Dagur - 23.10.1980, Qupperneq 8
RAFGEYMAR
í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉLINA
VEUIÐ RÉTT
MERKI
Krafla:
16 megavött
um áramót?
U -
Aðfararnótt föstudags i síðustu
viku jókst gufuaflið í Kröflu-
virkjun um 50%, eða úr 6 mega-
wöttum i rösklega 9 megawött.
Gufuaflið hefur ekki áður orðið
svo mikið, en áður hefur það
hins vegar komið fyrir, að aflið
ykist skyndilega í holum
Kröfluvirkjunar. Það hefur yfir-
leitt ekki verið til langframa. Nú
er talið nær víst, að þessi aukn-
ing sem varð aðfararnótt föstu-
dags hafi verið í tengslum við
eldsumbrotin. Talið er að gliðn-
un í sprungum hafi valdið auknu
gufustreymi í holunum.
Að sögn Einars Tjörva Elíasson-
ar. yfirverkfræðings hjá Kröflu,
hefur starfsemin gengið vel í sumar
og er nú verið að tengja hoiu 14 og
áætlað að því verki ljúki í lok
nóvember eða byrjun desember, ef
veðráttan hamlar starfinu ekki
þeim mun meira. Miðað við að
aukningin sem fram kom í lok síð-
ustu viku sé ekki varanleg, er
reiknað með að virkjunin komist
upp i 13 megawött með tilkomu
holu 14. Þá er nýbúið að bora holu
15 i fulla dýpt og nú er verið að
hreinsa hana og lekaprófa. Því
verki lýkur væntanlega um miðja
þessa viku. Þá líður um hálfur
mánuður þar til í Ijós kemur hversu
góð hún reynist. Ef hún reynist í
meðallagi góð verður hægt að
keyra virkjunina á 16-17 mega-
wöttum þegar búið er að tengja
Sjónar-
vottar
Steingrímur Jóhannesson,
frá Grímsstöðum, sem vinnur
í Kísilverksmiðjunni, varð
sjónarvottur að því er gosið
hófst í Kröflu s.l. laugar-
dagskvöld. Steingrímur var
þá ásamt Jóni Kristjánssyni,
frá Arnarvatni, vestan við
Bjarnarflag og voru þeir
félagar að horfa á bjarmann
sem kom frá Ijósunum við
Kröfluvirkjun.
Steingrimur sagði í viðtali við
fréttaritara Dags í Mývatnssveit
að klukkan hefði verið 4
mínútur yfir 10 þegar þeir sáu
bjarmann frá gosinu. Að sögn
Steingríms var strókurinn frek-
ar mjór í upphafi og náði strax
mikilli hæð. Eftir skamma
stund breiddi strókurinn úr sér.
Steingrímur kvað þetta hafa
verið mjög tignarlega sjón.
holu 15, en það ætti að geta orðið í
byrjun næsta árs.
Einar Tjörvi sagði, að ef mark-
visst yrði unnið að borunum og
starfsmenn vissu það með góðum
fyrirvara hve mikið mætti gera
hvert ár, þá væri hægt að koma
Kröfluvirkjun í fuil afköst eftir 4 ár,
þ.e. 2x30 megawött.
1 yp?".P ^
Siglfirðingar eru þekktir fyrir mikla skíðaiðkun, enda oft mikill snjór á Siglufirði og gott skiðaland við bæjardyrnar.
Keyptu snjótroðara fyrir
60 milljónir til Siglufjarðar
í sumar hefur mikið verið
unnið í sambandi við uppbygg-
ingu í skíðalöndum Sigifirð-
inga og að sögn Kristjáns
Möller, íþróttafulltrúa, telja
Siglfirðingar árið í ár merk
tímamót í sögu skíðaíþróttar-
innar á Siglufirði.
Bygging stökkbrautar.
í ágúst og september var unnið
við að ryðja út fyrir stökkbraut í
norðanverðri Hólshyrnu, skammt
frá íþróttamiðstöðinni að Hóli.
