Dagur - 23.07.1981, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
■■■■■■■■■■■■■■■■
64. árgangur
Akureyri, fimmtudagur 23. júlí 1981
56. tölublað
WKmmmKmmmmmmmmmmmm
Iþróttahöllin á Akureyri:
Eru framkvæmd
ir að stöðvast?
„Við vitum ósköp lítið um það
ennþá hvernig dæmið stendur,
það er verið að vinna að því núna
að reikna það út, og niðurstöð-
Sýnd veiði
- ekki gefin
I byrjun mánaðarins hófst veiði í
Svarfaðardalsá. Síðustu daga
hefur veiði verið dágóð, en menn
hafa eingöngu fest í silungi. Enn
hafa engir laxar komið á land,
en samkvæmt heimildum blaðs-
ins hafa menn séð laxa stökkva í
ánni. Þetta er því sýnd veiði en
ekki gefin.
í sumar verða sett 1000 laxaseiði
í ána. Að sögn fréttaritara DAGS
geta veiðimenn keypt veiðileyfi í
versluninni Ýli á Dalvík. Þorgils
Gunnlaugsson, Sökku, er formaður
veiðifélagsins, sem sér um ána.
urnar verða sendar til bæjar-
ráðs“ sagði Hermann Sig-
tryggsson formaður byggingar-
nefndar nýju íþróttahallarinnar
á Akureyri er DAGUR hafði
samband við hann í gær. Heyrst
hefur að fjárveiting sú sem vinna
átti fyrir við byggingu hússins á
þessu ári sé uppurin, og staðfesti
Hermann að svo væri.
Eins og kunnugt er, var höllin
notuð til keppni og skemmtana-
halds á Landsmóti UMFI á dög-
unum, og fyrir það mót var unnið
nótt og dag við framkvæmdir. En
nú er ailt útlit fyrir að fram-
kvæmdir við byggingu hússins
leggist niður fram á næsta vor, ef
ekki kemur til viðbótarfjárveiting.
Upphaflega var reiknað með að
húsið yrði tekið í nokun nú í haust,
en ljóst er að framkvæmdir eru
einu ári á eftir áætlun og verður
húsið í fyrsta lagi tekið í notkun
haustið 1982.
Kvennaframboð
Á þriðjudagskvöld var haldinn
fundur í Möðruvöllum um
kvennaframboð. Á fundinum var
ákveðið að bjóða fram sérstak-
an kvennalista við næstu bæjar-
stjórnarkosningar á Akureyri.
Til þessa fundar var boðað í
framhaldi af fjölmennum fundi,
sem haldinn var í Alþýðuhúsinu
8. þ.m. þar sem hugmyndir um
kvennaframboð voru til um-
ræðu. Fundinn í Möðruvöllum
sóttu um 50 manns.
í ályktun fundarins segir m.a. að
fundarmenn telji rétt að bjóða fram
kvennalista við kosningarnar næsta
ár. „Teljum við nauðsynlegt að
auka þátttöku kvenna til að stuðla
að því að jafnrétti náist fyrr í reynd.
... Á fundinum er stofnaður
áhugahópur um kvennaframboð.
Fyrstu verkefni hans verða að
kynna sér ýtarlega hin ýmsu bæj-
armál. Unnið verður í starfshópum
fram í september, en þá verða nið-
urstöður hópanna ræddar og
stefnumótun hafin.“
Hér er búið að bakka skipinu út úr skarðinu, sem kom í bryggjuna. F.ins og sjá má hefur bryggjan skemmst tnluvert.
Kaldbakur sigldi
beint á bryggjuna
„Það er alveg greinilegt að eitt-
hvað bilaði. Togarinn hélt áfram
á fullri ferð og hafnaði að lokum
Siglufjörður:
Fara 10OO tunnur
beint í sjóinn?
„Það hefur sannast sagna
hvarflað að okkur að brjóta
landslög og reyna að losna við
þetta í sjóinn í skjóli myrkurs,
því við erum í vandræðum með
hvernig við getum losnað við
allar þessar tunnur“ sagði Ingi-
mundur Einarsson, bæjarstjóri á
Siglufirði er við ræddum við
hann.
Á fundi bæjarstjórnar Siglu-
fjarðar 30. júní gerði bæjarstjóri
grein fyrir málaleitun Sigló-síldar
um losun og eyðingu á miklu
magni af skemmdri síld frá verk-
smiðjunni.
Að sögn Ingimundar Einarsson-
ar er hér um að ræða 1000 tunnur
af síld frá árunum 1977 eða 1978.
