Dagur - 21.10.1980, Page 8
Stapasfða 11.
Bygginga
nefnd
samþykkir
tillögur um
endurbætur
Á fundi bygginganefndar fyr-
ir skömmu var lögð fram
greinargerð frá Tækniteikni-
stofunni s.f. ásamt tillögum í
7 liðum um viðgerðir á
Stapasíðu 11, en eins og
blaðið greindi frá á sínum
tíma er húsið stórskemmt
vegna þess að það var að
hluta reist á klaka. Þegar
klakinn bráðnaði seig húsið
með þeim afleiðingum að það
sprakk. Tækniteiknistofan
gerði þá tillögur um úrbætur
sem nefndin gat ekki sætt sig
við.
Nú féllst bygginganefndin
hins vegar á framlagðar tillögur
í meginatriðum, enda verði við-
gerðirnar framkvæmdar undir
eftirliti byggingafulltrúa og
Tækniteiknistofunnar s.f. Jafn-
framt samþykkti nefndin að
frárennslislögn í grunni verði
lögð að nýju.
Að gefnu tilefni tók nefndin
fram að viðgerðir eru á ábyrgð
meistara og hönnuða sam-
kvæmt ákvæðum byggingaiaga
og regiugerða.
Flug til Olafsf jarðar hófst í gær
samgöngubót
I gær hófst áætlunarflug Flug-
félags Norðurlands á leiðinni
Akureyri-ÓIafsfjörður-Reykja-
vík og til baka. Reglulegar flug-
samgöngur hafa ekki verið við
Ólafsfjörð í 32 ár, síðan hætt var
að fljúga Grumman-flugbátum
til Ólafsfjarðar og lenda á
Ólafsfjarðarvatni.
„Þetta er mjög merkur áfangi í
samgöngumálum Ólafsfjarðar og
ég líki honum við opnun vegarins
um Ólafsfjarðarmúla," sagði Ár-
mann Þórðarson, bæjarfulltrúi á
Ólafsfirði í viðtali við Dag, þegar
hann ásamt fleiri bæjarstjórnar-
mönnum og bæjarstjóra, auk fjölda
Ólafsfirðinga fögnuðu komu flug-
vélar F.N. í fyrstu áætlunarferð-
inni.
„Við vonum svo sannarlega að
þetta gangi að óskum en gerum
okkur grein fyrir erfiðleikunum,
sem tengjast því m.a. að ryðja snjó
af brautinni og halda henni opinni.
Auk þess er aðkallandi að aðstöðu
verði komið upp á vellinum fyrir
farþega,“ sagði Ármann Þórðar-
son.
Flogið verður fimm sinnum í
viku, frá mánudegi til föstudags, og
verður 10 manna Cieftain-flugvél
notuð á þessari leið að öllu jöfnu,
en 19 manna Twin Otter verður
notuð ef þess gerist þörf. Á Ólafs-
firði mun Þórgunnur Rögnvalds-
dóttir annast afgreiðslu flugvéla
félagsins, en innanlandsdeild
Flugleiða annast afgreiðslu fyrir
sunnan, auk þess sem þjónusta er á
Akureyrarflugvelli.
Eins og áður gat var fjöldi
Ólafsfirðinga saman kominn á
vellinum þar í gær og flugu flug-
mennirnir, Sigurður Aðalsteinsson
ogTorfi Gunnlaugsson, útsýnisflug
með alla viðstadda. Vakti það
mikla hrifningu og greinilegt að
margir af yngri kynslóðinni voru að
stíga upp í flugvél í fyrsta sinna.
Flug milli Ólafsfjarðar og
Reykjavíkur kostar 29.550 krónur
og sama verð er fyrir þá sem kjósa
að fljúga fyrst til Ákureyrar og taka
síðan áætlunarflug Flugleiða suð-
Japanir taka kvik-
mynd í Mývatnssveit
Á sunnudagskvöldið kom hópur
japanskra kvikmyndatöku-
manna og leikara til Mývatns-
sveitar, en þeir hafa í hyggju að
taka þar hluta af kvikmynd er
fjallar um hjón í ferðamanna-
hópi. Japanskt fyrirtæki sem
rekur sjónvarpsstöð og ferða-
Námskeið fyrir aðstand
endur alkóhólista
Síðastliðið vor var haldið nám-
skeið fyrir aðstandendur alkó-
hólista á Akureyri. Námskeiðið
var haldið á vegum Félagsmála-
stofnunar Akureyrar og S.Á.Á.
Að sögn Dóru Ingólfsdóttur,
sem starfar hjá Félagsmála-
stofnuninni, tókst námskeiðið
vel og var ákveðið að halda
annað samskonar námskeið í
nóvember.
Námskeiðið er fyrst og fremst
hugsað sem aðstoð fyrir vini og
vandamenn þeirra sem glíma við
áfengisvandann, á hvaða stigi sem
áfengisvandinn er. Dóra sagði að á
námskeiðinu yrði lögð áhersla á að
gera fólki grein fyrir á hvern hátt
ofneysla vímugjafa hefði áhrif á líf
og starf allrar fjölskyldunnar.
„Með þessum námskeiðum er
alveg ný stefna tekin upp í áfengis-
málum á Akureyri, þar eð athyglin
beinist ekki eingöngu að alkóhól-
istanum sjálfum heldur að fjöl-
skyldu hans. Fyrirmyndin að nám-
skeiðinu er fengin frá S.Á.Á. sem
hefur haldið námskeið af þessu tagi
í Reykjavík,“ sagði Dóra.
