Dagur - 23.07.1981, Page 4
Útgefandi: ÚTGAFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Hafnarstræti 90, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 21180
Sími augiýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamenn: Áskell Þórisson,
Gylfi Kristjánsson
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Jafnréttishreyfing
og
kvennaframhoð
Nú er mikið rætt um jafnrétti milli kynja og
í því sambandi kvennaframboð til næstu
bæjarstjórnarkosninga hér á Akureyri.
Skiptar skoðanir eru um það hvort sér-
stakur kvennalisti samrýmist jafnréttis-
hugsjóninni, hvort það sé raunhæf leið
fyrir konur til að ná fram raunverulegu
jafnrétti að útiloka þá karla af slíkum lista,
sem á annað borð vitja standa með þeim í
baráttunni. Ennfremur hvort kvennafram-
boð sé raunhæfasta leiðin til að færa
konur nær því marki að standa karl-
mönnum jafnfætis í ákvarðanatöku í mál-
efnum bæjarins. Og menn velta því fyrir
sér hvernig eigi að meta það hver hafi rétt
fram yfir annan þegar um er að ræða
stöðuveitingar eða um val á framboðslista
til sveitarstjórna eða alþingiskosninga.
En liggur það ekki í augum uppi að sá
hefur réttinn, sem hæfastur er þegar um
stöðuveitingar er að ræða og skiptir þá
engu hvort í hlut á karl eða kona? En
þegar um framboð er að ræða hefur sá
réttinn, sem mest kjörfylgi hefur og hann
hefur einnig skyldur við félaga sína að
gefa kost á sér til að tryggja að kosninga-
úrslitin verði sem hagstæðust fyrir við-
komandi flokk eða samtök. Þó fáir treysti
sér tíl að andmæla því að ofangreindar
reglur séu eðlilegar og jafnframt æski-
legar þá er því ekki að leyna að fram hafa
komið miklar efasemdir um að slíkar
reglur munu t.d. tryggja konum raunveru-
legan jafnan rétt á móts við karla. f því
sambandi er á það bent að þegar um
stöðuveitingar er að ræða þá séu það í
flestum tilfellum karlar einir sem meta
hæfni umsækjanda. Og það eitt að vera
karl sé í vitund þeirra hæfari umsækjandi
en sá sem er kona. Þetta viðhorf er alda-
gamall arfur, sem mönnum er jafnvel ekki
í Ijóst að þeir séu bundnir af. En það er
staðreynd að hvert þjóðfélag mótar þegna
sína að mestu leyti eftir þeim munstrum,
sem liðnar kynslóðir hafa ofið og látið eftir
sig og þarf mikið til að rífa sig út úr slíkum
munstrum og gerist ekki í skjótri svipan.
Viðbrögð manna nú við hugsaniegu
kvennaframboði sýnir þetta best. Af sömu
ástæðu hefur gengið erfiðlega að skapa
það viðhorf meðal þjóðarinnar sem
dyggði til þess að konur hefðu í reynd
svipaða möguleika til að vera valdar á
framboðslista til sveitarstjórna og alþing-
iskosninga og karlar. Hefur viðhorf
margra kvenna, ekki síður en karla, staðið
í vegi fyrir því þó nú sýnist vera þar ein-
hver breyting á. Fleira kemur til sem því
miður gleymist oft í hita umræðnanna.
Það eru tiltölulega fáar konur sem hafa til
að bera félagslega reynslu á móts við
marga karlmenn. Á meðan svo er er ekki
við því að búast að konur hafi sömu
möguieika til að skipa framboðslista
flokkanna í jafnríkum mæli og karlar.
