Dagur - 28.10.1980, Síða 4
Valur Arnþórsson
3MOIM
Utgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiöslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaöamaður: ÁSKELL ÞÖRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Verðbólgu-
samningar?
Heildarkjarasamningur milli ASÍ
og VSI hefur nú verið undirritaður
eftir nær tíu mánaða sam ingaþóf.
Enn er þó eftir að semja við stóra
hópa launþega. Þessi samninga-
gerð var óvenju erfið og langsótt.
Þess vegna er þeim mun meiri
ástæða til að fagna því, að sam-
komulag skuli hafa náðst, án
verkfalla og verkbanna. Slíkri óár-
an fylgja jafnan meiri erfiðieikar
en þeir sem leysast.
I' meginatriðum byggir samn-
ingurinn á sáttatillögu sátta-
nefndar og hann er merkilegur
fyrir það, fyrst og fremst, að hann
felur í sér nýskipan á launaflokk-
um. Launaflokkar hafa verið sam-
ræmdir og þeim hefur verið fækk-
að verulega, eða niður í þrjátíu.
Þetta er mjög mikilvægt skref og
vonir standa til þess, að það verði
mjög til einföldunar samninga-
gerð í framtíðinni.
Samkvæmt þessum samningi
hækka laun að meðaltaii um 9-10
prósent. Mest er um vert að mesta
hækkunin kemur á lægstu launin,
en æði oft hefur viljað brenna við
að þeir sem lægst hafa launin hafi
orðið út undan þegar barist hefur
verið um sérkröfkröfurnar. Það er
því rétt stefna að semja fyrst um
sérkröfur og síðan heildarkröf-
urnar að því loknu. Vonandi er að
þeir sem enn eiga eftir að semja
sýni hófsemi í kröfum sínum og
taki mið af þeim samningum sem
þegar hafa verið gerðir.
Hætt er við því, að þeir samn-
ingar sem nú hafa verið gerðir við
opinbera starfsmenn og félaga í
ASÍ, og þeir samningar sem eftir
er að gera, vaidi aukinni verð-
bólgu í landinu, eða a.m.k. geri
það erfiðara að ná henni niður.
Atvinnurekendur hafa bent á það
margoft, að ekkert svigrúm sé til
grunnkaupshækkana. Jón Helga-
son, formaður Einingar á Akur-
eyri, hefur tekið undir þetta og
telur að hér séu verðbólgusamn-
ingar á ferðinni. Miðað við að-
stæður í þjóðfélaginu hefði verið
betra að nota skattakerfið til jöfn-
unar tekna og leiðréttingar fyrir þá
lægstlaunuðu.
Tryggvi Finnsson, fram-
kvæmdastjóri á Húsavík, benti á
það í viðtali við Dag, að þessir
samningar leiddu aðeins til auk-
innar verðbólgu, nema einhverjar
ráðstafanir yrðu gerðar jafnframt.
Því þyrfti að lækka aðra kostnað-
arliði atvinnurekstrarins, en að
öðrum kosti yrði að lækka gengið
og viðhalda þar með snúningi
verðbólguhjólsins. Sá kostnaðar-
liður sem næstur er á eftir hrá-
efniskostnaði og lau akostnaði
hjá fiskverkunarfyrirtækjunum, er
vaxtakostnaðurinn. Með lækkun
vaxtanna væri e.t.v. að einhverju
leyti hægt að koma til móts við
þann kostnaðarauka, sem fram-
leiðsluatvinnuvegirnir þurfa nú að
kljást við vegna nýgerðra samn-
inga.
Eyjafjarðarsvæðið verð-
ur að hef ja nýja sókn
Kabarett í Sjálf stæðishúsinu
Nauðsynlegf að
Eyfirðingar haldi
vöku sinni
í siðustu viku greindi Dagur frá því
að stjórn K.E.A. hefði sent bœjar-
stjórn og fleiri aðilum tillögu um
stofnun sjóðs til athugunar á hugs-
anlegum möguleikum á nýiðnaði á
Eyjafjarðarsvœðinu. Hafa Eyfirð-
ingar ekki haldið vöku sinni sem
skyldi og e.t.v. misst af einhverjum
nýiðnaðartœkifœrum ?
