Dagur - 20.01.1981, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
64. árgangur
Akureyri, þriðjudaginn 20. janúar 1981
5. tölublað
Ný brú yfir Eyjafjarð-
ará næsta sumar?
Uppi eru hugmyndir um byggingu nýrrar brúar hjá Hrafnagili
Ærslaleikur-
inn Markölfa í
Ljósvetn-
ingabúð
Staðarfelli 20. janúar.
Síðastliðið laugardagskvöld
frumsýndi ungmennafélagið
Gaman og alvara í Ljósa-
vatnshreppi ærslaleikinn
Markólfu eftir Dario Fo
undir stjórn Maríu
Kristjánsdóttur. Húsfyllir
varð og var leiknum mjög vel
tekið.
Leikurinn er byggður á hinni
aldagömlu ítölsku leikhúshefð
commedya dell, Arte og gerist á
miðri síðustu öld í niðurnýddri
höll markgreifans af Trerate.
Leikendur eru 7. Með aðalhlut-
verkin fara Jónína H.
Björgvinsdóttir, sem leikur
Markólfu, og Baldvin Kr.
Baldvinsson, en liann fer með
hlutverk markgreifans.
Leikmynd er gerð af Erlingi
Vilhjálmssyni og Þórhildi
Vilhjálmsdóttur. Búningarnir,
sem sniðnir eru að þeirri hefð,
sem áður er getið, eFU flestir
heimasaumaðir og töku margar
konur þátt í því verki. Fjöldi
sveitunga hefur unnið í sjálf-
boðavinnu við undirbúning
þessarar sýningar. Næstu sýn-
ingar verða í Ljósvetningabúð
fimmtudags-, föstudags- og
sunnudagskvöld og hefjast allar
klukkan 21. Miðapantanir eru í
símastöðinni á Fosshóli. JAB.
Bæjarmála-
klúbburinn
Bæjarmálafundurinn í janúar
verður í Hafnarstræti 90, n.k. mið-
vikudagskvöld og hefst kl. 20.30.
Fjallað verður um félagsmál, m.a.
um dagvistunarmál, heimilisþjón-
ustu, leiguíbúðir og félagsstarf al-
draðra. Framsöguræðu flytur Jón
Bjömsson, félagsmálastjóri.
Þegar togarinn Kaldbakur E.A.
var á veiðum fyrir vestan land á
dögunum fengu skipverjar
dauðan ísbjörn í trollið. Ljóst
var að dýrið, sem er birna, hefur
legið í sjó í einhvern tíma, en
það var þó heillegt á að líta.
Skipið kom til Akureyrar í
gærmorgunn.
S.l. föstudag var haldinn fundur
á Akureyri þar sem fjallað var
um hugsanlega byggingu brúar
yfir Eyjafjarðará á móts við
Hrafnagil. Lengi hafa íbúar
hreppanna í innanverðum
Eyjafirði lagt á það áherslu að
fá brú á þessum slóðum og
virðist það aldrei hafa verið nær
því að nást fyrr en einmitt nú.
Eins og kunnugt er fannst
töluvert heitt vatn hjá Botni í
Hrafnagilshreppi og þarf að
leiða það yfir ána í skiljustöð
Hitaveitu Akureyrar, sem er á
Laugalandi. Talið er heppilegt
að byggja brú og hengja
leiðsluna neðan í hana.
Framkvæmdir þyrfti að hefja í
sumar því Hitaveitan þarf að fá
vatnið inn á kerfið fyrir næsta
vetur.
Á fundinn, sem haldinn var á
Hótel K.E.A. komu fulltrúar
Hitaveitu Akureyrar, Vegagerðar
ríkisins og hreppsnefndarmenn
úr Öngulsstaða-, Hrafnagils- og
Saurbæjarhreppum. Einnig voru
þingmenn kjördæmisins á
fundinum. Bygging brúar yfir
Eyjafjarðará hjá Hrafnagili er ekki
ávegaáætlun 1981 eins og kunnugt
er og því verður að leita annarra
leiða til að fjármagna verkið, en
bygging brúar og vegar sitt hvoru
meginn að henni, er talin kosta um
7 milljónir nýkróna. Það kom m.a.
fram í máli þingmannanna að ein
þeirra leiða sem fara mætti væri sú
að fá fé á lánsfjáráætlun
ríkisstjómarinnar.
viku þegar bangsi kom í trollið.
Ekki urðu skipverjar varir við dýrið
fyrr en þeir fóru að gera að. Sagði
Þorsteinn að sumum hefði orðið
hvert við þegar uppgötvaðist að í
móttökunni lægi hvítabjörn.
„Nei, því miður get ég ekki látið
stoppa bjamdýrið upp, en það var
ætlunin. Birnan er of illa farin til
þess eftir að hafa legið í sjónum“,
Á sínum tíma voru uppi
hugmyndir um samvinnu Hitaveitu
Akureyrar og hreppanna í
brúarmálum, en þá var leiðslan
tekið yfir ána töluvert norðar en
heppilegt var talið að byggja brú.
Botnsholan hefur breytt miklu í
þessu tilliti og eru forráðamenn
Fyrir skömmu fór hafnarstjórn
ásamt hafnarstjóra og hafnar-
verði til Reykjavíkur til þess að
sagði Þorsteinn og bætti því við að
menn hefðu haft á orði að þetta
væri líklega heimsmet að fí
bjamdýr í vörpuna.
