Dagur - 02.12.1980, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
BHHBHBBHHHBB8H9BH8H3BBEB8BBBS
LXIII. árgangur.
■l
Akureyri, þriðjudagur 2. desember 1980
£ __ ... -- . ;
87. tölublað
Hvers eigum
við að gjalda?
„Er vísvitandi verið að draga úr gildi Húsavíkurflugvallar
miðað við nærliggjandi flugvelli?"
I hominu t.v. er Gunnar Þórðarson framkvæmdastjóri Plasteinangrunar, og út við lestarvegg stendur vélin góða
sem nú er líklega í Reykjavík. Mynd: á.þ.
40 tonna vél á flakki
Á fundi bæjarstjórnar Húsavík-
ur 27. nóvember 1980 var sam-
þykkt að skora á flugmálayfir-
völd að flýta framkvæmdum við
Húsavíkurfiugvöll og auka fjár-
veitingar til þeirra framkvæmda.
Jafnframt skoraði bæjarstjórn
Húsavíkur á alþingismenn kjör-
dæmisins að fylgja fast eftir
auknum framkvæmdum við
flugvöllinn og að þeir beiti sér
fyrir fjárframlögum til fram-
kvæmdanna.
Þá minnti bæjarstjórn Húsavíkur
á margar yfirlýsingar sérfróðra
manna um ágæti og hagkvæmni
Húsavíkurflugvallar, sem vara-
flugvallar fyrir millilandaflug,
bæði hvað varðar aðflugaðstöðu,
veðurfar og framkvæmdakostnað,
auk hinnar ágætu aðstöðu Húsa-
víkur til móttöku ferðamanna.
Bæjarstjórn Húsavíkur skorar
því á flugmálayfirvöld og viðkom-
andi stjórnvöld að fá hlutlausa er-
Gífurlegar skemmdir urðu í
aftakaveðri sem gekk yfir
Norðausturland og Austfirði i
gær. Nokkur hús skemmdust
eða eyðilögðust, rafmagns- og
símalínur slitnuðu, bátar
sukku við bryggjur. Á Seyðis-
firði fauk lögregluvarðstofan á
haf út. Bílar fuku og rúður
brotnuðu. Engin slys urðu á
fólki.
Rok af norðvestri skall á um
níuleytið í gærmorgun á Seyðis-
firði. Lögregluvarðstofan, sem
stóð á nýhöfninni, hvarf í hafið.
Alls hafa 195 einstaklingar flutt
búferlum innan bæjar á Húsavík
frá áramótum til 31. október. Til
bæjarins hafa flutt 108 einstak-
lingar á sama tímabili og úr
bænum 101.
Talsverðar umræður hafa verið
lenda aðila til að meta hvar á land-
inu séu bestu aðstæður fyrir al-
þjóðlegan varaflugvöll, sem svari
ýtrustu alþjóðlegum kröfum.
í greinargerð segir m.a. að
Húsavíkurflugvöllur sé einn ör-
uggasti flugvöllur landsins. Þrátt
fyrir þessa staðreynd hafi völlurinn
dregist aftur úr í framkvæmdum
miðað við þá miklu umferð, sem sé
um flugvöllinn.
Síðan segir orðrétt: Hvers eigum
við að gjalda, er vísvitandi verið að
draga úr gildi Húsavíkurflugvallar
miðað við nærliggjandi flugvelli?
Síðar í greinargerð segir, að þar
sem umræður um varaflugvöll fyrir
millilandaflug séu nú aftur hafnar,
og ef það sé raunverulegur vilji
flugmálayfirvalda og viðkomandi
stjómvalda að byggja upp slíkan
flugvöll, þá skori bæjarstjórn
Húsavíkur á þessá aðila að fá hlut-
laust mat erlendra aðila á því hvar
á landinu séu bestu aðstæður fyrir
slíkan varaflugvöll.
Skammt frá höfninni var pylsu-
vagn og færðist hann um 50 eða
60 metra og eyðilagðist. Timbur-
hús skemmdist mikið og söluskáli
Shell splundraðist. í gærkvöldi
var ekki búið að kanna tjónið, en
ljóst að það er mikið.
Frá Reyðarfirði bárust þær
fréttir að tveir litlir bátar hafi
sokkið í höfninni, þakplötur fuku
af húsum, jeppi fauk og timbur-
hús sem var í smíðum stór-
skemmdist. í Neskaupsstað fauk
þak af hálfu fjölbýlishúsi og
mikið særok gekk yfir bæinn. I
Borgarfirði eystra fauk nýr fólks-
bíll og eyðilagðist.
um það á Húsavík að bæjarbúum
hafi fækkað, en eins og sést á þess-
um tölum á það ekki við rök að
styðjast. Eftir er að taka saman
fjölda fæðinga og bæta við töluna
nýjum Húsvíkingum sem hafa
fæðst á þessu ári.
„Þetta atvik leiðir í ljós nauðsyn
þess að á Akureyri sé til „herðatré“
sem ræður við 40 til 50 tonn,“ sagði
Jón Samúelsson, afgreiðslumaður
í gær var símasambandslaust
við Vopnafjörð, Bakkafjörð og
Raufarhöfn. Byggðalínan slitnaði
við Jökulsá á Fjöllum og bilanir
voru tíðar á Vopnafjarðarlínu.
Dieselstöðvar voru settar í gang
oggátu annað orkuþörfinni.
Ekki mun óveðrið hafa haft al-
varlegar afleiðingar á Þórshöfn
og ekki heldur á Kópaskeri. Raf-
magnslaust var í nágrenni Þórs-
hafnar og sömu sögu var að segja
á stórum svæðum i Öxarfirði og
Kelduhverfi.
