Dagur - 25.09.1980, Síða 8
Akureyri, fimmtudagur 25. september
Mikil sala í
fasteignum
Atgerfisflóttinn
frá Reykjavík í
fullum gangi
— Þessar upplýsingar Ragnars
Steinbergssonar, starfsfélaga mins,
varðandi íbúðaverð á Akureyri og
sölutregðu eru fjarri lagi, en eiga
hugsanlega vel við um fasteigna-
markaðinn í Reykjavík, sagði Ólaf-
ur Birgir Árnason fasteignasali og
lögfræðingur sem hafði samband
við blaðið vegna fréttar í síðasta
tölublaði Dags um samdrátt í fast-
eignasölu og verð á íbúðum.
— Samkvæmt minni reynslu er
verðið sem Ragnar nefndi fjarri
lagi. Verð á 2ja herbergja íbúð er
19-22 milljónir það hæsta, algjört
hámarksverð á 3ja herbergja íbúð-
um er 25-26 milljónir, en 22-25
milljónir eru nær lagi, og 4ra her-
bergja íbúðir kosta 26-30 milljónir.
Allt er þetta að sjálfsögðu háð
greiðslukjörum og gæðum, sagði
Olafur Birgir.
Hann bætti því við, að salan á
Akureyri hefði verið með besta
móti allt þetta ár með tilliti til
fjölda seldra íbúða.
— Atgerfisflóttinn af Reykja-
vikursvæðinu hefur verið í fullum
gangi, því mikil ásókn er í íbúðir
hér á Akureyri að sunnan og í
flestum tilvikum er um að ræða
fólk á besta aldri og með góða
menntun, sagði Ólafur Birgir
Árnason.
Heimild
til vinnu-
stöðvunar
Félag verslunar og skrifstofu-
fóiks á Akureyri héit almennan
félagsfund að Hótel K.E.A. 22.
sept. s.t og var fundurinn mjög
fjöimennur. Á dagskrá var at-
kvœðagreiðsia um verkfalls-
hcimild og samþykktu fundar-
menn samhijóða að veita stjórn
og fulitrúaráði heimild til boð-
unar vinnustöðvunar ef á þyrfti
að halda.
Kosning fór fram á 7 fulitrúum á
34. þing A.S.Í. og 7 til vara. Þá var
einnig rætt um skóla M.F.A. að
Ölfusborgum, og félagar hvattir til
að kynna sér möguleika á að sækja
þennan skóla.
Síðan ræddi formaður Kolbeinn
Sigurbjörnsson önnur mál svo sem
samningamálin og 50 ára afmæli
félagsins er verður minnst með hófi
í Sjálfstæðishúsinu I. nóv. n.k.
Nýverið heimsóttu félagið fjórir
bandariskir verslunarmenn ásamt
tveim fulltrúum frá Verslunar-
mannafélagi Reykjavíkur. Farið
var með gestina til Mývatnssveitar
og þeim sýnt það markverðasta hér
í bæ. Stjórn F.V.S.A. bauð gestum
til hádegisverðar og þótti dvölin
takast í alla staði vel.
RAFGEYMAR
í BÍUNN, BÁTINN, VINNUVÉLINA
VEUIÐ RÉTT
MERKI
■■BHtSBI
Gjöreyðilagði
stjórnkassann
Engin umferðarljós á einu f jölfarnasta
götuhorni Akureyrar í nokkrar vikur
Fyrir röskum tveim vikum ók
bifreið á stjórnkassa götu-
ijósanna á horni Þórunnar-
strætis og Glerárgötu. Kassinn
eyðilagðist með öllu og varð að
panta nýjan frá Danmörku.
Áætlaður kostnaður vegna nýja
kassans er 10 til 15 milljónir.
Afgreiðsiufrestur er fimm til sex
vikur og því er ekki von á að
Ijósin kvikni fyrr en í næsta
mánuði.
Gísli Ólafsson, yfirlögreglu-
Gunnar Jóhannesson og Alfreð Konráðsson um borð í ferjunni. Mynd: H.Sv.
Farþegum fjölgaði
þjónn sagði í viðtali við Dag að
ljósleysið kæmi sér afar illa. Þar til
viðgerð lýkur verða þær bifreiðar
sem koma niður Þórunnarstrætið
að víkja fyrir þeim sem aka eftir
Glerárgötu.
