Dagur - 02.04.1981, Qupperneq 6
Athugasemd
við grein Sturlu
Sighvatssonar
I Degi
þann 3. febr. 1981
Texti við línurit um hvíldarástand
er ekki fullkomlega réttur. Línurit-
ið sjálft er vafalaust rétt en álykt-
unin, sem af því er dregin, er ekki
rétt. Sagt er, að efnaskiptabreyt-
ingarnar sýni, að líkaminn slaki
mjög vel á við umrætt hvíldar-
ástand. Hið sanna er, að línuritið
sannar ekki slökunarástand líkam-
ans, a.m.k. ekki eitt sér. Minnkandi
súrefnisnotkun getur stafað af —
og stafar oft af — allt öðrum
ástæðum.
Vel menntaðir læknasérfræðing-
ar í sérgrein, sem að vísu fyrirfinnst
ekki hérlendis, skilja þetta og vita.
Þar sem engir þannig sérfræðingar
fyrirfinnast hérlendis er tilgangs-
laust að koma með rök og skýring-
ar, og yrðu flestir engu nær. Und-
irritaður vill helst vera laus við
vonlausar rökræður en skrifar samt
þessa athugasemd til að mótmæla
óvönduðum vinnubrögðum. Und-
irritaður er áhugamaður um flug og
flugmál og þar sem umræðuefni
þessarar athugasemdar er nátengt
þeim málum hefur undirritaður
þessa vitneskju og er siðferðilega
skyldugur til að mótmæla.
Haukur Antonsson, Dalvik.
Æskulýðsstarf Þjóðkirkjunnar:
NÁMSKEIÐ í KRISTI-
LEGU BARNASTARFI
Æskulýðsstarf Þjóðkirkjunnar
gegnst í samvinnu við Æsku-
lýðssamband kirkjunnar í Hóia-
stifti fyrir námskeiði í kristilegu
barnastarfi laugardag eftir
páska. Námskeiðið verður hald-
ið á Akureyri og hefst á föstu-
— Borstangirnar
(Framhald af bls. I).
holunni, eða rétt um l til 2
sekúndulítrar, en það er ,,ágætis
rakvatn handa sveitarstjórninni",
eins og fréttaritarinn orðaði það.
Hitastigið hafði hækkað smám
saman í holunni og að sögn jarð-
fræðings, sem fréttaritarinn ræddi
við, voru menn orðnir bjartsýnni á
að holan gæfi meira vatn þegar
neðar drægi.
Þessi hola er rétt hjá sundlaug-
inni á Svalbarðsströnd og er önnur
hitaveituholan, sem hefur verið
boruð fyrir íbúa Svalbarðsstrandar.
Fyrri holan er notuð til upphitunar
húsa og gefur um I0 sekúndulítra
af sjálfrennandi vatni.
Fréttaritarinn sagði að það yrði
mikið áfall fyrir íbúa á Svalbarðs-
strönd ef holan yrði dæmd ónýt,
enda er það kostnaðarsamt fyrir
lítil sveitarfélög að láta bora holur
sem þessa.
Möðruvallaklaustursprestakall.
Guðsþjónusta og aðalsafn-
aðarfundur i Glæsibæjar-
kirkju n.k. sunnudag 5. apríl
kl. 11 f.h. Messa í Möðru-
vallakirkju sama dag kl. 2
e.h. Heimsókn guðfræði-
nema. Stud. theol Bragi
Skúlason predikar. Sóknar-
prestur.
Svalbarðskirkja sunnudaga-
skóli n.k. sunnudag kl. II f.
h. Fermingarbörn mæti
klukkustund fyrr.
Grenivíkurkirkja Guðsþjónusta
n.k. sunnudag kl. 2 e. h.
Hálsprestakall. Illugastaða-
kirkja guðsþjónusta laugar-
daginn 4. apríl. kl. 15.00.
Hópur guðfræðinema kem-
ur í heimsókn. Bragi Skúla-
son predikar. Draflastaða-
kirkja guðsþjónusta á
Draflastöðum n.k. sunnu-
dag 5. apríl kl. I4.00. Sókn-
arprestur.
