Dagur - 26.02.1981, Blaðsíða 1

Dagur - 26.02.1981, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR • SIGTRYGGUR & PÉTUR ' AKUREYRI 64. árgangur wmmmmmmmmmmammmmmmmmmmmmmmKmmmmmm Akureyri, fimmtudagur 26. febrúar 1981 16. tölublað Samið við fóstrur Um klukkan fjögur aðfararnótt s.l. miðvikudags tókst sam- komulag í deilu fóstra og bæjar- ráðs, en eins og kunnugt er hættu fóstrur störfum s.l. föstu- dag og mættu þvi ekki til vinnu á mánudagsmorgun. Bæjarráð samþykkti samkomulagið með fyrirvara um samþykki bæjar- stjórnar, en fóstrur gerðu engan slíkan fyrirvara og hófu vinnu á nýjan leik á hádegi í gær. Sam- kvæmt þeim upplýsingum, sem blaðið aflaði sér ríkti ekki ein- hugur meðal fóstra um sam- komulagið, en þær munu hafa talið að ekki tækist að ná meiru fram að sinni. Eftirfarandi samþykkt var gerð á næturfundinum: „Kjaranefnd STAK og bæjarráð Akureyrar gera með sér svohljóðandi samkomulag um launakjör fóstra hjá Akureyr- arbæ: 12. launaflokkur: Fóstrur. 13. launaflokkur: Fóstrur með eins árs starfsaldur. 14. launaflokkur: Fóstrur með 6 ára starfsaldur. Að- ilar eru sammála um að fóstrur, sem störfuðu hjá Akureyrarbæ skuli endurráðnar til sinna fyrri starfa ef þær óska þess og halda sínum áunnu réttindum eins og um óslitið starf hafi verið að ræða. Samkomulag þetta gildir frá og með deginum í dag og til sama tíma og núgildandi sérkjarasamningar milli STAK og Akureyrarbæjar.“ Aðrir í kjölfarið? „Það er Ijóst að fóstrur fengu sínu fram og gáfu raunar ekk- ert eftir. Bæjaryfirvöld stóðu frammi fyrir því að barna- heimilin yrðu lokuð um ófyrir- sjáanlegan tíma, ef ekki yrði samið, því fyrir flestar þeirra virðist það ekki hafa verið spurning um afkomu, hvort þær hættu að vinna eða ekki,“ sagði Helgi Bergs, bæjarstjóri, í tilefni samninganna við fóstrur. Hann sagði að fóstrum væri enn grunnraðað í 12. launaflokk, eins og lögð hafi verið mikil áh- ersla á af hálfu bæjaryfirvalda. Hins vegar væri verklegt nám þeirra metið sem eins árs starfs- reynsla, þannig að allar fóstrur sem ráðnar væru til Akureyrar- bæjar færu í 13. launaflokk. „Þetta fór ekki eins vel og við hefðum kosið, enda óttast ég og þykist nærri fullviss um það, að aðrir hópar komi í kjölfarið og reyni eitthvað svipað," sagði Helgi Bergs. Foreldrar barna í dagvistunarstofnunum Akureyrar fjölmenntu í bæjarstjórnarskrifstofumar sl. þriðjudag og kröfðust þess að bæjarráð, scm sat á fundi, tæki þegar fyrir uppsagnir fóstra og gcngi að kröfum þeirra. Hér er citt foreldrið að afhenda Helga M. Bergs bæjarstjóra bréf með kröfum foreldranna. Mynd: á.þ. Lausn í sjónmáli Flest bendir nú til þess að Þórs- hafnar- og Raufarhafnarbúar fái togarann umrædda, því eftir því sem næst verður komist mun STÓLALYFTAN OPIN TVÖ KVÖLD Endanlegri viðgerð á stólalyft- unni í Hlfðarfjalli verður lokið fyrir næstu helgi og verður þá búið að gera við alla stólana sem skemmdust í óviðrinu á dögun- um og koma þeim fyrir á ný. Viðgerð á sjálfri lyftunni lauk síðasta föstudag og var hún notuð um helgina, þó að nokkra stóla vantaði. Vegna þessa er nú hægt að hafa stólalyftuna opna tvö kvöld í viku, eins og ráðgert hafði verið áður en lyftan bilaði. Verður hún opin á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum til klukkan 22 og veitingasala Skíðastaða verður einnig opin sömu kvöld. Um framhaldið fer eftir því hvernig aðsóknin verð- ur. Skíðaskóli Skíðastaða nýtur sí- vaxandi vinsælda, en hann er starfræktur með tveimur föstum kennurum auk fimm manns sem hægt er að grípa til. Kennsla Félagsráðsfundur K.E.A.: stendur frá klukkan 10 á morgnana til klukkan 22 á kvöldin og er fjór- skipt með smáhléum á milli. Þann- ig er fyrsta námskeiðið frá kl. 10- 12, annaðfrá 14-16, þá frá kl. 17-19 og síðasta námskeiðið er frá klukk- an 20-22. Mjög góður skíðasnjór er nú í fjallinu og mun betri en verið hefur undanfarna tvo vetur. Þrátt fyrir þetta góða skíðafæri hefur það sem af er verið heldur minni aðsókn en á sama tíma í fyrra og hefur um- hleypingasöm veðrátta vafalaust haft mest áhrif þar á. samkomulag hafa náðst í ríkis- stjórninni um málið. Málinu var frestað til ríkisstjórnarfundar í dag, en þá átti að taka ákvörðun. Margt og mikið hefur verið sagt og