Dagur - 29.01.1981, Blaðsíða 3
Myndlistarskólinn
"Þeir, sem hafa grillað med
Gaggénau glóðaxgnlli,velja þad
fiekar envióarkolagrill!,;
Gaggenau, er eitt orö yfir frábœrt heimilistœki,
sem eru gifuriega eftirsótt erlendis og hérlendis.
Vinsældir Gaggenau byggjast m.a. á sérlega
vönduöum bakarofnum og glóöargrillum, seró
hafa sömu eiginleika og viöarkolagrill.
Gaggenau heimilistæki til innbyggingar eru öii
meö loftblástursbúnaöi fyrir heitan blástur, auk
þess sem þau hafa innbyggt grill (infrarautt).
Skoöaöu Gaggenau - einhverntima kemur aö
því, aö þú fáir þér tæki, sem eru samboöin eld-
húsinu þínut
AKURVÍK
GLERARGÖTU 20 — 600 AKUREYRI -
////;/ ////.)/// >/■ / /',
///// z/
chool ot fme aris
//°,
/7/ // //’//
Námskeið
innritun í Myndlistaskólann hefst miðvikudaginn
21. janúar.
I. TEIKNUN OG MÁLUN FYRIR BÖRN OG
UNGLINGA.
II. TEIKNUN OG MÁLUN FYRIR FULLORÐNA.
III. GRAFÍK.
IV. TAUÞRYKK.
V. MYNDVEFNAÐUR FYRIR UNGLINGA.
VI. QUILTING.
VII. LETRUN.
VIII. LISTASAGA.
Innritun fer fram í skrifstofu skólans Glerárgötu
34, 4. hæð kl. 16-19. Sími 24958.
Skólastjóri.
Síðustu innritunardagar.
Hafið þið litið inn í Vöruhús
K.E.A.
því við
vorum að taka upp nýjar vör-
ur
í Skódeild og Vefnaðarvörudeild
Svo sem stórglæsilegt úrval af fínum
kvenskóm og kvenkuldastígvél, einnig
einstaklega fallegan barnafatnað, barna-
húfur, dömupeysur, síðbuxur og m. m. fl.
Geta hvorki greitt laun
né leyst út pantanir
— Óvíst hvort grafíknámskeið geti hafist vegna f járskorts
Forráðamenn Myndlistarskól-
ans á Akureyri hafa unnið að því
um nokkurt skeið að koma upp
fullkomnu grafikverkstæði í
húsnæði skólans. Áætlað hafði
verið að hefja námskeið í grafík
þann 4. febrúar, en nú bendir
flest til þess að námskeiðinu
seinki um ótiltekinn tima því
skólayfirvöld hafa enga fjár-
muni til að leysa út úr pósthús-
inu vörur sem átti að nota á
námskeiðinu. Fjárhagsvandræði
skólans hafa einnig komið fram
í því að ekki hefur reynst unnt að
greiða öllum kennurum skólans
laun á réttum tíma og að sögn
Helga Vilberg, skólastjóra, hef-
ur þetta komið sér ákaflega illa
fyrir marga starfsmenn skólans.
„Ég sé ekki fram á annað en
ástandið verði svipað áfram nema
að framlag bæjarins hækki mikið
frá því sem nú er,“ sagði Helgi Vil-
berg í samtali við DAG. „Af þess-
um sökum hef ég ekki þorað að
ráða þann fjölda kennara sem ég
hef í rauninni þurft að hafa vegna
aðsóknar fólks að skólanum.“
í haust innrituðust 200 nemend-
ur í Myndlistarskólann og um
þessar mundir stendur yfir innritun í
skólann. Helgi sagði að áhugi bæj-
arbúa fyrir þeirri starfsemi sem fer
fram í skólanum væri mjög mikill. í
skólanum er m.a^ fornámsdeild,
þar sem eru nemendur sem síðar
geta farið beint í sérnámsdeildir
M.H.Í. „Það yrði leitt til þess að
vita ef ekki yrði framhald á þessari
starfsemi, og annarri sem fyrirhug-
að var að koma á fót, en líkur benda
til þess að óbreyttum stuðningi frá
ríki og bæ. Vilja menn það,“ spurði
Helgi Vilberg að lokum.
Kvenfélagið Framtíðin, vill
minna á minningaspjöld fé-
lagsins. Þau eru til sölu í
Skemmunni, Blómabúðinni
Lilju, Dvalarheimilinu Hlíð,
Dvalarheimilinu Skjaldar-
vík og hjá Margréti Krauer
Helgamagrastræti 9. Allur
ágóði rennur í elliheimilsi-
sjóð félagsins.
hefst föstudaginn 30. janúar.
Úrvals fatnaöur á góðu verði.
Gerið hagstæðustu kaup ársins
nú þegar!
OAGUa 3