Dagur - 11.12.1980, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐtR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
OAGUR
LXIII. árgangur.
Akureyri, fimmtudagur 11. desember 1980
91. tölublað
Blönduvirkjun í
sviðsl jósinu á ný
Málefni Blönduvirkjunar eru nú
mjög í sviðsljósinu á ný eftir
fund sem RARIK hélt í Húna-
veri um síðustu helgi og í kjölfar
undirskriftalista íbúa úr fjórum
hreppum, sem land eiga að
Blöndu.
Fundurinn í Húnaveri var mjög
fjölmennur og sóttu hann á fimmta
hundrað manns. Hjörleifur Gutt-
ormsson, iðnaðarráðherra, og
Kristján Jónsson, rafmagnsveitu-
stjóri, fluttu framsöguerindi og síð-
an voru almennar umræður sem 35
manns tóku þátt í. Stóðu þær fram
Guðrún
Ásgeirsdóttir:
Undirskriftar-
söfnunin var
mjög villandi
„Þessi undirskriftasöfnun og
fregnir af henni eru mjög vill-
andi og með þessu eru oddvitar
hreppanna ekki að tala máli
hreppsnefndanna og sveitunga
sinna,“ sagði Guðrún Ásgeirs-
dóttir á Mælifelli, en hún er
einn af hreppsnefndarmönnum
í Lýtingsstaðahreppi og gagn-
rýndi undirskriftalistana harð-
lega á fundinum í Húnaveri.
„Ég hef aldrei verið spurð álits í
þessu máli og skrifaði ekki undir
þetta skjal, auk annars hrepps-
nefndarmanns í Lýtingsstaða-
hreppi og a.m.k. eins í Seylu-
hreppi. Þá er skemmst að minnast
skeytis sem þessir sömu oddvitar
sendu á Blöndufund Fjóðrungs-
sambands Norðlendinga fyrir
nokkru. Hreppsnefndamenn
vissu ekkert um þetta skeyti, en
þar var m.a. sagt að afstaða væri
óbreytt til Blönduvirkjunar og
menn væru á móti henni.
Þá vil ég nefna, að yfirskrift
undirskriftaskjalsins var mjög
villandi og þar var blandað sam-
antveimuróskyldum málum. Þar
var mælst til virkjunar við Vill-
inganes, en íbúar Akrahrepps
vilja gjarnan fá virkjun í túnfæt-
inum hjá sér, án þess að vera
endilega á móti Blönduvirkjun.
Þessi undirskriftasöfnun var gerð
nánast hlægileg á fundinum á
sunnudag, en þar var góð sam-
staða um að ná samningum og
virkja Blöndu,“ sagði Guðrún
Ásgeirsdóttir.
á kvöld á sunnudag. Yfirgnæfandi
meirihluti ræðumanna lýsti yfir
þeirri von, að samkomulag næðist
um þetta stórmál héraðanna og
landsins alls þannig að Blanda yrði
virkjuð og bætur kæmu fyrir það
land sem færi undir vatn.
Talsverðar umræður urðu um
undirskriftalista, sem oddvitar
Bólstaðarhlíðarhrepps, Seylu-
hrepps, Lýtingsstaðahrepps og
Akrahrepps sendu iðnaðarráðherra
á föstudag í fyrri viku, en þar var
lagst gegn fram komnum hug-
myndum um virkjun Blöndu.
Undir skjalið skrifa 325 atkvæðis-
bærir íbúar þessara hreppa frá 157
bæjum.
Bent var á það, að 112 af þeim
sem undirskrifuðu skjalið búi í
Akrahreppi, en þar eigi aðeins einn
bær upprekstrarrétt á Eyvindar-
staðaheiði samkvæmt gamalli hefð.
Þá var bent á það, að skjalið hafi
verið villandi. Margir þeirra sem
skrifuðu undir hafi talið sig vera að
fara fram á virkjun Héraðsvatna
við Villinganes, en ekki endilega
vera að mótmæla Blönduvirkjun.
Þá var bent á að Villinganesvirkjun
væri ekki inn í myndinni sem einn
af hagkvæmustu virkjunarkostum í
dag og hún myndi aðeins fresta
virkjunarþörfinni um eitt ár, þar
sem aðeins væri um að ræða um
eða innan við 30 megavatta virkjun
á móti yfir 150 megavatta virkjun
við Blöndu.
