Dagur - 19.05.1981, Blaðsíða 8
Akureyri, þriðjudagur 19. maí 1981
RAFGEYMAR
í BÍLINN, BÁTINN, VIHNUVÉUNA
mi
VEUIÐ RÉTT
MERKI
nmHSnHBMHHBI
Alltaf vitað um
uppruna gluggans
væri meðal þriggja glugga úr
dómkirkjunni í Coventry, sem
hurfu eftir að þeir höfðu verið
teknir úr 1938 af ótta við
sprengjuárásir í stríðinu.
Jakob Frímannsson og kona
hans gáfu Akureyrarkirkju
gluggann og allir aðrir gluggar
kirkjunnar voru síðan unnir út frá
honum hjá fyrirtæki í Exeter í
Englandi. Glugginn er frá fyrir-
tæki einu í Exeter í Englandi.
Glugginn er frá miðri síðustu öld,
en hann er ekki upprunalegur
nema að nokkru leyti, því nokkuð
af glerinu brotnaði þegar það var
flutt til Exeter og þurfti að end-
urnýja það, auk þess sem bætt var
neðan á gluggann og einnig ofan
á hann svo hann passaði í
gluggaumbúnað Akureyrar-
kirkju.
Ekki hefur verið farið fram á
að glugginn verði afhentur til
Englands og er ekki reiknað með
því að svo verði. Af þeim sökum
hefur engin afstaða verið tekin til
þess máls í sóknarnefnd, að sögn
formanns nefndarinnar, Gunn-
laugs P. Kristinssonar. Hann
sagðist þó ætla að menn yrðu
heldur íhaldssamir, ef beiðni um
framsal gluggans kæmi fram.
u (sr Tí )Tf\
ib SL m y
tnörgum árum. Að sjálfsögðu
predikaði hann yfir þjóðinni
og mælti oft spaklega. Eitt
sinn fékk hann í þáttinn rit-
höfund, sem getið hafði sér
gott orð, og í upphafi fór
bókmenntafræðingurinn á
kostum og sagði mörg löng
og torskilin orð. RithÖfundur-
inn brá hart við og bað
bókmenntafræðinginn í öll-
um bænum að tala frekar
mannamál. Hinn síðarnefndi
varð hvumsa, en fór að ósk
rithöfundarins. Og sjá: það
kom í Ijós að bókmennta-
fræðingurinn átti í fórum sín-
um hin prýðilegustu orð,
auðskild orð, sem náðu fylli-
lega að lýsa þvi sem nauðsyn
krafði.
£ Horngrýtis
Hornafjarðar-
máninn
Framansagt rifjar upp sög-
una um sveitamennina sem
fóru í kaupstað. Þar þótti
þeim flest dýrlegt, sem fyrir
augu bar. Um kvöldið var fullt
tungl og varð þá öðrum að
orði: „Þetta er eitthvað annað
en horngrýtis Hornafjarðar-
máninn.“ Þetta viðhorf má
finna víða — m.a. í hugar-
heimi bókmenntafræðings-
ins, sem taldi aðeins erlend,
löng og fiókin orðasambönd
henta í umræðunni um verk
rithöfundarins.
# Verktaka-
félag lækna
Fyrstu læknarnir á ríkisspít-
ulunum gengu út í gær, eða
með öðrum orðum uppsagnir
þeirra fyrstu tóku þá gildi.
Læknarnir eru hins vegar
ábyrgðarfuillr menn, sjálf-
sagt minnugir
Hippokratesareiðsins, og
hafa þeir nú stofnað með sér
eins konar verktakafélag
I ækna, sem býðst til að taka
að sér ákveðin verk fyrir
ákveðnar greiðslur. Þeir
hætta sem sagt að vera á
vinnusamningi við ríkisspít-
alana, en gera þess í stað
verksamninga. Á þessu
tvennu er afgerandi munur
samkvæmt íslenskum laga-
skilningi. Þeir sem vinna
samkvæmt vinnusamningi
bera ekki ábyrgð á því að
verkið sér framkvæmt á um-
saminn máta, heidur vinnu-
veitandinn. Sá sem hins veg-
ar tekur að sér verk sam-
kvæmt verksamningi, ber
ábyrgð á verkinu. Því vaknar
sú spurning, hvort ábyrgð
iæknanna sem nú hafa
stofnað með sér verktaka-
félag, sé meiri en þeirra sem
vínna samkvæmt launasam-
ingi?
£ Mannamál
Bókmenntafræðingur nokkur
var með útvarpsþátt fyrir all-
„Við höfum vitað um uppruna
gluggans frá a.m.k. 1960, þ.e.
að hann væri úr dómkirkjunni í
Coventry á Englandi, og það
hefur aldrei verið nein óvissa
um það, að glugginn væri úr
einhverri kirkju á Englandi,
sem sprengd hefði »;erið í síðari
heimsstyrjöld,“ sagði séra
Pétur Sigurgeirsson í viðtali
við Dags.