Þar hafa verið gerðar tvær stökk-
brautir — önnur 40 metra og hin
55 metrar. Byrjað var á minni
brautinni og hún grófunnin, en
ekki tókst að ljúka verkinu alveg
vegna vætutíðar. Þó verður hægt
að nota brautina í vetur. Á þessu
svæði eru miklir möguleikar til að
byggja minni brautir í
framtíðinni.
1 vetur verður sett upp lítil tog-
braut við stökkbrautina og að
öllum líkindum ætti stökkkeppn-
in á landsmótinu í apríl n.k. að
fara fram á þessari braut.
Skíðalyfta
í sumar var unnið við að leggja
jarðstreng meðfram lyftunni og
sett upp ljós á möstrin og staura
úl frá lyftunni. Alls verður upp-
lýst braut um 650 metrar. Einnig
mun þessi strengur flytja rafmagn
í togbraut sem verður fyrir ofan
stóru lyftuna. Lyftulengdin verð-
ur því um 850 metrar. Einnig er
byrjað að byggja lyftuhús, þar
sem verður komið fyrir stjórn-
búnaði, söluskála og á efri hæð
aðstaða fyrir tímatöku og móts-
stjórn. I athugun er nú hvort eigi
að lengja lyftuna um 200 til 400
metra, en niðurstöður frá fram-
leiðanda sem fjalla um möstur.
vír og mótor og fleira liggja ekki
enn fyrir.
Göngumenn.
Nú er verið að ljúka við að setja
upp ljós fyrir göngumenn þannig
að 3ja til 4ra km. hringur verður
upplýstur í námunda við íþrótta-
miðstöðina að Hóli.
Snjótroðari.
Til Siglufjarðar hefur verið
keyptur nýr og mjög fullkominn
snjótroðari. Hann er af Kass-
bohrer gerð og kostar 60 til 70
milljónir með nauðsynlegum
tækjum. Kristján sagði að á því
léki ekki vafi að með tilkomu
troðarans myndi öll aðstaða til
skíðaiðkana gjörbreytast. Þetta
ætti ekki bara við um keppnis-
menn heldur og almenning.
íþróttamiðstöðin að Hóli.
í vor og sumar hefur mikið
verið unnið við uppbygginguna
að Hóli. Unnið hefur verið við
efri hæðina og þar fullgerð átta
gistiherbergi, með rúmum fyrir
35 til 45 manns. Þar er einnig
setustofa. Einnig er byrjað að
vinna við búnings- og baðaðstöðu
og í ráði eru ýmsar breytingar á
veitingasal.
Mikill áhugi.
Kristján sagði að Siglfirðingar
væru e.t.v. ekki búnir að ná upp
því forskoti sem aðrir skíðastaðir
landsins hefðu haft, en þeir væru
ekki byrjaðir að nota þau svæði
sem gerðu það að verkum að
skíðalönd við Siglufjörð yrðu
sambærileg við það sem best ger-
ist annarsslaðar. Þar átti Kristján
einkuni við Siglufjarðarskarð, en
það svæði verður ekki tekið í
notkun á næstunni. „Það hefur
verið mikið gert í skíðamálum,
enda hefur áhugi ráðamanna
bæjarins verið mikill," sagði
Kristján. „Með tilkomu troðarans
ætti það að vera auðvelt fyrir
okkur að fara á nýja staði með
stuttum fyrirvara. Það gæti t.d.
verið gott að fara í skarðið ef
skíðasnjór verður ekki nægur á
landsmótinu i okkar hefðbundnu
skíðalöndum."
Skólar velkomnir.
í vetur er stefnt að því að bjóða
skólum, alls staðar að af landinu,
að koma til Siglufjarðar og dvelja
í Hóli og notfæra sér þá aðstöðu
sem Siglfirðingar eru búnir að
byggja upp. í fyrravetur komu
börn úr einum skóla til Siglu-
fjarðar og sagði Kristján að það
væri vilji heimamanna að fleiri en
þeir einir fengju notið góðra
skiðalanda í nágrenni bæjarins.
„Já, það er gott hljóð í okkur.
