Dagur - 10.02.1981, Qupperneq 4
IMGUE
Útgefandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamaður: ÁSKELL ÞÖRISSON
Augl. og afgr.: JÖHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Atvinnutækifæri
í sveitum
Eins og vart hefur farið fram hjá
mönnum, er nú samdráttur í hefð-
bundnum landbúnaðargreinum.
Samdrátturinn er þegar kominn í Ijós í
minnkandi mjólkurframleiðslu, en
nokkur óvissa er enn um framleiðslu
sauðfjárafurða. Vegna þessa eiga nú
margir bændur við mikla erfiðleika að
stríða og hætta á að vonleysi grípi
menn og fækka fari stórlega í sveitum
landsins, ef ekki verður brugðist við
fljótlega og reynt að skapa ný at-
vinnutækifæri í strjálbýlinu.
Mikill samdráttur í atvinnulífi í
strjálbýiinu hefur fyrr eða síðar erfið-
leika í för með sér fyrir fleiri en þá sem
þar búa, því frumframleiðslugrein-
arnar skapa óbeint mörg önnur störf.
Þá er til þess að líta, að atvinnuástand
í þéttbýli er ekki allt of gott um þessar
mundir og er nærtækast að geta
byggingaiðnaðarins í því sambandi.
Þéttbýlið er því ekki við því búið að
taka við fjölda fólks úr sveitunum.
Af þessu má sjá, að mjög er nú
brýnt að flýtt verði athugunum á því,
hvernig fjölga megi atvinnutækifær-
um í strjálbýlinu. Stefnumótun í því
máii má ekki dragast mikið lengur.
Rætt hefur verið um ýmsar leiðir, svo
sem að efla loðdýrarækt og fiskirækt,
skógrækt og smáiðnað, en þegar
hliðsjón er höfð af því sem hér hefur
verið sagt um atvinnutækifæri í sveit-
unum er Ijóst, að ekki er sama hvernig
að þessari uppbyggingu er staðið.
Hafa verður að leiðarljósi, að auka
starfsmöguleika þeirra sem í strjál-
býlinu búa og gjalda verður nokkurn
varhug við því, að peningamenn sölsi
undir sig þessar atvinnugreinar,
þannig að þær nýtist ekki sem skyldi
til að vega upp á móti samdrætti í
hinum hefðbundnu búgreinum.
Hjörleifur
og kommarnir
Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráð-
herra, skrifar athyglisverða grein í
málgagn sitt, Austurland, á dögunum.
Hann fjallar þar um spurningakeppni
um Sovétríkin sem blaðið hefur efnt til
fyrir lesendur sína á aldrinum 12-15
ára. Verðlaunin eru ferð fyrir tvo til
Sovét næsta sumar. Blaðið hefur
vegna þessa m.a. samvinnu við MIR,
Félagið Sovétríkin-I'sland og sovésku
ferðaskrifstofuna Spútnik. Hjörleifur
segir í grein sinni:
„Satt að segja hélt ég að íslenskir
sósíalistar hefðu fengið sig fullsadda
á utanstefnum austur fyrir járntjald og
óþarfi að draga saklaus ungmenni inn
íþá myllu.. . . Mér þykir meira en lítið
athugavert að sjá Austurland lagt
undir áróðursherferð fyrir Sovétríkin
með tilheyrandi vinarhótum.“
Öðruvísi mér áður brá. Það er ekki
seinna vænna að klippa á tengslin við
Sovét, enda er við því að búast að
Sovétmenn fari að láta til skarar
skríða gegn verkfallsmönnum í Pól-
landi, sem eiga samúð alls heimsins,
nema e.t.v. kommúnistanna í Alþýðu-
bandalaginu. Engan skyldi undra þó
vinstra fylgið í Alþýðubandalaginu
hryndi nú af því í enn ríkara mæli en
verið hefur undanfarið.
Jónas Halldórsson:
Bní yfir Eyjafjarðará
Eyfirðingum margt
betur gefið en
heimtufrekjan
Langt er liðið síðan farið var að
tala um nauðsyn þess að brúa
Eyjafjarðará á bilinu frá
Stokkahlöðum að Hrafnagils-
skóla eða þar um bil. En önnur
sjónarmið þóttu ráðamönnum
þá brýnni og ekki væri hægt að
sinna öllu í einu.
