Dagur - 11.12.1980, Page 8

Dagur - 11.12.1980, Page 8
Grundarkirkja 75 ára Grundarkirkja i Eyjafirði var vígð 12. nóv. 1905, með mikilli viðhöfn og að viðstöddum fjölda manns og er því 75 ára um þess- ar mundir. Vígsluna annaðist héraðsprófasturinn, sr. Jónas Jónasson á Hrafnagili. Með honum þjónuðu að athöfninni, sr. Jakob Björnsson í Saurbæ, sr. Geir Sæmundsson á Akureyri og þjóðskáldið sr. Matthías Jochumsson. Organisti og söngstjóri var Kristján Árnason, síðar kaupmaður á Akureyri. Talið er að þarna hafi verið saman komið allt að 800 manns. Mun þá hafa verið „þröngt á þingi“ í Grundarkirkju, enda þótt rúmgóð sé og víð til veggja. I sæti tekur hún 350 manns, eða þar um bil. Ekkert guðshús á Islandi mun hafa verið reist af slíkri rausn og stórhug sem Grundarkirkja, þegar á það er litið að hér var um einka- framtak að ræða. í tilefni þessa afmælis kirkjunnar gáfu staðarhjón, frú Aðalsteina Magnúsdóttir og Gísli Björnsson, henni forkunnarfagran og vel vandaðan hátíðahökul með got- nesku sniði. Er þessi góði gripur gefinn til minningar um Magnús Sigurðsson, stórbónda á Grund. En sjálfur reisti hann sér þann minnis- varða, með smíði þessa rismikla og fagra og óviðjafnanlega guðshúss, er seint mun fyrnast. Grundar- kirkja var áður talin eitt veglegasta guðshús á landinu. Hún er það enn og mun ekki verða vikið úr því tignarsæti. Áður en kirkjan eignaðist gesta- bók, skrifuðu menn nöfn sín á stoðir og bita og um alla veggi í innanverðum kirkjuturni. Gaman hefði verið að eiga allar þær áletr- anir varðveittar í bók. Er það orð- inn ótölulegur fjöldi „af alls kyns fólki og kynkvíslum og lýðum og tungum", sem heimsótt hefir musteri þettaá liðinni tíð. En þarna gat að líta nöfn úr öllum hornum heims, að segja má. í fyrrasum^r var hafin viðgerð á kirkjuhúsinu. En verulega var farið að bera á fúa í yztu klæðningu, einkum á norðurstafni. Einnig var inngönguhliðið orðið illa farið. Hefir nú verið við þetta gjört, vei og vandlega. En turninn þarfnast líka mikillar endurbótar, sem væntan- lega verður unnin á næstunni. Fer viðgerð þessi fram með tilstyrk þjóðminjavarðar og undir yfirum- sjón hans. Bjartmar Kristjánsson. Jólaeplin komin Mjög mikill afsláttur í heilum kössum MAY FAIR veggdúk Utsölustaðir: Byggingavörudeild KEA, Kaupfélag Skagfirðinga, Kaupfélag Þingeyinga, Húsavík. JTRYGGVABRAUT12L AKUREYRI J í Nýkomið Hudson sokkabuxur í öllum stærðum HAFNARSTR. 91-95 - AKUREYRI - SlMI (96) 21400 8 DAGUR

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.