Jafnréttishreyfingin er líkleg til þess að
bæta úr þessu — a.m.k. að einhverju leyti
ef hún starfar á svipaðan hátt og gert var á
s.l. vetri. í því sambandi vil ég geta þess
að ungmennafélögin þroskuðu og þjálf-
uðu sína félagsmenn í félagslegu tilliti á
fyrri hluta þessarar aldar. Úr þeim félags-
málaskóla komu margir er síðar urðu for-
ystumenn þjóðarinnar. Svipuðum árangri
gæti jafnréttishreyfingin náð ef rétt er að
staðið. Hitt er aftur spurning, sem konur
verða sjálfar að velta fyrir sér og fá svör
við: Eru konur hér á Akureyri búnar að
öðlast þá reynslu og þjáifun í félagslegu
tilliti og það mikið sjálfstraust að þær séu
tilbúnar til að gangast undir slíkt próf sem
framboð við næstu bæjarstjórnarkosn-
ingar vissulega er? Um hitt ætti ekki að
þurfa að deila að það þjóðfelagslega
munstur, sem við búum við er konum
andstætt og ef þær trúa á eina leið frekar
en aðra til að færa þær nær því marki að
öðlast jafnan rétt og aðstöðu á við karla
þá er það eðlileg tilraun af þeirra hendi að
reyna þá leið — þegar nægjanlegt traust
og samstaða er fyrir hendi hjá þeim sem
vilja rétt hlut sinn. S.V.
Halldór Halldórsson: „Algjör bylting."
99
stræló
i
„Þetta er að sjálfsögðu algjör
bylting, enda var ekki orðin
vanþörf á því að fara að end-
urnýja“ sagði Halldýr
Sigurður Finnbogason, skrifstofu-
stjóri útibús Kaupfélags Eyfirð-
inga í Hrísey andaðist í Reykjavík
14. júní í sumar og var þar lagður til
hinstu hvíldar.
Hann fæddist á Harðbak á Mel-
rakkasléttu 21. september 1916,
sonur hjónanna Finnboga Frið-
rikssonar bónda og Guðrúnar
Stefánsdóttur konu hans. Fimm
alsystkim átti Sigurður og tvö hálf-
systkini, þvi móðir hans var tvígift
og átti tvö börn með fyrri manni
sínum. Ráða má af líkum og dæma
af Sigurði, að heimilið á Harðbak
hefur einkennst af glaðværð og
góðvild. En óblíð náttúruöfl í þess-
um landshluta gáfu æskufólkinu þá
seiglu og hörku, sem raunar er for-
senda þess í harðbýlu landi, að
menningarlegt og gróskumikið
mannlíf geti dafnað.
Sigurður Finnbogason fór ungur
að Laugarvatni og naut þar eins
vetrar skólanáms, en gekk síðan í
Laugaskóla í Þingeyjarsýslu. Þar
lágu leiðir okkar saman og þar man
ég hann sem síkátan og hjartahlýj-
an pilt af Sléttu, er ekki hafði
áhyggjur af morgundeginum.
Nokkru síðar kvæntist Sigurður
Halldórsson strætisvagnabíl-
stjóri á Akureyri þegar blaða-
maður Dags tók sér far með
hinum nýja strætisvagni sem
Borghildi Pétursdóttur á Odds-
stöðum á Sléttu, vel gefinni mynd-
arkonu og bjuggu þau lengi á föð-
urleifð hennar, stunduðu sauðfjár-
rækt og nytjuðu jafnframt hin
ýmsu hlunnindi jarðarinnar, svo
sem selveiði, reka og silungsveiði.
Þaðan lá leiðin til Raufarhafnar
þar sem Sigurður stundaði útgerð á
eigin bát nokkur næstu misseri, en
eftir það flutti hann með fjölskyldu
sína til Hríseyjar, þar sem hann
gerðist starfsmaður útibús KEA,
tekinn hefur verið í notkun í
bænum. Sá sem þetta ritar tók
sér far eina hringferð um bæ-
inn og fylgdist með lífinu í
vagninum þann tíma er öku-
ferðin stóð yfir, og ræddi við
vagnstjórann og farþega.
Halldór, sem hefur keyrt hjá
SVA síðan í desember á síðasta
ári, en hefur keyrt strætisvagna
áður í Reykjavík, sagði að það
væri algjör bylting að fá þennan
nýja vagn, enda væru þeir sem
þjónað hefðu fram að þessu
orðnir úr sér gengnir, 11 og 21 árs
og geysilega mikið eknir.
Strætisvagnar Akureyrar pönt-
uðu nýlega tvo nýja vagna af
Mercedes Benz gerð og er það
annar þeirra sem kominn er í
notkun, en ekki er vitað hvenær
hinn kemst I gagnið. Við spurðum
sem fyrr segir og þar átti fjölskyld-
an heima síðan, framundir tvo ára-
tugi.