Við horfum mjög björtum augun
á framtíðina, enda er þetta ár
nokkurskonar vendipunktur í
sögu skíðamála á Siglufirði,"
sagði Kristján að lokum.
Bíða eftir togaranum
„Það má segja að málið sé í
biðstöðu.“, sagði Ólafur Kjart-
ansson, framkvæmdastjóri Jök-
uls h/f á Raufarhöfn, en það
fyrirtæki hefur, ásamt Þórs-
hafnarbúum, fest kaup á tæp-
lega 500 tonna togara í Noregi.
Togarinn er eins árs.
Togarinn er nú á rækjuveiðum
og Ólafur sagði að hann ætti eftir
enn hlutá af sínum rækjukvóta fyrir
þetta ár. í samningum sem gerður
var við Norðmennina var gert ráð
fyrir að skipið myndi veiða kvót-
ann áður en það kæmi hingað til
lands. Ef illa gengur getur það því
dregist fram að áramótum að skip-
ið komi.
„Það kemur sér sérstaklega illa
fyrir þá á Þórshöfn að skipið geti
ekki komið fyrr. Atvinna er einmitt
einna stopulust á haustmánuðum.
Þá eru veður válynd og erfitt fyrir
smábátana að sækja,“ sagði Ólafur.
Raufarhafnarbúar eru betur settir
því þaðan er togarinn Rauðinúpur
gerður út.
M
0 Betraað
byrja ekki
Geðverndarfélag Akureyrar
hefur unnið merkilegt starf
þótt ekki fari starfsemi fé-
lagsins alltaf hátt. Félagið
hefur gefið út nokkra fjór-
blöðunga og í einum þeirra er
fjallað um drykkjusýki. Þar
segir: Engin örugg lækning
við drykkjusýki er til í heim-
inum í dag. Margt hefur verið
reynt og með misjöfnum ár-
angri, en yfirleitt hefur þó
reyndin orðið sú, að árangur
af meðferð hefur verið lélegur
miðað við þá vinnu, tíma og
fyrirhöfn sem oft eru lögð í
lækningatilraunirnar. Engin
sérstök lyfjagjöf kemur til
greina en þó er stundum
gripið til róandi lyfja gagnvart
kvíða og spennu, sem eru
fylgikvillar ofdrykkjunnar.
£ Peningar
Hér á árum áður báru menn
virðingu fyrir peningum —
fóru um þá mildum höndum
og veltu fyrir sér hverri krónu.
Þetta viðhorf hefur tekið
miklum stakkaskiptum. Nú
beygja menn sig ekki eftir
krónum og fimmköllum og
einstaka harðsvíraður nú-
tímamaður tekur aðeins
seðla upp af götu sinni. Ung
börn eru send með háar upp-
hæðir í verslanir og er leyft
að kaupa sér ýmiskonar
óþarfa fyrir fé sem betur væri
geymt heima í skúffu eða í
banka. Því miður er það of
algengt að fólk kaupi sér
allskyns glys og glingur — en
eigi siðan ekki eftir neitt nema
postulínshunda og þ.h. þegar
mögru árin koma.
0 Lítiðdæmi
af sóun
Nú er enginn gjaldgengur á
skfði, skauta og ýmsar aðrar
íþróttagreinar nema sá hinn
sami gangi í útbúnaði sem
kostar tugi ef ekki hundruð
þúsunda. Börnum og ungl-
ingum er oft illa við að kaupa
gamlan útbúnað, sem stend-
ur fyllilega fyrir sínu, vilja fá
nýtt og glansandi. Sumir
skíðamennírnir minna helst á
jólasveina eins og þeir eru á
útlenskum kortum — rauðir
með röndum, í kolsvörtum
skóm. Barnmargar fjölskyld-
ur geta engan veginn haft ef ni
á að kaupa það sem þarf til
iþrótta í dag, ef allt á að vera
nýtt. En þrátt fyrir þessa
staðreynd eru hlutirnir æði
oft keyptir og þá er bara að
lengja vinnudaginn svo end-
ar nái saman.