Eyfirðingar og þá sérstaklega Ak-
ureyringar eiga sér gamla og gróna
iðnaðarhefð og síst af öllu ber að
lasta þá miklu iðnaðaruppbygg-
ingu og framþróun, sem átt hefur
sér stað hér á þessu svæði á síðustu
árum og áratugum. Uppbygging í
nýiðnaði hefur verið að ske og er að
gerast og má í því sambandi t.d.
minna á mikla uppbyggingu á veg-
um Plasteinangrunar h/f, sem er
sameignarfyrirtæki KEA og
Sambandsins, en þar hefur á und-
anförnum árum verið hafin fram-
leiðsla á trollkúlum og netahringj-
um, m.a. með útflutning í huga, og
Plasteinangrun er nú að undirbúa
framleiðslu á fiskikössum, auk þess
sem framleiðsla á síldartunnum og
ýmsu fleiru kemur þar til greina. Ég
skal hins vegar ekki um það segja
hvort Eyfirðingar hafa misst af
einhverjum nýiðnaðartækifærum,
en minna má á, að aðrir landshlut-
ar hafa verið með í gangi athuganir
á ákveðnum þáttum nýiðnaðar.
Sunnlendingar hafa verið með sér-
stakt könnunarfélag til athugunar á
úrvinnsluiðnaði fyrir jarðefni,
Skagfirðingar hafa verið að athuga
um steinullarverksmiðju, Húsvík-
ingar eru að athuga möguleika á
pappírsverksmiðju í samvinnu við
erlenda aðila og Austfirðingar
virðast einhuga stefna að
uppbyggingu orkuvera og stjóriðju
í sínum landshluta. Hvað úr þess-
um athugunum og áformum verð-
ur getur að sjálfsögðu enginn sagt
enn sem komið er, en um leið og ég
óska þess mjög einlæglega að at-
vinnuuppbygging verði sem öflug-
ust og sem víðast í landinu tel ég
nauðsynlegt, að Eyfirðingar haldi
vöku sinni og að ekkert það mis-
vægi skapist, sem sogi héðan fólk í
verulegum mæli, eða geri ungu
fólki ókleift að setjast hér að.
Ýmsar iðngreinar
eiga í erf iðleikum
Það kom fram í greinargerð með
tillögunni aðýmsar blikur séu á lofti
í atvinnumálum Eyjafjarðarsvœðis-
ins. Vildir þú útskýra þetía ögn
nánar?
Ég held að ónauðsynlegt sé að
útskýra þetta mikið nánar en ég
gerði í greinargerð minni með til-
lögunni á sínum tíma. Þegar ég
samdi greinargerðina og tillöguna
var mér kunnugt um það, þótt það
væri þá ekki orðið opinbert, að
mjög kemur til álita að skóverk-
smiðjunni Iðunni verði lokað
vegna þess að verksmiðjan hefur
engan rekstursgrundvöll og mér er
einnig mjög vel kunnugt, að ýmsar
iðngreinar aðrar hér í bæ berjast
mjög í bökkunum. Það má minna
á, að smjörlíkisgerðin Akra var
flutt frá Akureyri til Reykjavíkur
fyrir skömmu síðan og það var af
þeirri einföldu ástæðu, að verk-
smiðjan þoldi ekki þann flutnings-
kostnað á sínar framleiðsluvörur,
sem fylgir því að framleiða hér
norðanlands með hinsvegar aðal-
markaðssvæðið við Faxaflóa. Það
er alveg ljóst, að ýmiss neysluvöru-
iðnaður hér í bæ á í erfiðleikum af
þessum sömu ástæðum án þess að
ég vilji nefna þar nokkur sérstök
fyrirtæki. Að öðru leyti má nefna
Valur Arnþórsson.
það, sem flestum er kunnugt, að
það eru talsverðir erfiðleikar í
byggingariðnaði og reyndar sam-
dráttur í byggingum, niðurlagning-
ariðnaðurinn á í erfiðleikum og
fleira mætti telja, sem ég sleppi að
þessu sinni, enda vil ég út af fyrir
sig alls ekki mála of dökka mynd af
ástandinu. Ennþá er sem betur fer
heilmikill þróttur á fjölmörgum
sviðum hér um slóðir.