Börn þeirra Sigurðar og Borg-
hildar eru: Finnbogi, búsettur í
Reykjavík, fjölskyldumaður, Þor-
björg og Guðrún eru nýkomnar
heim frá námi erlendis og eru
kennarar á Akureyri og í Hafra-
lækjarskóla, Vera gift húsmóðir í
Hrísey og Borghildur sem í sumar
var að ljúki námi við Kennara-
háskólann.
Sigurður Finnbogason var kátur
og velviljaður og framúrskarandi
barngóður. { frístundum sínum
sótti hann sjóinn á litlum vélbáti
eða hann dútlaði við frímerkjasafn
sitt. Ennfremur blandaði hann geði
við fjölmarga vini og kunningja,
sem hann hvarvetna eignaðist. {
mörg ár var Sigurður fréttaritari
Dags og var heilsubót að tala við
hann, enda lágu honum ekki
kvartanir lausar á tungu.
Um leið og ég þakka honum
samstarfið og margra ára vináttu,
sendi ég honum þangað hlýjar
kveðjur, sem hið varma og barn-
góða hjarta hans hefur gefið hon-
um vængi á nýjum morgni. E.D.
Halldór hvort fólkið væri ekki
ánægt með þennan nýja vagn.
„Jú það er óhætt að segja það,
enda var svo sannarlega kominn
tími til að við fengjum nýjan
vagn. Nú er búið að leggja eldri
vagninum sem hefur verið í um-
ferð, en hinn verður notaður sem
varavagn“.
— Hvernig er umgengni al-
mennings í vögnunum?
„Hún er bara nokkuð góð, og
það er sáralítið um að það séu
unnin skemmdarverk í vögnun-
um. Það er aðallega sælgætisátið
og sóðaskapurinn sem því fylgir
sem hefur verið vandamál, en við
höfum tekið hart á slíku að und-
anförnu og þetta stefnir allt í rétta
átt.“
Þormóður Benediktsson.
„Kvíði haustinu“
„Nú er loksins kominn fínn
vagn hingað og var svo sannar-
lega kominn tími til“ sagði
Þormóður Benediktsson sem við
ræddum við í nýja vagninum.
Hann sagðist vera að drepast í
fótunum, hefði aldrei átt bíl og
notaði því vagnana mikið.
„Nú er bara að sjá hvað þetta
fær að halda sér“ sagði hann.
„Það er alveg voðalegt ef krakk-
arnir fara að vinna skemmdar-
verk í vögnunum. Þetta er alltaf
verst á haustin þegar skólarnir
byrja, hávaðinn og lætin eru
mikil, en vonandi stendur þetta
allt til bóta.“
Allt í röð og reglu
{ þessari ferð sem undirritaður
fór með vagninum notuðu um 35
manns sér þjónustu hans, og voru
krakkar þar í miklum meirihluta.
Halldór bílstjóri hafði afskipti af
tveimur þeirra áður en lagt var af
stað, þau voru með ís og fengu
ekki að fara með hann inn í
vagninn, en þegar því hafði verið
kippt í liðinn var ekið af stað. Er
óhætt að segja það að krakkarnir
hegðuðu sér óaðfinnanlega hver
einasti þeirra, og ef slík fram-
koma verður ráðandi í vögnunum
er engu að kvíða. Við tókum tvo
unga menn tali, þá Arnar
Vésteinsson og Axel Aðalgeirsson
sem báðir eru 11 ára.
„Gott fyrir suma“
„Við notum vagnana stundum,
aðallega þegar við þurfum að
skreppa í bæinn" sagði Arnarsem
hafði aðallega orð fyrir þeim
félögum.
— En hvernig finnst ykkur að
vera búnir að fá nýjan vagn?
Fyrir nokkru las ég í einu dagblað-
anna smágrein frá konu sem sagði
frá því, að ný úlpa sem sonur
hennar átti hefði horfið af leikvelli
þar sem hann var að leik og hún bar
fram þá spurningu: „Hvernig getur
það farið framhjá foreldrum þegar
barn þeirra kemur heim í flík sem
það á ekki og látið það afskipta-
laust.
