Dagur - 23.10.1980, Qupperneq 4
Valgarður Stefánsson, myndlistarmaður
DAGUE
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreióslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamaöur: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Aðför
Geirsarmsins
Sjálfstæðismenn í Norðurlands-
kjördæmi eystra hafa látið sem
þeir viti ekki af klofningnum í
Sjálfstæðisflokknum. Allt virðist
slétt og fellt á yfirborðinu og í frá-
sögnum íhaldsblaðanna af aðal-
fundi kjördæmisráðs flokksins
kemur fram, að „aðalfundurinn
hafi verið mjög vel sóttur og þar
hefði ríkt góð stemmning“ eins og
þar er orðað. Opinberlega láta
sjálfstæðismenn á Norðurlandi
eins og ekkert sé og forðast að
ræða vandamálið.
Nú hefur hinsvegar komið í Ijós,
að í Norðurlandskjördæmi eystra,
eins og annars staðar, er undir-
róðursstarfsemin og valdabarátt-
an í fullum gangi. Það kom nefni-
lega berlega í Ijós á kjördæmis-
þinginu, sem gefið er í skyn að
hafi verið einhver kærleikssam-
koma. Þar komu sendisveinar
Geirsarmsins vilja sínum fram,
með Blöndal og Lárus Jónsson í
broddi fylkingar, og boluðu einum
af lykilmönnum Sjálfstæðis-
flokksins á Akureyri um margra
ára skeið út úr flokksráði, en
flokksráð er næstæðsta stofnun
Sjálfstæðisflokksins næst á eftir
miðstjórn. Þannig skiptir engu
máli hvort menn hafi unnið flokk
sínum vel um langa hríð — þeir
skulu fjúka ef þeir taka ekki ein-
dregna afstöðu með formannin-
um.
Sá sem fékk reisupassann að
þessu sinni hafði unnið sér það til
sakar, að vera hlynntur varafor-
manni flokksins, auk þess sem
hann reyndi að bera klæði á
vopnin og tók ekki afstöðu í
ágreiningnum sem varð, þegar
Jón G. Sólnes kom fram með sér
lista. Þessi aðför Geirsarmsins
hefur mælst mjög illa fyrir og
þannig segir t.d. formaður Sjálf-
stæðisfélagsins á Akureyri í við-
tali við Dag, að menn séu nánast
orðlausir af undrun og reiði vegna
þessarar þröngsýnu ákvörðunar
kjördæmisráðs.
Þetta er dæmi um þann ágrein-
ing sem er í Sjálfstæðisflokknum
vegna forystuerfiðleikanna, sem
þar er við að etja. En það er annars
konar ágreiningur innan flokks-
ins. Stefán Valgeirsson, alþingis-
maður, bendir á það í grein í Degi,
að verulegur málefnalegur
ágreiningur sé á meðal þing-
manna Sjálfstæðisflokksins sem
séu í stjórnarandstöðu. Þetta sé
djúpstæður skoðanamunur milli
sumra þingmanna dreifbýlisins og
hinsvegar þingmanna þéttbýlis á
Faxaflóasvæðinu.
Erfitt er að meta til hvers allur
þessi klofningur geti leitt, en flest
bendir til þess, að landsfundur
sjálfstæðismanna næsta vor verði
í meira lagi sögulegur.
„Legg meiri
áherslu á
einfaldari form“
„Eigin ásjóna.“
Á laugardag hefst sýning í
Gallerí Hóhól á verkum Val-
garðs Stefánssonar. Um 60
myndir verða á sýningunni,
flest allar unnar í pastel, en
einnig í olíukrít og kol. Val-
garður hefur einu sinni áður
haldið einkasýningu, í Lands-
bankasalnum á Akureyri 1972,
en hann hefur einnig tekið þátt
í samsýningum með
Myndlistafélagi Akureyrar og
Myndhópnum. Síðast tók
hann þátt í samsýningu í
fyrrahau&t.
