Dagur - 06.01.1981, Blaðsíða 6
Frá Guðspekifélaginu. Fundur
verður laugardaginn 9.
janúar kl. 3 e.h. Forseti
félagsins Birgir Bjarnason
flytur erindi sem hann nefn-
ir. Mun maðurinn breytast.
Lionsklúbbur Akureyrar fundur
fimmtudag 8. jan. í Sjálf-
stæðishúsinu kl. 12.15.
Spilakvöld verður hjá Sjálfbjörg
í Alþýðuhúsinu fimmtudag-
inn 8. janúar kl. 20.30. Allir
velkomnir. Nefndin.
Minningarspjöld kvenfélagsins
Hlífar fást í bókabúðinni
Huld, í símaafgreiðslu
sjúkrahússins og hjá Lauf-
eyju Sigurðardóttur Hlíðar-
götu 3, Allur ágóði rennur til
barnadeildar F.S.A. -
Kvenfélagið Framtíðin, vill
minna á minningaspjöld fé-
lagsins. Þau eru til sölu í
Skemmunni, Blómabúðinni
Lilju, Dvalarheimilinu Hlíð,
Dvalarheimilinu Skjaldar-
vík og hjá Margréti Krauer
Helgamagrastræti 9. Allur
ágóði rennur í elliheimilsi-
sjóð félagsins.
Hjarta og æðaverndunarfélagið.
Áheit frá S.K. kr. 50.000,00
Gkr. Með þakklæti móttekið
Eyþór H. Tómasson.
TVær hár-
greiðsSu-
stof ur á
Blönduósi
Þann 10. janúar opnar Stein-
|>óra Sigurðardóttir nýja hár-
grciðslustofu á Blönduósi og
fyrir skömmu opnaði Jenny
Stefánsdóttir stofu að heimili
sínu. Þjónusta eins og þessar
tvær konur munu veita Hún-
vetninguni í náinni framtíð hef-
ur ekki lengi verið fyrir hendi á
Blönduósi, að sögn fréttaritara
blaðsins.
Stefán Hafsteinsson, frétta-
ritari sagði að Steinþóra hefði í
hyggju að fara einu sinni í viku
til Hvammstanga og Skaga-
strandar. Hárgreiðslustofa
Steinþóru verður opin sex daga
vikunnar og eftir nánara sam-
komulagi. Ætlunin er að fá
snyrtifræðing einu sinni í mán-
uði til að leiðbeina viðskipta-
vinum. Hárgreiðslustofan verð-
urvið Holtabraut 10.
Jenny Stefánsdóttir verður
rneð sína stofu að Húnabraut
25. Þar verður hægt að fá
dömu-. herra- og barnaklipp-
ingu ásarnt lagningu og perm-
aneti alla daga vikunnar nema
sunnudaga. Þær Jenny og
Steinþóra hafa báðar lokið
námi i sinni iðngrein.
Erlingur Davíðsson
skrifaði greinina „Hagleiksmaður í
Kinn“ sem birtist í jólablaði Dags.
Nafn höfundar féll niður og biðst
blaðið velvirðingar á þeim mistök-
um.
Karen Fors
heitir höfundur jólasögunnar „Jól-
in hennar Kötu“, en nafn Karenar
féll líka niður. Karen er beðin af-
sökunar á þessu.
6.DAGUR
Messað verður í Akureyrar-
kirkju n.k. sunnudag kl. 2
e.h. Sálmar: 218-112-250-
255-242. B.S.
Kristniboðshúsið Zíon: Sunnu-
daginn 11. jan. Sunnudaga-
skóli kl. 11. öll börn vel-
komin. Fundur í Kristni-
boðsfélagi kvenna kl. 4. All-
ar konur velkomnar. Sam-
koma kl. 20.30. Ræðumaður
Björgvin Jörgensson. Allir
velkomnir. Biblíulestur
hvern fimmtudag kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Hjálpræðishcrinn: Sunnudag-
inn n.k. kl. 13.30 sunnu-
dagaskóli og kl. 17 almenn
samkoma. Állir velkomnir.