Og af því Eyfirðingum er
margt annað betur gefið en
heimtufrekja og kröfur um sitt
af hverju þeim til handa, þá
hljóðnaði uni þetta þarfa mál í
bili, en alltaf var mikill áhugi
fyrir því beggja megin ár.
Og margan krókinn er oft
búið að aka, þegar menn þurftu
að hittast sem bjuggu sitt hvoru
megin og hefir það mjög farið í
vöxt nú síðari ár.
Mikil þörf á greiðari
samgöngum
Nú eru að myndast þéttbýlis-
kjarnar við Hrafnagil að vestan,
þar sem hinn myndarlegi ung-
mennaskóli er risinn, ásamt
mörgum húsum, sem sum eru
tengd honum að meira eða
minna leyti. Austan ár í kring
um prestsetrið og hitaveituna á
Laugalandi er ört vaxandi
byggð. Þar er Kvennaskólahús-
ið, sem eitt sinn var og hét og
bíður nú eftir að verða tekið í
þarfir einhvers góðs málefnis,
sem verður áreiðanlega fyrr eða
seinna.
Þar er einnig ágæt sundlaug,
sem eins er hægt að nota á
vetrurn, því góður er hitinn.
Þarna við brekkurætur er
íþróttavöllur, sem æska sveitar-
innar notar mikið yfir sumarið.
Af þessu sést að þarna er
mikil þörf á greiðari samgöng-
um niilli þessara staða.
Auk þessa þarf Hitaveita
Akureyrar að koma heita vatn-
inu, sem fannst Hrafnagilsmeg-
in austur yfir í dælustöðina á
Laugalandi, til að það nýtist,
því þarf að leggja veg meðfram
leiðslunni brekknanna á milli,
þá vantar ekkert, nema brúna
yfir ána, til að komin sé sam-
gönguæð milli hinna blómlegu
byggða að vestan og austan.
Brúin mundi áreiðanlega
bera með góðu uppi hitalögnina
austur yfir. Þar fengist ódýr
leiðsla, sem kostaði sama og
ekkert móts við það, sem leiðsl-
an yfir ána undan Gili kostaði
forðum.
Ekki veit ég hvort verkfræð-
ingar kunna nú betri ráð til að
koma vatnslögn yfir Eyjafjarð-
ará, en þá var það talið best að
byggja marga stöpla, sem lögn-
in hvílir á. Þetta varð fokdýrt og
sumir efast um þetta sé nægi-
Iega öruggt fyrir jakaburði,
þegar áin ryður sig í asahlákum
á veturna með miklum hamför-
um.
Mér sýnist því, að nú ætti
ekki að leggja út í tvísýn
ævintýri með hitalögnina yfir
ána, heldur byggja góða brú,
sem þjónaði mörgum hlutverk-
um.
í raun og veru er hér aðeins
að ræða um mismuninn á verði
brúarinnar og því sem það
kostaði að koma hinu dýrmæta
heita vatni yfir ána án brúar, og
það yrði vissulega engin smá-
upphæð.
Sitthvað: Vegagerðin
og Hitaveitan?
Ég get ímyndað mér að ein-
hver segði að það væri sitthvað
Vegagerðin og Hitaveita Akur-
eyrar.
En bæði þessi fyrirtæki hafa
sínar tekjur frá landsmönnum.
Hitaveitan frá þeim sem kaupa
heitavatnið og Vegagerðin frá
skattgreiðendum landsins. Þess
vegna finnst mér það svo sjálf-
sagt, að þessi fyrirtæki hjálpist
að, að leysa þetta nauðsynja-
verk og væri það þeim til sóma.
Enda hefi ég heyrt, að ekkert
standi á góðri samvinnu þar.
Þegar þetta er allt athugað,
sýnist mér hér vera svo einstakt
tækifæri, ti! að fá langþráða
samgöngubót að það væri mik-
ið glapræði að láta sér ganga
það úr greipum.
Veginn þarf að leggja að og
Jónas Halldórsson.
frá ánni og mundi hann ekkert
verða ódýrari, þó aðeins væri
fyrir hitalögnina.
