Dagur - 12.05.1981, Blaðsíða 7
(Framhald af bls. 5).
á móti framlagi sem nam um 5 m.
gkr. á síðasta ári. I landgræðslu
áætlun er gert ráð fyrir því að
hluti landeigandans í kostnaði
verði einnig aukinn, þannig að
hann sjái alfarið um girðingar-
kostnaðinn Með þessu móti ætti
að vera hægt að rækta um 10 km.
á ári af skjólbeltum og er það um
tíföldun frá því sem áður var;
VINNA í ELDRI
SKOGARREITUM
Verulegt átak í grisjun eldri
skógarreita hefur ekki verið gert
síðan 1977, en það ár var sérstak-
ur vinnuflokkur eingöngu í þessu
viðfangsefni. Grisjun eldri skóg-
arreita er mjög umfangsmikið
verkefni, sem virðist alltaf verða
útundan þrátt fyrir góðan ásetn-
ing.
Eins og er er grisjun algjört
uppfyllingarverkefni, sem hlaup-
ið er í þegar stund gefst frá öðrum
tímabundnum verkum. Varla
verður ráðin bót á þessu fyrr en
ráðin verður sérstakur vinnu-
flokkur í þetta verkefni, eða
félagið standi undir heilsárs
starfsemi, þannig að grisjun gæti
farið fram síðari hluta vetrar.
Helstu verkefni á sviði grisjunar
og umhirðu var í reit félagsins á
Hánefsstöðum. Einnig var tölu-
vert grisjað í Kjarnaskógi og lít-
ilsháttar í Vaðlareit.
Viðhald girðinga var frekar lít-
ið enda veturinn 1977-’80 óvenju
snjóléttur. Mesta viðhald var á
girðingu félagsins um Vaðlareit
og í Leyningshólum. Á öðrum
stöðum var lítið sem ekkert við-
hald. Kostnaður við þennan
verkþátt var á árinu 1980 ca.
1.400.000 gkr.
FRAMKVÆMDIR
Á árinu var gerður samningur
mifi skólanefndar Laugalands-
skóla á Þelamörk og Skógræktar-
félagsins um leigu á landi til
skógræktar. Þetta land var girt á
síðasta ári og vonandi verður
hægt að hefja útplöntun í svæðið
nú 1 sumar. Styrkur fékkst í girð-
inguna frá Landgræðsluáætlun.
Þetta friðaða svæði er milli
100-300 ha. og vel fallið til skógr-
æktar. Tel ég að á þessu svæði
hafi félagið ærin verkefni næstu
árin. Þess má og geta að Skógrækt
ríkisins hefur nú fengið full afnot
af Vaglajörðinni og er ekki ólík-
legt að ætla að á Þelamörkinni
verði verulegar gróðurfarsbreyt-
ingar á næstu árum.
FRAMKVÆMDIR
VIÐ PLONTUUPP-
ELDI
Ráðist var í byggingu 300 m2
gróðurhúss í uppeldisstöðinni.
Einnig var þar unnið viðbótar-
land fyrir græðireiti. Byggt var
við vélageymslu og unnið var við
að koma upp bráðabirgða kæli.
Allar þessar framkvæmdir við
uppeldisstöð miða að því að gera
plöntuuppeldið öruggara. Ljóst
er að plöntuþörfin fyrir bæ og
hérað er mikil og verður að
kappkosta að félagið sinni þessari
þörf. Einnig er Ijóst að ný svæði á
vegum félagsins þurfa mikinn
fjölda plantna á næstu árum.
Leiðrétting
f minningargrein um Jóhannes
Kristjánsson, forstjóra, 1 Degi 7.
maí s.l. urðu þau leiðu mistök að
nafn annars tengdasonar hans mis-
ritaðist. Var hann sagður heita Pét-
ur Guðmundsson, sem átti að vera
Ketill Guðmundsson. Er beðist
velvirðingar á þessu.
Húsnæði fyrir starfsmann
Þriggja herbergja íbúð óskast til leigu frá 1. júní n.k.
Upplýsingar gefur hótelstjóri í síma 22200.
Hótel K.E.A.
Húsnæði óskast
Fjórðungssjúkrahúsið óskar eftir að taka á leigu
íbúðir eða raðhús, til afnota fyrir starfsfólk sjúkra-
hússins.
