Dagur - 20.01.1981, Síða 6
Ffladelfía, Lundargötu 12.
Fimmtudagur 22. jan.
Vakningarsamkoma kl.
20.30. Indriði Kristjánsson
frá Isafirði talar. Allir vel-
komnir. Laugardagur 24.
jan. Safnaðarsamkoma kl.
20.30. Sunnudagur 25. jan.
Sunnudagaskóli kl. 11 f.h.
Öll börn velkomin. Vakn-
ingarsamkoma kl. 20.30.
Indriði Kristjánsson talar.
Allir velkomnir.
Kristniboðshúsið Zíon. Sunnu-
daginn 25. jan. Sunnudaga-
skóli kl. 11 f.h. Samkoma kl.
20.30. Ræðumaður Olsa
Jakobsen kristniboði. Allir
velkomnir. Biblíulestur
hvern fimmtudag kl. 20.30.
Náttúrugripasafnið. Sýningar-
salurinn opinn á sunnudög-
um kl. 1-3 sd. Tekið á móti
hópum utan þess tíma. Haf-
ið samband við gæslumann-
inn, Kristján Rögnvaldsson,
í síma 24724.
Menntamálaráðu-
neytið staðfestir
stefnumörkun bæjar-
stjórnar um fram-
haldsskóla á Akureyrí
Lagt var fram bréf dags. 5.
janúar sl. frá menntamálaráðu-
neytinu, þar sem staðfest er sú
stefnumörkun bæjarstjórnar,
„að tveir meginskóiar verði á
framhaidsskólastigi á Akureyri.
Endanlega skiptingu náms-
brauta milli skólanna telur ráðu-
neytið ekki tímabært að ákveða á
þessu stigi, en eðlilegt að um það
mál verði fjallað nánar með at-
beina heimaaðila, m.a. í samstarfs-
nefnd framhaldsskóla á Akureyri."
Lántökuheimild
Bæjarráð hefur samþykkt að
heimila bæjarstjóra að tala lán hjá
Orkusjóði að upphæð nýkr.
2.579.100 vegna jarðhitarannsókna
og borana eftir heitu vatni í Eyja-
firði og að Reykjum í Fnjóskadal.
Bæjarstjóra er veitt fullt og ótak-
markað umboð til þess að undirrita
nauðsynleg lánsskjöl f.h. Akureyr-
arbæjar.
— Orkueiningin
dýrari...
(Framhald af bls. 1).
þar sem um algjöra frumathugun
væri að ræða. í samanburðinum
kemur fram að Reykjavíkursvæðið
sé hentugast fyrir þessi meðalstóru
iðjuver og er því gefin einkunnin
14. Hvalfjörður, Reyðarfjörður og
Suðurnes koma næst á eftir með 13
stig, síðan Eyjafjarðarsvæðið með
12, Skagafjarðarsýsla með 11,
Húsavíkur- og Árborgarsvæði, þ.e.
Árnessýsla, með 10 og Húnavatns-
sýslur með 8 stig. Þegar metin er
aðstaða fyrir stóriðjufyrirtæki, á
borð við álver, koma aðeins tvö
svæði til greina, þ.e. Eyjafjarðar-
svæðið og SV-land. Svæðunum eru
gefnar einkunnir eftir hafnarskil-
yrðum, fólksfjölda og náttúruskil-
yrðum og fær Reykjavíkursvæðið
hæstu mögulegar einkunnir fyrir
alla þættina. Eyjafjarðarsvæðið fær
lægstu einkunn fyrir náttúruskil-
yrði, en þar koma inn í mengunar-
hætta, aðrir landnýtingarhags-
munir og fleira.
Ráðstefnuna sóttu um 100
manns.
6. DAGUR
Akureyrarkirkja. Messað n.k.
sunnudag kl. 2 e.h. Sálmar
nr. 18, 193, 207, 43, 317. B.S.
Sunnudagaskóli Akureyrar-
kirkju er á sunnudag kl. 11
f.h. öll böm hjartanlega
velkomin. Sóknarprestar.
Takið eftir! Spilakvöld verður
hjá Sjálfsbjörg í Alþýðuhús-
inu 22. janúar kl. 8.30 e.h.
Allir velkomnir. Nefndin.
Bingó að Hótel Varðborg
föstudaginn 23. þessa mán-
aðar klukkan 20.30. Glæsi-
legir vinningar að vanda.
Aðgangur ókeypis, spjaldið
kostar 10 krónur. Komið
snemma. IOGT.
Lionsklúhhurinn Hængur.
Fundur fimmtudag 22. þ.m.
kl. 19.15 áHótel K.E.A.
Lionsklúhhur Akureyrar.
Fundur í Sjálfstæðishúsinu
fimmtudaginn 22. jan. kl.
12.15.
□ RÚN 59811217 — Frl.