Þegar ekið var á stjórnkassann
var verið að malbika Glerárgötu og
umferðin var öll á annarri ak-
brautinni. Ökumaður, sem var
ungur piltur, ók alltof hratt miðað
við aðstæður og missti vald á bif-
reiðinni með fyrrgreindum afleið-
ingum.
Eftir að nýja Hríseyjarferjan
Sævar var tekin í notkun í
nóvember 1979 hefur orðið
mikil aukning á farþegaflutn-
ingum milli Hríseyjar og lands.
Þetta er ekki óeðlilegt, þar sem
segja má að gjörbylting hafi
orðið í samgöngumálum Hrís-
eyinga með tilkomu nýju
ferjunnar. Sem dæmi um þessa
aukningu má nefna, að allt síð-
ast liðiö ár flutti gamia ferjan
16.901 farþega, en fyrstu átta
mánuði þessa árs voru farþeg-
amir orðnir 16.954, eða nokkru
fieiri en á öllu sfðasta ári. Tekj-
ur af flutningum fyrstu átta
mánuðina vom rösklega 18,5
miii jónir króna.
r'...........................
Þessar upplýsingar komu fram í
viðtali sem Dagur átti við þá Alfreð
Konráðsson og Gunnar Jóhannes-
son, sem ásamt Sigurbirni Ög-
mundssyni annast rekstur ferjunn-
ar. Hver þeirra vinnur hálfan mán-
uð í senn og á síðan viku frí. Þeir
skiptast á um stjórn ferjunnar og er
sá skipstjóri í viku í senn, sem
kemur úr fríi.
Hríseyjarferjan er rekin alla daga
ársins og eru ýmist farnar 3 eða 4
fastar áætlunarferðir milli Hríseyj-
ar og Litla-Árskógssands. Einnig er
hægt að kaupa lausar ferðir og sem
dæmi má nefna, að lágmarksgjald
fyrir ferð milli Hríseyjar og L-
Arskógssands er 12 þúsund krónur,
16 þúsund til Ðalvfkur og Hauga-
ness og 18 þúsund til Grenivíkur.
Ríkissjöður styrkir þessar sam-
göngur og nemur styrkur þessa árs
16 milljónum króna. Farþegar
mega vera 36 í hverri ferð. Olíu-
eyðsla nemur 5-6 tonnum á mán-
uði.
Að sögn Alfreðs Konráðssonar
hefur rekstur nýju ferjunnar gengið
vel, þrátt fyrir byrjunarörðugleika
s.s. það, að önnur ljósavél er
ógangfær og hliðarskrúfa vinnur
ekki nema með hálfum afköstum.
DAGIJR
Vegna verkfalls í prentsmiðju
n.k. mánudag og þriðjudag
kemur ekki út blað þann 30.
september. Næsta blað kemur
því út fimmtudaginn 2. október.
Skilafrestur auglýsinga í það
blað er til klukkan 19 n.k. mið-
vikudag.
DAGUR
Pappírsverksmiðja?
Verður reist pappírsverk-
smiðja í nágrenni Húsavíkur
— nánar tiltekið á Þeista-
reykjum? Það er allt eins lík-
legt því nú er unnið að for-
könnun á stofnsetningu
pappírsverksmiðju, sem getur
notað jarðhita til að framleiða
dagblaðapappír. Bæjarstjórn
Húsavíkur hefur samþykkt að
verja 5 milljónum króna til
forkönnunarinnar, sem unnin
er af finnsku ráðgjafafyrirtæki
í samvinnu við Baldur Líndal
ef naverkf ræðing.
Egill Olgeirsson, bæjarráðs-
maður á Húsavík, sagði að
finnska fyrirtækið myndi skila
skýrslu um málið um miðjar.
næsta mánuð. Að fenginni þeirri
skýrslu mun bæjarstjórn Húsa-
víkur ákveða næsta skref.
Húsavík þykir hafa ýmsa kosti
til að bera svo verksmiðja af þessu
tagi geti skilað hagnaði. 1 ná-
grenni bæjarins er háhitasvæði,
nægjanlegt magn er til af góðu
köldu vatni í bæjarlandinu og
hafnaraðstaða er góð á Húsavík
og getur orðið mun betri með
smávegis viðbótarframkvæmd-
um. Hagkvæmast þykir að reisa
verksmiðju sem getur framleitt
200.000 tonn af dagblaðapappír á
ári. Ýmsum getur virst talan há,
en þetta er ekki nema örlítið brot
af því magni sem notað er í
Evrópu, sem rætt hefur verið um
að selja pappírinn til. Þessi
pappírsverksmiðja fengi hráefnið
frá Kanada.
