Dagur - 23.10.1980, Side 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
LXIII. árgangur.
Akureyri, fimmtudaginn 23. október 1980
75. tölublað
„Menn eru nánast orð-
lausir af undrun og reiði“
— segir Sverrir Leósson, formaður Sjálfstæðisfélagsins á Akureyri, í tilefni þess
aðGunnlaugi Fr. Jóhannssyni varvikið úrflokksráði Sjálfstæðisflokksins.
Sökin er sú að vera hlynntur Gunnari Thoroddsen og vinur Jóns G. Sólness!
Valdabaráttan í Sjálfstæðis-
flokknum teygir nú arma sína til
Norðurlands á áþreifanlegan
hátt. Kom það beriega í ljós á
fundi kjördæmisráðs flokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra um
síðustu helgi, en þá var Gunn-
laugi Fr. Jóhannssyni, sem verið
hefur einn af lykilmönnum í
Sjálfstæðisflokknum á Akureyri
um 15 ára skeið, vikið úr
flokksráði, sem er næst æðsta
stofnun Sjálfstæðisflokksins,
næst á eftir miðstjórn. Gunn-
laugur mun hafa unnið sér það
til saka, að vera hlynntur Gunn-
ari Thoroddsen, varaformanni
flokksins, og auk þess náinn
vinur Jóns G. Sólness.
„Ég er að sjálfsögðu mjög von-
svikinn og lít á þetta sem vantraust,
þó svo ég viti að annarlegar hvatir
búi þarna að baki. Það hefur þó
verið mér stuðningur, að mjög
margir flokksmenn hafa haft sam-
band við mig og lýst yfir furðu og
megnri óánægju með þessa ráð-
stöfun. Á þessari stundu get ég ekki
tjáð mig um framhaldið, en ég mun
endurskoða afstöðu mína til
flokksstarfsins mjög gaumgæfi-
lega“, sagði Gunnlaugur Fr.
Jóhannsson í viðtali við Dag.
Gunnlaugur átti sæti í stjórn fé-
lags ungra Sjálfstæðismanna og
síðustu átta árin hefur hann verið í
stjórn Sjálfstæðisfélags Akureyrar,
þar af 4 ár sem formaður. Síðustu 3
árin hefur hann verið fulltrúi í
flokksráði, en vera hans þar fékk
snöggan endi á kjördæmisfundin-
um, eins og áðúr sagði. Gunnlaug-
ur á enn sæti í stjórn Sjálfstæðis-
félags Akureyrar og er í kjördæm-
isráði.
Dagur bar þetta mál undir Sverri
Leósson, formann Sjálfstæðisfé-
lagsins á Akureyri, og staðfesti
hann, að Gunnlaugi hefði verið
vikið úr flokksráði. Aðspurður um
álit á þessu máli sagði Sverrir:
„Það er mikil óánægja með þessa
þröngsýnu ákvörðun kjördæmis-
ráðs, sem virðist byggð á því einu,
að Gunnlaugur er hlynntur vara-
formanni flokksins. Ég harma
þessa ákvörðun mjög, sem er í
mínum huga óskiljanleg, ef metin
eru störf Gunnlaugs í þágu flokks-
ins um árabil. Ég hef heyrt margar
óánægjuraddir og menn eru nánast
orðlausir af undrun og reiði", sagði
Sverrir Leósson.
Bæjarráð fjallaði í síðusfu viku
um tillögu sem stjórn Kaupfé-
lags Eyfirðinga sendi bæjar-
stjórn, en tillagan fjallar um
stofnun sjóðs til athugunar á
hugsanlegum möguleikum á ný-
iðnaði á Eyjafjarðarsvæðinu.
Helgi Bergs bæjarstjóri var
kjörinn fulltrúi bæjarins í við-
ræðunefnd. Auk Akureyrarbæj-
ar var tillagan send til sýslu-
nefndar Eyjafjarðarsýslu og
verkalýðsfélaganna Iðju og
Einingar.
Tillagan sem Valur Arnþórsson,
kaupfélagsstjóri bar fram og stjórn
K.E.A. samþykkti er svohljóðandi:
Sverrir var spurður að því hvort
hann teldi þessa ákvörðun geta
dregið dilk á eftir sér:
„Stórum steini hefur verið kastað
og tíminn mun leiða það í ljós
hversu stóra skriðu hann hrífur
með sér áður en hann hafnar á
„Stjórn K.E.A. samþykkir að beina
því til Akureyrarkaupstaðar, sýslu-
nefndar Eyjafjarðarsýslu og verka-
lýðsfélaganna Einingar og Iðju að
þessir aðilar, ásamt K.E.A. stofni
sérstakan sjóð, er standi straum af
kostnaði við athuganir á hugsan-
legum tækifærum til nýiðnaðar á
Eyjafjarðarsvæðinu."
í greinargerð segir að það sé
kunnara en frá þurfi að segja að
ýmsar blikur séu nú á lofti í at-
vinnumálum Eyjafjarðarsvæðisins.
Síðan segir orðrétt:
Samdráttur er að verða í land-
búnaðarframleiðslunni og ekki
fyrirsjáanlegt, að aukning verði að
nýju á því sviði á næstu árum. Aðal
fiskstofnar við landið eru fullnýttir
jafnsléttu. Það er mikil óánægja og
þetta er eins langt frá því að vera
skref til sátta í flokknum, eins og
hugsast getur", sagði formaður
Sjálfstæðisfélags Akureyrar, en
vildi að öðru leyti ekki tjá sig um
hugsanlegar afleiðingar.