ritað um þetta mál og að sögn Guðmundar Bjarnasonar, al- þingismanns, er engu líkara en þetta sé eini togarinn sem verið sé að kaupa eða byggja fyrir Islend- inga og jafnframt sá eini sam hafi erfiðan rekstrargrundvöll og sem veiði þorsk frá öðrum togurum. Guðmundur sagði að Þórhafnar- búar og Raufarhafnarbúar væru ekkert annars flokks fólk, sem þyrfti að sætta sig við annars flokks skip og skipið væri ekki dýrara en eðlilegt væri. Varðandi þátt þingmanna kjör- dæmisins sagði Guðmundur, að þeir hefðu reynt að fylgja eftir og styðja kröfur heimamanna um (Framhald á bls. 7). Helgar-Dagur kemur út á morgun. Nýr umsjónarmaður hefur tekið við blaðinu, Jón Gauti Jónsson, kennari. Meðal efnis í blaðinu má nefna frásögn Bjargeyjar Ingólfsdóttur af Drake-leið- angrinum, vísnaþátt eftir séra Hjálmar Jónsson frá Sauðár- króki, grein eftir Þorvald Þor- steinsson, heimsókn í Hús- stjórnarskólann, grein um stofnanamál eftir Hák, um „grasflatarstefnuna" eftir Helga Hallgrímsson, grein og viðtal um nýlist og Rauða-húsið eftir Helga Vilberg og íþróttapistill eftir Sigbjörn Gunnarsson. Forsiðumyndin að þessu sinni er eftir Jón Bjarna Bjarnason, kennara við Mynd- listaskólann á Akureyri. ÁRK> 1980 - ÁR MIKILLA FJÁRFESTINGA „Árið 1980 var ár mikilla fjárfest- inga hjá félaginu, auk þess sem velta og umsvif voru mjög mikil. Veltuaukning var að vísu ekki nægjanlcg miðað við þróun rekst- urskostnaðar og kemur þar margt til. Samkeppni á verslunarsviði hef- ur aukist jafnframt þvi sem kaup- máttur ahnennings virðist hafa dregist saman á Eyjafjarðarsvæð- inu. Mjólkurframleiðsla minnkaði stórkostlega og sauðf járframieiðsla minnkaði einnig, en hvorttveggja leiddi til minnkandi veltu hjá félag- inu, bæði beint og óbeint. Miðað við allar aðstæður má þó fullyrða að félagið hafi haldið hlut sínum allvel og er þess fastlega að vænta, að Eyfirðingar haldi áfram að fylkja sér um samvinnufélag sitt, Kaup- félag Eyfirðinga sem óumdeilan- lega hefur reynst mikill hyrningar- steinn í efnahagslífi héraðsins.“ Þetta voru lokaorð Vals Arnþórs- sonar í skýrslu þeirri sem lögð var fyrir félagsráðsfund K.E.A., sem haldinn var í gær. I skýrslunni kemur fram að flestar sölu- og rekstrartölur eru bráðabirgðatölur, þar sem uppgjöri ársins 1980 er ekki lokið. Því er ekki hægt að greina frá endanlegri rekstursútkomu ársins, og verður það að bíða aðalfundar í vor. Vörusala helstu deilda og fyrir- tækja félagsins í verslun iðnaði og þjónustu jókst um 53,4%, 'sem er óhagstætt hlutfall þegar þess er gætt, að launakostnaður hjá félag- inu jókst um 64,2%. Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri voru verkleg- ar framkvæmdir og fjárfestingar á árinu 1980 samt. gkr. 1.403.148.845, þegar frá hafa verið dregnar eignir, sem seldar voru frá Fóðurvöru- deild KEA til Fóðurvörudeildar KEA og KSÞ s/f. Meginþorri framkvæmdanna á Akureyri var í þjónustumiðstöðvum fyrir allt félagssvæðið, þannig að þær til- heyra ekki Akureyri sérstaklega. Má þar sérstaklega nefna nýbygg- ingu Mjólkurstöðvarinnar. Um fjárfestingarþörf 1981 og næstu ára segirorðrétt i skýrslunni: „Þrátt fyrir hinar gífurlegu fjár- festingar, sem félagið hefur ráðist í á nýliðnum áratug, virðast fjárfest- ingarverkefnin framundan næsta óþrjótandi. Gerð hefur verið sam- antekt, sem sýnir fjárfestingarþörf á næstu árum samtals að upphæð ca. Nýkr. 25.000.000, eða Gkr. 2.500.000.000, og er þá fjölmargt undanskilið. Inni í þessari áætlun er t.d. ekki endurnýjun Hótel KEA, bygging verslunarhúsa á Dalvík og Grenivík, né heldur endurbætur í húsnæði og aðstöðu fyrir Bygg- ingavörudeild félagsins á Akureyri. Ennfremur hefur framtíðarstækk- un Sláturhússins á Akureyri. svo og Kjötiðnaðarstöðvarinnar, ekki ver- ið tekin með í fyrrgreindri saman- tekt. Á stjórnarfundi í síðasta mánuði samþykkti stjórn félagsins fjárfest- ingar á yfirstandandi ári að fjárhæð Nýkr. 7.732.000, en jafnframt var ákveðið að athuga um frekari fjár- festingar með hliðsjón af því láns- fjármagni, sem hægt yrði að fá. Fjárfestingarmálin verða því til endurskoðunar þegar kemur fram á vorið.“ Valur Arnþórsson ávarpar fundarmcnn á félagsráðsfundinum. Mynd: á.þ.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.