Þegar blaðam. skoðaði bimuna í
gær höfðu skipsmenn hengt hana
upp til sýnis, en eflaust verður
hræinu hent innan tíðar og e.t.v.
verður búið að því þegar þessar
línur koma fyrir sjónir lesenda.
Hitaveitu Akureyrar áhugasamir
um að brúin verði byggð.
Heimildamenn blaðsins sögðu
að ef af þessari brúargerð yrði
myndi hún ekki breyta neinu um
fyrirhugaðar framkvæmdir á
Leirunum.
vera við lokaprófun á tilraunum
sem hafnarmálastofnun var að
gera í sambandi við fyrirhugaða
hönnun og byggingu viðlegu-
kants við Hraðfrystihús Ú.A.
Þessar tilraun var gerð til að
kanna hreyfingar skipa, annars
vegar við staurabryggju og hins
vegar við stálþil.
Framkallaðar voru mismunandi
hreyfingar sjávar, svo sem undir-
alda og vindalda, ýmist stakar eða
samvirkandi og hreyfingar skipsins
mældar.
Mat hafnarstjórnar er það að til-
raunirnar bentu til þess að stálþilið
væri betri valkosturinn.
Nú er bannað að fara með þunga
bíla yfir gömlu brýrnar hjá
flugvellinum og verða menn að aka
inn í fjörð til að komast yfir. Hins
vegar þolir vegurinn á þeim slóðum
ekki umferð mjög þungra
farartækja.
Innheimta
bæjargjalda
Á fundi bæjarráðs í sl. viku gerði
bæjarritari grein fyrir innheimtu
bæjargjalda á árinu 1980. Af út-
svörum og aðstöðugjöldum inn-
heimtist 88,0% en af fasteignagjöld-
um 92,6%. Heildarinnheimta á
gjöldum þessum reyndisl vera
89,3%. Samtals voru til innheimtu
að meðtöldum reiknuðuh dráttar-
vöxtum kr. 6.332.778 þús. Þar af
innheimtust kr. 5.527.851 þús. eða
87,3%.
Að tillögu bæjargjaldkera sant-
þykkti bæjarráð að fella niður
gömul úlsvör hjá 11 einjúaklingum
samtals að upphæð gkr. 1.184.232.
en útsvör þessi hafa reynst öinn-
heimtanleg.
BJARNDÝRÍTROLUÐ
VILJA STÁLÞIL
Blönduvirkjun og Villinganesvirkjun:
Orkueiningin mun dýrari frá Villinganessvirkjun
Þorsteinn Vilhelmsson, skipstjóri
sagði að þeir hefðu verið að toga í
Þverálsbotninum um miðja síð,ustu
Rætt um efna-
hagsráðstafanir
og þjóðmál
Framsóknarfélögin á Akureyri
og Eyjafirði halda almennan
fund með þingmönnum á Hótel
K.E.A fimmtudaginn 5. febrúar
kl. 9 e.h. Rætt verður um
efnahagsráðstafanir
ríkisstjómarinnar og viðhorf í
þjóðmálum.
Ráðstefna um orkubúskap og
orkufrekan iðnað var haldin á
Ákureyri um helgina á vegum
iðnþróunar- og orkumálanefnd-
ar Fjórðungssambands Norð-
lendinga. Átta framsöguerindi
voru flutt og almennar umræður
vom að loknum framsöguræð-
unum. Á ráðstefnunni kom
meðal annars fram, að Hraun-
eyjafossvirkjun muni ekki gera
meira en að brúa það gap sem nú
er í orkuframleiðslu lands-
manna og fram kemur í raf-
magnsskömmtun og mikilli
díselkeyrslu rafstöðva, þannig
að brýnt er að ákvörðun verði
tekin sem fyrst um nýja virkjun.
Nokkrar umræður urðu um
Blönduvirkjun og kom meðal
annars fram í framsöguræðu
Kristjáns Jónssonar, rafmagns-
veitustjóra, að stofnkostnaður
við hverja orkueiningu Blöndu-
virkjunar væri 0,93 nýkrónur, en
sambærileg tala fyrir Villinga-
nesvirkjun væri 1,33 nýkrónur,
þannig að Blönduvirkjun væri
mun hagkvæmari. Ákveðið er að
formlegur viðræðufundur um
bætur fyrir landsspjöll verði með
fulltrúum sveitarstjórna á
Blöndusvæðinu í lok janúar.
Þorsteinn Vilhjálmsson, formað-
ur staðarvalsnefndar, sem iðnaðar-
ráðuneytið skipaði í október í fyrra
til að kanna hvar helst komi til álita
að reisa iðjuver í tengslum við nýt-
ingu á orku- og hráefnislindum
landsins, kynnti samanburð sem
gerður hefur verið á hugsanlegu
staðarvali meðalstórra stóriðjufyr-
irtækja og meiriháttar nýiðnaðar-
fyrirtækja, það er iðjuver með
30-300 manna stafsliði og 5-100
megawatta aflþörf. Þorsteinn tók
skýrt fram, að ekki mætti taka
þennan samanburð bókstaflega,
(Framhald á bls. 6).