Valgarður tók þátt í sýningu
nokkurra Akureyringa í Nor-
ræna húsinu í Reykjavík 1974. Sú
sýning verður lengr í minnum
höfð, því sýnendur fengu heldur
óvæga dóma hjá gagnrýnendum í
Reykjavík. Varð í því sambandi
til hugtakið „Akureyrarmaleri,“
sem átti eftir því sem best er vitað
að lýsa myndum þeirra félaga og
það var ekkert hrósyrði. Við
spyrjum Valgarð um þessa sýn-
ingu:
— Ég held að gagnrýnin hafi
nú ekkert verið svo mjög óvægin
og ósanngjörn. Við vorum eink-
um gagnrýndir fyrir reynsluleysi,
sem mátti sjálfsagt til sanns vegar
færa.
— Hefur orðið einhver breyt-
ing á myndgerð þinni síðan?
— Ég er búinn að brjóta mín
mál alveg til mergjar síðan þetta
var. Ég held ég hafi þroskast mjög
mikið og þakka það ýmsu, sem
hefur haft áhrif á mig. Ég hef t.d.
kynnst tónlist og hún hefur opnað
huga minn. Ég hef farið mikið 1
útilegur og fjallaferðir, þar sem
ég hef „stúderað“ landslagið,
veðrið og veðrabrigði. Ég mála
aldrei í þessum ferðum mínum,
heldur safna bara minningum
sem ég síðan vinn úr. Ég legg nú
orðið meiri áherslu á einfaldari
form og hef verið að kanna nýja
samsetningu lita. Ég á vafalaust
margt eftir ólært enn, en ég held
að aðalatriði sé að þora að taka
áhættuna af því að mynd mis-
heppnist. Þannig lærir maður af
reynslunni.
Valgarður sagði að megnið af
myndunum á sýningunni væru úr
náttúrunni. Eins og áður sagði
verður sýningin opnuð á laugar-
dag og verður opin kl. 20-22 virka
daga og kl. 16-22 um helgar.
Henni lýkur um aðra helgi.
STEFÁN VALGEIRSSON, ALÞINGISMAÐUR:
Hvað er framundan?
í fyrri grein minni um þetta efni,
sem birtist hér í blaðinu fyrir
skömmu, benti ég á, að viðskipta-
kjör þjóðarinnar út á við hefðu
versnað til muna síðustu tvö árin.
Við stöndum því frammi fyrir
þeirri staðreynd, að minna er til að
skipta á milli þegnanna.
Þeir kjarasamningar, sem nú er
reynt að ná samkomulagi um,
þurfa að miða ytri gerð sína við
það, sem atvinnuvegirnir eru færir
um að bera. Að öðrum kosti verður
sama þróun áfram og verið hefur.
Minni og minni króna og óðaverð-
bólga, sem leiðir af sér atvinnuleysi
fyrr en varir.
Reynslan ætti að vera búin að
kenna okkur, að afieiðing þess að
skipta meiru en við öflum, verður
til þess eins, að við fáum fleiri
krónur en verðminni, og því enga
kjarabót. Bent hefur verið á, að
hægt sé að skipta þjóðarkökunni á
annan hátt en gert hefur verið og af
meira réttlæti, — En réttlæti er af-
stætt hugtak, og sýnist sitt hverjum
í því efni.
Þjóðin stendur
á krossgötum
Reynslan sýnir þrátt fyrir allar
yfirlýsingar, að torvelt er að ná
fram breytingu í þessu efni, sem
leiða myndi af sér minni launamun
í landinu. Þar eru fleiri ljón á veg-
inum en sjást í dagsbirtunni, og
tvisýnt að jjeim verði rutt úr vegi í
skjótri svipan.
Þjóðin stendur því á krossgötum
og kemst ekki hjá því að velja um
leið. Valið ætti að vera auðvelt. Þvi
ef við beygjum ekki af leið óða-
verðbólgu og tryggjum eðlilegan
rek'stur framleiðslunnar, blasir við
atvinnuleysi og það böl og órétt-
læti, sem slíku ástandi fylgir. Af því
leiðir svo minni framleiðsla og
minnkar þá enn, það sem til skipta
kemur. Auðsætt ætti að vera, að
þessi leið liggur ekki til hagsældar,
heldur í gagnstæða átt.
En þótt rekstrarörðugleikar séu
nú hjá atvinnuvegunum, sem er
afleiðing mikilla kostnaðarhækk-
ana hér innanlands og verri við-
skiptakjara, er engin ástæða fyrir
þjóðina að örvænta um framtíðina.
