Dagur - 23.07.1981, Blaðsíða 6
St. Georgsgildið bjóða fötluð-
um aðstoð við að heimsækja
landsmót skáta í Kjamaskógi
laugardaginn 1. ágúst kl. 14-17.
Þeir sem vilja þiggja þetta góða
boð eru beðnir að hafa sam-
band við skrifstofu Sjálfsbjarg-
ar sem gefur allar nánari upp-
lýsingar mánudaginn 27. og
þriðjudaginn 28. júlí kl. 13-17 í
síma 21557. Sjálfsbjörg, félag
fatlaðra á Akureyri og ná-
grenni.
Ferðafélag Akureyrar. 31. júlí til
3. ágúst, Herðubreiðarlindir og
Askja. 1.-8. ágúst, Brúaröræfi.
Vorhappdrætti LRA: Þessi
númer hlutu vinning: Nr. 975
tveggja vikna ævintýraferð fyrir
tvo til Krítar. Nr. 98 Sanyo
ferðasterioútvarp og kassettu-
tæki. Nr. 1000 skinnjakki að
eigin vali. Nr. 506 Ritsafn Jóns
Trausta. Nr. 1785 og 1867
Vöruúttekt frá Sportvöru og
hljóðfæraversluninni að verð-
mæti kr. 500,00. Nr. 1013, 994,
974, 2390 vöruúttekt í Sport-
húsinu að verðmæti kr. 250,00.
Vinninga má vitja í Gullsmíða-
stofunni Skart.
AUGLÝSIÐ í DEGI
Nýja bíó sýnir í kvöld kl. 9
myndina „Á villigötum“ með
honum Travolta, John Lansing
og Andrew Rubín í aðalhlutverk-
um. Nick Martin var fæddur óg
uppalinn í óhrjálegu umhverfi í
Bronx-hluta New-Yorkborgar.
Hópar uppvöðslusamra unglinga
settu svip á hverfið, og rán og
Borgarbíó sýnir í kvöld kl. 9
myndina „Að sama tíma að ári“
er sýnd var við mikla aðsókn á
vegum Þjóðleikhússins fyrir
skömmu. í aðalhlutverkum eru
Ellen Burstyn og Alan Alda er
kunnur er fyrir leik sinn í sjón-
varpsþáttunum M.A.S.H. Kl. 11
verður sýnd myndin „IDI
AMIN“ með Joseph Olita og
Denis Hills í aðalhlutverkum.
Myndin hefst í Uganda árið 1979,
og er byggð á atburðum, sem þar
gerðust, valdarán og ógnarstjórn
einvaldsins Idi Amin.
morð voru þar tíð — Nick — var
fyrirliði eins hópsins, hann bjó
hjá móður sinni og átti tvo yngri
bræður. öll þráðu þau að komast
í annað og betra hverfi. Kring-
umstæðurnar höfðu neytt Nick út
á þessa hættulegu braut, því
þarna urðu menn að berjast fyrir
lífinu. Myndin er bönnuð fyrir
ungri en 16 ára.
Alþýðuleikhúsið sýnir:
Kona
eftir Dario Fo
Leikstjóri Guðrún Ásmundsdóttir.
Sýning í Samkomuhúsinu á Akureyri fimmtudaginn
23. júlíkl. 21.00.
Aðeins þessi eina sýning.
Miðasala frá kl. 17.00.
Frá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar
Nokkur hundruð hestar af heyi til sölu.
Vélbundið á túni eða úr hlöðu.
Upplýsingar gefnar í síma 22455 milli kl. 9-10 f.h.
Útförföður okkar, tengdaföður, afa og langafa
KRISTJÁNS SIGURJÓNSSONAR,
frá Eyri, Glerárhverfi,
sem andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 17. júlí
s.l., verður gerð frá Akureyrarkirkju mánudaginn 27. júlí kl.
13.30. Jarðsett verður að Lögmannshlið. Blóm og kransar af-
þakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á F.S.A.
Börn, tengdabörn, barnabörn og aðrir ástvinlr.
F.v. Björn Eirfksson, framkvæmdastjóri Skjaidborgar, Árni Bjamarson og Svavar Ottesen.
Glæsileg bók frá Skjaldborg:
Minningarbók íslenskra
hermanna 1914-1918
Bókaútgáfan Skjaldborg hefur
gefið út veglega bók sem heitir
Minningarbók Islenskra her-
manna 1914-1918. Bók þessi var
fyrst gefin út f Winnipeg í Can-
ada árið 1923 og er sú útgáfa
orðin mjög fágæt. Bókin er 527
blaðsíður að stærð bundin í
mjög vandað band af einum
Rauða húsið:
TUMI
SÝNIR
Laugardaginn 25. júlí n.k.
klukkan 15 opnar Tumi
Magnússon sýningu á verkum
sínum í Rauða húsinu. Þar verða
til sýnis teikningar og hlutir,
svokallaðir objectar.