Á mánudögum kl. 16 er
heimilissamband fyrir kon-
ur og á föstudögum kl. 17 er
opið hús fyrir börn
(Strandgötu 21). Verið vel-
komin.
Ffladelfía Lundargötu 12,
fimmtudag 8. jan. biblíu-
lestur kl. 20.30. Allir vel-
komnir. Laugardagur 10.
janúar. Safnaðarsamkoma
kl. 20.30. Sunnudagur 11.
janúársunnudagaskóli kl. 11
f.h. Öll börn velkomin. Al-
menn samkoma kl. 20.30.
Allir velkomnir.
ÍÓRÐDjÍGSÍNS1
Brúðhjón: Hinn 21. desember
voru gefin saman í hjóna-
band í Akureyrarkirkju Elsa
Bima Sveinbjömsdóttir
húsmóðir og Sigurður The-
odór Guðmundsson
sjómaður. Heimili þeirra
verður að Keilusíðu 4h Ak-
ureyri.
Hinn 25. desember voru gefin
saman í hjónaband í Akur-
eyrarkirkju Hafey Lúðvíks-
dóttir skrifstofustúlka og
Kristján Skjóldal Haralds-
son bifvélavirkjanemi.
Heimili þeirra verður að
Keilusíðu 4b Akureyri.
Hinn 27. desember voru gefin
saman í hjónaband í Akur-
eyrarkirkju Sigríður
Stefánsdóttir tækniteiknari
og Kári Björgvin Agnarsson
kennari. Heimili þeirra
verður að Skarðshlíð 25e
Akureyri.
Hinn 31. desember voru gefin
saman í hjónaband í Akur-
eyrarkirkju Anna Sólveig
Jónasdóttir húsmóðir og
Valgeir Stefán Sverrisson
verkamaður. Heimili þeirra
verður að Hafnarstræti 2
Akureyri.
'SÍMI
Hvar er pokinn með rúnnstykkjun-
um, sem þú áttir lika að sækja
góurinn?
Mjólkurneysla lækkaði blóðfitu
Það má gera ráð fyrir að umræður
unt breytt mataræði til að draga úr
tíðni hjarta- og æðasjúkdóma eigi
eftir að halda áfram næstu ár. Þrátt
fyrir að fleiri og fleiri séu farnir að
efast um rétmæti kenningarinnar
um hættuna af neyslu mettaðrar
fitu. Lítið hefur verið haldið á lofti
niðurstöður rannsókna í Nashville,
Bandaríkjunum og í Cambridge,
Englandi þar sem mjólkurneysla
lækkaði kolesterol innihald blóðs-
ins. I tilraunum kom í Ijós að hjá
þeim sem drukku 2 litra af mjólk á
dag í tvær vikur lækkaði kólesteról
innihald í blóði um 5%.
Mjög lítil breyting hefur orðið á
neyslu dýrafitu hér á landi síðast-
liðin 10 ár. Neysla á kindakjöti
breytist tiltölulega lítið sveiflur í
neyslunni má að mestu rekja til
breytinga á niðurgreiðslum á verði
þess. Aftur á móti er neysla á
mjólkurfitu, reiknað, sent meðal-
neysla á íbúa svo til nær óbreytt frá
því á árinu 1971 og fram á árið
1980. Aðeins eitt ár sker sig nokkuð
úr, en það var árið 1974. Það ár var
meðalneysla á mjólkurfitu 19,4 kg.
á mann. Árið 1977 var neyslan
minnst eða að meðaltali 16,1 kg. á
íbúa. Árið 1971 til 1973 var meðal-
neyslan 17.6 kg. Á síðastliðnu ári
var meðalneysla íslendings á
mjólkurfitu 17.3 kg.