Gömlu brýrnar voru
byggðar 1923
líta.
sem
Á fleira er einnig að
Brýrnar yfir Eyjafjarðará,
byggðar voru 1923 eru að verða
mjög lélegar. Mér er sagt að
bannað sé að aka mjög þungum
hlössum yfir þær, og því verði
að beina þeim akstri fram á
Möðruvallabrú, ólíkt væri það
nú styttra að þurfa ekki nema
að Hrafnagili.
Enn er víst ekki á hreinu hvar
vegur og brú eða brýr verða
lagðar austur um frá Akureyri,
hvort það verður á Leirunum
eða framar, sitt sýnist hverjum.
Auðvitað þarf sú leið að opnast
og það fyrr en seinna, en á
meðan að togast er á um slíkt er
ekki að vænta mikilla fram-
kvæmda. Líklega líða einhver
ár þangað til að því verður, þó
þörfin sé brýn.
Skammsýni ef þetta
einstaka tækifæri
verður ekki notað
Að öllu þessu athuguðu, og
fleira mætti kannske tína til,
finnst mér það meira en lítil
skammsýni og hrein glópska, ef
ekki verður notað þetta ein-
stæða tækifæri til samgöngu-
bóta og hagræðis og byggð brú
hjá Hrafnagili á næsta sumri.
Eyjafjörðurinn, sem er ein-
hver blómlegasta og besta sveit
landsins, einkum framan Akur-
eyrar, á það sannarlega skilið að
eitthvað sé hlúð að honum.
Hitaveitan þarf
að fá vatnið
Eyfirðingar eiga marga og
góða þingmenn, og þó allir viti
að í mörg horn sé að líta nú á
dögum, trúum við því ekki, að
þeir sjái ekki færa leið að koma
þessu þarfa máli fram nú strax á
þessu þingi, því annars er tæki-
færið úr greipum gengið, því
Hitaveitan þarf að fá vatnið í
notkun á næsta sumri.
HVER ORTI
BÁRÐARDALSVfSUR?
Gönilu brýrnar eru orðnar lirörlcgar, enda byggðar fyrir nokkrum tugum ára. Mynd: E.D.
í bókaflóðinu fyrir síðustu jól
kom út bók, Ý msar verða æfirnar
eftir sr. Bolla Gústavsson í
Laufási. Hér verður ekki ritaður
neinn ritdómur um bókina, held-
ur farið nokkrum orðum um hver
muni vera höfundur Bárðardals-
vísna þeirra, sem sumarfóstra sr.
Bolla, Ólína á Hlíðarenda kenndi
honum og taldi Látra-Björgu
höfund þeirra, og það hafa fleiri
gert. En ýmsir aðrir hafa talið
Jakob Pétursson á Breiðumýri
höfund að vísunum. Hann hafi
ort þær um ferðalag Ingibjargar
gamallar og vanheillar og mál-
haltrar, um Bárðardal, var hún
víst þurftarkona hjá Jakobi.
Upphafsvísa bragsins er um upp-
haf ferðarinnar vestur yfir Fljóts-
heiði og er þannig:
Fljólsheiðar og flóan óð
fatalaus um daginn
svo var djúpt á saumaslóð
að sást ei nema hausinn.
Birtir sr. Bolli nokkrar vísur úr
bragnum, sem lýsa komu Ingi-
bjargar á bæina og veru hennar
þar. Allar eru vísurnar í sama yf-
irdrifna ýkjustílnum og fyrsta
vísan og öfugmæla, eins og í
Sandhaugavísunni:.......,Mús að
heyra mæðar orð, mörguni þótti
gaman.“ saman sett til að undir-
strika málhelti hennar.
Jakob á Breiðumýri hafði eitt
sinn tekið saman sjúkdómslýs-
ingu fyrir þessa sömu Ingibjörgu,
þar stóð:
Hlustarverkur, lijartveiki,
hósti svimi, afUeysi,
kláði, hrollur, kýlsýki,
kveisa, velgja, harðlífi.
Óneitanlega svífur hér líkur
andi yfir vötnunum og í Bárðar-
dalsvísunum. Nýlega var Jón
Friðriksson á Hömrum að rifja
upp fyrir mig ýmislegt sem faðir
Minning
Ólöf Guðmundsdóttir
Fædd 19. okt. 1894-Dáin 17. jan. 1981
í þessari grein ætla ég mér ekki að
rekja ævisögu Ólafar Guðmunds-
dóttur, enda yrði það efni í miklu
lengri grein. En á þessari stundu
langar mig til að minnast þeirra
kynna, sem ég hafði af Ólöfu.