Guðspekifélagið. Fundur verð-
ur haldinn fimmtudaginn
22. janúar kl. 21. Erindi flyt-
ur séra Pétur Sigurgeirsson.
lOGT st. Ísafold-Fjallkonan nr,
1. Fundur fimmtudaginn 22.
þ.m. kl. 8.30 að félagsheimili
templara, Varðborg. Fund-
arefni: Vígsla nýliða, önnur
mál. Eftir fund: Kaffi. Æ.t.
Kiwanisklúbburinn Kaldbakur.
Fundur fimmtudaginn 22.
janúar kl. 19.15 í Kiwanis-
húsinu.
Fyrirframgreiðslur útsvara
áárinu 1981
Á árinu 1981 ber að greiða fyrirframgreiðslu upp í
útsvar til Bjæarsjóðs Akureyrar með fimm jöfnum
greiðslum, hinn 1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí
og 1. júní.
Á hverjum þessara gjalddaga skal greiða sem
svarar 14% af álögðu útsvari 1980.
Akureyri, 13. janúar 1981.
Bæjarritarinn.
....—■
■ ■■ ■ ■ .:.
....................................................................................................................................................................................................................................................................................................................
íbúð til sölu
Til sölu er íbúðin Skarðshlíð 28 C.
íbúðin erfjögurra herbergja á 2. hæð ífjölbýlishúsi
byggðu á vegum stjórnar verkamannabústaða og
selst hún á matsverði.
Umsóknareyðublöð fást afhent á bæjarskrifstof-
unni, Geislagötu 9.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 30. janúar
næstk.
Akureyri, 14. janúar 1981.
Bæjarstjóri. '
Stjórnarkjör
Ákveðið hefur verið, að kjör stjórnar félagsins,
trúnaðarmannaráðs og endurskoðenda fyrir næsta
starfsár fari fram að viðhafðri allsherjaratkvæða-
greiðslu.
Framboóslistum með nöfnum 7 manna í aðalstjórn
og 5 til vara, 21 manni að auki í trúnaöarmannaráð
og 21 til vara, tveggja endurskoðenda og eins til
vara, ber að skila á skrifstofu félagsins, Skipagötu
12 á Akureyri, eigi síðar en kl. 12 á hádegi, þriðju-
daginn 27. janúar n.k.
Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli 100
fullgildra félagsmanna.
Akureyri 19. janúar 1981.
Stjórn Verkalýðsfélagsins Einingar.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför drengjanna okkar
FREYSTEINS GUÐMUNDSSONAR
og
ÞORGEIRS RÚNARS FINNSSONAR,
Dalsgerði 1, Akureyri.
Áslaug Freystelnsdóttlr, Guðmundur Þórhallsson,
Guðrún Gunnarsdóttir, Flnnur Marinósson,
systkini og aðrir ættingjar.
Alúðar þakkir fyrir samúð og hlýhug viö fráfall og jarðarför
BALVINS SIGURÐSSONAR,
Sólvöllum 6, Akureyri.
Auður Þorstelnsdóttlr og börn.
NANNA BALDVINSDÓTTIR
frá Kljáströnd,
lést 13. janúar sl. á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 22.
janúar kl. 13.30.
Ásta Þengilsdóttir.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 83., 86. og 91. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1980 á húseigninni Grundargata 13, Dal-
vík, þinglesinni eign Jóels Friðrikssonar og Sigur-
bjargar Sveinsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri
miðvikudaginn 21. janúar n.k. kl. 14.00.
Bæjarfógetinn á Dalvík.
Orðsending
til launagreiðenda á Akureyri, Dalvík og í Eyja-
fjarðarsýslu.
Atvinnurekendur og aðrir launagreiðendur eru hér
með minntir á að senda embættinu hið fyrsta skrár
yfir launþega vegna þinggjaldainnheimtu, sbr. 113
gr. laga nr. 40/1978.
Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík,
sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu, 19. janúar1981.
Gjalddagar fasteignagjalda
á Akureyri á árinu 1981
Bæjarstjórn Akureyrar hefir ákveðið að fasteigna-
gjöld til Bæjarsjóðs Akureyrar á árinu 1981 skuli
gjaldfalla með fímm jöfnum greiðslum á gjalddög-
um.
15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. april og 15.
maí.
Með tilliti til þeirra breytinga, sem verða á fast-
eignagjöldum má ætla að 15. janúar n.k. falli í
gjalddaga upphæð, sem svarar til 30% þeirra
gjalda, sem greidd voru af fasteigninni sl. ár.
Þess er vænst, að fasteignaeigendur bregðist vel
við og greiði á réttum gjalddaga tilskilinn hluta
fasteignagjaldanna, þótt gjaldseðlar berist þeim
ekki fyrr en í febrúar-mánuði.
Dráttarvextir eru samkvæmt lögum fallnir á öll
ógreidd bæjargjöld frá fyrra ári og nema þeir
4,75% fyrir hvern mánuð eða brot út mánuði frá
gjalddaga.
Bæjarskrifstofan er opin frá kl. 10.00-15.00 dag-
lega frá mánudegi til föstudags.
Akureyri, 13. janúar 1981.
Bæjarritari.