Vaxtaokrinu
veröur að linna
Eins og fram kemur í greinar-
gerðinni er ekki hœgl að treysta á
hina hefðbundnu þœtti atvinnulifs-
ins þ.e. sjávarútveg og landhúnað
eða úrvinnslugreinar tengdar þess-
um tveim greihum. Er það eitthvað
öðru fremur sem þú telur að Eyfirð-
ingar geti lagt áherslu á í náinni
framtíð?
Að sjálfsögðu verða sjávarút-
vegur og landbúnaður áfram aðal
homsteinar íslensks atvinnu-
lífs og sú undirstaða, sem allt annað
í raun og veru byggist á. Hins vegar
verður að teljast hæpið, að sjávar-
útvegur og landbúnaður geti skap-
að þann mikla fjölda nýrra at-
vinnutækifæra, sem þjóðin þarf á
að halda á næstunni. Landbúnað-
arframleiðslan var of mikil miðað
við innlendan markað og markvisst
hefur verið stefnt að samdrætti í
framleiðslunni með opinberum
aðgerðum. Sá samdráttur er
reyndar e.t.v. orðinn of mikill, en
ekki er við því að búast að land-
búnaðarframleiðslan á næstu árum
verði aftur jafn mikil sem hún var
t.d. á árinu 1978. Fiskistofnarnir
eru flestir fullnýttir í bili en við
verðum þó að binda miklar vonir
við verulega aflaaukningu eftir
nokkur ár. Fjölmörg utanaðkom-
andi atriði ráða því hinsvegar að
hversu miklu leyti við getum aukið
fjölbreytni í úrvinnslu á sjávarafla
hér innanlands. Þar koma til greina
t.d. tollamúrar erlendis. stórauknar
fiskveiðar og sjávarafurðaútflutn-
ingur annara þjóða, eins og t.d.
Kanadamanna, þannig að það
verður að teljast óvíst, hvort mikil
fjölgun atvinnutækifæra verður á
sviði sjávarútvegs og úrvinnslu
sjávarafla. Það má hins vegaraldrei
gleymast, að góð afkoma í undir-
Það er föstudagskvöld, klukk-
an er hálf ellefu og óvenju
margir gestir í Sjálfstæðishús-
inu miðað við að ekki er
áliðnara. En þrátt fyrir þennan
fjöida er algjör þögn. Síðan
gellur við skellihlátur, lófa-
klapp og fagnaöarlæti og sýn-
ingin heldur áfram. Það er
kabarett í Sjallanum og allir
eru með á nótunum. Þessi eini
dauði punktur í sýningunni um
klukkan hálf ellefu lýsir e.t.v.
betur en flest annað, hversu vel
kabarettfólkinu hefur tekist að
ná til áheyrenda.
Með öðrum orðum tókst frum-
sýningin á kabarett Leikfélags
Akureyrar og Sjálfstæðishússins
með ágætum. Sýningin var hröð
og skemmtileg og búast má við að
hún verði kraftmeiri í næstu
skipti, þegar þjálfunin eykst.
Sýningunni lauk með því að
ruddamennið úr „Beðið eftir
Godot“ söng „Let’s Twist again“
og skemmtilegur klukkutími var
liðinn, sýningunni lokið. Sagt
hefur verið að Ufið sé kabarett og
lífið birtist í margvíslegum
myndum. Þannig gæti kabarett-
inn líka tekið breytingum í tímans
rás og hann mætti að ósekju vera
örlítið lengri, því áhorfendur
virtust hreint ekki búnir að fá
nóg.
Ástæða er til að óska aðstand-
endum kabarettsins til hamingju
og vonandi verður afraksturinn
blómlegt leikhúslíf á Akureyri
eftir áramótin, eins og til var
stofnað. Sem sagt, til hamingju
Sunna, Þórey, Örn, Kjartan,
Theódór, Alice og Jamaica og öll
hin, sem ég man nú bara ekki
nöfnin á, enda of langt upp að
telja. Ekki má heldur gleyma
öskukarlinum sem samdi megn-
ið af textunum og tókst það
bærilega, né Sigurði Sjallafor-
stjóra, sem liðkaði til á allan hátt
til að gera þetta mögulegt.
