Dagur - 04.11.1980, Síða 1

Dagur - 04.11.1980, Síða 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI LXIII. árgangur. Sigló síld: Rekstur hafinn r r m m m m a nyjan leik Um helgina hélt Skiðaráð Akureyrar vel heppnað bingó í Sjálfstæðishúsinu fyrir yngri kynslóðina. Unga fólkið virtist skemmta sér prýðilega. Spennan var mikil í salnum, enda voru góðir vinningar í boði. 1 hléi spilaði hljómsveit sem í eru nokkrir kornungir menn og á litlu innfelldu myndinni má sjá söngvara hljómsveitarinnar. Sá hinn sami vakti mikla athygli fyrir tilþrifamikla sviðsframkomu og „hávaðamengun“ eins og það heitir á nútimamáli. Mynd: á.þ. Ætla að framleiða ,franskar‘ í morgun átti vinnsla að hef jast í Sigló síld á Siglufirði, en verk- smiðjan hefur ekki verið starf- rækt í 2 mánuði. Vonir standa til að aukinn lagmetiskvóti í rammasamningi við Sovétmenn, auk rækjuvinnslu sem á að hefja innan skamms, geri það að verkum að hægt verði að reka verksmiðjuna allt næsta ár án halla. Að sögn Pálma Vilhjálmssonar, framkvæmdastjóra- verður fyrst hafist handa við að leggja niður gaffalbita sem fara á markað í Sovétríkjunum. Pálmi sagði að nú lægi fyrir samningur við Sovét- menn um allt að 40 þúsund kassa. Gert er ráð fyrir að Siglósíld fram- leiði allt að helming þess magns, en K. Jónsson og Co á Akureyri hinn helminginn. Ef að líkum lætur mun fyrrnefnda verksmiðjan geta fram- leitt allt að 7 þúsund kassa fyrir áramót og Ijúki við sinn skammt í lok janúar. Pappírsverksmiðja: Jákvæð niðurstaða Frumathugun hefur nú farið fram á mögulegum rekstri pappírsverksmiðju í námunda við Húsavík og áfangaskýrsla liggur fyrir. Samkvæmt því sem þar kemur fram er þessi rekstur talinn mjög vænlegur og saman- burður við aðrar slikar verk- smiðjur jákvæður, einkum með tilliti til orkuöflunar og orku- verðs. í næstu viku verður fundur með forráðamönnum Húsayíkur og starfsmönnum Iðnaðarráðuneytis- ins, Orkustofnunar, byggðadeildar Framkvæmdastofnunar og þing- mönnum kjördæmisins um þetta mál. Pappírsverksmiðjuna er hægt að reisa í áföngum, þannig að fyrst yrði framleidd trjákvoða, en síðan gæti framleiðslan orðið fjölbreytt- ari. Hægt væri t.d. að framleiða ýmsar gerðir af pappír og þilplötur til bygginga. Mengun samfara slíkum rekstri er lítil eða engin og auðvélt að koma í veg fyrir hana. Pappírs- verksmiðja gæti skapað atvinnu fyrir 200 og allt upp í 350 manns, ef allir möguleikar eru nýttir. Forráðamenn Siglósíldar hafa fest kaup á 30 tonnum af frystri rækju, sem á að sjóða niður. Vél- búnaður sem á að nota í þessa vinnslu er á leiðinni til landsins. „Ég vona að þessar vélar verði komnar upp um miðjan nóvember. Ágóðinn af rækjuvinnslunni gerir okkur vonandi kleift að ná endum saman, en verð fyrir gaffalbita er of lágt,“ sagði Pálmi. „Ég tel að rekstrargrundvöllurinn sé viðun- andi næstu mánuðina — meðan við erum að vinna úr gömlu hráefni og þurfum ekki að kaupa nýtt.