A síðustu árum hefur verið mikil
uppbygging á ýmsum sviðum
þjóðlífsins. Stórt átak hefur t.d.
verið gert í að endurbyggja
vinnslustöðvar fyrir sjávarafla.
Skuttogarar hafa verið keyptir til
að tryggja þessum vinnslustöðvum
hráefni. Þetta tvennt hefur gjör-
breytt öllu mannlífi á flestum þétt-
býlisstöðum víðs vegar um landið,
bætt kjör íbúanna þar og gert aðra
uppbyggingu mögulega.
Að taka eyðslu-
lán hefnir sín
Allt bendir til þess, að sjávarafli
muni aukast verulega á næstu árum
og miklir möguleikar virðast I
sjónmáli til að gera þennan afla að
enn verðmeiri vöru en gert hefur
verið, ef rétt er að staðið.
Enginn vafi er á því, að fram-
leiðsla á ýmsum sviðum iðnaðar og
landbúnaðar hefur einnig umtals-
verða aukningarmöguleika. Málið
er það, að við þurfum og höfum
möguleika á að auka framleiðsluna
og gera hana verðmætari. Engin
leið er til að bæta kjör þjóðarinnar
nema með því að skapa meiri
verðmæti. Það gengur ekki til
iengdar að láta meira i askana en til
er hverju sinni. Að taka eyðslulán,
hefnir sín.
Athyglisvert er, að eftir því sem
kjörin hafa almennt batnað hjá
þjóðinni hafa kröfur á öllum svið-
um aukist. Fullyrða má, að þjóðin
hefur aldrei haft það eins gott og á
síðustu árum, og er því ástæðulaust
að örvænta, þó um sinn þurfi að
þrengja mittisólina.
Þegar menn standa á krossgötum
þá skiptir það meginmáli að velja
rétta leið, þá skárstu sem um er að
velja. Það fyrsta sem þarf að hyggja
Stefán Valgeirsson.
að og tryggja er að halda atvinnu-
vegunum gangandi, tryggja næga
atvinnu, en gera jafnhliða ráðstaf-
anir til að draga úr verðbólgunni.
Þessi leið er án efa vandrötuð og
verður tæpast farin ef almennur
skilningur reynist ekki fyrir því, að
það sé þjóðarnauðsyn að fara hana.
Stjórnarsamstarf-
ið brestur ef ...
Nú eru störf hafin á Alþingi fs-
lendinga. Þar verður tekist á um
4.DAGUR
Templarar fagna
enn einum áfanga
Ávarp Eiríks Sigurössonar, stjórnarformanns
fyrirtækja I.O.G.T. á Akureyri, í Borgarbíói
Góðir bíógestir!
Verið hjartanlega velkomin
hingað. í dag fögnum við þeim áf-
anga að hafa endurnýjað þak og
innréttingu þessa húss. Má svo
segja að útveggir standi einir eftir
af hinni gömlu byggingu og hluti af
sætum. Þessari endurnýjun er þó
ekki að fullu lokið.
Ég samgleðst Björgvin Júníus-
syni, bíóstjóra okkar, að geta nú
sýnt bíógestum myndir í rúmbetri
og fallegri sal en áður með kúptri
hvelfingu og stjörnum eins og á
næturhimni.
Við templarar höfum einnig í
sumar látið endurnýja Friðbjarn-
arhús að utan, en það er friðlýst
minjahús, þar sem minjar reglunn-
ar eru geymdar, eitt sinnar tegund-
ar hér á landi. Sverrir Hermanns-
son, húsasmíðameistari, hefur
stjórnað því verki en templarar
máluðu húsið utan í þegnskyldu-
vinnu. Fyrir hönd stjórnar fyrir-
tækjanna færi ég bestu þakkir öll-
um þeim sem að þessari endurnýj-
un hafa unnið á báðum þessum
húsum.
Þegar Góðtemplarareglan nam
land hér á Akureyri fyrir tæpri öld
var hér brennivínssala í öllum
verslunum. Þar var oft leiðinlegur
bragur. Það varð eitt af verkum
reglunnar að afnema það.
Reglan hefur verið athafnasöm í
félagsmálum. Víða byggði hún
fyrstu fundahúsin. Hér stuðlaði
hún að auknu félagslífi m.a. með
því að byggja fundahús í bænum.
