Dagur - 26.02.1981, Blaðsíða 6

Dagur - 26.02.1981, Blaðsíða 6
Hálsprestakall. Aðalfundur æskulýðsfélagsins verður á Hálsi sunnudaginn I. mars kl. 13.30. Rætt um Vest- mannsvatnsferð. Stjórnin. I.O.O.F. 2 — 1622278 'h — 9 = II St.:. St.:. 59812277—VII—5 Aðalfundur Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á Akureyri og ná- grenni, verður haldinn í Bjargi fimmtudaginn 26. febrúar og hefst kl. 20.00. Dagskrá samkvæmt félags- lögum. Stjórnin. Nýja bíó sýnir í kvöld kl. 9 myndina Sjómenn á rúm- stokknum sem er ein af hin- um gáskafuliu og djörfu rúmstokksmyndum. Næsta mynd verður í baráttu við kerfið sem James Caan í aðalhlutverki. Myndin lýsir atburðum, sem raunveru- jega gerðust í Bandaríkjun- um árið 1967, nánar tiltekið í Buffalo í New York. Thomas Hacklin og Ruthie voru skilin, en höfðu eignast tvö börn í hjónabandinu. Ruthie hélt börnunum, en Tom sem unni þeim mjög, heimsótti þau oft. Og hann Filadelfía, Lundargötu 12. Ruthie var uti að skemmta Fimmtudag 26. febrúar kl. 20.30, Biblíulestur. Sunnu- dag 1. mars kl. 11.00, sunnudagaskóli og kl. 17.00, kynnir Guðmundur Ómar Guðmundsson starfsemi Gidionfélagsins. Allir hjart- anlega velkomnir. Ath. breyttan samkomutíma á sunnudögum. Filadelfía. Akureyrarkirkja messað kl. 2 e.h. sunnudaginn 1. mars. Almennur æskulýðsdagur kirkjunnar. Gunnar Matthí- asson menntaskólanemi predikar. Unglingar aðstoða í messunni. Messuskrá Ungu kirkjunnar og sálmar nr. 10, 63, 52, 11,6. Óskað eftir þátttöku fermingarbarna og foreldra. Allir velkomnir yngri sem eldri. Eftir messu er kirkjukaffi kvenfélagsins í kapellu. P.S. AUGLÝSIÐ í DEGI sér. Eitt sinn þegar Tom ætlar að heimsækja börn sín, eru þau horfin og einnig Ruthie, móðir þeirra. Eng- inn veit hvert þau fóru, og lögreglan segist ekki geta aðstoðað Tom í leit að þeim. Flóamarkaður í Glerárskóla sunnudaginn 1. mars kl. 15-19. Eitthvað fyrir alla, konur og karla og krakkana fyrir öskudaginn. Kvenfé- lagið Baldursbrá. Borgarbíó sýnir í kvöld kl. 9 myndina Landamærin með Telly Savalas í aðalhlut- verki. Frank Cooper er landamæravörður, harður og óvæginn, en sanngjarn og heiðarlegur. Hann er stað- settur á landamærum Max- ico og Bandarikjanna, sól- bökuðu og gróðurlausu landi. Frank er vel kunnugt um hina silspikuðu og vell- auðugu náunga sem stjórna aðgerðum þarna, taka að sér, fyrir okurgjald, að smygla atvinnulausum og snauðum Mexikönum yfir landamærin þarsem þeim er lofað gulli og grænum skóg- um, og syo allt eiturlyfja- smyglið. Hann hatar þessa náunga og vill útrýma þeim, en þar er við rammann reyp að draga. Kl. 11 sýnir bíóið myndina Valsinn sem er hispurslaus, frönsk litmynd um léttúð og lausakaup í ástum. Búlgaríukvöld á Akureyri Á öskudaginn, þann 4. mars, kemur hópur Búlgara til Akur- eyrar á vegum Ferðaskrifstofu Kjartans Helgasonar og Sjálf- stæðishússins, þar sem þeir munu skemmta bæjarbúum og nágrönnum. Sem dæmi rná nefna þjóðdans- ara, hljómlistarfólk, sjónhverfinga- meistara og matreiðslumenn, sem annast munu matargerð kvöldsins, á búlgarska vísu. Þessir listamenn munu vera þeir fyrstu sem koma með slíkar kynningar hingað til Akureyrar. Þeir munu leggja áherslu á að kynna land sitt og þjóð, þar sem búlgarska ríkið heldur upp á 1300 ára afmæli sitt um þessar mundir. Tekið