Sjá baksíðu
eiðará
pollinum
Heimilað hefur verið að veiða
100 tonn af síld á Akureyrar-
polli, til hráefnisöflunar fyrir
Niðursuðuverksmiðju K. Jóns-
sonar & Co. Súlan EA hefur
fengið það verkefni að veiða
þessa síld og fór hún út í gærdag
og landaði síðdegis.
Að sögn Sverris Leóssonar,
útgerðarmanns Súlunnar, fékk
skipið 10-15 tonn í fyrsta kast-
inu, en það var rétt austan við
Eimskipafélagsbryggjuna. Gert
er ráð fyrir að veiða þennan afla
í fjórum áföngum, 25 tonn á
dag, og verður hann frystur og
síðan lagður niður. Þetta er
smásíld, um 12-14sentimetrará
lengd.
Bjarnarflag:
BORUNUM LOKIÐ
Mýratnssveit, 10. desember.
f fyrrakvöld var holu 12 í Bjarnar-
flagi „hleypt upp“ eða látin „fara í
blástur“ eins og bormenn íslands
orða það. Benda mælingar til þess
að holan sé mjög efnileg og geti
orðið álíka og hola 11 sem var bor-
uð í fyrra, en báðar þessar holur eru
í sunnanverðu Bjarnarflagi. Þess
má geta til viðmiðunar að ef hola 11
hefði verið við Kröflu og komið þar
til viðbótar þeim sem þar eru, hefði
það þýtt um 11 megavatta fram-
leiðsluaukningu í virkjuninni.
Borun holu 12 í Bjarnarflagi
gekk mjög vel og tók aðeins 3 vikur.
Henni var lokið um miðjan nóv-
ember og var jarðbornum Jötni
komið fyrir til vetrargeymslu á
öruggum stað nálægt Grímsstöðum
við Mývatn. Hans bíða væntanlega
ný verkefni í Kröflu næsta vor.
Hola 14 við Kröflu var tengd inn
á gufuveitu Kröfluvirkjunar í síð-
ustu viku og framleiðir virkjunin
um 11 megavött um þessar mundir,
að sögn Gunnars Inga Gunnars-
sonar, staðartæknifræðings, og gæti
framleiðslan orðið heldur meiri eða
Botnshola virkjuð fyrir Hrafnagilsskóla
— Þurft hefur að kynda með olíu og
neysluvatn ekki nema 30 °C. Nemend-
ur báru rörin yfir Eyjaf jarðará
með olíu og neysluvatn
Ófremdarástand hefur verið í hita-
veitumálum í Hrafnagilsskóla að
undanförnu. Þurft hefur að kynda
Bótin endurbætt
Hafnarstjórn samþykkti fyrir
nokkru að láta dýpka í smá-
bátahöfninni í Sandgerðisbót og
um þessar mundir er grafa að
vinna verkið.
Guðmundur Sigurbjörnsson,
hafnarstjóri sagði að bátarnir í
Bótinni hefðu strandað á fjöru og
það gaf yfir garðana ef eitthvað var
að veðri, enda var grjótvörnin farin
að bila. Hér er um að ræða svipað
verk og var framkvæmt vestan við
verbúðirnar í smábátahöfninni hjá
Slippstöðinni.
er ekki
nema um 30° heitt. Nú standa vonir
til að úr rætist, því skólinn mun
innan skamms fá heitt vatn úr nýju
Botnsholunni, það er þegar borun
verður hætt. Þá verður holan tengd
skólanum til bráðabirgða, sem
verður líklega strax upp úr áramót-
um.
Nemendur Hrafnagilsskóla
unnu við það ásamt kennurum og
félögum úr Lionsklúbbnum
Vitaðsgjafa í gær og fyrradag að
selflytja 12 hitaveiturör, sem hvert
er um eða yfir 100 metrar á lengd,
yfir Eyjafjarðará frá Laugalandi.
Þetta er um 1500 metra vegalengd
og var gengið á ís, en á einum stað
þurfti að fara út í smávegis brúar-
framkvæmdir. Rörin munu liggja
ofanjarðar og hefur þeim nú verið
komið fyrir og þau verða soðin
saman næstu daga.