Hún byggði Samkomuhúsið —
núverandi Leikhús — af miklum
stórhug. Það er ein af þeim bygg-
ingum sem setur svip á þennan bæ.
Tveir templarar, Guðbjörn Björns-
son og Guðmundur Ólafsson,
byggðu það. Reglan byggði einnig
síðar Skjaldborg með U.M.F. Ak-
ureyrar, þar sem nú eru prentuð
blöð og bækur. Loks keypti hún
Hótel Varðborg ásamt kvikmynda-
salnum og rekur hér kvikmyndahús
og gistihús. Hótel Varðborg mun
vera eina bindindishótelið hér á
landi. Áðan minntist ég á endur-
nýjun á salnum á þessu ári, en
hótelið hefur einnig tekið miklum
stakkaskiptum síðan reglan
eignaðist það. Leitast er við að reka
þessi fyrirtæki með snyrtimennsku.
Um álit manna á reglunni og
starfsemi hennar í byrjun þessarar
aldar ætla ég að vitna í umsögn
Tryggva Emilssonar í bók sinni
„Fátækt fólk.“ Umsögn hans er
svohljóðandi:
„Góðtemplarareglan var þá
komin á annan áratug í kaup-
staðnum og var leiðandi afl sem
vísaði veginn fram til hreinni hug-
renninga og þrifa í daglegu lífi
manna. Reglan var menningarviti
sem lýsti af um langa vegu.“
Þetta eru ekki orð okkar
templara heldur annarra. En ég
hygg að þau séu sönn. En misjafnir
eru stundum dómar þeirra, um
regluna eins og aðrar siðbótastefn-
ur, sem allt vilja láta reka á reiðan-
um. En hin sárbeitta reynsla er sú
(Framhald á bls. 6).
mörg erfið mál, sem lausn verður
að finnast á.
Fyrst og síðast verður fjallað um
atvinnu- og verðlagsmál. Umræð-
an, sem nú fer fram í landinu er um
það, hvaða líkur séu fyrir því að
samstaða náist á milli stjórnar-
flokkanna um viðunandi lausn
þessara mála. Umræðan ber það
með sér, að umtalsverður meiri-
hluti þjóðarinnar væntir mikils af
þessari ríkisstjórn og yrði fyrir
miklum vonbrigðum ef hún nær
ekki tökum á verðlagsmálunum. —
Menn eru yfirleitt sammála um að
stjómarsamstarfið byggist á því að
takast megi að draga úr verðbólg-
unni. En takist það hins vegar ekki,
sé undirstaðan undir stjórnarsam-
starfinu brostin.
Og menn spyrja: Hvað tekur þá
við? Og þá verður lítið um svör, því
ekki hefur heyrst um neinn, sem
treystir sér til að benda á, að nein
önnur forusta sér í sjónnkáli, ef
þessi ríkisstjórn segði af sér.
Það er á allra vitorði, að Sjálf-
stæðisflokkurinn er margklofinn,
og í reynd er forusta hans mjög veik
og úrræðalítil. Það er ekki einvörð-
ungu á milli Geirs- og Gunnars-
manna, sem Sjálfstæðismenn
skipta sér! Verulegur málefnalegur
ágreiningur er einnig á milli þeirra
þingmanna flokksins, sem eru í
stjómarandstöðunni. Erfitt er að
gera sér grein fyrir til hvers þessi
ágreiningur muni leiða, þar sem
um er að ræða djúpstæðan skoð-
anamun í veigamiklum atriðum á
milli sumra þingmanna flókksins,
annars vegar úr dreifbýliskjör-
dæmunum, hins vegar frá þéttbýl-
inu við Faxaflóa. Ekki sjást nein
merki þess, að þessar deilur verði
settar niður á næstu mánuðum.
Sögulegur lands-
fundur
Landsfundur Sjálfstæðisflokks-
ins er fyrirhugaður á næsta vori og
flest bendir til þess, að hann verði i
meira lagi sögulegur. Skoðana-
kannanir Dagblaðsins sýna þáð, að
fylgi Geirs Hallgrímssonar er nú
neðan við þau mörk, sem formanni
stjórnmálaflokks er nauðsynlegt,
svo hann geti komið fram sem
raunverulegur leiðtogi flokksins,
Eina von hans um breytingu á því
ástandi er, að ríkisstjórninni takist
ekki að ná verulegum tökum á
verðbólgunni. Því mun hann og
hans tryggustu fylgismenn ekki
harma þó samstaða náist ekki á
milli þeirra þingmanna, sem styðja
ríkisstjórnina, um árangursríka leið
í því efni, og víst er um það, að
stjórnarandstaðan mun ekki auð-
velda að slikt samkomulag náist.