verður á móti gestum í and- dyri S.H. eins og tíðkast að fagna gestum í heimalandi þeirra, þ.e. með brauði og víni, kl. 19.30. Búlgarskur kvöldverður mun verða borinn fram kl. 20.00. Að loknu borðhaldi og skemmtiatriðum verður stiginn dans. Vegna þess að fyrirsjánleg er mikil þátttaka á Búlgaríukvöldið n.k. miðvikudag er fólk hvatt til að tryggja sér miða og borð tímanlega. Tekið verður á móti miða- og borðapöntunum í síma 22770 n.k. föstudag og sunnudag milli klukk- an 18 og 19. Vert er að taka það fram, að fararstjóri hópsins er dr. Vartana, sem margir íslendingar kannast við úr ferðum sínum til Búlgaríu. Hún er forstöðukona og yfirlæknir heilsuræktarstöðvarinnar, sem starfrækt er í sambandi við hið glæsilega GRAND HOTEL VARNA. (Það er eitt veglegasta og vandaðasta hótel í Evrópu). Kjartan Helgason og dr. Vartana munu verða til viðtals á Hótel Varðborg á miðvikudaginn 4. mars eftir hádegi. Þar veita þau allar upplýsingar væntanlegum Búlgaríuförum og öðru áhugafólki. (Fréttatilkynning). 6.DAGUR Hjartans þakkir færum við öllum þeim er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar ÓLAFAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Fjólugötu 10, Akureyri. Guð blessi ykkur öll. Börnin. Er starfsfólk á dag heimilum ekki starfi sínu vaxið? Mikið hefur verið rætt og ritað um launakröfur fóstra á Akureyri, undanfarið. Þegar ég pára þessi orð á blað (24. febr.) eru dagheimili og leikskólar lokaðir hér á Akureyri vegna kjaradeilu fóstra. Ég ætla ekki að tjá mig um réttmæti launa- krafna fóstra, um það eru skiptar skoðanir, sem ég hefði ekki sett mig inn í. En það er fær mig til þessa skrifa eru ákveðin ummæli frú Sigríðar Gísladóttur formanns Kjaramálaráðs fóstra á Akureyri við blaðamann Morgunblaðsins laugardaginn 21. febr. s.l. Spurning blaðamannsins var: „Er þér kunnugt um hvort bæjar- yfirvöld hafi leitað eftir undanþágu til að reka dagheimili með ófag- lærðu fólki?“ Svar frú Sigríðar Gísladóttur við þessari spurningu var: „Nei, mér er ekki kunnugt um það, enda mun það ýmsum vanköntum háð. Mér er kunnugt um að félagsmálaráð bæjarins er á móti því, og ég er engan veginn viss um að foreldrar sœtti sig við það, að dagheimilin verði gerð að „harnageymslum “ í stað uppeldisstofnana. “ Tilvitnun í Morgunblaðið lýkur. Því vil ég beina þeirri spurningu til frú Sigríðar Gísladóttur, að með framangreindum ummælum, sé að fullyrða, að starfsfólk það er vinnur á dag- og leikskólum hér á Akur- eyri sé eigi starfi sínu vaxið? Ef svo er verður að segja þessu starfsfólki upp störfum nú þegar, og ráða hæft starfslið í þeirra stað, (og þá að sjálfsögðu í samráði við frú Sigríði Gísladóttur svo velferð barnanna sé tryggð). Ég vona þó að það starfsfólk er vinnur á dagheimilum og leikskól- um hér á Akureyri og eiga börn, skapi þeim hlýlegt og gott heimili (en ekki barnageymslu), og er það mæti til vinnu hvort heldur er á dagheimili eða leikskóla ræki starf sitt vel, svo börnin er þar dvelja njóti góðs af þeirri reynslu er þeim hefur auðnast, af uppeldi sinna eigin barna, sem er að minni hyggju einhvers virði ekki síður en 3ja ára nám í fóstruskóla. Með þessum orðum er ég ekki að gera lítið úr menntun fóstra, en ætla þó að fóstrur megi heldur ekki gera lítið úr sjálfu móðurhlutverkinu. Og