Það var alltaf minnisstætt að
koma í heimsókn til hennar á
Fjólugötuna. Hún hvikaði aldrei
frá þeirri ró, æðruleysi og spaug-
semi, sem hún hafði tileinkað sér á
sinni löngu ævi. Ævinlega var ein-
hver kímnissvipur yfir . andliti
hennar, sem kom ósjálfrátt: þeim
sem heimsóttu hana í gott skap.
Hennar líf og yndi á seinustu ævi-
árunum var að fylgjast með öllum
afkomendum sínum. Iðulega sýndi
hún mér ljósmyndir af börnum,
barnabörnum og barnabarnabörn-
um sínum, sem hún fylgdist náið
með, þótt mörg þeirra byggju í
fjarska. Börnin hændust líka að
henni og undu sér vel í návist
hennar. Það voru einmitt afkom-
endur hennar, tveir ungir piltar,
sem staddir voru hjá henni, þegar
kallið kom. Þeir höfðu komið í
heimsókn til ömmu sinnar og
langömmu m.a. til að aðstoða hana
við að taka niður jólaskraut.
Nú skreytir Ólöf ekki oftar hús
sín fyrir jólin, en minningin um
hana mun orka á marga, sem jóla-
ljós í því skammdegi, sem nú rikir.
Þóra Sigurþórsdóttir.
hans Friðrik Jönsson á Helga-
stöðum, sem fæddur var á
Kraunastöðum og ólst þar upp og
bjó fyrst, hafði sagt honum. Eitt
var það, að eitt sinn kom í
Breiðumýri maður er Gísli
nefndist frekast úr Skagafirði um
föður getur eigi, en fékk síðar
nafnið Breiðumýrar-Gísli.
Hann sest að á Mýri, og er
vetrarmaður Jakoþs, en stundar
kaupavinnu að sumrum. Taldi
Friðrik að hann hafi eitt sinn
verið kaupamaður á Þverá, og sé
hann höfundur hinna alþekktu
Þverárvísna, þar sem kveðjuvísan
er:
Eg klofan brýt og bölv'onum,
i básúnu skýt og hrakvrðum.
Up mig slít með ósköpum,
úr helvíti og kvölunum.
Friðrik taldi vafalaust, að
Jakob og Gísli hefðu sett saman
braginn um ferð Ingibjargar um
Bárðardal. Taldi líka að Gísli
hefði gefið út sveitablað, sem
gekk um sveitina og hét Álfur,
hafði hann birt Imbu-braginn í
einu blaðinu, en þegar það kemur
í Breiðumýri, er sagt að Jakob
hafi rist braginn úr blaðinu.
Eftir því ætti Gísli að hafa sett
braginn í blaðið án vitneskju
Jakobs. Gísli þessi var smali á
Grenjaðarstað um 1880 eitt eða
fleiri sumur, eða líklega frekar að
hann hafi setið ærnar, því þá er
hann orðinn gamalmenni. En
einmitt þessi ár er Friðrik um
fermingu, og er smali á Krauna-
stöðum, svo samskipti hafa orðið
allmikil með Gísla og honum.
Mér var kunnugt um sveita-
blaðaútgáfu hér í sveit frá 1880 og
til 1886 sem var talsverð, en þessi
sveitablaðsútgáfa Gísla, sem
hlýtur að hafa verið allnokkru
fyrir 1880, var mér alveg ókunn.
En því miður eru þessi gömlu
sveitarblöð líklega öll tínd og
ónýt. Eftir því sem hér kemur
frarn, virðast allar líkur benda til
þess að Jakob á Breiðumýri og
Breiðumýrar-Gísli hafi lagt sam-
an í Ingibjargar ferðabraginu, og
jafnvel að Gísli hafi talið sig eiga
þar allvænan hlut.
Mér virðist að höfundarrétti
Jakobs og Gísla að ferðabragnum
verði varla hnekkt, nema fram
komi gamalt afrit, með öðrum
höfundi sem ekki er hægt að
hnekkja.
