Dagur - 20.01.1981, Síða 8
IMíGtIIM
RAFGEYMAR
í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉUNA
VEUIÐ RÉTT
MERKI
wum
Grenivík:
Ibúum fjölgað um
100 síðan 1973
Grenivík, 16. janúar.
Tíðarfarið hefur verið ákaflega
erfitt og sjósókn af þeim sökum
mjög lítil. Sæmilegur afli hefur
fengist á línu þegar gefið hefur á
sjó. Tveir stórir bátar, 70 og 130
tonn, hafa verið á línu og einn 70
tonna bátur hefur verið á netum,
en fengið nánast ekki neitt.
Voru netin dregin upp í gær og
báturinn fer á vertíð til Grinda-
víkur. Nokkrir minni bátar og
trillur hafa veitt sæmilega inn-
anfjarðar. Tekist hefur að halda
Vinnuvika
nemenda GA
Nokkur undanfarin ár hefur
verið efnt til vinnuviku fyrir
ncmendur á 2. ári viðskiptasviðs
Gagnfræðaskóla Akureyrar.
Góð samvinna hefur náðst við
fyrirtæki hér í bæ og nemendur
verið ánægðir með þann árangur
sem náðst hefur á þessum
vinnudögum.
Nú er fyrirhugað að hefja enn
þennan starfsþátt skólans og því er
leitað til margra fyrirtækja á Akur-
eyri um samvinnu. Vinnudagar
nemenda verða vikuna 2.-6. febrú-
ar á venjulegum dagvinnutíma
hvers fyrirtækis. Ekki er ætlast til
að nemendur fái laun fyrir vinnu
sína, heldur að þeir fái sem gagn-
legast og víðtækast yfirlit um starf-
semi hvers vinnustaðar.
Stofnað var til náms á viðskipta-
sviði í því skyni að mennta og
þjálfa starfsfólk til verslunar- og
skrifstofustarfa.
Þriðju
áskriftar-
tónleikarnir
Þriðju áskriftartónleikar Tón-
listarfélags Akureyrar verða
haldnir laugardaginn 24. janúar
n.k. í Borgarbíói kl. 17.00.
Flytjendur eru átta manna
kammersveit undir stjórn Pauls
Zukovskys. Kammersveitina skipa
Rut Magnússon, söngvari, Anna
Málfríður Sigurðardóttir, píanó,
Gunnar Egilsson, klarinett, Bern-
hard Wilkinson, flauta, Carmen
Russsel, selló, Helga Hauksdóttir,
fiðla, Rut Ingólfsdóttir, fiðla.
Á efnisskrá verður tónverkið
Pierrot Lunaire eftir Schönberg
samið árið 1912. Rut Magnússon
hefur hið vandasama hlutverk að
flytja ljóðið, sem er eftir Giraud.
Þetta verk var flutt á Listahátíð
1980.
Síðara verkefni kammersteitar-
innar verður klarinettkvintett eftir
Brahms (þ.e. fyrir klarinett ojg
strengjakvartett) saminn 1891.
Einleikari í þessu verki er Gunnar
Egilsson.
Sala aðgöngumiða verður í
Bókabúðinni Huld og við inngang-
uppi 8 klst. vinnu á dag þrátt
fyrir þessar ógæftir og reyndar
hefur vinnutíminn oft verið
lengri, þannig að ekki er þörf á
að kvarta af þeim ástæðum.
Þrátt fyrir erfitt tíðarfar er til-
tölulega snjólítið og undantekn-
ingalítið hefur verið s‘rt til Akur-
eyrar, enda hefur vegurinn víða
verið hækkaður upp og lagfærður.
Erfiðasti kaflinn er milli Fnjóskár
og Miðvíkur.
Lítið hefur verið unnið að bygg-
ingamálum að undanförnu, nema
hvað nefna má að unnið er innan-
liúss við nýja skólahúsið. Stefnt er
að því að flytja skólahald í nýja
húsið næsta haust, en menn eru
svartsýnir á að það takist nema til
komi aukin fjárveiting. Handa-
vinna hefur verið kennd í tveimur
stofum í kjallara nýja hússins, en að
öðru leyti er kennt í gamla skólan-
um og er sú starfsemi orðin mjög
erfið sökum þrengsla. Nemendur
eru 82 að tölu, kennarar eru þrír í
fullu starfi og tveir í hálfu starfi.