“ Eins og fyrr sagði lýkur vinnslu á gaffalbitum í lok janúar og ef allt fer að óskum lýkur vinnslu á rækj- unni fyrir áramót, en þá er ætlunin að kaupa meira. Pálmi sagðist vona að í janúar yrði búið að gera nýjan samning við Sovétmenn. Viðræður um kaup á lagmeti til Sovét- ríkjanna hefjast í fyrstu viku desember. Hjá Siglósíld eru 70 til 80 heils- dagsstörf þegar öll hjól snúast á fullu, en nú eru þau helmingi færri. Fólk vantar í vinnu hjá Siglósíld. Pálmi sagði að fyrrverandi starfs- menn fyrirtækisins væru margir komnir í störf annarsstaðar, enda er atvinna næg á Siglufirði. Nú er runnin út umsóknarfrestur um stöðu yfirlögregluþjóns á Akureyri, en sem kunnugt er lætur Gísli Ólafsson af störfum um áramótin. Fimm umsóknir höfðu borist i gær, en fleiri gætu borist og verið teknar gildar, hafi þær verið póstlagðar í tíma. Þeir sem sækja eru Björn Halldórsson á Kópaskeri, Erlingur Pálmason á Akureyri, Ólafur Ás- „Nú er unnið að því að koma upp kartöfluvinnslu hjá Kaup- félagi Svalbarðseyrar. Þetta fyrirtæki á að framleiða fransk- ar kartöflur ofan í okkur ís- lendinga. Ef engin Ijón verða í veginum er e.t.v. hægt að hefja framleiðslu á frönskum kartöfl- um þegar U'ður á veturinn,“ geirsson Akureyri, Tryggvi Krist- vinsson á Húsavík og Þröstur Brynjólfsson Húsavík. Þá er einnig runninn út umsókn- arfrestur um stöðu aðstoðaryfirlög- regluþjóns, sem er nú staða á Ak- ureyri. Umsækjendur eru allir starfsmenn lögreglunnar á Akureyri og þeireru Björn Mikhaelsson, Karl J. Kristjánsson, Ófeigur Baldurs- son, Ólafur Ásgeirsson, Stefán Tryggvason og Þorsteinn Pétursson. sagði Sveinberg Laxdal, frétta- ritari Dags á Svalbarðsströnd. Tæknileg aðstoð er fengin frá dönsku fyrirtæki. Talið er að grundvöllur sé fyrir svona fyrir- af þessari vöru til landsins, „Við teljum ástæðulaust að flytja inn franskar kartöflur ef við getum sjálfir framleitt þær,“ sagði Svein- berg. „Það má segja að það sé ósköp eðlilegt að menn leiti að einhverjum nýjum tækifærum, því eitthvað þarf fólk að gera.“ Það er af kartöfluframleiðslu bænda við Eyjafjörð að segja að samkvæmt tölum frá Eðvald Malmquist, yfirmatsmanni garð- ávaxta, og áætlun sem Sveinberg hefur gert, kemur í ljós að heildar- kartöfluuppskera á . Eyjafjarðar- svæðinu var um 50 þúsund tunnur. Sveinberg taldi að uppskeran í fyrra hefði verið um 5 þúsund tunnur. en þá var gert ráð fyrir að bændur hefðu fengið um 10% af eðlilegri uppskeru. „Það gengur nákvæmlega ekkert að losna við kartöflur núna og það eru engar horfur á að það muni batna. Að vísu er útlit fyrir að losna við stórar kartöflur suður, en það er ekki umtalsvert magn. Venjan er sú að við höfum ekki fengið að senda neitt suður á markað fyrr en sunn- lenska framleiðslan er svo til uppurin. Við getum hugsanlega selt nokkuð í fyrirhugaða kartöflu- vinnslu, en það skiptir ekki sköpum — birgðimar eru svo miklar," sagði Sveinberg. Eins og komið hefur fram í blöðum er líklegt að heildarfram- leiðsla landsmanna á kartöflum sé töluvert meiri en sent nemur neysl- unni næsta árið. Sveinberg kvað það sína skoðun að leita ætti eftir inn að opinberir aðilar ættu að hugleiða hvort ekki væri rétt að greiða útflutningsverðbætur á kartöflurnar. Rjúpnaskytta fannst látin