Egg er sú fæðutegund, sem inni-
heldur mest af kólesteróli. Þess-
vegna hafa ýmsir sérfræðingar var-
að við neyslu á eggjum, talið há-
mark að borða 3 egg á viku. í til-
raun sem gerð var á nemendum í
St. Louis háskólanum í Missouri
kom í Ijós að þótt þeir neyttu 21 egg
á viku, sem var 7 sinnum meira en
ráðlagður skammtur, þá hafði það
engin áhrif á kolesteról innihald
blóðsins.
Iðnskólinn á Akureyri
Nemendur á vorönn sem ekki voru í skólanum á
haustönn mæti fimmtudaginn 15. janúar sem hér
segir:
Fornám kl. 14. Fyrsti áfangi kl. 15. Þriðji áfangi kl.
16.
Skólastjóri.
Orðsending til hesta-
manna á Akureyri
Þeir hestamenn sem eiga hesta í högum félagsins
veróa aö taka þá nú þegar eða í allra síöasta lagi
um n.k. helgi vegna hagleysis. HAGANEFND.
Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og vinarhug við
fráfall
ÓLAFS B. JÓNSSONAR,
ráðunauts,
Aðalstræti 3, Akureyrl.
Guðrún Halldórsdóttir,
Björg Ólafsdóttir, Kristján M. Flnnbogason,
Hólmfríður Ólafsdóttir, Jakob Jónsson,
- Jón Jakobsson.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa
Sigurðar Haraldssonar,
Ingjaldsstöðum.
Böm, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför dóttur minnar og systur okkar
ÞÓRU EIÐSDÓTTUR BJARMAN,
Ásvegi 32.
Birna Guðnadóttir,
Rannveig Eiðsdóttir,
Hildur Eiðsdóttir,
Einar Eiðsson,
Eiður Eiðsson.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem auðsýndu okkur
samúð og vinarhug, við andlát og jaröarför konu minnar, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu.
GUÐRÚNAR HÁLFDÁNARDÓTTUR,
Hólsgerði 4, Akureyri.
Sérstakar þakkir flytjum við læknum og starfsfólki á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri fyrir frábæra hjúkrun og umönnun.
Karl Emil Björnsson,
Sigríður Árnadóttir, Júlíus Fossdal,
Anna Sigrún Árnadóttir, Sverrir Jónatansson,
Regína Árnadóttir, Svavar Sigursteinsson,
Halldóra Árnadóttir, Snorri Guðmundsson,
Ingimar S. Karlsson, Ólöf Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum sem auðsýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför
TRYGGVA JÓNSSONAR,
Svertingsstöðum.
Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarliði lyflækn-
ingadeildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyrir góða
hjúkrun í veikindum hans.
Vandamenn.
Hjartans þakkir flyt ég lœknum, hjúkrunarkonum
og öðru starfsliði Lyflœkningadeildar F.S.A., fyrir
frábœra hjúkrun og hjálp við að endurheimta heilsu
mína. Blessun fylgi störfum ykkar og framtíð.
Gleðilegt nýjár.
BJÖRG HARALDSDÓTTIR.
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig
með heimsóknum, gjöfum og skeytum á sjötíu ára
afmceli mínu þann 22. des. s.l. Guð blessiykkur öll.
SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Norðurgötu 32, Akureyri.
Félagsmálastofnun Akureyrar
vill kynnast góóu fólki sem óskar að gerast fóstur-
foreldrar. Um er að ræða bæði skammtímafóstur til
nokkurra mánaða og langtímafóstur yngri og eldri
barna.
Umsóknum með sem nákvæmustum upplýsingum
um aðstæður og væntanlegar óskir umsækjenda
sé skilað sem fyrst til Félagsmálastofnunar Akur-
eyrar, pósthólf 367, 602 Akureyri.
Litiö verður á allar upplýsingar sem fram koma í
umsóknum sem algjört trúnaðarmál.