Nú búa um 460 manns hér á
Grenivík og hefur fjölgað um því
sem næst eitt hundrað manns síðan
árið 1973. Við missum lítið af unga
fólkinu og talsvert hefur verið um
að fjölskyldur flyttu hingað. Þá
hefur nokkuð verið úm það að fólk
sem flutt hefur burt hafi komið
aftur. Hér hefur verið næg atvinna
og fólk sækir í mikla vinnu. Ef ekki
væri húsnæðisskortur hefðu fleiri
væntanlega flutt hingað. Nú fer
okkur hins vegar að vanta fleiri at-
vinnutækifæri hvað úr hverju og
hefur verið horft til þess að reyna
að koma upp einhverjum iðnaði,
en engin ákvörðun tekin í þeim
efnum ennþá.
Atvinna byggist nær eingöngu á
sjósókn og fiskvinnslu, en hér eru
auk-þess þrjú loðdýrabú, sem skapa
nokkra atvinnu.
Félagslíf hefur að mestu legið
niðri að undanförnu, en nú fersenn
að lifna yfir því með hefðbundnum
þorrablótum og árshátíðum. P.A.
Atvinnuleysis-
skráning 31.
desember
í bréfi dags. 31. desember 1980
frá vinnumiðlunarskrifstofunni
kemur fram að þann dag hafi 94
verið skráðir atvinnulausir á
Akureyri, 78 karlar og 16 konur.
Atvinnuleysisdagar í desember
voru 1834. Gefin voru út 128
atvinnuleysisbótavottorð með
samtals 1234 bótadögum.
Nemendur í handmennt. Mynd: P.M.
Er fjármagni skipt milli skóla
án nokkurrar könnunar?
í Grunnskólanuin á Hvamms-
tanga eru nú 92 nemendur og
sex kennarastöður, sem sjö
kennarar fylla. Skólastjóri er nú
Eyjólfur Magnússon. Skólinn er
til húsa í skólahúsi, sem er fyrir
löngu orðið alltof lítið. Þar eru
aðeins þrjár kennslustofur og er
einnig kennt í geyinsluherbergi
og horni sem þiljað var frá einni
kennslustofunni. Engin aðstaða
er fyrir sérkennslu svo sem leik-
fimi, sund, handmennt, tón-
mennt og heimilisfræði. Leik-
fimi er nú kennd á gangi skól-
ans, sem bæði er þröngur og
kaldur yfir vetrarmánuðina.
Handmenntakennsla fer fram í
litlu eldhúsi og herbergi, sem
tilheyra húsvarðaríbúð í Félags-
heimilinu.
Eyjólfur Magnússon skólastjóri
sagðist ekki með nokkru móti skilja
þær forsendur, sem menntamála-
ráðuneytið gefur sér í uppbyggingu
skólahúsnæðis. Þar virtist fjár-
magni skipt án undangenginnar
könnunar á húsnæðisþörf og dæmi
væru um það, að vel útbúnir skólar
fengju fjárveitingar langt umfram
það er algjörlega vanbúnir skólar
fengju. Þörfin virtist litlu skipta og
þær óskir sem fram væru bornar af
sanngirni fengju sömu afgreiðslu
og óhófskröfur, eða niðurskurð um
50-60%.
Enn fremur sagði hann að í dag
væri lausnarorð í uppbyggingu
skóla, Fjölbrautarskólar, en til lítils
væri að byggja þá ef grunninn vat-
aði, þ.e. þeir skólar sem skila ættu
nemendum til Fjölbrautar væru
svo sveltir á fjárlögum að þeir gætu
ekki rækt sínar skyldur sem skyldi.
Nefndi hann sem dæmi skólann á
Hvammstanga, sem væri löngu tal-
inn fullbyggður, að á skólalóð hans
væri ekki eitt einasta leiktæki né
nokkur aðstaða fyrir nemendur. í
raun væri skólalóðin aðeins afgirt-
ur melur, sem varla þætti mönnum
bjóðandi væri þetta í Reykjavík.
