Dagur - 02.12.1980, Blaðsíða 4
DAGUR
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaöamaöur: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Markmið
iðnaðarstefnu
Allmiklar umræður hafa að und-
anförnu orðið um nýiðnað á Eyja-
fjarðarsvæðinu í kjölfar tillögu
stjórnar Kaupfélags Eyfirðinga
um stofnun sjóðs til eflingar ný-
iðnaði á svæðinu. Áður hafði
Fjórðungssamband Norðlendinga
fjallað nokkuð um þessi mál og í
síðustu viku voru þessi mál til
umræðu í bæjarstjórn Akureyrar.
Voru þar samþykktar tillögur um
iðnaðar- og orkumál og þar á
meðal var tillaga frá Sigurði Óla
Brynjólfssyni, bæjarfulltrúa Fram-
sóknarflókksins, en með sam-
þykkt hennar hefur bæjarstjórn
markað sér stefnu í nýiðnaðar-
málum. Tillagan sem samþykkt
var er svohljóðandi:
Með hliðsjón af því að bæjar-
stjórn Akureyrar hefur ákveðið að
taka þátt í viðræðum um stofnun
sjóðs til athugunar á hugsanleg-
um möguleikum á nýiðnaði á
Eyjafjarðarsvæðinu til eflingar at-
vinnulífi, ályktar bæjarstjórn Ak-
ureyrar eftirfarandi, sem markmið
iðnaðarstefnu, sem bæjarstjórn
vill hafa að leiðarljósi:
1. Að fjölgað verði störfum í
iðnaði með hagkvæmri fjárfest-
ingu og með hliðsjón af aðstæð-
um í öðrum atvinnugreinum og
áætlunum um fólksfjölda á vinnu-
markaði.
2. Að áhersla verði lögð á að efla
iðnað á þeim sviðum þar sem sér-
staða nýtist til arðbærrar fram-
leiðslu á vörum jafnt fyrir heima-
markað sem til útflutnings.
3. Að komið verði í veg fyrir
skaðleg áhrif af völdum iðnfyrir-
tækja á náttúru landsins og um-
hverfi.
4. Að tryggt verði forræði
landsmanna yfir íslensku atvinnu-
lífi og auðlindum.
5. Að unnið verði að því í sam-
ráði við ríkisvaldið að komið verði
á fót á Eyjafjarðarsvæðinu fjár-
magnsfrekum nýiðnaði, sem
stuðli að hagkvæmri nýtingu ís-
lenskra orkuauðlinda.
I' þessari stefnumörkun bæjar-
stjórnar Akureyrar kemur fram sá
vilji, að forræði landsmanna yfir
íslensku efnahagslífi og auðlind-
um verði tryggt og að komið verði í
veg fyrir skaðleg áhrif iðnfyrir-
tækja á náttúru landsins og um-
hverfi. Þá er lögð á það áhersla að
hliðsjón verði höfð af aðstæðum í
öðrum atvinnurekstri. Af þessari
ályktun má marka, að Akureyring-
ar eru ekki, frekar en aðrir Norð-
lendingar, tilbúnir til að gleypa við
eiiendri stóriðju umsvifalaust,
með þeirri umhverfis- og þjóðfé-
lagsröskun sem henni geta fyigt.
4.DAGUR
Slæm staða
Á föstudagskvöldið iéku í
annarri deild í handbolta Þór
og KA og var þetta fyrri leik-
ur þessara aðila í deildinni.
Þrátt fyrir það að Þórsarar
gerðu tvö fyrstu mörkin í
leiknum máttu þeir þola tap,
og hafa nú aðeins hlotið eitt
stig í leikjum sínum í deild-
inni til þessa. Staða þeirra er
því mjög slæm í deildinni. I
hálfleik var staðan 12 mörk
gegn 7 KA í vil og þegar
flautað var til leiksloka var
staðan 23 gegn 16 og mjög
sannfærandi KA sigur í höfn.