Um hádegi á sunnudag fannst rjúpnaskyttan sem hvarf á laug- ardag. Maðurinn fannst í Sölvadal upp af Draflastöðum. Að sögn lögreglunnar varð maðurinn bráðkvaddur. Hann hét Þorsteinn Þorsteinsson, 62ja ára að aldri, starfs- maður Slipp- stöðvarinnar. Þorsteinn var til heimilis að Norðurgötu 60. Á laugardag hélt Þorsteinn við annan mann á rjúpnaveiðar og fóru þeir inn í Sölvadal og lögðu á Hólafjall. Þeir komu sérsaman um að hittast við bifreið sína við Þor- móðsstaði. Þorsteinn kom ekki á tilsettum tíma og hófst leit um klukkan 20. um 100 manns leituðu á sunnudagsmorgun og fjöldi manns tók þátt í leitinni á laugar- dagskvöldið og aðfaranótt sunnu- dagsins. Félagsstarf að hefjast VarmahlíÖ 1. nóvember. Karlakórinn Heimir hélt aðal- fund s.i. miðvikudag. Nýr söngstjóri var ráðinn, en hann er Rögnvaldur Valbergsson, tónlistarkennari á Sauðárkróki. Tónlistarskólinn er byrjaður. Umráðasvæði skólans er allt Skagafjarðarhérað utan Sauð- árkróks. Nemendur eru á annað hundrað, en aðalmiðstöðvarnar eru í Varmahlíð og á Hofsósi. Skólastjóri er Ingimar Pálsson. Leikfélagið hélt aðalfund s.l. þriðjudag. Það er mikill hugur í félagsmönnum og ætla þeir að gera góða hluti í vetur. Á fund- inum var Kristján Sigurpálsson kjörinn formaður félagsins. G.T. Fimm umsókn- ir hafa borist markaði erlendis, en víða í Evrópu var uppskeran léleg. Hins vegar er tæki, en nú er flutt inn mikið magn • verðið lágt og því sagði fréttaritar- Víðtæk kynning ámjólkog mjólkurvörur 3. til 7. nóv. Mjólkurdagsnefnd hefur ákveðið að efna til sérstakrar mjólkurviku dagana 3. til 7. nóvember með víðtækri kynningu á mjólk og mjólkurvörum. Í tilefni af því vill Mjólkursamlag K.E.A. koma því á framfæri við skólastjóra og kennara að skoðunarferðir í Mjólkursamlag K.E.A. geta verið lærdómsríkar og góð tilbreyting frá daglegum störfum í skólum. Stefnt er að því að í framtíðinni verði leyft að skoða samlagið á miðvikudögum, en nauðsynlegt er þó að hafa samband við for- ráðamenn samlagsins nokkrum dögum áður. Fjáröflun Framtíðarinnar Kvenfélagið Framtíðin hefursína árlegu fjáröflun 6., 7. og 8. nóv. n.k. með leikfangahappdrætti. Miðar verða seldir á götum baéj- arins og í Hafnarstræti 104. Þar verða einnig afhentir vinningar. Kaupandi getur strax séð, ef um vinning er að ræða. Bæjarbúar eru hvattir til að styrkja gott málefni. Allur ágóði rennur í Elliheimilissjóð félags- ins. Kirkjuþing Nú stendur yfir kirkjuþing í Reykjavik og lýkur þvi á fimmtudag. Það er haldið annað hvort ár og stendur í hálfan mán- uð, en á þinginu kom fram tillaga um að það verði haldið árlega og viku í senn. Fjölskyldubingó Á föstudaginn 7. þ.m. klukkan 20.30 hefjast á Hótel Varðborg hin vinsælu IOGT fjölskyldu- bingó. Vinningar verða að venju margir og góðir og mikið er um aukabingó. Leitast er við að allir í fjölskyldunni skemmti sér. Að- gangur er ókeypis og verð á hverju spjaldi er aðeins kr. 1000. Stjórnandi bingóanna er Sveinn Kristjánsson. AUGLÝSSNGAR OG ÁSKRIFT; 24167 - RITST«IÓRN; 24166 OG 23207!

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.