Pappírsverksmiðja eins og hér
um ræðir þarf 40 til 50 megavött
til framleiðslunnar. Starfsfólk
yrði um 200 til 300 sem er hreint
ekki svo lítið þegar haft er í huga
að 1. desember 1979 voru íbúar á
Húsavík 2.401 að tölu.
Vegaframkvæmdir í Skagafirði
Vegaframkvæmdir í Skagafirði
hafa verið nokkrar í sumar.
Lögð hefur verið klæðning á
veginn frá Sauðárkróki niður á
flugvöllinn á Borgarsandi og
nokkurn spotta út frá Varma-
hlíð til tveggja átta, þ.e. austur
yfir Vallhólm og út Sauðár-
króksbraut allt að Skörðugili.
Verið er að endurbyggja veginn
frá Stóru Gröf og út að Staðará, en
þaðan er nýuppbyggður vegar-
spotti út undir Hafsteinsstaði. Verið
er að byggja brú yfir Héraðsvötn
framan Vallaness á móti Syðstu-
Grund, og er það mikið mannvirki.
Vegurinn yfir Laxárdalsheiði hefur
enn verið bættur í sumar og er það
mál manna í Skagafirði að þær
umbætur, sem á þeim vegi hafa
verið gerðar, hafi aukið möguleika
á vetrarsamgöngum við Skefils-
staðahrepp, en þær hafa nánast
engar verið til þess, hafi snjóalög
verið nokkur sem nemur.
£7
»T /T I (vr -»—' I II Hfl “P
lii ííl. I. iflS. i : - * JU
0 Vsa, fcaffiog
brennivín
Áfengisvarnaráð hefur borið
saman verð á ýsu, kaffi og
brennivínl í nóvember 1967
og eftir síðustu hækkun á
áfengi í þessum mánuði.
Samkvæmt þeim samanburði
ætti brennivínsflaskan að
kosta 11.655 krónur ef hún
hefði hækkað jafn mikið og
ýsan og 19.350 krónur ef
hækkunin væri jafn mikil og á
kaffinu þessi 13 ár. f dag
kostar brennivínsflaskan 11
þúsund krónur. Þegar borið
er saman verð á brennivíns-
flösku og tímakaup hafnar-
verkamanna í nóvember 1937
og september 1980 kemur í
Ijós, að er brennivínið hefði
hækkað jafnmikið og tíma-
kaupið á þessum 43 árum
ætti flaskan að kosta 13.266
krónur. Tímakaup hafnar-
verkamanns fyrir 43 árum var
1 króna og 45 aurar og þá
kostaði brennfvínsflaskan
átta og hálfa krónu.
# Erfittað
greiða
útsvarið
Lesandi hafði samband og
sagðist eiga í talsverðum erfið-
ieikum með að greiða út-
svarið sitt. Þetta er nú svo
sem ekkert nýtt. Hver á ekki í
erfiðleíkum með að grelða
útsvarið sitt? En ástæðan
sem hann tilgreindí var svo-
lítið óvenjuleg. Hann sagði
að það væru starfsmenn
bæjarskrlfstofunnar sem
hindruðu hann í að greiða
gjöld sín til bæjarins! Getur
þetta hugsast? Ætli hann
Helgi viti af þessu? Farið var
fram á nánari skýringu og
ekki stóð á henni. Þrátt fyrir
það að milljónum króna hafi
verið varið til að malbika
bílastæði bakatil við bæjar-
skrifstofurnar virtust starfs-
menn á skrifstofunum ekki
með nokkru móti geta lagt
bílum sínum öðruvísi en svo,
að nær ómögulegt væri fyrir
akandi útsvarsgreiðanda að
komast að húsinu. Bílastæð-
in í götu ráðhússins væru full
af bílum starfsmanna bæjar-
ins!
0 Iðnaðar-
bærinn
Akureyri
Sauðárkróksbúar hafa í
hyggju að reisa steinullar-
verksmiðju og í þessu blaði
er sagt frá að Húsvíkingar
séu að kanna möguleikann á
að reisa pappírsverksmiðju
sem gæti veitt 250 til 300
manns atvinnu. Hvaða nýiðn-
aðarmöguleikum hefur
bæjarstjórn Akureyrar verið
að velta fyrir sér að undan-
förnu?