í gær var frí í skólum og því
færri á ferli en ella.
„Við erum tiltölulega ánægðir
með þessa niðurstöðu," sagði Egill
Olgeirsson, sem sæti á í bæjarstjórn
Húsavíkur. „Nú búa á Húsavík rétt
um 2500 íbúar. Þeim hefur stöðugt
farið fjölgandi á umliðnum árum.“
Ríkisskips, en föstudag kom
Coaster Emmy til Akureyrar með
vél sem vegur tæp 40 tonn. Skip-
verjar höfðu gleymt að taka með sér
„herðatré“ norður og því var ekki
hægt að skipa vélinni á land. Skipið
er væntanlegt aftur til Akureyrar
n.k. föstudag með nægan útbúnað
til að ná vélinni upp.
Herðatré eins og Jón ræðir um
eru notuð til að dreifa þunga þess
sem lyft er á 2 eða fleiri krana. í
eigu Slippstöðvarinnar er herðatré
sem ræður við 25 tonn.
Breytingum á sjálfvirku sím-
stöðinni á Akureyri fyrir sjálf-
virkt val til útlanda er lokið og
nú geta símnotendur á Akureyri
valið sjálfir til þeirra landa, sem
við erum tengd við nú þegar, en
það eru Norðurlöndin og um 20
önnur lönd í Evrópu.
Athygli símnotenda skal vakin á
leiðbeiningum í símaskrá á bls.
10-12. í stuttu máli fer valið þannig
fram að fyrst er valið 90, sem er
númer fyrir val til útlanda, síðan
landsnúmer viðkomandi lands, svo
svæðisnúmer innan landsins og að
lokum símanúmer viðkomandi
notanda.
Atvik eins og hjá Ríkisskip er
ekkert einsdæmi. Jón hafði það
eftir kranamanni að svipað hafi
komið fyrir hjá Eimskip og Haf-
skip.
Vél sú sem hér um ræðir er í eigu
Plasteinangrunar h.f. og verður
notuð til framleiðslu á fiskikössum
úr plasti. Gunnar Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri sagði að sú töf sem
hlaust af gleymsku skipverjanna á
strandferðaskipinu skipti litlu máli
því ekki er von á erlendum sér-
fræðingum til að setja vélina saman
fyrr en eftir hálfan mánuð.
Allir tölustafir skulu valdir í
einni lotu. Handvirk afgreiðsla á
símtölum til útlanda fæst með því
að velja 09 eins og hingað til. Fyrst
um sinn munu upplýsingar um val
til útlanda verða veittar á 09 og 08
er fyrir þá þjónustu og verður það
opnað mjög bráðlega fyrir Akur-
eyri.
Mun ódýrara er að velja beint í
stað þess að fá handvirka afgreiðslu
og má í því sambandi benda á að til
Finnlands, Noregs og Svíðþjóðar
kostar mínútan kr. 936 á beinu vali
og getur takmarkast, en handvirkt
kostar hún kr. 1150 og greiða þarf
fyrir minnst 3 mínútur.
Aðrar símstöðvar í umdæminu
verða tengdar á næstunni.
LÖGREGLUVARÐSTOFA
Á SEYÐISFIRÐI FAUK
Húsvíkingum fjölgar hægt
Akureyri:
HÆGT AÐ HRINGJA
BEINT TIL ÚTLANDA
Fundur um
íþrótta- og
æskulýðsmál
Ákveðið hefur verið að halda
fundi í vetur um hin aðskiljanlegu
málefni Akureyrarbæjar, bæði
það er snertir ýmsar fram-
kvæmdir hjá bænum sem og
félagslega þjónustu. Fyrsti fund-
ur í þessu skyni er ákveðin laug-
ardaginn 6. des. n.k. og verður
hann í fundarsal Framsóknar-
félaganna í Hafnarstræti 90 og
hefst klukkan 2 e.h. Umræðuefni
á þessum fundi verður íþrótta- og
æskulýðsmál hér á Akureyri.
Auglýsingaverð
hækkar
Auglýsingaverð hjá Akureyrar-
blöðunum hækkaði frá 1. des. sl. í
kr. 3.600 pr. dálksentimeter.
Minni mjólk
Innvegin mjólk frá ársbyrjun til
októberloka hjá Mjólkursamlagi
Vopnfirðinga varð 478.640 ltr. Er
það 40.572 ltr. minna en 1979 eða
með öðrum orðum 8,47% sam-
dráttur í mjólkurframleiðslu.
Veldur þessi samdráttur erfið-
leikum í rekstri mjólkurstöðvar,
þar sem fastir kostnaðarliðir
lækki ekki, þó minni mjólk berist
til vinnslu.
Bæklingur um
hreinlætismál
Rannsóknarstofa Búvörudeildar
SÍS hefur gefið út bækling sem
nefnist „Hreint út sagt, hreinlæti,
baráttan við örverurnar." Er þar
fjallað í máli og myndum um
helstu atriði sem gæta þarf að í
sambandi við hreinlæti i fram-
leiðslu matvæla. Er bæklingurinn
unninn I samvinnu við Köttfor-
skiningsinstitutet í Kávlinge í
Svíþjóð.
Heiðrekur hættir
Heiðrekur Guðmundsson mun
láta af starfi vinnumiðlunarstjóra
um næstu áramót. Bæjarráð hef-
ur samþykkt að fela Aðalheiði
Mikaelsdóttur að gegna starfinu
fyrst um sinn.
IAUGLÝSINGAR OG ASKRIFT: 24167 - RITSTJORN: 24166 OG 23207I