í bili og erfiðleikar steðja að á er-
lendum sjávarafurðamörkuðum.
Veruleg aukning í útgerð og
vinnslu sjávarafurða er þvi tæpast í
sjónmáli á næstunni, auk þess sem
niðurlagningariðnaðurinn er í
verulegri hættu. Ullar- og skinna-
iðnaður á í erfiðleikum og ekki
sjáanlegt að þar fjölerulega at-
vinnutækifærum á næstunni.
Hugsanlega er stefnt að stór-
uppbyggingu orkuvera og iðnaðar í
öðrum landsfjórðungum sem von-
andi verður þeim landsfjórðungum
og þjóðinni allri til góðs. en óæski-
legt verður að teljast fyrir Eyja-
fjarðarsvæðið, að þaðan sogist
verulegt vinnuafl til slikrar stór-
uppbyggingar í öðrum landsfjórð-
Hús Skjaldborgar við Hafnarstræti.
Stríðir
ekki gegn
skipulagi
Talsverðar umræður spunnust
út af lóðarumsókn prent-
smiðjunnar Skjaldborgar í bæj-
arstjórn s.l. þriðjudag. Skjald-
borg hefur sótt um lóð norðan
núverandi aðseturs fyrirtækisins
við Hafnarstræti. Niðurstaða
meirihluta bæjarst jórnar varð sú
að ekkert væri því til fyrirstöðu
að Skjaldborg fengi að byggja á
lóðinni nr. 69 við Hafnarstræti
— ekkert í skipulagi bæjarins
mælti á móti því.
Tryggvi Gíslason, formaður
skipulagsnefndar, var því andvígur
að veita lóð undir iðnrekstur á
þessu svæði og i sama streng tók
skipulagsstjóri Akureyrarbæjar. I
atkvæðagreiðslu á umræddum
bæjarstjórnarfundi greiddu allir
bæjarfulltrúarnir, nema Tryggvi
Gíslason og Sigurður Óli
Brynjólfsson, atkvæði með því að
Skjaldborg fengi lóðina. Sigurður
Óli Brynjólfsson sat hjá.
Það kom fram hjá Helga
Guðmundssyni, talsmanns meiri-
hluta þeirra sem sitja í skipulags-
nefnd og vilja leyfa Skjaldborg að
byggja, að eigendum Skjaldborgar
yrði gert skylt að nota götuhæð
hússins til verslunar eða hliðstæð -
ar starfsemi.
ungum. Eyjafjarðarsvæðið hlýtur
að verða að stefna að jafnri og
traustri framþróun. sem skapi vax-
andi fjölda ungs fólks atvinnu-
tækifæri á heimaslóðum. Því er lagt
til, að stofnaður verði sjóður. er
kosti sérfræðiathugun á hugsan-
legum nýiðnaði fvrir Eyjafjarðar-
svæðið. en síðan yrðu þá e.t.v.
stofnuð undirbúningsfélög til þess
að kanna nánar einstaka þætti. eða
þá að framkvæntdaaðilar. einstak-
lingar eða félög. tækju fyrir nýjar
iðngreinar, sem álitlegar teldust.
Sjóðurinn þyrfti væntanlega að
hafa til ráðstöfunar verulegt fjár-
rnagn, því gera verður ráð fvrir að
3-4 mannár sérfræðinga þurfti til
(Framhald á bls. 6).
1
Sjóður til eflingar nýiðnaði
Fréttabréf
Enn eitt kaupfélag hefur bæst í
hóp þeirra sem byrjað hafa út-
gáfu fréttabréfa, og er það Kf.
Langnesinga á Þórshöfn. Meðal
efnis í bréfinu er frásögn af starf-
semi Prjóna- og saumastofunnar
Snældu hf. á Þórshöfn. Kaupfé-
lagið á 25% hlutafjár, lagði til
húsnæði fyrir starfsemina og þar
starfa nú að jafnaði 10 konur sem
framleiða fyrir um 8-10 millj. kr.
á mánuði.
Vinnustofusýning
ArnarInga
Öm Ingi opnar vinnustofusýn-
ingu á laugardag að Klettagerði
6. Sýningin stendur til 9. nóv-
ember og á henni eru 38 verk,
unnin með olíu-, vatns- og þurr-
pastellitum, auk teikninga og
skúlptúra. Flest verkanna á sýn-
ingunni voru á sýningu Arnar
Inga í FÍM-salnum í Reykjavík í
síðasta mánuði. Myndirnar eru
allar til sölu, en auk þess verða
seld póstkort og eftirprentanir af
verki, sem er á sýningunni, og
mun það nýmæli á Akureyri. Örn
Ingi gat þess að boðskort yrðu
engin send út, eins og venja hefur
verið, en allir væru hins vegar
velkomnir.
Kabarett
á föstudag
Næstkomandi föstudagskvöld
verður frumsýndur kabarett í
Sjálfstæðishúsinu. Samtals koma
um 20 manns fram í sýningunni
að meðtalinni hljómsveit. Aðal-
höfundur efnisins er Guðmundur
Sæmundsson. Sýningin er fyrst
og fremst hugsuð sem framlag til
styrktar Leikfélagi Akureyrar, en
allir þátttakendur gefa vinnu
sína.
Almennir stjórn-
málafundir
verða haldnir föstudaginn 24.
október í Steinhólaskála kl. 13.30
og Skjólbrekku Mývatnssveit kl.
21.00. Alþingismennirnir Stefán
Valgeirsson og Guðmundur
Bjarnason mæta á fundina.
IAUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJORN: 24166 OG 232071