Að sögn Sigurðar Aðalgeirsson-
ar, skólastjóra Hrafnagilsskóla,
unnu nemendurnir 111 að tölu
mjög rösklega við þessa flutninga
og höfðu mjög gaman af.
um 12 megavött eftir að einangrun
lagnarinnar frá holu 14 lýkur, en
það verður væntanlega í næstu
viku. Hola 15, sem boruð var í
haust er nú í biðstöðu, þar sem
mikið gas er í henni. Verður engin
ákvörðun tekin um tengingu henn-
ar fyrr en eftir áramót, en eins og er
gefur hún 2 til 2,5 megavött. Búið
er að höggbora efsta hlutann í hol-
um 16 og 17, en þær eru í suður-
hlíðum Kröflu, þar sem vísinda-
menn hafa talið álitlegast bor-
svæðið. Hola 14 er í útjaðri þessa
svæðis. Þar sem hún er svo góð sem
raun ber vitni, binda menn nú
miklar vonir við þetta svæði.
Hin nýja vatnsveita Kröfluvirkj-
unar, frá Sandabotnalindum, var
tekin í notkun í síðasta mánuði og
hafa menn nú nóg af góðu vatni við
Kröflu. Frágangi veitunnar er þó
ekki að fullu lokið og bíður það
næsta vors. Nú er lokið hækkun á
veginum í Leirbotnum, norðan
Kröfluvirkjunar og þjónar hann
þar með sem hraunvarnargarður
og er um og yfir 3 m á hæð. J.I.
Litlu munaði að illa færi
Litlu munaði að illa færi í
Slippstöðinni í lok síðustu
viku, þegar lok á fiskilúgu í
skuttogaranum, sem verið er
að smíða fyrir Húsvíkinga,
féll niður.
Tveir menn voru að vinna í
fiskilúgu, þegar festing brast á
lokinu, sem verið var að koma á
sinn stað. Lúgan er á annað
tonn á þyngd og klemmdist
annar maðurinn milli hennar og
lúgukarmsins, en vegna stirð-
leika í lömum mun hún ekki
hafa fallið þétt niður. Maðurinn
brákaðist á handlegg og marðist
á brjóstkassa, en slapp að öðru
leyti. Félagi hans var að bogra í
lúgunni og fékk högg á herð-
amar, en meiddist ekki.
Félagsgjalda-
happdrætti K.A.
Vinningsnúmerin sem komu upp
þegar dregið var um helgina eru
þessi: nr. 52 Ásta M. Ásmunds-
dóttir, nr. 72 Guðrún Bergsdóttir,
nr. 492 Hjörtur Gíslason, nr. 509
Bryndís Arnarsdóttir, nr.
Arnar Bjarnason, nr. 633 Hólm
fríður Jóhannsdóttir, nr. 697
Ólafur G. Larsen, nr. 710 Finn
608
bogi Baldvinsson, nr. 1140 Bergur
Páll Sigurðsson og nr. 1589 Jón
Pétursson.
Vinningarnir eru 25 þús. króna
úttekt að eigin vali í sportvöru-
verzlunum á Akureyri.
Pepsi skákmót
Um helgina gengst Skákfélag
Akureyrar fyrir skákmóti sen ber
nafnið Pepsi Cola mót. Tefldar
verða 7 umferðir eftir Monrad-
■vtrfi og er umhugsunartími ein
klukkustund á hvern keppanda í
hverri skák. Mótið hefst klukkan
10 fyrir hádegi n.k. laugardag og
lýkur síðdegis á sunnudag. Sana
h.f. gefur fimm verðlaun sem
veitt verða á mótinu, sem er
drjúgur skammtur af Pepsi Cola.
Keppendur geta drukkið eins og
þá lystir af þessum gosdrykk
meðan á mótinu stendur, en
mótið er haldið í Hvammi.
Heilsárs-
hjólbarðar
í nágrannalöndunum hafa verið
að ryðja sér til rúms svokallaðir
heilsárshjólbarðar, og mun Véia-
deild Sambandsins gera tilraun
með þessa hjólbarða á næstunni.
Reynslusending er væntanleg og
verður sett undir nokkra bila, en
hjólbarðar þessir eru með blönd-
uðu munstri, vetrar- og sumar-
hjólbarða. Ef þeir reynast vel er
ekki að efa að margur bíleigand-
inn á eftir að fagna því að þurfa
ekki framar að standa í umfelgun
og skiptum vor og haust, sérstak-
lega eigendur einkabifreiða til
almennra nota.
Fyrst um sinn munu þessir
hjólbarðar koma til reynslu í
nokkrum stærðum á 14” og 15”
felgur. Véladeildin flytur þá inn
frá Atlas í Kanada.
iAUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 23207]