Þar sem þetta á nú að heita eins
konar leikhúsgagnrýni, ætti sam-
kvæmt hefðinni að gefa því sem
stöðuatvinnuvegum þjóðarinnar er
forsenda fyrir velgengni á öðrum
sviðum. Þær blikur sem nú eru á
lofti í atvinnumálum Eyfirðinga
eru að sjálfsögðu einnig sjáanlegar
annars staðar á landinu og í sama
mæli og er það bein afleiðing þess
mjög alvarlega ástands, sem skap-
ast hefur í undirstöðu atvinnuveg-
unum vegna óðaverðbólgu og
kostnaðarhækkana langt umfram
þann tekjuauka, sem hægt hefur
verið að fá á erlendum mörkuðum.
Það, sem skiptir Eyfirðinga að
sjálfsögðu mestu máli nú, svo og
þjóðina í heild, er að fótunum
verði á ný komið undir útflutn-
ingsatvinnuvegina, þannig að þar
verði ekki stórfelldur samdráttur
og jafnvel hrun. Hin fáránlega
sjálfvirkni í víxlhækkunum
kaupgjalds og verðlags verður að
hverfa, vaxtaokrinu verður að linna
og fyrirtækin verða að fá tækifæri
til eðlilegra fjármunamyndunar,
þannig að þau geti notað eigið
fjármagn til uppbyggingar en þurfi
ekki að vera háð síauknu aðfengnu
lánsfé á okurvöxtum, sem þau ráða
ekki við að greiða.
Akureyri verði
20-25 þús. manna
bær á næstu tveim
áratugum
Ef ekkert verður að gert — má þá
búast við að ungt fólk á Eyjafjarð-
arsvœðinu verði að leita út fyrirþað í
atvinnuleit?
Já, því miður og ég tel alveg
hiklaust, að Eyjafjarðarsvæðið
verði að reyna að hefja nýja sókn
og m.a. setja sér það markmið, að
Akureyri verði á næstu tveim ára-
tugum 20-25 þús. manna bær. Hér
á svæðinu er mikil landbúnaðar-
framleiðsla og mikill neysluvöru-
iðnaður, sem tilfinnanlega þarf á
stærri heimamarkaði að halda og
þarf að losa sig undan klafa
síaukins flutningskostnaðar á vör-
um sínum til höfuðborgarsvæðisins
miður fór að minnsta kosti jafn
mikið rými og því sem vel tókst
til, en ég sleppi því hér. Sýningin
átti aldrei að verða neitt leiklist-
arlegt afrek heldur átti hún að
vera skemmtileg og það var hún.
Einstaka gagnrýnisrödd heyrði ég
þó varðandi hljómburðinn og
væru vel þegnar úrbætur í því
máli, ef einhverjar finnast.
Svo er hér að lokum ein spurn-
Atriði úr kubarettinum. Mynd G.S.
ing til þeirra sem að sýningunni
standa: Hvernig væri að láta t.d.
Húsvíkinga og Ólafsfirðinga, svo
einhverjir séu nefndir, njóta
gamansins? Það eru áreiðanlega
„öskukarlar" á þessum stöðum sem
legu skensi um menn og málefni í
þessum byggðarlögum. Hvernig
væri að hugleiða þetta, Sunna?
H.Sv.
og annarra landsvæða, þannig að
einnig fyrir landbúnaðarfram-
leiðsluna og neysluvöruiðnaðinn er
veruleg framþróun og uppbygging
Akureyrar gífurlegt hagsmunamál.
Eilt sinn var rœtt um að stofna
álverksmiðju við Eyjafjörð og einnig
hefur verið talað um stálbrœðslu á
Hjalteyri. Hafa fleiri hugmyndir
komið fram og telur þú að megi
hrinda einhverriþeirra íframkvœmd
að óbreyttum aðstœðum? — t.d. án
aukinnar orkuöflunar á Norður-
landi?
Ég býst við, að athuganir á
vegum nýiðnaðarsjóðs yrðu mjög
víðtækar og á breiðum grundvelli,
þannig að ég tel óþarft að ræða
sérstaklega um álbræðslu, stól-
bræðslu eða einhver önnur sérstök
viðfangsefni á þessu stigi. Ég býst
hinsvegar við því að allir geti verið
sammála um, að mjög þýðingar-
mikið sé fyrir Norðurland að hér í
fjórðungnum verði byggð frekari
orkuver, eins og t.d. Blönduvirkjun,
Villinganesvirkjun og virkjun í
Skjálfandafljóti, auk frekari gufu-
virkjana. íslendingar eiga miklar
orkulindir ónýttar og þær skila
engum tekjum í þjóðarbúið, fyrr en
þær hafa verið virkjaðar. Ýmsir
hafa rætt um að selja orku til út-
landa í gegnum neðansjávar-
strengi, eða jafnvel I gegnum gerfi-
hnetti, en ég tel eðlilegra að selja
orkuna til útlanda í formi iðnaðar-
vara, sem íslendingar hafi haft at-
vinnu af að framleiða. Það
því að koma til álita að koma á legg
einhverjum orkusöluiðnaði og ég
tel að þá skipti höfuðmáli, að Is-
lendingar ráði sínum orkulindum
og sínum atvinnufyrirtækjum.