Það var Guðmundur Skarp-
héðinsson sem gerði fyrsta mark
leiksins, en einhverra hluta
vegna var hann lítið notaður í
leiknum, hvernig nú sem á því
stendur.
Ragnar Sverrisson gerði ann-
að markið fyrir Þór, en hann
hefur nú hafið æfingar á ný, en
hann er einn besti varnarmaður
Þórsara. Það fór hins vegar fyrir
honum eins og Guðmundi að
hann var frekar lítið notaður í
leiknum, enda e.t.v. ekki kom-
inn í fulla æfingu. Því næst
komu fimm mörk í röð hjá KA,
og eftir það gátu Þórsarar aldrei
ógnað veldi KA í leiknum. f
hálfleik var staðan 12 mörk
gegn 7, en síðustu mörk hálf-
leiksins gerðu Gunnar Gíslason
fyrir KA og Sigurður Pálsson
fyrir Þór. Það voru einnig sömu
aðilar sem gerðu fyrstu mörk
síðari hálfleiks fyrir félög sín, en
Gunnar gerði raunar fimm af
sex fyrstu mörkum síðari hálf-
leiksins fyrir KA. Mestur varð
markamunurinn níu mörk eða
22 gegn 13 en þegar yfir lauk
var staðan 23 gegn 16!
Eftir þennan leik eru þessi lið
á toppi og botni deildarinnar,
og raunar er mikill munur á leik
þeirra.
Gunnar Gíslason var maður
leiksins.
KA hefur að mestu sama lið
og í fyrra, nema Alfreð Gíslason
vantar, en í staðinn hafa komið
aðrir þannig að segja má að
maður komi í manns stað. Lið
Þórs er skipað nokkrum ungum
og efnilegum leikmönnum sem
ekki ennþá hafa hlotið þá
reynslu sem nauðsynleg er í
keppni annarrar deildar, en
þessa ungu menn styðja gamlir
jaxlar félagsins, en í heild er
liðsheildin ekki nógu sterk.
Bestir hjá Þór í þessum leik voru
Ragnar markmaður og Árni
Gunnarsson, en þeir „héldu
haus“ þótt á móti bl ési. Gunnar
Gíslason var langbesti maður
vallarins og í miklu stuði í þess-
um leik, en hann kom frá
íþróttaskólanum á Laugarvatni
til að leika með KA.
Flest mörk KA gerði Gunnar
12 (4) Friðjón 4 (1) Erlendur 3,
Magnús 2, Guðmundur og Þor-
leifur 1 hver.
Sigurður var markhæstur hjá
Þór með 5 mörk, Sigtryggur og
Baddi með 3 hver, Sigurður
Pálsson 2 og Guðmundur
Skarphéðinss., Ragnar og Árni
Gunnars með eitt hver.
Markmennirnir vörðu ágæt-
lega í leiknum, en Gauti og
Ragnar vörðu m.a. 2 víti hver og
Nói eitt.
Önnur úrslit í deildinni urðu
þau að HK og ÍR gerðu jafntefli
og Ármann vann Aftureldingu.
Þau úrslit voru mjög óhagstæð
fyrir Þór, en að sama skapi
hagstæð fyrir KA sem nú
hreykir sér á toppi deildarinnar.
Veglegt
afmælisrit
Nú er komið út veglegt af-
mælisblað í tilefni af 65 ára
afmæli Þórs. í blaðinu eru
fjöldi greina og mynda úr
sögu félagsins. Blaðið er hið
veglegasta, vel upp sett og
forsíða og baksíða litum
prýdd. Ritstjórar og ábyrgð-
armenn eru Arnar Einarsson
og Haukur Jónsson.
Tap í
körfunni
Þórsarar léku við Fram í
fyrstu deildinni í körfubolta á
sunnudaginn. Áður höfðu
þessi lið leitt saman hesta
sína í íþróttaskemmunni og
sigraði þá Fram með aðeins
eins stigs mun. Þórsarar
máttu þola stórtap í þessum
leik eða 102 stig gegn 68. Að
venju var Garry stigahæstur
Þórsara.