Svipað þessu kom einnig fyrir
hér hjá okkur í fyrrahaust. Dóttur-
synir mínir, 8 og 9 ára gamlir,
eignuðust leikfang sem kallast
kassabíll. Það var mikið búið að
vinna að þessu bæði af stórum og
smáum höndum og kosta nokkru
til. Það var stór og gleðileg stund
hjá drengjunum og félögum þeirra
þegar bíllinn stóð á götunni
fullgerður. Um nætur var hann
geymdur í skoti að húsabaki þar
„Það er ekkert öðruvísi að fara
í þessum, en það getur verið að
það sé gott fyrir suma sem eru
ánægðir með það.“
— Við ræddum þvínæst um
skemmdarverk sem unnin væru í
vögnunum, og sögðu þeir að það
væri misjafnt eftir vögnum
hvernig ástandið væri. — En
hvað mynduð þið gera strákar ef
þið sæuð einhvern vera að skera í
sætisbak til dæmis?
„Ég myndi alveg eins láta bíl-
stjórann vita af því“ sagði Arnar.
Nýjar leiðir
Eftir heimildum sem telja má
áreiðanlegar má eiga von á því að
starfssemi strætisvagnanna eigi
eftir að aukast á næstunni. Bær-
inn er jú alltaf að stækka, og sagði
Halldór Halldórsson að það væri
ákveðið að stækka hringinn fyrir
utan Glerá þannig að íbúar í
Síðuhverfi kæmu betur inn í
myndina og fengju aukna þjón-
ustu.
sem ekki sást frá götunni. Nokkr-
um dögum síðar hvarf bíllinn og
hefur ekki sést síðan.
Ég tel að barn yngra en 10 til 12
ára hefði ekki komist burt með
hann þar sem hann var það stór og
þungur. (Ég ætla að útiloka að for-
eldrar afli barna sinna leiktækja á
þennan hátt).
Nú spyr ég eins og fyrrnefnd
kona: „Hvernig má það vera að
börn geti komið heim með slíkan
hlut án þess að foreldrar sjái og leiti
öruggrar vissu um hvar þetta sé
fengið.“ Foreldrar, mynduð þið
ekki gera börnum ykkar mikinn
greiða fyrir framtíðina að ganga
fram í því að láta þau skila aftur á
sama stað hlutum sem þau komast
yfir á þennan hátt?
Sleingeröur Hólmgeirsdóttir,
Munkaþverárstræti 23.
Amar Vésleinsson og Axel Aðalgeirsson.
f
Minning
Sigurður Finnbogason
F. 21.9. 1916 -D. 14. 6. 1981
„HVERNIG MÁ
ÞAÐ VERA?...
Umsjón: Ólafur Ásgeirsson
Kristján Arngrímsson
Þór úr
Bikarnum
í gærkvöldi léku um að knýja fram
Þórsarar við Fylkir mark, og dugði það
úr Reykjavík í átta
liða úrslitum Bikar-
keppni KSÍ.
Á síðustu stundu
tókst Fylkismönn-
þeim til sigurs i
leiknum.
Þórsarar eru því
úr leik að þessu
sinni.
Næstu leikir
Á föstudagskvöldið verður stór-
leikur á íþróttavellinum á Akur-
eyri. Þá mætast fyrstu deildar lið
KA og KR. KR er það lið sem
oftast dregur að sér flesta áhorf-
endur. Sumir telja að það sé
vegna þess að áhorfendur vilji
fyrst og fremst sjá KR-inga tapa,
frekar en að sjá heimaliðið vinna.
Með KR leikur Óskar Ingi-
mundarson markakóngur 2.
deildar frá því í fyrra, en
hann lék í mörg ár með KA. Það
verður sennilega erfitt hlutskipti
fyrir hann að skora hjá sínum
gömlu félögum, en ef KA strák-
arnir'gera nógu mörg mörk ætti
ekki að koma að sök þótt Skari fái
að gera eitt eða svo.
Á laugardaginn fara Þórsarar
til Kópavogs og leika þar við
Breiðablik. Þeir áttu góðan leik
gegn þeim í fyrri umferð, og ef
þeir ná upp sömu baráttu og þá
ættu þeir að geta veitt þeim verð-
uga keppni. Nú verða þeir að ná í
stig ef þeir ætla ekki að falla í
aðra deild.