svona í lokin, spurning til bæjarstjóra, hvað kostar það bæj- arfélagið (skattgreiðendur) að starfrækja dagheimili og leikskóla á Akureyri á árinu 1981 að frá- dregnum daggjöldum? Sverrir Leósson. Samverustund i leikskólanum Lundaseli á Akureyri. Fóstrur á Akur- eyri hættu störfum í gær FÓSTRUR á Akureyri unnu sinn sióasta vinnudag að svo komnu máli i Kter, er uppsagnlr þcirra vegna kjaramála komu til íram- kvæmda, þar sem ekki hafði verið orðið við kröfum þeirra um aö grunnlaun fóstra yrðu samkvæmt 13. launaflokki og stöðuheltið deildarfóstra yrði ekki að veru- leika. i þvi tilefni spjallaði Morg- unblaðið við Sigriði Gisladóttur formann kjaramálaráös fóstra á Akureyri, og spurði hana nánar um málið. „Eins og fram hefur komið áður, höfum við nú farið fram á að grunnlaun verði samkvæmt 13. launaflokki og að starfsheitið deildarfóstra verði fellt niður. Við teljum að deildarfóstrustarfsheitið geti í framtíðinni valdið launamis- ræmi, þegar fleiri en ein fóstra koma til með aö vinna á sömu deild, ein þeirra verði þá titluð deildarfóstra og fái þá hærrti laun en hinar fyrir sömu vinnu." Hafið þið fundað eitthvað meö viðsemjanda ykkar, kjaramála- nefnd bæjarins? „Það var einn óformlegur fundur í síðustu viku, þar sem segja má „að njósnað hafi verið á báða bóga", en meira hefur það nú ckki orðið síðan og því vinnum við okkar sfðasta vinnudag f dag, föstudag. Fóstrur hafa haldið tvo fundi, síðast nú á fimmtudags- kvöldið og við erum sammála um að láta ekki deigan síga. Við höfum orðið varar við talsverðan stuðning fólks hér f bænum og á kjaramála- ráðstefnu fóstra, sem haldin var fyrir skömmu, bárust okkur fjöl- margar stuðningsyfirlýsingar, svo við förum ótrauðar út f þessar aðgerðir einfaldlega til að fá mannsæmandi laun." Er þér kunnugt um hvort bæjar- yfirvöld hafi leitað eftir undan- þágu til að reka dagheimilin með ófaglæröu fólki? „Nei, mér er ekki kunnugt um það, enda mun það ýmsum van- köntum háð. Mér er kunnugt um að félagsmálaráð bæjarins cr á móti því og ég er engnn veginn viss um að foreldrar sætti sig við það, að dagheimilin verði gerð að „barnageymslum" f stað uppeld- isstofnana. Þá er rétt aö benda á það að ef sveitarfélög tækju al- mennt upp á slíkum aðgeröum, væri það einfaldlega til að eyði- leggja heila stétt sérmenntaðs starfsfólks, sem kjara sinna vegna treystir sér ekki til að vinna við núverandi kringumstæður." Hvert verður svo framhaldið? Sigríður Gisladóttir, formaður kjaramálancfndar fóstra á Akureyri ásamt dóttur sinni. Ljósm. Mbl. Kristinn. „Við höfum áður sagt, að verði ekki hægt að koma til móts við þessar kröfur okkar, munum við byrja strfðið frá byrjun að nýju og þá væntanlega leggja fram þær kröfur, sem í upphafi komu fram af okkar hálfu. Það er grunnlaun verði samkvæmt 14. launaflokki og launahækkun forstöðukvenna verði talsvert meiri en nú var ætlað. En hvað sem segja má um þessa baráttu, þá hefur hún þó haft það í för með sér, að fóstrur hafa þjappast saman og verið mjög samtaka f baráttunni og i fram- haldi þess er á döfinni stofnun félags fóstra á Akureyri, sem er mikilvægt framfaraskrcf bæði hvað varðar félags- og kjaramál," sagði Sigríður að lokum. Áskriít&aufflýsinpar 96-24167

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.