Og óhætt mun að afskrifa höf-
undarrétt Látra-Bjargar að þess-
um brag. En vísurnar: Bárðar-
dalur er besta sveit, Aum er Kinn
fyrir utan Stað, og Reykjadalur er
sultarsveit, eru vafalaust eftir
Björgu, enda er annar bragur á
þeim, og ekkert í sambandi við
hinar vísurnar.
2. febrúar 1981.
Vallakoti, 641 Húsavík,
Glúmur Hólmgeirsson.
Hvers eru mistökin á Kópaskeri?
„Hafnargerðurinn styttist", er frétt
á forsíðu Dags 13. jan. og er þar
átt við hafnargarð sem gerður var
sl. sumar á Kópaskeri. Þetta er í
annað sinn á stuttum tíma sem
kaupfélagsstjórinn, Ólafur Frið-
riksson, finnur hjá sér þörf til að
ófrægja þessa framkvæmd sem við
sjómenn höfum lengi beðið eftir.
Áður en þessi garður kom í
sumar, var ástandið hér við
bryggjuna vægast sagt slæmt ef
eitthvað verulegt veður gerði af
vestri eða norðvestri og varð þá oft
að vera um borð í bátunum
klukkutímum saman til að reyna að
forða þeim frá skemmdum. Eigum
við sjómenn ófáar vökunætur urn
borð í bátum okkar undanfarna
vetur. Svo hefur hins vegar brugðist
við í vetur að ekki höfum við þurft
að vera eina einustu klukkústund
um borð af þeim sökum, það sem
af er vetri og það þótt veður hafi
verið með afbrigðum slæmt síðan
urn miðjan nóvember og hvert
norðvestan stórviðrið gert á fætur
öðru.
Fjárveiting til þessa verks var
mun minni á síðasta ári en vonast
hafði verið eftir, en vegna mjög
eindreginna óska heimaaðila
fékkst lán til að koma garðinum í
það horf að hann gerði gagn í vetur.
Sú fullyrðing Ólafs að verkstjórinn
hafi ekki viljað nota stórt grjót, sem
til hafi verið, er ekki svara verð.
Það rétta er að spurningin var urn
hvort nota ætti viðbótarféð til að
koma grjóti sem hlíf á garðinn,
grjóti sem til var á staðnum eða
sprengja stærra grjót sem þá hefði
aldrei komist til nota í garðinn sl.
sumar og þar með hefði hann eng-
um orðið að notum í vetur.
Það var flestum ljóst að þessi
framkvænid sl. sumar var ekki
endanleg, enda hefur garðurinn
riðlast til og sigið undan ágangi
sjávar en stendur þó enn fyrir sínu
þótt mikið hafi á honum mætt í
vetur, ekkert skarð hefur komið í
garðinn, hann hefur ekki styttst og
hann er ekki horfinn, nema þá þeini
sem vilja ekki sjá.
Vonandi telja ráðamenn þessi
skrif Ólafs aðeins vera „mistök“ því
svona fréttaflutningur er aðeins til
að skemma fyrir þeim sem þarna
eiga hagsmuna að gæta með frekari
framkvæmdir næsta sumar.
A uðunn Benediktsson,
Guðmundur Óskarsson,
Óskar Óskarsson,
Sigurður Óskarsson,
Baldur Guðmundsson.
Góður árangur akur-
eyrsku sveitarinnar
Unglingameistaramót ís-
lands í sundi var haldið í
Reykjavík dagana 31. jan. og
1. febr. Aðeins er keppt í ein-
um aldursflokki 16 ára og
yngri á þessu móti bæði pilta
og stúlkna.
Óðinn sendi fimm pilta á
mótið og stóðu þeir sig með
sóma. Haraldur GuðmundssQn
náði bestum árangri piltanna,
hann varð annar í 200 m.
bringusundi og einnig í 100 m.
baksundi, en fjórði í 100 m.
bringusundi. Ólafur Árnason
varð fimmti í 200 m. bringu-
sundi. Báðir piltarnir eiga eftir
ár í flokknum svo að miklar
vonir eru bundnar við þá á
næsta ári.
