Dagur - 05.12.1980, Síða 12
íi;
Símar Dags eru: 24166
24167
23207
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hermann Sveinbjörnsson
Blaðamaður: Áskell Þórisson.
Augl. og afgreiðsla: Jóhann Karl Sigurðsson.
Útgefandi: Útgáfufélag Dags.
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri.
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
DAG
jfa þing brezkra samvinnumanna skoraði á kaupfélags-
menn að sfyðja Verkamannafiokkinn i kosningununt
Or gömlum Degi
í fyrsta tölublaði Dags árið 1945 segir að símgjaldahækkunin komi
harðast niður á þeim, sem úti á landi búa og í sama blaði kemur
fram að L.A. hafi farið með „Brúðuheimilið" til Reykjavíkur í boði
L.R.....Á þessum tíma framleiddu íslendingar skíðaáburð en
snemma árs auglýsti Sápuverksmiðjan Sjöfn í Degi og sagði
skíðamönnum að muna að smyrja skíðin vei með Sjafnar-skíða-
áburði...„Nýju vegagerðinni yfir Öxnadalsheiði og um Norð-
urárdal væntanlega lokið á næstu 4-5 árum. Líklegt að sú leið verði
þá jafnaðarlega bílfær allt árið,“ segir í fyrirsögn þann 11. janú-
ar... . Bílstjórafélag Akureyrar skoraði á bæjarstjórn Akureyrar að
„gera nú þegar ráðstafanir til þess að kaupa nýjan veghefil til
notkunar í bænum.... Það varfjör í pólitíkinni á þessum árum eins
og sjá má á þessari fyrirsögn: „Byltingarbrölt kommúnista í
Verkamannafélagi Akureyrarkaupstaðar. Verkamenn velja nú á
milli pólitísks einræðis og hófsamlegs tillits til allra flokka innan
félagsins.“ .... Á bæjarstjórnarfundi í febrúar var samþykkt að
kaupa veghefil og jarðýtu.... Og KEA auglýsti: „Rúsínuskömmt-
unin stendur yfir til næstu mánaðamóta. Eftir þann tíma gefum við
söluna frjálsa" .... í sama blaði auglýsti Ásbyrgi: „MEÐ SÚÐ-
INNI: Kjólaefni í fjölbreyttu úrvali." .... í mars sagði Dagur frá
því að E.s. Dettifossi hafi verið sökkt við Bretlandsstrendur. 15
menn fórust með skipinu.... Á þessum árum voru erlendar fréttir í
Degi. í þeim kemur fram að amerískar flugvélar hafi gert árás á
Tokyo. Rússar brutust inn í Breslau og barist var 25 kílómetra frá
Köln....Þessi klausa var í Degi í mars: „Ég komst nýlega yfir
bækling, sem svonefnt Mannræktarfélag Kaliforníu gaf út.
Bæklingur þessi fjallarnæreingöngu um ísland. ... höfundurtelur
íslendinga eina af fyrirmyndarþjóðum veraldar, sérstaklega vegna
þess, að þeir eru göfugra ætta og höf. telur að þeir hafi sýnt það
með þúsund ára sögu sinni, að góður stofn framleiði meira af
úrvalsmönnum en hinn meiðurinn, sem sé blandinn og úrættaður.
Hann telur Islendinga sanna allra þjóða best kenningu
mannræktarsinna, þvi að stofn þeirra sé enn 99% hreinn og
óblandaður utanaðkomandi blóði.“ .... Lúðrasveit Akureyrar
fékk ný hljóðfæri frá Ameríku. . . . Ætli einhver eigi enn Ever-
sharp sjálfblekung? I apríl auglýsti Bókaverslun Þorst. Thor-
lacius eftirfarandi: „Það er enginn vandi að velja fermingargjöfina
þegar ekki þarf annað en reyna Eversharp sjálfblekung við búðar-
borðið og fá nafn fermingarbarnsins grafið á hann meðan þér
bíðið. Öryggið fyrir þessari best þegnu gjöf er svo mikið vegna þess
að Eversharp er tryggður ævarandi, Eversharp er bættur hér ef
skemmist.“ Og ef einhver á bilaðan penna af þessari gerð veit sá
hinn sami hvert á að fara með hann.... Þann 9. maí var stór
fyrirsögn í blaðinu þar sem greint var frá því að Þjóðverjar hefðu
gefist upp skilyrðislaust.... Á þessum tíma kostuðu sólgleraugu
1.30 til 2.95.... Tímakaup verkamanna í dagvinnu var 6.85 og
kaup drengja 14 til 16 ára var 4.52 í dagvinnu. .. . Kommúnistar
beita nazistiskum ofbeldisaðferðum í Kaupfélagi Siglfirðinga, segir
í fyrirsögn í júní.... Tryggvi Emilsson vildi selja tún við Þórunn-
arstræti.... Örlygur Sigurðsson kom heim til íslands eftir margra
ára dvöl í Ameríku.... Veitingahús tók til starfa í Vaglaskógi....
Bankarnir í Reykjavík ákváðu að lækka útlánsvexti sína um 'h% af
almennum víxlum, en l'/2% af svonefndum framleiðsluvíxlum....
Þorsteinn H. Hannesson, tenórsöngvari hélt söngskemmtun í Nýja
Bíó um miðjan ágúst.... Hlaupagarpurinn Kjartan Jóhannsson
frá Dalvík setti hvert metið af öðru í Rvik og Valur tapaði fyrir
úrvalsliði úr K.A. og Þór.... Síldveiðin brást þetta sumar.
Sjómenn töldu að straumar í hafinu norðan íslands liggi öðru vísi
en áður.... KEA auglýsti hnattlíkön (GLOBES).... og orðið gítar
fyrirfannst ekki því Sport og hljóð auglýsti að „Guitarar“ hefðu
komið með Esju.... Flugvél fórst úti fyrir Norðurlandi. Áhöfnin,
þrír menn, komst í sænskt skip.... Forráðamenn góðtemplara-
reglunnar ákváðu að starfrækja kvikmyndahús í Skjaldborg.
: :
vetrartískan 1980/1981
HAFNARSTR. 91-95 - AKUREYRI - SÍMI (96)21400
Opnunartími
verslana á
Akureyri
Verslanir á Akureyri verða
opnar í desember fyrir utan
venjulegan afgreiðslutíma
sem hér segir:
Laugardaginn 6. desember
til kl. 16.
Laugardaginn 13. desember
tilkl. 18.
Laugardaginn 20. desember
til kl. 22.
Þriðjudaginn 23. desember
til kl. 23.