Skólahúsnæðið sjálft sagði hann
vera í notkun frá klukkan 8 að
morgni til klukkan 22.30 hvern
virkan dag vikunnar.
Sagði hann að öll sú aðstaða til
félagslífs sem í skólanum væri
hefðu nemendur og kennarar í
(Framhald á bls. 7).
Fyrsta verkefnið hjá L.A. í vetur:
Skáld-Rósa
Æfingar hafa nú staðið yfir á
„Skáld-Rósu“ hjá Leikfélagi
Akureyrar síðan í byrjun des-
ember og stefnt er að því að
frumsýna verkið föstudaginn 6.
febrúar. Leikstjóri er Jill Brook
Ámason, leikmynd eftir Stein-
þór Sigurðsson og búninga gerði
Freygerður Magnúsdóttir.
Leikendur eru 17 í 23 hlutverk-
um. Með titilhlutverkið fer Sunna
Borg og aðrir í aðalhlutverkum eru
Gestur Jónasson, sem leikur Nat-
han Ketilsson, Theódór Júlíusson
leikur Ólaf, mann Rósu,
Guðmundur Sæmundsson leikur
Pál Melsted, sýslumann, Heimir
Ingimarsson leikur Björn Blöndal,
sýslumann, og Þórey Aðalsteins-
dóttir leikur Agnesi. „Skáld-Rósa“
er eftir Birgi Sigurðsson.
£7
'[X /7\T "X— ííl r > DÍ|
lii Itt. Uu * - JU
0 Hjálparsveit
skáta 10 ára
Á laugardag í síðustu viku
héidu félagar í Hjálparsveit
skáta upp á 10 ára afmæli
sveitarinnar. f tilefni af af-
mælinu gáfu skátarnir út, í
samvinnu við Dag, blað sem
prentað var í blaðapressu
Dags í P.O.B. Áður hefur
íþróttafélagið Þór notfært sér
þá möguleika sem blaða-
pressan hefur upp á að
bjóða.
0 Annasamt
hjá lögreglu
f gær var slæmt færi á Akur-
eyri, víða í úthverfum mátti
heita með öllu ófært. Dagur
hafði fregnir af því að lög-
regla bæjarins hefð) staðið í
ströngu allan liðlangan dag-
inn, en allt of margir öku-
menn ana af stað á bílum
sínum án þess að bílarnir séu
hæfir til vetraraksturs.
0 Slæmt
ástand í
orkumálum
Váleg tíðindi berast að sunn-
an frá þeim sem orkumálum
ráða. Stöðugt er verið að
minnka framleiðsluna og all-
ar diselvélar landsmanna
sem geta framleitt rafmagn
eru látnar ganga. Nú er fyrir-
huguð herferð í fjölmiðlum
og á m.a. að kenna almenn-
ingi að spara rafmagn. Þetta
ástand færir okkur heim
sanninn fyrir því að það verð-
ur að virkja hér fyrir norðan
og því fyrr — því betra. Menn
verða að setja einkahags-
muni til hliðar og sameinast í
því að fá næstu stórvirkjun
landsmanna byggða á Norð-
urlandi.
0 L.A. að hefja
starfsemi
í byrjun næsta mánaðar mun
L.A. sýna leikritið Skáld-
Rósu, sem er fyrsta verkefni
félagsins í vetur. E.t.v. eru
næstu mánuðirnir próf-
steinninn á það hvort hér
verður atvinnuleikhús næstu
árin.
0 Margir sóttu
um vinnuna
Fyrir skömmu auglýsti út-
gerðarmaður eftir háseta á
bát sinn fram til vors. Síðan
hefur útgerðarmaðurinn ekki
haft frið fyrir mönnum sem
vilja ólmir og uppvægir ger-
ast hásetar í nokkra mánuði.
Það var haft eftir útgerðar-
manninum að sér virtist at-
vinnuleysi hafa haldið innre-
ið sína á Akureyri ef dæma
mætti eftir fjölda um-
sækjenda.