Dagur - 28.10.1980, Síða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
1 AKUREYRI
LXIII. árgangur. Akureyri, þriðjudaginn 28. október 1980
■■■■■BBBBBBBMBBHBBBBB^H^BBBBBBBHBHBBHBHBBBBHBBBBBHBHHHBBBBBHBBBBHBBBBBBBBBBB
Kjarasamningarnir undirritaðir í gær
Verðbólguáhrif þeirra fara eftir
ráðstöfunum hins opinbera
Það var ís á tjörninni við
Drottningarbrautina um síðustu
helgi og þá notfærðu krakkarnir
í innbænum sér það vel og
dyggilega. Þessir tveir piltar t.d.
höfðu farið í rannsóknarferð út
í hólmann í tjöminni. Mynd: á.þ.
Eftir nær tíu mánaða samningaþóf voru kjarasamningar milli ASl
og VSÍ undirritaðir í gærkvöldi. Þeir byggja í meginatriðum á tillögu
sáttanefndar og eru merkilegir að því leyti fyrst og fremst, að þeir
fela í sér nýskipan í launaflokka. Launaflokkar eru samræmdir og
verða nú 30 talsins, sem er mjög mikil einföldun frá því sem verið
hefur. Samkvæmt þessum samningum hækka laun að meðaltali um
9-10 prósent og mest er hækkunin í lægstu flokkunum. Oddvitar
samningamanna VSl telja, að ekki hafi verið samið um bætt lífskjör
heldur aðeins aukna verðbólgu. Forsvarsmenn ASf benda hins vegar
á, að náðst hafi fram veruleg láglaunahækkun og aukinn kaup-
máttur. Hins vegar fari um áhrif þessara samninga að verulegu leyti
eftir því til hvaða ráðstafana ríkið grípi.
Vilja nota Systrasel
sem hjúkrunarheimili
— Verður að leita eftir f járstuðningi frá almenningi
I kvöld klukkan 8.30 verður al-
mennur félagsfundur í Verkalýðs-
félaginu Einingu, þar sem afstaða
verður tekin til samkomulagsins.
Einnig munu fundarmenn ákveða
hvort aflétta beri vinnustöðvun
þeirri sem var ráðgerð á morgun. Ef
það verður samþykkt verður það
væntanlega tilkynnt í útvarpi í
kvöld. Fundurinn verður á Hótel
Varðborg.
Jón Helgason, formaður Eining-
ar, sagði í gær að félagslega hliðin á
samningunum væri eflaust það
merkastaK sem samningsdrögin
bjóða upp á. í þvi sambandi nefndi
Jón fæðingarorlof, en tók það
jafnframt fram að hann væri ekki
búinn að sjá drögin og vildi ekki
ræða pakkann öllu frekar.
„Ég tel nýju flokkaskipunina
stóran áfanga, en sjálfsagt munu
menn ekki vera á eitt sáttir um
hann. Hins vegar tel ég að það verði
þægilegra fyrir félögin að raða
niður í launaflokka eftir þessu
kerfi — í stað þess að vera með
ótal sérsamninga.
Hitt er svo aftur annað mál að ég
hefði kosið að samningarnir hefðu
farið í annan farveg. Ég held að
þessar krónur hverfi fljótt út úr
höndunum á okkur. Ég get því
tekið undir það með Þorsteini
Pálssyni að þetta eru verðbólgu-
samningar. Þegar svo er komið að
gengið er hreyft nánast við hverja
hækkun launa hjá fiskvinnslunni
þá er ekki von á góðu. Það hefur
alltaf verið mín skoðun að það séu
framleiðslugreinarnar sem geti
raunverulega skammtað kaupið.
Við núverandi aðstæður væri sem
sagt betra að nota skattakerfið til
jöfnunar, en að teygja sig svona“,
sagði Jón Helgason að lokum.