Aðalfundur
knattspyrnu-
deildar Þórs
Nýlokið er aðalfundi knatt-
spymudeildar Þórs fyrir yfir-
standandi ár. Meistaraflokk-
ur félagsins vann sér
keppnisrétt í fyrstu deild á ári
komanda, og yngri flokkar
þess unnu marga góða sigra
og lentu m.a. nokkrir flokkar
í úrslitakeppni íslandsmóts-
ins. Karl Lárusson var kjör-
inn formaður deildarinnar og
Sigurður Hermannsson
varaformaður, Hallgrímur
Skaftason gjaldkeri, og
Reynir Karlsson ritari. Með-
stjórnendur verða Ragnar
Þorvaldsson, Ómar Krist-
vinsson og Guðmundur Sig-
urbjörnsson.
S.A. I 5. SÆTI
Það er orðinn árviss viðburður að
skákklúbbur Flugleiða haldi 15
mín. skákmót á Hótel Esju. Um
síðustu helgi var einmitt haldið eitt
slíkt. 24 sveitum víðsvegar af land-
inu var boðin þátttaka og m.a. einni
sveit frá Akureyri. Árangur hennar
var sem hér segir:
1. borð:
Gylfi Þórhallsson 16v. (21) 76%
2. borð:
ÞórValtýsson 10,5v. (17) 62%.
3. borð:
Ólafur Kristjánsson. 15 v. (21)71%.
Varamenn:
JónÁrni Jónsson 3v. (5) 60%.
Jakob Kristinsson 3,5v. (5) 70%.
Heimiluð sala á
gömlu malbikun-
arstöðinni
Bæjarráð hefur heimilað bæjar-
stjóm að selja gömlu malbikun-
arstöðina ef viðunandi verð fæst.
Vilcfli reka
pylsuvagn
við sundlaugina
Sæmundur Örn Pálsson, Bakkahlíð
25, fór fram á það fyrir skömmu við
bæjaryfirvöld að fá leyfi fyrir
pylsuvagni við Sundlaug Akureyr-
ar — aðaldyramegin til sölu á
pylsum og gosdrykkjum.
BENCO
talstöðvar
4 0 + 40 rásir
kr. 139.600.
VAbúð/n
sími 22111
Heildarúrslit í mótinu urðu hins
vegar sem hér segir: Vinn.
1. Útvegsbankinn............52,5
2. Búnaðarbankinn..........52
3. Kleppsspítalinn..........48,5
4. ísl. Járnblendifél.......48,5
5. Skákfélag Akureyrar.....48
6. Verkamannabústaðir......46,5
7. t Flensborgarskóli.......45,5
Tefldar voru 23 umferðir og eins
og sjá má á töflunni var gífurleg
spenna í síðustu umferðinni.
Verðlaun voru hin glæsilegustu en
(ver) fyrir flesta vinninga á hverju
borði var Danmerkurferð. Hana
hlutu:
1. borð.
Bjön Þorsteinsson Útvegsb.
2. borð.
Hilmar Karlsson. Búnaðarb.
3. borð.
Hilmar Viggósson Landsb.
Öll framkvæmd mótsins var
stjórnendum þess til mikils sóma og
þótti mótið takast mjög vel.
19. nóv. var haldið 15 mín. mót f
Hvammi. Þar sigraði Gylfi
Þórhallsson með 6 v. en næstir voru
Þór Valtýsson, Ólafur Kristjánsson
og Haraldur Ólafsson allir með 4,5
vinnhinga.
Jakob Kristinsson.
IíMbúðin
sími 22111
Nýttfrá
H Cybernet
Vasaútgáfa af „alvörutæki“
Stereo kassettutæki fyrir raf-
hlöðurog húsarafmagn.