Um síðustu helgi var mikið um
það rætt í útvarpi í kjölfar fréttar í
breska blaðinu Guardian, að bú-
ið væri að finna út að einn af
kórgluggum í Akureyrarkirkju
Verða vcrslanir lukaðar á laugardögum f sumar?
VILJA EKKI VINNA Á
LAUGARDÖGUM
TlU GÆSLUVELLIR
OPNIR Á AKUREYRI
{gærmorgun voru tíu gæsluvellir
opnaðir á Akureyri og eru þeir
jafnmargir og í fyrra. Vellirnir
eru sem hér segir: Lundarvöilur,
Byggðavöllur, Mýrarvöllur
Brekkuvöllur, Leiruvöllur, Eyr-
arvöllur, Hlíðarvöllur, Gerða-
völlur Borgarvöllur og Holta-
völlur.
Vellir þessir hafa verið mjög
vinsælir undanfarin ár. Þeir eru
opnir frá kl. 09 til 12 og frá kl. 14 til
17. Þann 1. júní opna þrír starfs-
vellir, en þeir eru í tengslum við
þrjá gæsluvelli, þ.e. við Hlíðarvöll,
en þar stendur Smábær; Frábær er
við Lundarvöll og Glæsibær við
Leiruvöll. Á þessum starfsvöllum
er hægt að fá byggingarefni og þar
er einnig föndrað með krökkunum.
Félag Verslunar og skrifstofu-
fólks á Akureyri og nágrenni
hélt aðalfund 30. apríl s.l.
Formaður félagsins Kolbeinn
Sigurbjörnsson baðst eindregið
undan kosningu til formanns, en
hann hefur gengt því starfi und-
anfarin 2 ár.
Ólafur Aðalsteinsson vék úr
stjórn eftir margra ára starf og
dygga þjónustu í þágu félagsins, og
Firmakeppni
Léttis 28. maí
Fimmtudaginn 28. maí, uppstign-
ingardag, kl. 14,00 fer fram hin ár-
lega firmakeppni hestamannafé-
lagsins Léttis, og verður hún haldin
syðst á Þórunnarstræti eins og oft
áður. Keppt verður í flokki full-
orðinna og unglingaflokki. Ef að
líkum lætur munu þarna koma
fram flestir bestu og glæsilegustu
gæðingar bæjarbúa. Sökum þess
hve keppnisfyrirkomulagið er
frjálst, er þessi keppni mun
skemmtilegri á að horfa en hinar
hefðbundnu gæðingakeppnir, enda
hafa áhorfendur kunnað að meta
það þegar gæðingarnir fá að teygja
úr sér óhindraðir. Er fólk hvatt að
fjölmenna til þessarar keppni, en
aðgangur er ókeypis.
Knapar eru beðnir að tilkynna
þátttöku fyrir sunnudaginn 24. maí
í síma 24628 eða 24211.
(Fréttatilkynning).
ROBERTSON ÁRITAÐI
5 PLÖTUR Á MfNÚTU!
þakkaði formaður honum vel unn-
in störf.
Þá las gjaldkeri upp reikninga
félagsins sem voru vel og skil-
merkilega upp settir, og er afkoma
félagsins mjög góð.
Samþykkt var á fundinum að
afhenda Sjálfsbjörgu kr. 100.000,00
í tilefni af ári fatlaðra.
Þá kom fram mjög mikill þrýst-
ingur frá afgreiðslufólki hér á Ak-
ureyri að lokaðar yrðu verslanir á
laugardögum yfir sumarmánuðina.
Kosin var ný stjórn sem í eiga
sæti þau: Jóna Steinbergsdóttir
formaður, Kristín Jóna Halldórs-
dóttir varaformaður, Þórður Rist
ritari, Gunnar Hallsson gjaldkeri
og Hörður Steinbergsson með-
stjórnandi.
Varastjórn: Kolbeinn Sigur-
björnsson, Ása Helgadóttir og Ha-
lldóra Vilhjálmsdóttir.
Endurskoðendur eru þeir Óli D.
Friðbjarnar, Gunnlaugur
Guðmundsson.
Hluti úr Coventry-glugganum. Mynd: H.Sv.
Akureyrsk ungmenni flykktust að poppgoðinu. Mynd: á.þ.
Aldrei fór það svo að Akureyringar
fengju ekki poppstjörnu í bæinn. Á
föstudaginn kom skoska stjarna
B.A. Robertsson og dvaldi hér í
nokkra tíma og áritaði hljómplötu
sína „Bully for you“ í versluninni
Cesar.
Að sögn Bjarka Tryggva-
sonar áritaði B.A. Robertsson 200
plötur á 40 mínútum, en varð þá að
láta staðar numið því þar með
þrutu birgðir verslunarinnar. Sam-
kvæmt útreikningum Dags hefur
popparinn ritað nafn sitt á 5 plötur
á hverri mínútu. Tíðindamaður
Dags fékk að líta á eina plötuna,
eftir að meistarinn hafði krotað á
hana, og verður að segjast eins og er
að það þurfti góðan vilja til að lesa
nafn popparans út úr hrafnaspark-
inu.