Tryggvi Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjusamlags
Húsavíkur, sagði að þessir samn-
ingar leiddu aðeins til aukinnar
verðbólgu, nema einhverjar ráð-
stafanir kæmu til. Fiskverkunar-
fyrirtæki gætu ekki tekið á sig
9-10% kauphækkun að óbreyttum
aðstæðum. Ef hins vegar væri hægt
að lækka aðra kostnaðarliði, þyrftu
þessir samningar ekki að valda
áframhaldandi gengissigi. Tryggvi
nefndi sem dæmi, að ef vextir yrðu
lækkaðir um þriðjung, eða því sem
næst, gætu fyrirtækin tekið á sig
þessa hækkun. Þetta væri gróflega
reiknað, en til skýringar gat hann
þess, að fyrstu átta mánuði ársins
hefði launakostnaður Fiskiðju-
samlagsins numið um 500 milljón-
um og vaxtagjöld um 160 milljón-
um. Hann sagði að vextir og
gengistap næmu nú jafn hárri eða
hærri upphæð en allur annar al-
mennur rekstrarkostnaður, fyrir
utan hráefniskostnað og laun og
launatengd gjöld.
Tryggvi sagði, að þó að síðustu
aðgerðir til lausnar vanda frysti-
húsanna virtust ætla að hafa tilætl-
aðuð áhrif, þ.e. að gera reksturinn
hallalausan, þá væri staða fyrir-
tækjanna enn mjög slæm. Þau væru
með langan hala af lausaskuldum,
sem ekki hefði þekkst hjá Fiskiðju-
samlaginu í fjöldamörg ár. Þessum
skuldum yrði að breyta 1 föst lán.
Þegar á heildina væri litið færu
áhrif þessarra samninga að veru-
legu leyti eftir aðgerðum ríkis-
stjórnarinnar til að draga úr verð-
bólgáhrifum þeirra.
Eins og Dagur greindi frá fyrir
skömmu vantar tilfinnanlega
húsnæði fyrir hjúkrunarsjúkl-
inga á Eyjafjarðarsvæðinu. Nú
bendir flest til að vandamál
þetta verði leyst að nokkru leyti,
en þeir aðilar sem málið snertir,
hafa í hyggju að taka Systrasel,
hús hjúkrunarkvenna við F.S.A.,
í notkun fyrir hjúkrunarsjúkl-
inga. Eftir er að fá endanlegt
svar heilbrigðisyfirvalda, en tal-
ið að jákvætt svar muni fást fyrir
fimmtudag. I Systraseli gætu 17
til 20 hjúkrunarsjúlkingar verið
hverju sinni. I dag getur F.S.A.
tekið á móti 17 hjúkrunarsjúkl-
ingum. I Skjaldarvík og Elli-
heimilinu Hlíð eru nú um 40
manns sem þurfa að komast á
hjúkrunarheimili.
Jón Kristinsson, forstöðumaður
elliheimilanna Hlíðar og Skjaldar-
víkur, sagði að viðkomandi aðilar
hefðu haldið fund í síðustu viku. Á
fundinum kom fram að mikill vilji
er til að leysa vandamál hjúkrun-
arsjúklinga og var yfirtaka Systra-
sels nánast eini möguleikinn sem
fundarmenn komu auga á. í fjár-
hagsáætlun spítalans er ekki gert
ráð fyrir framkvæmdum vegna
hjúkrunarsjúklinga á næstu árum.
Jón sagði að það væri því ljóst að ef
Systrasel yrði tekið fyrir hjúkrún-
arsjúklinga þá yrði að leita til al-
mennings um fjármagn.
„Það gætu fengist 17 til 20 vist-
pláss í Systraseli. Að sjálfsögðu
myndi það leysa brýnasta vand-
ann — og tvöfalda þá tölu rúma
sem spítalinn getur boðið upp á í
dag“, sagði Jón. „Að auki er þetta
hús á spítalalóðinni og getur ekki
verið hentugra hvað það snertir.