Ekkert mun hafa verið athugavert
við þessa síld í upphafi, en vegna
útflutningsbanns og vegna þess að
samningar um sölu á síldinni töfð-
ust, liðu hinir 6 mánuðir geymslu-
Nýjung í smáauglýsingum:
Nll BIRTAST ÞÆR ÓKEYPIS!
Á blaðslðu sjö er að fínna eyðublað fyrir sérsfaka tegund smáauglýs-
inga, sem við höfum kosið að nefna Markaðsauglýsingar. Þessar aug-
lýsingar eru einkum hugsaðar fyrir fólk sem vill selja ýmsa hluti, en
hefur fram til þessa ekki talið þá nógu verðmæta svo það tæki því að
auglýsa þá. Lesendur Dags — notfærið ykkur Markaðsauglýsingar
hlaðsins. þær birtast ykkur að kostnaðarlausu!
þolstímans sem leyfilegur var sam-
kvæmt samningum án þess að var-
an seldist, og fór svo að Iðnaðar-
ráðuneytið bætti Sigló-síld þessa
vöru. Talið er að verðmæti hennar
hafi þá verið tæpar 100 milljónir
gkr.
Síld þessi var lögð í dósir á sínum
tíma og voru dósirnar settar í kassa.
Einhverra hluta vegna voru síðan
dósirnar teknar og settar í tunnur
og fylltu þær 1000 slíkar. Taldi
viðmælandi okkar á Siglufirði
jafnvel hugsanlegt að tækifærið
hefði verið notað til þess að losna
við eitthvað af tunnum í leiðinni.
En nú eru vandræði með að
losna við þessar 1000 tunnur. Bæj-
arland Siglufjarðar býður ekki upp
á marga staði þar sem hægt væri að
urða svo mikið magn af síldar-
tunnum, og því hefur það hvarflað
að mönnum að losna við þær í
hafið.
á bryggjunni. Á leiðinni reif
skipið upp ankerið, sem sett
hafði verið út,“ sagði Örn
Halldórsson, starfsmaður Ú.A.,
en einn af togurum fyrirtækis-
ins, Kaldbakur EA 301, sigldi á
löndunarbryggju Ú.A. í gær-
morgun.
Fjöldifólks varvitni að því þegar
áreksturinn átti sér stað. Togarinn
var að koma úr veiðiferð og sam-
kvæmt viðtölum við sjónarvotta er
einna líklegast að bilun í vélarrúmi
hafi átt sökina á því hvernig fór.
Fólk, sem var á bryggjunni. átti
nánast fótum fjör að launa og
tvístraðist í allar áttir þegar Ijóst var
hvað myndi gerast. Örn Halldórs-
son sagði að bryggjan hefði nötrað.
enda kom djúpt skarð í hana þegar
stefni skipsins skarst í bryggjuna.
Skömmu áður en áreksturinn varð
stóð vörubíll á þeim stað sem skipið
hafnaði.
Samkvæmt upplýsingum frá
Ú.A. í gær var ekki búið að kanna
skemmdir á togaranum og því
ekkert hægt að fullyrða neitt um
t.d. botnskemmdir. Ekki var hægt
að sjá miklar skemmdir ofan
sjólínu.
Eins og teskeið
Gunnarsstöðum 21. júlí.
Spretta gengur ákaflega hægt.
Til dæmis er hér grænfóöur sem
hefur verið 60 daga í jörð og
venjulega sprettur það á 80 til 90
dögum. En nú eru hafrarnir 10
til 15 cm háir! Stærstu blöðin á
fóðurkálinu eru eins og mat-
skeiðarblað, en flest eru eins og
blað á teskeið.
Ég veit til þess að á tveimur bæj-
um er farið að slá nýræktir síðan í
fyrra. Almennt á ég ekki von á að
sláttur hefjist fyrr en um mánaða-
mót. Miðað við árin um og fyrir
1960 má segja að þetta sé mánuði
síðar en þá gerðist. En árið 1968
byrjuðu menn ekki að slá fyrr en í
ágúst, svo við erum ýmsu vanir
hérna og erum ekki að örvænta. Ég
hef reyndar sagt það stundum að
það sé skemmtilegra að búa í
harðæri. Ástæðan er einfaldlega sú
að sigrarnir verða svo stórir — og
þeir stækka menn. Ó.H.
Tannlæknir í
Ólafsfirði
Egill Kolbeinsson, tannlæknir er
kominn til starfa í Ólafsfirði og
hyggst vera þar a.m.k. um eins árs
skeið. Ríkir almenn ánægja með
það á Ólafsfirði að þar skuli loks
vera tannlæknir.
Mvnd:áþ.