Dagur - 25.09.1980, Blaðsíða 7
M jólkurf ramleiðslan
minkar um allt landið
Mjög mikill samdráttur hefur
verið i mjólkurframleiðslunni
síðustu tvo mánuði. Samtals
tóku öll mjólkursamlögin á móti
10.6 milljónum lítra í ágúst, en
það var tæplega 2,5 milljónum
lítra minna en i ágúst 1979, eða
18,7% minnkun.
Að magni til munar mest um
samdráttinn hjá Mjólkurbúi Flóa-
manna, en innvegin mjólk þar var
722 þúsund e. minni en sama mán-
uð í fyrra, eða 16.2%. Hlutfallslega
var minnkunin mest hjá mjólkur-
samlaginu á Blönduósi eða 28.2%,
Sauðárkróki 22.6%, Akureyri 18.3%
en þar munaði um 507 þúsund lítra
og á Húsavík 24.7%. Samtals eru
mjólkursamlögin 17 á landinu, af
stærri samlögum var minnstur
samdráttur hjá mjólkursamlaginu á
Egilsstöðum eða um 10.9%.
Verðlagsár landbúnaðarins er
frá 1. september til 31. ágúst. Á
síðasta verðlagsári 1979-1980 var
innveginmjólksamtals 112.032.201
lítri, en á fyrra verðlagsári var tekið
á móti 118.155.204 lítrum. Mjólkin
minnkaði um rúmlega 6 milljónir
litra eða 5.20. Mjólkurbú Flóa-
manna tók á móti 40.5 milljónum
lítra, en það var 2.8%. Mjólkurbú
Flóamanna tók á móti 40.5
milljónum lítra, en það var 2.8%
minna en árið á undan. Á Akureyri
var tekið á móti tæplega 22.6
milljónum lítra, minnkun var 7.8%.
Hlutfallslega varð mestur sam-
dráttur hjá mjólkursamlaginu á
Sauðárkróki eða um 12.5%, á
Blönduósi var samdrátturinn 9.0%,
Húsavík 9.9%, í Borgarnesi varð
smávegis aukning 0.3%, á Egils-
stöðum var minnkunin 2.7%.
Frá Menntaskólanum
á Akureyri
Skólinn verður settur á Sal, sunnudaginn 5. okt. kl.
14.00.
Nemendur í öldungadeild komi til fundar mánu-
daginn 6. okt. kl. 20.00 í stofu 2 á Möðruvöllum. Þá
þurfa allir að hafa greitt kennslugjald til skrifstofu
skólans.
Skólameistari.
Frá Amtsbókasafninu
á Akureyri
Eins og undanfarna vetur verður Amtsbóka-
safnið opið á laugardögum kl. 10-16, mánuðina
október — apríl.
Mánudag- föstudaga verður opið eins og að venju
kl. 13.-19. Kvöldtímarnir á miðvikudögum falla nið-
ur í vetur.
Bókavörður.
Félagsstarf aldraðra.
Farið verður í feróalag til Hríseyjar fimmtudaginn 2.
okt. n.k. Mæting er kl. 13.00 stundvíslega við
Ferðaskrifstofuna Ráðhústorgi 3. Veitingar veróa í
Hrísey. Gjald er kr. 4000,-
Þátttaka tilkynnist í síma 25880 kl. 10-12 á Félags-
málastofnun í síðasta lagi mánudaginn 29. sept.
Félagsmálastjóri.
Starfsfólk óskast
Starfsfólk óskast nú þegar til fiskvinnslustarfa.
Unnið eftir bónuskerfi. Uppl. gefur frystihússtjóri í
síma 61710 og 61720.
Fiskvinnslustöð KEA, Hrísey.
Viljum ráða menn
vana byggingarvinnu.
Norðurverk h.f. sími 21777
ítxíð til sölu
Eigum óselda 3ja herb. íbúð í suðurenda í raöhúsi
við Móasíöu 2. íbúðin er 100 m2 og bílskúrsréttur
fylgir. Áætluð fokheld og tilbúin til afhendingar 1.
okt. Uppl. á byggingarstað á daginn og í símum
21871, 21175 og 21469 á kvöldin.
Kjörviður s.f.
Gömludansklúbbur-
inn Sporið
hefur vetrarstarf aó nýju n.k. þriðjudagskvöld 30.
sept. kl. 20. Áhugafólk um gömlu dansana fjöl-
mennið.
Stjórnin.
yERKSTÆÐlSDEU-D^
7 K VerkstœöísdeíW^
Imenn
annar
magnsviogen-^j_j------—
as j oJ_nU-í-r-
_ hí, arei«sl‘jkjöró_i
-^Alunarde
Á þe:
kunnum rao
bílona hrjá
ssori deilrl fr i
----------
unar
'^ÍIA^eiMalakk,
l_°bi|num er
—bííHj[l
-^^ia_Jengun
-^ð^ófkasf^ þ(
™ía_meSþe;m ,
L 1 1
cfeii
DAGUR.7