Það sést t.d. á viðbrögðum forustu-
— SIÐARI GREIN —
manna. Vinnuveitendasambands-
ins í samningamálunum og á
málatilbúningi Geirsmanna í dag-
blöðum. Hins vegar á Gunnar
Thoroddsen og hans félagar allt
undir því, að verulegur árangur
náist í því að draga úr verðbólgu-
hraðanum. — Langlífi ríkisstjórn-
arinnar ræðst af því og sennilega
pólitísk framtíð þeirra félaga.
Sagt er, að doktor Gunnar
Thoroddsen hafi eitt sinn látið þau
orð falla að Adenauer, fyrrverandi
kanzlari Þýskalands, hafi nú verið
orðinn talsvert eldri, þegar hann
háði sína síðustu kosningabaráttu
en hann - þ.e. Gunnar verði, þegar
næst verður kosið til Alþingis ís-
lendinga. Sé það rétt, að Gunnar
hafi sagt þetta, þá er sýnilegt hvað
fyrir honum vakir. Og eitt er víst, að
Gunnar mun leggja sig allan fram í
að ná stefnumálum ríkisstjórnar-
innar fram. Verulegur meirihluti
Sjálfstæðismanna virðast fylgja
honum að málum, þó þinglið
flokksins sé honum að mestu leyti
andsnúið. Og ef umtalsverður ár-
angur næst í baráttunni við verð-
bólguna á kjörtímabilinu, þá gæti
svo farið, að Gunnar Thoroddsen
og félagar hans legðu út í söguleg-
ustu þingkosningar aldarinnar.
Taflið er því margslungið og tví-
sýnt og mætti um það margt segja,
því fleiri blikur eru á lofti en hér
verða nefndar.
Ekki er betur ástatt fyrir hinum
stjórnarandstöðuflokknum, Al-
þýðuflokknum. Barátta hans fyrir
raunvöxtum á liðnum árum og
reynslan af þeirri stefnu er að rýja
hann öllu fylgi. Harðnandi átök eru
innan flokksins, ekki síst út af
raunvaxtastefnunni. Mikill kaf-
bátahernaður og valdastríð er þar
háð, þó ekki skorti yfirlýsingar af
beggja hálfu um málefnalega sam-
stöðu og um trausta og gagnkvæma
vináttu. Sem sagt: I bróðerni þeir
vega þar hvern annan.
En ef Kjartani tekst að knésetja
Benedikt, þá er eitt víst, að víðsýni
Alþýðuflokksins mun ekki aukast
við það, nema síður væri.
Engin forusta í
sjónmáli - ef nú-
verandi stjórn
mistekst
Á því sem að framan greinir sést,
að engin stjórnmálaleg forusta er í
stjónmáli til að taka við, ef núver-
andi ríkisstjórn mistekst að ráða
fram úr málum þjóðarinnar á við-
unandi hátt. Abyrgð þingliðs ríkis-
stjórnarinnar er því meiri nú en við
venjulegar aðstæður. En þjóðin má
ekki gleyma því, ,að ríkisstjórn og
stuðningsþingmenn hennar geta
ekki komið fram veigamiklum
breytingum, sem duga til að koma
atvinnu- og verðlagsmálum I við-
unanlegt horf, nema um þá stefnu
náist víðtæk samstaða.
Allt er undir því komið, að hver
og einn þjóðfélagsþegn taki ábyrga
afstöðu og á þann hátt auðveldi
ríkisstjórn og stuðningsmönnum
hennar að framkvæma stjórnar-
stefnuna, en láti ekki moldviðri
stjómarandstöðunnar villa sér sýn.
Menn sem ekki hafa tök á sínum
eigin flokksmönnum, hvað þá
traust þeirra, eru ekki liklegir til að
ráða við málefni þjóðarinnar á erf-
iðleikatímum.