Sjötiu ára verður 5. apríl n.k.
Laufey Tryggvadóttir. Hún
tekur á móti gestum laugar-
daginn 4. apríl á heimili sínu
Helgamagrastræti 2.
St. Georgsgildið. Fundur
mánudaginn 6. apríl kl. 8,30.
Stjórnin.
I.O.O.F. 2 — 162438 Vi
st. Brynja nr. 99. Fundur á
Hótel Varðborg mánudag
10. apríl kl. 8.30. Æ.t.
Kvöldvaka aldraðra á vegum
Grenivíkur og Laufássafn-
aða verður haldinn í skóla-
húsinu Grenivík föstudags-
kvöldið 3. apríl kl. 8.30.
Sóknarprestur.
Vinarhöndin, styrktarsjóður
Vistheimilisins Sólborgar
vill minna á sig og sítt hlut-
verk. Fé úr sjóðnum er m.a.
veitt til kaupa á tækjum fyrir
Sólborg, að styrkja náms-
fólk, sem þar ætlar að vinna.
Minningarspjöld sjóðsins
eru seld hjá Huld, Bókvali,
Ásbyrgi, Júdit, Oddeyrar-
götu 10, og Judith, Langholti
14.
Minningarspjöld kvenfélagsins
Hlífar fást í bókabúðinni
Huld, í símaafgreiðslu
sjúkrahússins og hjá Lauf-
eyju Sigurðardóttur Hlíðar-
götu 3, Allur ágóði rennur til
bamadeildar F.S.A.
Kökubasar og hlutavelta og
kaffisala verður í Freyvangi
laugardaginn 4. apríl kl. 3
e.h. Slysavarnardeildin
Keðjan.
Fcrmingarguðsþjónusta verður
í Akureyrarkirkju n.k.
sunnudag kl. 10.30 f.h.
Sálmar 504, 256, 258. Leið
oss ljúfi faðir. Blessun yfir
barnahjörð. B.S.
dagskvöldi 24. apríl og lýkur
laugardagskvöld, 25. apríl.
Á námskeiðinu verður fjallað
um starfsaðferðir, söngva, helgi-
leiki, leikbrúður, föndurvinna
verður, kynnt efni og hjálpargögn
o. fl. Leiðbeinendur verða Unnur
Halldórsdóttir og Ragnar Snær
Karlsson au k annarra. Kennsla fer
mikið fram í umræðuformi til að
gefa þátttakendum færi á að kenna,
leiðbeina og skiptast á hugmynd-
um og segja frá reynslu sinni.
Námskeiðið er ætlað öllum áhuga-
mönnum um kristilegt æskulýðs-
starf. Þátttöku ber að tilkynna til
æskulýðsfulltrúa kirkjunnar,
Hafnarstræti 107, Akureyri, sími:
96-24873, kl. 13-16. Sé æskulýðs-
fulltrúi í ferðum svarar þar vænt-
anlega enginn, en formaður ÆSK
sr. Pétur Þórarinsson, Hálsi í
Fnjóskadal, tekur einnig við
innritunarbeiðnum og veitir
upplýsingar. Sími hans er um mið-
stöð á Akureyri: 23100. Þátttak-
endur utanbæjar, sem ekki hafa
möguleika á gistingu á Akureyri,
geta óskað eftir að þeim sé útvegað
húsnæði meðan á námskeiði
stendur.
Æskilegt er að innritun fari fram
sem fyrst.
Ofær í hálfan mánuð
Á mánudag í þessari viku opn-
aðist Ólafsfjarðarmúli, en hann
hafði þá verið lokaður síðan 16.
mars. Að sögn heimamanna
hefur Ólafsfjarðarmúli sjaldan
eða aldrei verið lokaður jafn
lengi og hafa sumir á orði að
ófærðin í vetur, sanni það í eitt
skipti fyrir öll, að jarðgöng
verður að gera svo Ólafsfirði séu
tryggðar samgöngur á landi allt
árið um kring.