Handknattleikur
KA-MENN Á
FULLRI FERÐ
Æfingar hjá fyrstu deildar
liði KA í handknattleik eru nú
hafnar af fullum krafti. Birgir
Björnsson hefur verið endur-
ráðinn þjálfari, og honum til
aðstoðar við þjálfunina verður
Jón Hensley. KA strákarnir
æfa nú fjórum sinnum í viku,
og fara æfingarnar fram úti, en
aðaláhersla er lögð á þrek-
æfingar.
Að sögn Þorleifs Ananíassonar
fyrirliða KA hafa nokkrir nýir
menn verið á æfingum hjá þeim
og t.d. hefur Sigurður Sigurðsson
sem lék með Þór haft félagaskipti
yfir í KA, og einnig leikmaður
sem áður lék með Fylki. Fleiri
Þórsarar hafa verið á æfingum
hjá okkur sagði Þorleifur, en ekki
er vitað hvort þeir ganga til liðs
við KA. Þá stóð til að til KA,
kæmi vel þekktur markmaður, en
það mál er í biðstöðu sagði Þor-
leifur. Ármann Sverrisson fyrrurn
KA-maður ætlar einnig að vera
með, þannig að uppistaðan verð-
ur „orginal KA-menn.“
Búast má við að Dalvíkingar
sendi lið í þriðju deildina þannig
að þeir Dalvíkingar sem í fyrra
léku með KA verði þar. Þá hefur
Gunnar Gíslason gengið í KR, en
hann ætlar að reyna sig þar ásamt
Alfreð bróður sínum. Gunnar
stundar nám við íþróttakennara-
skólann, þannig að mjög óhægt
hefði verið fyrir hann að leika
með fyrstu deildar liði á Akur-
eyri.
Þorleifur sagði að. þetta yrði
erfitt í fyrstu deildinni, og þeir
KA-menn legðu aðaláherslu á að
tolla uppi, því þar næsta vetur
mætti búast við að nýja íþrótta-
húsið yrði komið í gang, en það
mundi gera handknattleiknum
róðurinn léttari. Formaður
stjórnar handknattleiksdeildar
KAerGísli Bjarnason skólastjóri.
Ragnar Þorvaldsson.
Handknattleikur
I
ÞÓR ER
AÐ RÁÐA
ÞJÁLFARA
„Við erum að koma saman
stjórn og ráða þjálfara" sagði
Ragnar Þorvaldsson einn af
leikmönnum Þórs í hand-
knattleik.
Ragnar sagði að línurnar
skýrðust næstu daga, og þá
mundu Þórsarar fara að æfa af
fullum krafti. Þeir leika næsta
keppnistímabil í þriðju deild, en
hugsa eflaust gott til glóðarinnar
að vinna deildina strax á næsta
ári. Ragnar kvaðst ekki búast við
að handknattleiksmenn Þórs
ntundu snúa við þeim bakinu.
þótt þeir hefðu fallið i þriðju
deild, heldur myndu þeir standa
saman að því að koma hand-
knattleik Þórs á hærra plan. Enda
sagði Ragnar að í yngri flokkum
Þórs væri gnægð góðra leik-
manna sem yrði komnir í eldlínu
meistaraflokks innan skamms.
Guðjón Guðmundsson sem leik-
ur í fyrstu deildarliði Þórs í
knattspyrnu, er góður hand-
knattleikmaður, og hefur m.a.
leikið með meistaraflokki FH. og
ef hann verður með Þór mun
hann styrkja liðið vel.
Þorieifur Ananíasson í þrumufæri.
Óskar
í leik-
banni
Verður ekki með í
leik KA og KR annað
kvöld
i Óskar Ingimundarson
markaskorarinn úr KR
var í fyrrakvöld dæmdur í
eins leiks leikbann af
aganefnd KSÍ, en hann
fékk gult spjald í síðasta
leik sínum. Hann hefur
sennilega haft eitthvað af
refsistigum fyrir, því tíu
slfk þarf til að fara í leik-
bann. Óskar mun því ekki
hrella KA-vörnina í leik
KA og KR á föstudags-
kvöldið.
4.DAGUR
DAGUR.5