Piltasveit Óðins stakk af
rnarga skæða keppinauta í 4x50
m. skriðsundi og 4x50 m. fjór-
sundi. Sveitin varð í 3. sæti í
skriðsundinu af lOsveitum sem
kepptu og setti hún nýtt Akur-
eyrarmet í piltaflokki (tími
2:02,7 mín. ganila metið 2:07,0
mín.) Sveitin varð einnig í 3.
sæti í fjórsundinu á tímanum
2:27,4 mín. (gamla metið var
2:34,0 mín.) 11 sveitir tóku þátt í
fjörsundinu. Aðeins Sund-
félagið Ægir og f.B.V. urðu á
undan sveit Óðins í báðum
sundunum.
Sveit Óðins skipuðu: Har-
aldur Guðmundsson, Ólafur
Árnason, Hermann Karlsson og
Eiríkur Jóhannsson.
Tvö stig
Akureyrarmótið
Þór og K.A. leika saman í
Akureyrarmótinu n.k.
fimmtudagskvöld kl. 20.
Þór
KA
maí?
Búið er að draga um það hvaða
lið fyrstu dcildar Ieiði saman
hesta sína í knattspyrnunni í
vor.
Ákveðið er að fyrsta um-
ferðin fari fram 9. maí og þá
eiga in.a. að leika saman Þór
og KA. Líklegt er að reynt
verði að fá þessum leik frestað
þar eð grasvöllurinn verður
örugglega ekki kominn í not-
hæft ástand. í næstu umferð
þar á eftir á KA heimalcik á
móti Akranesi en Þórsarar
sækja Vestmanneyinga heini.
Á föstudagskvöldið léku í
fyrstu deild í körfubolta Þór
og Skallagrímur frá Borgar-
nesi, og var þetta fyrri
heimaleikur Þórs í þessari
umferð. Auglýst hafði verið
að þetta yrði einvígi þeirra
Garrys hjá Þór og Dakasta
Vebster eða Spóanum hjá
Skallagrími, en báðir þessir
leikmenn settu að sjálfsögðu
mikinn svip á leikinn.
Skallagrímur byrjaði betur og
komust þeir fljótlega í 5-0, en
skömmu síðar tókst Þórsurum
að jafna 7-7. Þá tóku Skalla-
grímsmenn aftur forustu og
héldu henni það sem eftir var
hálfleiksins, en þá höfðu þeir
gert 43 stig en Þór 36.
Eftir leikhlé mættu Þórsarar
tvíefldir til leiks og fóru nú að
leika maður á niann með mjög
góðum árangri og þegar búið
var að leika í fimm mín. af síð-
ari hálfleik var staðan orðin
jöfn, 53-53. Síðan sigu Þórsarar
framúr og juku smám sanian
forskot sitt og þegar flautað var
til leiksloka hafði Þör gert 87
stig en Skallagrímur 78.
Eiríkur stóð sig mjög vel hjá
Þór, og var þeirra besti maður í
þessum leik, en hann þurfti að
yfirgefa völlinn með fimm stig
þegar tvær mín, voru eftir af
leiknum. Eftir þetta tap eru
Borgnesingar í bullandi fall-
hættu í deildinni, en þeir
berjast um fallið ásamt Grind-
víkingum. Gary var stigahæstur
Þórsara með 34 stig, Eiríkur
gerði 19, Sigurgeir 10. Alfreð 14,
Erlingur 7 og Þórhallur 2. Dak-
asta Vebster eða „Spóinn" hjá
Skallagrími var stigahæstur
Fyrri leikur:
Þór: 87
Skallagrímur : 78
Seinni leikur:
Þór: 75
Skallagrímur: 88
þeirra með 30 stig. en liann hirti
einnig langflest fráköst í þessuni
leik. Dómarar voru Hörður
Tuliníus og Rafn Benediktsson
og dænidu þeir ágætlega.
í síðari leiknuni náðu Þórsar-
ar forustu til að byrja með, en
rétt fyrir lok fyrri hálfleiks
koniust Borgnesingar yfir. og
liéldu því það sem eftir var
leiksins. Gary þurfti að yfirgefa
völlinn nieð fimm villur uni
miðjan síðari hálfleik. og eftir
það var sigurinn Skallagrími
auðveldur. Lokatölur urðu 88-
75 fyrir Skallagrím, og ef til vill
nægja þessi stig til að halda lið-
inu í deildinni.
Sundmeistaramót Islands:
F.v.: Hermann Karlsson, Haraldur Guðmundsson, Ólafur Árnason og Eiríkur Jóhannsson.
4•DAGUR
DAGUR•5