirsson hélt við þetta tækifæri
minnti hann félaga sína á að til
væri annar bikar, stærri og veg-
legri, en hann væri fyrir sigur í
fyrstu deild, „og hann verðum
við einnig að eignast," sagði
Elmar. Þá fékk Elmar einnig
viðurkenningu frá KSÍ fyrir þá
23 landsleiki sem liann hefur
leikið fyrir Islands hönd. Marg-
ar ræður voru haldnar og er á
engan hallað þó sérstaklega sé
minnst á framlag Gísla Jóns-
sonar, menntaskólakennara, en
hann orti m.a. til þjálfara KA á
enskri tungu. Formanni knatt-
spyrnudeildar KA barst á
hátíðinni ávísun að upphæð kr.
61.000,00 frá Mikael Jóns-
syni en hann kvað þetta vera
gamalt áheit, eða þúsund krón-
ur fyrir hvert skorað mark í
deildinni. Fleiri fylgdu fordæmi
Mikaels og sendu knattspyrnu-
deildinni svipaða upphæð, og
þar á meðal formaður KA
klúbbsins í Reykjavík
Sæmundur Óskarsson, en hann
var að sjálfsögðu mættur á
hátíðina. Stjórn KA færði for-
manni knattspyrnudeildar
skikkju mikla til að klæðast á
varamannabekknum meðan á
leikjum stendur, en eins og Jón
Arnþórsson sagði höfðu þeiroft
tekið eftir að kalt var á bekkn-
urn og ekki mundi veita af að
halda núverandi og verðandi
formönnum deildarinnar volg-
um. Knattspyrnudeildinni bár-
ust heillaóskaskeyti frá Þór.
Rafni Hjaltalín og íþróttaráði
Akureyrar. Að loknu borðhaldi
og skemmtiatriðum var stiginn
dans fram eftir nóttu.
0 Um síðustu helgi var
fimmta og síðasta drengja-
keppni Golfklúbbs Akureyrar.
Þessi keppni bar heitið Sept-
ember bikar drengja og var
keppt um bikar sem gefinn var
af ÍBA. I þessari keppni sigraði
Héðinn Gunnarsson á 66
höggum, annar varð Sverrir
Þorvaldsson á 67 höggum og
Bjöm Axelsson þriðji á 68
höggum. Reiknaður er síðan
samanlagður árangur kepp-
enda í þeirra fjórum bestu
keppnum, og eftir sumarið er
Héðinn Gunnarsson efstur
með 38,5 stig.
£ Héðinn er bróðir Jóns
Þórs sem svo mjög hefur gert
garðinn frægan í golfíþrótt-
inni. Annar besti árangur eftir
sumarið er hjá Sverri Þor-
valdssyni en hann hefur 37.0
stig, og þriðji Jón Aðalsteins-
son með 34,5 stig.
KA og Þór á
laugardag
Á laugardaginn kl. 14.30 verð-
ur úrslitaleikur í Akureyrar-
mótinu í knattspyrnu. Lcikur-
inn verður á KA velli og hefst
eins og áður segir kl. 14.30.
Á undan þeim lcik lcika
fjórðu flokkar sömu aðila.
Alli í
landsliðið
Alfreð Gíslason hefur nú verið
valinn í landsliðið sem leikur
gegn Norðmönnum um helg-
ina. Alfreð er rétt byrjaður að
leika með sínu nýja félagi KR,
og virðist strax hafa tryggt sér
landsliðssæti.
Drengja-
keppni
í golf i
Ciisli Jónsson.
Sæmundur Óskarsson.
Helgi Schiöth og Sigríður kona hans buðu lcikmönnum KA heim
á Húsavík. Á myndinni sjást gestgjafarnir ásamt Elmari og Alec.
Jón Amþórsson.
4.DAGUR
DAGUR.5