Kæmi þá m.a. vafalaust til greina,
að ríkisvaldið, sveitarfélög og sam-
vinnuhreyfingin tæki höndum
saman um uppbyggingu orkusölu-
iðnaðar, hvar svo sem hann yrði
staðsettur á landinu. Nýiðnaðar-
sjóður þarf hinsvegar að horfa til
margra átta í leit sinni að nýiðnað-
artækifærum fyrir Eyjafjarðar-
svæðið.
Plasteinangrun h/f er öflugt fyrirtæki og á eflaust framtíðina fyrir scr. Hér heldur
starfsmaður fyrirtækisins á snjóotu sem það framleiðir.
*
.. um leið og ég óska þess mjög einlæglega að at-
vinnuuppbygging verði sem öfiugust og sem víðast í
landinu tel ég nauðsynlegt, að Eyfirðingar haldi
vöku sinni og að ekkert það misvægi skapist, sem
sogi héðan fólk í verulegum mæli, eða geri ungu
fólki ókleift að setjast hér að.
Olánið elti Þór
Á laugardaginn léku í fyrstu
deild í körfubolta Þór og
Fram, en þau eru talin
sterkustu lið deildarinnar
og fastlega búist við því að
annað hvort þeirra vinni sér
rétt til að leika í úrvals-
deildinni.
Það fór eins og búist var við
að um jafna baráttu var að
ræða, og oft á tíðum leikinn
mjög góður körfubolti. Þórs-
arar náðu strax forustunni en
á 12. mín. komst Fram yfir í
fyrsta sinn í leiknum, en þá
var staðan 24 stig gegn 23
Fram í vil. Þá náðu Þórsarar
góðum leikkafla og í hálfleik
höfðu þeir yfirhöndina, 40
gegn 32.
Þórsurum gekk ekki eins vel
að nýta tækifærin sín í síðari
hálfleiknum og smám saman
söxuðu Framarar á forskotið.
Undir lok leiksins var spenn-
ingurinn í hámarki og allt á
suðupunkti bæði í leiknum og
á áhorfendapöllunum. Þegar
10 sek. voru til leiksloka var
Garry varð stigahæstur
Þórsara.
staðan 68 stig gegn 67 Fram í
vil. Þá var gróflega brotið á
Sigurgeiri Sveinssyni og hann
fékk dæmd vítaskot og þrjár
tilraunir til að gera tvær körf-
ur og átti þá möguleika á því
að gera út um leikinn. Sigur-
geiri brást hins vegar bogalist-
in í öllum sínum tilraunum og
hitti aldrei körfuna, þrátt fyrir
það að boltinn daxsaði á
körfuhringnum. Ef Sigurgeir
hefði hitt þó ekki hefði verið
meira en einu sinni hefði
orðið að framlengja leikinn,
og það hefði orðið Þór í vil
þar er bestu menn Fram voru
komnir með fjórar villur og
urðu því að fara með mikilli
gát í framlengingunni ef ekki
átti að vísa þeim af leikvelli.
Það voru því óheppnir Þórs-
arar sem yfirgáfu völlinn og
héldu í baðið eftir leikinn, en
þessi stigamunur er sá minnsti
sem hægt er að tapa leik með í
körfubolta.
Garry var stigahæstur Þórs-
ara með 29 stig og Jón Héð-
insson kom næstur með 12
stig. Kaninn hjá Fram var
stigahæstur hjá þeim með 21
stig og Símon Ólafsson var
með 20.
Þrátt fyrir þetta tap þurfa
Þórsarar engu að kvíða því lið
þeirra er mjög gott um þessar
mundir.