Nú búa ekki nema 3 eða 4
hjúkrunarkonur í Systraseli svo
ekki ætti það að vera vandamál að
útvega þeim nýjan samastað".
Jón lagði áherslu á að ef Systra-
sel fengist, og hið opinbera aðstoð-
aði við að gera húsnæðið hentugt,
þá mætti sú aðstoð á engan hátt
tefja fyrir þeim framkvæmdum
(Framhald á bls. 7).
Búa nú við meira öryggi
Rafmagnsveitur ríkisins hafa í
sumar unnið við endanlegan frá-
gang á línu yfir Dranga milli
Dalvikur og Ólafsfjarðar, jafn-
framt því sem gerðar voru breyt-
ingar vegna galla sem í ljós koihu
á linunni í vctur. Þá hefur verið
unnið að hækkun spennu á lín-
unni frá Ólafsfirði til Skeiðsfoss
úr 11.000 voltum í 19.000 volt og
tvöfaldast flutningsgeta línunnar
við það. Hefur m.a. verið sett upp
spennistöð til bráðabirgða á
vatnsbakkanum sunnan við elli-
heimilið vegna þessa. Hefur ör-
yggi í rafmagnsmálum Ólafsfirð-
inga nú stóraukist. Auk ofan-
greindra verka hefur eins og
venjulega verið unnið við aukn-
ingu og endurbætur á
bæjarkerfinu.
Samkomur í Zion
Það hefir verið föst venja mörg
undanfarin ár, að fyrri hluta
vetrar hefir verið efnt til Kristni-
boðs- og æskulýðsviku í Kristni-
boðshúsinu Zíon. Að vikunni
standa þau félög, sem starfa 1
Zion, þ.e.a.s. Kristniboðsfélag
kvenna, Kristniboðsfélag karla
og KFUM og KFUK. Samkom-
urnar hefjast sunnudaginn 2. nóv.
n.k. og verða síðan alla vikuna til
sunnudagskvölds 9. nóv., en sá
dagur er Kristniboðsdagurinn.
Aðalræðumenn vikunnar verða
þeir Benedikt Arnkelsson guð-
fræðingur og Jónas Þórisson
kristniboði. Einnig tala Sr. Pétur
Þórarinsson á Hálsi 1 Fnjóskadal
laugardagskvöldið 8. nóv. Á
samkomunum verða m.a. sýndar
myndir frá starfinu í Eþíópíu og
sagt verður frá starfinu þar og í
Kenýa. Ungt fólk, sér um söng og
hljóðfæraslátt og auk þess verður
mikill almennur söngur. Allir eru
velkomnir á samkomur þessar,
sem hefjast kl. 8.30 öll kvöldin.
Sauðf járslátrun á
Sauðárkróki
Almenn haustslátrun hófst hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga þ. 16.
september og lauk þ. 17. október
s.l. Alls var slátrað 51.082 kind-
um, 48.167 dilkum og 2.915 full-
orðnum kindum. Áður hafði ver-
ið slátrað þ. 3. september 1.044
lömbum af öskufallssvæðunum í
framanverðu héraðinu. Var því
alls slátrað 52.126 kindum.
Meðalþungi dilka í aðalslátrun
varð 14,261 kg en sé sumarslátrun
tekin með 14,236 kg. Meðal-
þunginn í aðalslátrun er því 1,666
kg hærri en‘1979.
Haustið 1979 var alls slátrað
65.637 kindum, þannig að slátur-
fjárfjöldinn hefur dregist saman
um rúm 20% — Vegna þess, að
meðalþungi sláturfjár er nú mun
meiri, hefur heildarkjötmagnið
því einnig dregist saman um
13,7%, þar af tæp 7% á dilkakjöt-
inu. Heildarkjötmagn nemur nú
tæpum 780 tonnum á móti rúm-
um 903 tonnum 1979.
IAUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 232071