Upplýsingar gefur skrifstofustjóri í síma 22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Garðplöntur til sölu
Nokkrar tegundir af barrtrjám, lauftrjám og runnum
verða til sölu út maí í Aðalstræti 62.
Afgreitt verður á fimmtudögum og föstudögum kl.
20.00 til 22.00.
Eigum nú til á lager
sorptunnur og grindur
Sandblástur og málmhúðun
sími22122
Múrarar
Orlofssjóður M.F.A. leikir hjólhýsi í sumar. Upplýs-
ingar veitir Hannes Óskarsson í síma 25126.
Furu og greni
panell
Antik-panell:
Furu og greni 5” og 6”
Sléttur panell:
Furu og greni 5” og 6”
Hagstætt verö.
FURUVELLIR 5
AKUREYRI . ICELAND
P. O. BOX 209
SlMAR (96)21332 og 22333
^¥g GI N G A V E R K T A K A R
Kvenfélag
Svalbarðsstrandar
auglýsir eftir umsóknum um rrámsstyrk úr sjóðnum
Helgu.
Skilyrði styrkveitingar eru þau að umsækjandi sé
búsettur á Svalbarðsströnd eða ættaður þaðan og
að hann stundi framhaldsnám í einhverri eftirtal-
inna greina:
Hannyrðum, listiðnaði, hjúkrun og aðhlynningu
aldraðra, kennslu og starfsþjálfun vangefinna og
fatlaðra, söng, tónment eða íþróttum.
Nánari upplýsingar gefa Sigríður í síma 23964,
Herdís í síma 24920 og Anna María í síma 25256.
Skriflegar umsóknir sendist formanni félagsins
önnu Maríu Snorradóttur Smáratúni 16b, Sval-
barðseyri fyrir 15. jún n.k.
STJÓRNIN.
Bifreiðaverkstæðið
Þórshamar auglýsir
Vantar nokkra bifvélavirkja til vinnu,
j sem fyrst.
Þórshamar sími 22700.
WC
F.S.A.
Laus staða
Staða yfirlæknis á svæfinga- og gjörgæsludeild
F.S.A. er laus til umsóknar.
Umsóknir sendist stjórn Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri, umsóknarfrestur er til 1. ágúst 1981.
Upplýsingar um stöðuna veitir Ásgeir Höskuldsson
framkvæmdastjóri sjúkrahússins.
Hér er um að ræða tækifæri til að vinna við stofnun
nýrrar og sjálfstæórar deildar í nýrri byggingu, sem
tekin verður í notkun seint á þessu ári.
Óskum eftir að ráða
tvo trésmiði
og tvo verkamenn
Upplýsingar á staðnum á skrifstofutíma.
Börkurs.f. Fjölnisgötu 1,
Félagsmálastofnun
Akureyrar
óskar eftir fóstrum til starfa á deild og við forstöðu
dagvistarstofnana.
Upplýsingar eru veittar á Félagsmálastofnun Akur-
eyrar kl. 10-12 alla virka daga. Sími 96-25880.
Akureyringar
Aðalfundur Garðyrkjafélags
Akureyrar
verður haldinn í Gróðrastöðinni fimmtudaginn 14.
maí kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sýndar litskuggamyndir. Stjórnin.
Nauðungaruppboð
Annað og síðasta á fasteigninni Víðilundi 4a, Ak-
ureyri, þingl. eign Áslaugar Kristjánsdóttur, fer
fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka íslands,
Skúla J. Pálmasonar, hrl., Ólafs B. Árnasonar, hdl.,
Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, Jóns Kr. Sólnes,
hdl., Ragnars Steinbergssonar, hrl. og Kristjáns
Ólafssonar, hdl. á eigninni sjálfri mánudaginn 18.
maí 1981 kl. 16.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri
Frá Kjörmarkaöi KEA Hrísalundi
Strásykur2kg....................... kr. 12,65
Molasykurlkg....................... kr. 12,85
Púðursykur 500 g .................. kr. 5,30
Sólgrjón 950 g..................... kr. 9,90
Sólgrjón 475 g..................... kr. 5,00
Pop mais 2 LBS..................... kr. 7,50
pr, :---——---------
| KjöniTarkaösverö er: |
lycmleg búbót]
DAGUR.7