Jón Friðriksson, bæjarstjóri á
Ólafsfirði, sagði að ráðamenn bæj-
arins væru ekki ánægðir með þátt
Vegagerðar ríkisins í snjómokstri í
Múlanum, en hins vegar skildu þeir
mæta vel að það væri ekki neinn
leikur að halda opnu með jafn litl-
um tækjakosti og Vegagerðin hefur
yfir að ráða.
Ólafsfirðingar hafa lagt á það
áherslu að hjá þeim verði snjóblás-
ari, en til þessa hefur sú málaleitan
ekki náð fram að ganga. Jón sagðist
hafa heyrt það á einstaklingum á
Ólafsfirði að þeir hefðu áhuga á að
kaupa og reka sjálfir snjóblásara,
en Jón gerði ekki ráð fyrir að neitt
yrði úr þeirri ráðagerð.
.........'W>' 1 '» 1
Friðrik Árnason, Baldur Heiðar Birgisson og Elvar örn Birgisson
héldu tombólu og gáfu ágóðann kr. 140,60 til Dvalarheimilisins
Hlíðar.
Eg þakka innilega öllum þeim, sem minntust móð-
ur minnar, Guðrúnar Guðnadóttur, á margvíslegan
hátt á hundrað ára afmœli hennar 29. mars. Sér-
stakar þakkir fœri ég lœknum og starfsfólk
Kristneshœlis fyrir frábœra hjúkrun og alla um-
önnun á liðnum árum. F. h. Guðrúnar Guðnadóttur
og allra œttingjanna.
EIRÍKUR G. BRYNJÓLFSSON
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför dóttur
okkar og systur,
GUÐRUNAR ÓSKAR,
Kristinn Skúlason,
Anna Pétursdóttir og
Pétur Kristinsson.
Borgarbíó sýnir í kvöld kl. 9
myndina í Sælu og réyk.
Sprenghlægileg ærslamynd
með tveim vinsælustu grín-
leikurum Bandaríkjanna,
Tommy Chong og Cheech
Marin (Halli og Laddi
Bandaríkjanna) Næsta
mynd kl. 9 verður myndin
Leikur Dauðans með Bruce
Lee og Gig Young í aðal-
hlutverkum. Hinn skjóti
frami og frægð Kung Fu-
kvikmyndaleikarans unga,
Bylly Lo, hefur ekki farið
fram hjá glæpahring einum,
sem leggur sig aðallega fram
um að hagnast á frægu fólki.
Kl. 11 sýnir bíóið myndina
Banvænar býflugur. Það er í
byrjun febrúar í New Orle-
ans er mikið um að vera,
allir eru af kappi að búa sig
undir Mardi Gras,
uppskeruhátíðina. Fjögurra
daga stanslaus hátíðahöld,
ferðamenn allsstaðar að og
öll hótel yfirfull. Við árós-
ana, um 40 mílur frá borg-
inni finna strandgæslumenn
leifar af suður-amerískum
bananabát, sem hafði rekist
á stórt olíuskip, en það
skrítna er, að engin lík hafa
fundist, báturinn virðist hafa
rekið mannlaus.
Nýja bíó sýnir í kvöld kl. 9
myndina Eyja hinna dauða-
dæmdu með Don Marshall,
Phyllis Davis og Ena Hart-
man í aðalhlutverkum. Þeg-
ar dauðadómur var felldur
niður var Términaleyja gerð
að nýlendu fyrir dauða-
dæmda afbrotamenn. Engir
fangaverðir voru á eyjunni,
enda óþarfi, því gerðar
höfðu verið ráðstafanir, svo
flótti væri útilokaður. Á eyj-
unni eru aðeins fjórar konur
en tveir tugir karlmanna og
af skiljanlegum ástæðum
voru stúlkurnar það eftir-
sóknarverðasta, sem fyrir-
fannst á eyjunni í augum
karlmannanna. Sýningum
fer að fækka. Næsta mynd
verður sagan um O, með
Corinne Clery, Udo Kier og
Anthony Steel í aðalhlut-
verkum. O finnur hina full-
komnu fullnægingu í al-
gjörri auðmýkt. Hún er bar-
in til hlýðni og ásta.
6.DAGUR