ÍSLANDSMÓTIÐ — ÖNNUR DEILD:
TVötöp
Lið Þórs í annarri deild í
handbolta fór til Reykjavíkur
um helgina og lék tvo leiki.
við Ármann og Aftureidingu,
eða sömu lið og KA lék við
um daginn. Þórsarar máttu
þola stórtap fyrir Ármanni á
laugardaginn, 19 mörk gegn
12, eftir að staðan hafði verið
8-5 í hálfleik. Flest mörk
Þórs í leiknum gerði Sig-
tryggur 3 og 2 gerðu Siggi
Sig., Einar Arason og Rúnar
Steingrímsson, sem aftur
hefur farið að leika með sín-
um gömlu félögum. Ragnar
Þorvaldsson átti stórleik í
marki Þórs í þessum leik
þrátt fyrir tapið, en hann
varði 18 skot eða jafn mörg
og ÓIi Ben. varði í lands-
leiknum á móti Norðmönn-
um á sunnudaginn.
Síðari leikur Þórsara í ferð-
inni var við Aftureldingu og
aftur máttu þeir þola stórtap.
Urslit leiksins urðu 31 mark
gegn 20 eftir að staðan hafði
verið 13-10 í hálfleik. Að sögn
Aðalsteins Sigurgeirssonar,
þjálfara Þórs, byrjuðu Þórsarar
vel á móti Aftureldingu og
höfðu ávallt yfirhöndina þar til
örfáar mín. voru eftir af fyrri
hálfleik. Síðan fór allt í baklás
og heimamenn skoruðu fullt af
mörkum, og úrslitin urðu stór-
sigur þeirra.
Aðalsteinn segir að Þórsliðið
vanti mjög samæfingu, en í lið-
inu séu margir ungir hand-
boltamenn sem ekki séu orðnir
skólaðir í hinni erfiðu keppni
deildarinnar.
Flest mörk Þórs í þessum leik
gerði Siggi Sig. 8, Árni Gunnars
4, og Sigurður Pálsson og Ólafur
Jensson 2 hvor. Einar Magnús-
son var markahæstur hjá Aft-
ureldingu í þessum leik eins og
venjulega.
Sigurður varð markahæstur
Þórsara
Lið UMSE í blaki fór til
Reykjavíkur um helgina og
lék við fram um autt sæti í
fyrstu deild á vetri komanda,
þar er Völsungar sem unnu
aðra deild í fyrra tilkvnntu
Blaksambandinu nú fyrir
skömmu að þeir treystu sér
ekki til að vera með. UMSE
féll úr fyrstu deild í fyrra, en
Fram varð í öðru sæti ann-
arrar deildar.
Að sögn Halldórs Jónssonar
Þjálfara UMSE var þessi leikur
leikinn á föstudagskvöld, og
Sóttu ekki
gull í greip-
ar Víkings
ÞÓR:13
VÍKINGUR : 18
Á föstudagskvöldið léku í
íþróttaskemmunni í fyrstu
deild kvenna í handknattleik
Þór og Víkingur.
Lið Víkings var mun betri
aðilinn og unnu Víkingsstúlk-
umar öruggan sigur. f hálfleik
var staðan 10 mörk gegn 4
Víkingi í vil. Þegar flautað var
til leiksloka var staðan 18-13 og
Víkingssigur í höfn. Þrátt fyrir
tap hjá Þórsstúlkunum unnu
þær síðari hálfleikinn og var
það svolítil sárabót. Þórunn var
markahæst Þórsstúlkna með 7
mörk (5 v.) og Valdís var með 2.
urðu Eyfirðingar að sætta sig
við tap í leiknum 3-1.
Halldór sagði að þetta hefði
verið fyrsti leikurinn í keppnis-
tímabilinu, og þar að leiðandi
liðið ekki komið í þá samæfingu
sem skyldi. UMSE tók síðan
þátt í haustmóti Blaksam-
bandsins á laugardaginn og
sunnudaginn.
I karlaflokki kepptu þar 12
lið og urðu Eyfirðingar í 5.sæti,
og þar mörgum sætum á undan
Fram. Halldór sagði að ef leik-
urinn við Fram hefði verið
leikinn á eftir haustmótinu,
væri hann sannfærður um að
UMSE hefði sigrað.
UMSE leikur því í annarri
deild í vetur ásamt fMA og KA.
UMSE lék um
auða sætið í
fyrstu deild
4.DAGUR
DAGUR.5