Tumi er mosfellskur og stundaði
nám við Myndlista- og handíða-
skóla íslands auk þess sem hann fór
um lönd í listnámi sínu og var um
tveggja vetra skeið í Enschede á því
blauta Hollandi.
Sýning Tuma í Rauða húsinu
mun standa til sunnudagsins 2.
ágúst, og er opin frá kl. 15-22 alla
daga. Að venju eru engin boðskort
send út, en allir eru boðnir
velkomnir.
Rauða húsið.
ZENIT TTL
myndavél til sölu.
Með fylgja: 45 mm linsa,
135 mm zoom aðdráttar-
linsa, 35 mm breiðlinsa,
Rallei flash og leður-
taska.
Veró samtals kr.
3.600,00.
Upplýsingar í síma 23704
milli kl. 7 og 9 á kvöldin.
besta bókbindara íslands Ragn-
ari Einarssyni. Hún er með kjöl
úr skinni og með upphleyptu
ietri sem er mjög óvanalegt.
Bók þessi hefur að geyma
myndir og æviágrip allra Vestur-
íslendinga sem til náðist, er tóku
þátt í fyrri heimsstyrjöldinni
1914-1918 eða voru skráðir í her-
inn. Þá eru í bókinni myndir og
æviágrip hjúkrunarkvenna, sem
þátt tóku í styrjöldinni eða skráðar
voru til þjónustu. Ennfremur eru í
bókinni ítarlegar ritgerðir um
heimsstyrjöldina eftir þá séra
Rögnvald Pétursson og séra Björn
B. Jónsson. I bókinni er gífurlegur
fróðleikur um fjölda Vestur-ís-
lendinga og upplýsingar sem al-
menningur hér á landi hefur lítinn
aðgang haft að fram að þessu. Til
dæmis má sjá í ritgerð Björns B.
Jónssonar, upplýsingar sem unnar
eru úr skýrslum sem Jóns Sigurðs-
sonar félagið i Winnipeg gerði og
taldar eru þær ábyggilegustu
heimildir sem menn hafa um þessa
sögu.
Hinn 1. sept. n.k. tekur að nýju
til starfa skóladagheimilið
Brekkukot, Brekkugötu 8.
Starfsemi þess fer fram sam-
tímis skólum, þ.e. frá 1. sept. til
maíloka, en heimilið er þó jafn-
an opið á virkum dögum kring-
um stórhátíðir, þegar leyfi eru í
skólum.
Á skóladagheimilinu dvelja börn
á skólaaldri frá kl. 7.30 til kl. 17.30
og fá þau máltíðir á heimilinu. Þau
sækja þaðan skóla í heimahverfi
sínu. Þau sem langt eiga að sækja
eða ekki er óhætt að fari ein, eru
flutt milli skóla og heimilisins. Auk
Þar kemur meðal annars fram að
1245 íslendingar gengu í herþjón-
ustu í Canada og Bandaríkjunum á
stríðsárunum. Eftir því sem næst
verður komist létu 144 lífið f stríð-
inu. Af þeim féllu 94 í orrustu, 2
dóu af slysum, til tveggja hefur al-
drei spurst, 19 dóu af sárum og 27
af sjúkdómum. Árni Bjarnarson
bókaútgefandi á Akureyri, sem
löngu er landskunnur fyrir útgáfu á
bókum eftir Vestur-íslendinga og
af fjölþættum störfum í Þjóð-
ræknisfélaginu, hefur haft milli-
göngu um útgáfu bókarinnar og
ritar hann itarlegan formála í bók-
ina.
Það er trú þeirra sem þessa veg-
íegu bók hafa skoðað að sem flestir
vilji eignast hana. Bókin verður
eingöngu seld til áskrifenda og
verður gefin út í takmörkuðu upp-
lagi. Hægt er að gerast áskrifandi
að bókinni hjá Bókaútgáfunni
Skjaldborg. Ennfremur mun Árni
Bjarnarson sjá um söfnun áskrif-
enda og mun hann gefa allar upp-
lýsingar um bókina í síma
96-24334. Bókin kostar 600 krónur.
umönnunar á heimilinu fer þar
fram kennsla og aðstoð við heima-
nám í samvinnu við skólann. Aug-
lýst hefur verið eftir umsóknum um
vist veturinn 1981/82 og hafa þær
borist áð undanförnu. Enn eru þó
nokkur rými laus. Forgang hafa
börn einstæðra foreldra og börn
sem vegna skólaerfiðleika þurfa
sérstaklega á dvöl að halda. Gjald
er hið sama og á dagheimilinu
Pálmholti, þ.e. nú í sept., 650,- kr. á
mán. fyrir börn einstæðra foreldra
en 815,- kr. á mán. fyrir önnur.
Umsóknum skal beint til Félags-
málastofnunar Akureyrar, s. 25880,
þriðjudag og miðvikudag kl. 10-12.
Hús til sölu:
Til niðurrifs eða brottflutnings ca 100 m2 timburhús.
K. Jónsson & Co. h.f.
Niðursuðuverksmiðja
Sími21466
Brekkukot tekur
til starfa á ný
6.DAGUR