Námskeiðið hefst 3. nóvember
og stendur í 4 vikur. Það verður á
mánudags-, þriðjudags- og mið-
vikudagskvöldum. Fluttir verða
fyrirlestrar, sýndar kvikmyndir og
starfað verður í umræðuhópum.
Á það skal lögð áhersla að til-
gangurinn með þessum námskeið-
um er ekki sá að breyta lífsvenjum
alkóhólistans heldur er reynt að
gera þátttakendum grein fyrir í
(Framhald á bls. 6).
' í * .' -
ss« mit
iímmmhíimM&dmtmsi;
Flakkarínn er hið myndarlegasta skip. Mynd: á.þ.
Óvíst hvað verður
gert við Flakkarann
Smíði Flakkarans er nú um það
bil að Ijúka. Gunnar Ragnars,
framkvæmdastjóri Slippstöðv-
arínnar, sagði að enn hefði ekk-
ert verið ákveðið hvað gert yrði
við skipið. Það er til sölu og
einnig hcfur verið rætt um að
það yrði gert út af nokkrum fyr-
irtækjum við Eyjafjörð.
Gunnar sagði að sótt hefði verið
um leyfi til loðnuveiða, en þeirri
ur. Milli Ólafsfjarðar og Akureyrar fjarðar og síðan suður 40.200 krón-
kostarannars 10.650 krónur og því ur. Innifalið í þessum tölum eru
kostar flug frá Akureyri til Ólafs- skattar og gjöld.
qfélí
rdur
Sigurður Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri F.N., á tali við Þórgunni Rögnvaldsdótt-
ur, umboðsmann félagsins á Ólafsfirði, og Ármann Þórðarson. Mynd: H. Sv.
skrifstofu stendur að gerð
myndarinnar. Ætlunin er að
auglýsa ferðir til íslands í kjöl-
farið á þessari mynd.
Japanarnir höfðu í hyggju að
taka myndir meðan jörð var auð,
en það verður varla gert héðan af.
Hins vegar ættu þeir að geta náð
góðum myndum á gosstöðvunum.
Japanarnir, sem eru um 20 talsins,
gera ráð fyrir að dvelja í Mývatns-
sveit í 10 til 14 daga.
Heimildarmaður Dags sagði að í
hópnum væru þekktir japanskir
leikarar. Aðstandendur myndar-
innar munu hafa gert keimlíkar
myndir um önnur lönd og síðan selt
þangað ferðir með góðum árangri.
Bæjarbúar fóru í útsýnisflug um næsta nágrenni Ólafsfjarðar og hér sjást nokkrir
þeirra í flugvélinni.
umsókn var synjað. Hins vegar er
von til þess að skipið fái úthlutað
kvóta þótt síðar verði.
Gunnar staðfesti að hugmyndir
hefðu verið um að Flakkarinn
landaði afla á Grenivík. Að öðru
leyti vildi Gunnar ekki spá neinu
um framtíð Flakkarans, en sagði
jafnvel mögulegt að hann yrði
geymdur áfram við bryggju hjá
Slippstöðinni þar til tekst að selja
skipið.
GöM
0 Áfengisgerð
og matvæli
Áfengisvarnaráð fagnar þeim
umræðum, sem fram hafa
faríð síðustu daga um hungr-
ið í heiminum, og hvetur til
þátttöku í hjálparstarfi, segir í
tilkynningu frá ráðinu. Jafn-
framt vekur það athygli á
þeirri staðreynd að matvæli
þau sem stórveldin tvö,
Bandaríkjamenn og Sovét-
menn, nota til áfengisgerðar
nægðu til fæðu fyrir hundrað
milljónir manna.
Líkur benda til að korn það
og annar jarðargróður, sem
nú fer til áfengisgerðar í
heiminum, sé það mikið að
nægja myndi til að fæða
megin þorra þess fólks sem
hungurdauði blasir nú við.
0 Myntbreyt-
ingin
Það hefur víst ekki farið fram
hjá neinum að krónunni á að
breyta um áramótin. Sjálfsagt
mun mörgum bregða í brún
og víst er það að breytingin
mun ekki ganga árekstra-
laust fyrir sig. Tölvísir menn
hafa reiknað út að verði eng-
ar meiriháttar ráðstafanir
gerðar jafnhliða myntbreyt-
ingunni muni líða tæp 10 ár
þar tll íslendingar standa aft-
ur í sömu sporum — stjórn-
ro OTnrof?
IQ öUIUujU
endur þessa lands — hverjir
svo sem þeir eru — mega
ekki láta slíkt henda.
0 Þegar
börnin rukka
„Ég get ekki borgað núna.
Komdu seinna" er setning
sem mörg blaðburðarbörn fá
að heyra þegar þau eru að
rukka áskrifendur um áskrift-
argjaldið. Það væri í lagi ef
bömin fengju þetta svar að-
eins einu sinni, en alltof
margir láta börnin koma aftur
og aftur. Þessa sögu geta
blaðburðarbörn Dags sagt og
eflaust geta blaðburðarbörn
annarra blaða sagt eitthvað
svipað. Því miður er það eins
og sumir telji sig þess um-
komna að vísa börnunum frá
þegar þau eru að innheimta
fyrir blöðin — ef til vill vegna
þess að börnin eiga erfitt
með að krefjast þess af
kaupandanum að hann greiði
þá þegar.
0 Verkföll
Mörg verkalýðsfélög hafa
boðað til vinnustöðvana mið-
vikudaginn 29. október. Sé
miðað við þann tón sem
kemur úr herbúðum vinnu-
veitenda og Alþýðusam-
bands (slands má áætla að
þessi vinnustöðvun sé und-
anfari stærrí og alvariegri
átaka á vinnumarkaðinum.