KEPPNI í
TVfLIÐALE
í íþróttahúsinu
í Glerárhverfi
á laugardaginn
Á laugardaginn kemur kl. 14.00
gengst Tennis- og badminton-
félag Akureyrar fyrir keppni í
tvíliðaleik og fer keppnin fram í
íþróttahúsinu í Glerárhverfi.
Öllum er heimil þátttaka bæði
konum og körlum. Þátttakend-
ur eru beðnir að mæta eigi síðar
en kl. 13.00 og láta þá um leið
skrá sig til þátttöku. Búast má
við skemmtilegri keppni því
það eru fleiri og fleiri sem iðka
þessa ágætu íþrótt sér til ánægju
og hressingar.
Félagsgjalda-
happdrætti K.A.
Hver greiðslukvittun er einnig
happdrættismiði í félagsgjalda-
happdrætti K.A. 10 vinningar í
boði. Verðmæti hvers vinnings
25 þúsund króna úttekt í sport-
vöruverslunum bæjarins. Fé-
lagsmenn hvattit til að gera
fljótt upp. Dregið verður 15.
nóvember n.k. K.A.-miðstöðin í
Lundarskóla er opin á sunnu-
dagsmorgnum kl. 9-12 og á
þriðjudögum kl. 7.30-19. Stjórn
K.A.
Árni
ráðinn
Stjórn Knattspyrnudeildar Þórs
hefur endurráðið Árna Njáls-
son sem þjálfara meistaraflokks
næsta keppnistímabil. Árni fær
það hlutverk að stýra Þórsur-
unum í fyrstu deild næsta sum-
ar. Þeir eru að vísu hagvanir
því þeir hafa leikið þar áður. Ámi
náði frábærum árangri með Þór
s.l. keppnistímabil, en þeir urðu
í öðru sæti í deildinni. íþrótta-
síðan býður Árna aftur á ný
velkominn í bæinn og óskar
honum góðs gengis í deildinni.
Þessar konur voru að æfa í gamla íþróttahúsinu sl. þriðjudagskvöld er Ó.Á.
tók myndina.
Handboltinn
Þór fer suður
Um næstu helgi heldur áfram keppni í annarri deild í
handbolta. Um síðustu helgi lék KA tvo leiki en þeir leika
ekkert um þessa, en í staðinn fer Þór til Reykjavíkur og
leikur tvo leiki, við sömu aðila og KA lék við um síðustu
helgi. Á laugardaginn kl. 15.15 leika í Laugardalshöll
Ármann og Þór og á sunnudaginn kl. 15.00 leika að
Varmá í Mosfellssveit Afturelding og Þór. Ekki er vitað
mikið getu Þórsara í ár en þeir hafa eins og KA leikið
sárafáa æfingarleiki.
Ekki er vitað um nýja leikmenn með Þór en vitað er að
gamlir refir hafa tekið fram skóna að nýju og hafa æft að
fullum krafti undir stjórn Aðalsteins Sigurgeirssonar
þjálfara.
Alli gerir
lukku í Rvík
Alfreð Gíslason handknattleik-
maður frá Akureyri hóf að leika
með KR nú í haust, og hefur gert
stormandi lukku á höfuðborgar-
svæðinu. Jafnframt því að vera
besti maður KRinga er hann
orðinn fastur maður í landslið-
inu og er að sögn landsliðsþjálf-
arans „aðal leyninúmcr“ liðsins
en það er nú þessa dagana að
leika á Norðurlandamótinu í
handknattleik sem fram fer í
Noregi. Er það ánægjulegt að
vita að toppíþróttamenn komi
frá Akureyri, og gaman verður
að fylgjast með Alfreð í
framtíðinni.
Alfrcó Gislason.
Karfan
Stórleikur um helgina
Á laugardaginn kl. 15.00 leika í
íþróttaskemmunni á Akureyri,
Þór og Fram í fyrstu deild í
körfubolta. Fram féll í fyrra úr
úrvalsdeildinni og hafa þeir á
að skipa mjög sterku liði. Þórs-
arar sem eru sterkir um þessar
mundir hyggjast veita Frömm-
urum hörkukeppni, og eru
áhorfendur hvaltir til að fjöl-
menna í Skemmuna og hvetja
Þórsara til sigurs í þessum fyrsta
heimaleik sínum á þessu
keppnistímabili. Eins og áður
segir hefst leikurinn kl. 15.00.
DAGUR.5