Dagur - 11.08.1981, Blaðsíða 6
Svalbarðskirkja. Guðsþjónusta
næstkomandi sunnudag kl.
11.00 árdegis. Sóknarprestur.
Akureyrarkirkja. f stað guðs-
þjónustu n.k. sunnudag er sam-
koma í kirkjunni kl. 17,00 á
vegum æskulýðssambands
kirkjunnar, en þangað eru allir
velkomnir. P.S.
Á fimmtudögum kl. 17.00 „opið
hús“ fyrir börn. Sunnudaginn
kl. 20.30 almenn samkoma að
Strandgötu 21. Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn.
tirpaloo oo
Ferðafélag Akureyrar. 22. ágúst,
dags grasatínsluferð. 22.-23.
ágúst, Glerárdalur gönguferð.
29.-30. ágúst, Flateyjardalur
berjatínsla.
itiaiMiHHlU
Hinn 25. júlí voru gefin saman í
hjónaband að Syðra-Lauga-
landi brúðhjónin Sigríður
Emilía Eiríksdóttir, Grísará I,
og Einar Þórketill Einarsson
námsmaður, Laugarnesvegi 78,
Reykjavík. Heimili þeirra er
Safamýri 45, Reykjavík.
Gjafir og áheit til Akureyrar-
kirkju, kr. 50 frá E.L.B, kr. 200
frá Jóhönnu og önnu, kr. 100
frá R.K.kr. 250 frá H.S. kr. 100
frá J.S.J. og kr. 500 frá N.N. sem
fékk ósk uppfyllta á örlaga-
stund. Áheit á Strandarkirkju
kr. 50 frá J.B. kr. 100 frá R.J., kr.
30 frá G.J., kr. 200 frá S.V., kr.
10 frá A.K., kr. 200 frá Brekku-
búa. Til fátækra barna í Konsó
frá fermingarbarni kr. 100.
Bestu þakkir. Birgir Snæbjörns-
son.
Borgarbíó sýnir
„Helför 2000“
Borgarbíó sýnir í kvöld „Helför
2000“ — hrollvekjandi framtíðar-
sýn blandna fornum trúarsiðum og
spádómum — gerða í samvinnu af
breskum og ítölskum aðilum.
í aðalhlutverkum eru Kirk
Douglas, Simon Ward og Agostina
Belli.
Öllum vinum og vandamönnum sem glöddu mig á
nírœðisafmœli mínu 22. júlí 1981 með heimsókn-
um, gjöfum og kveðjum, þakka ég af alhug. Einnig
Umf. Gaman og alvara og söfnuði Þóroddsstaðar-
sóknar er heiðruðu mig við sama tœkifœri. Þá vil ég
þakka Kvenfélagi Þóroddsstaðarsóknar ómetan-
lega hjálp við að láta gestum mínum líða vel, og mér
daginn ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
Hálsi 27. júlí 1981.
MARTEINN SIGURÐSSON.
Móðir okkar og amma,
ÞORGERÐUR JÓHANNESDÓTTIR,
Þlngvallastræti 31,
lést þann 8. ágúst s.l. á Landakotsspítala, Reykjavík.
Börn og barnabörn.
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóð r, ömmu, langömmu og langa-
langömmu,
KRISTÍNAR MARGRÉTAR
SIGURÐARDÓTTUR,
Glerárholti 1, Akureyri.
Ingólfur Marteinsson, Erla Þórðardóttir,
Ester Martelnsdóttir, Gunnlaugur Einarsson,
Hannes Marteinsson,
Sigríður Marteinsdóttir, Hámundur Bjarnason,
Páll Marteinsson, Ásdís S. Þorsteinsdóttir,
Lárus Marteinsson, Slgrún Gústafsdóttir,
Birgir Steinþórsson, Edda Gísladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Systir mín,
KRISTÍN KONRÁÐSDÓTTIR,
Gierárgötu 8,
andaðist aðfararnótt 8. ágúst í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri.
Svava Hjaitalín.
„Þeir prédika enn
með hljóðri bæn“
- Ræða séra Péturs Sigurgeirssonar við afhjúpun
minnisvarða fyrstu kristniboðanna hjá Gullsteini í Húnaþingi
Þegar þessi hátíðastund er upp
runnin, og minnisvarðinn um
fyrstu kristniboða á íslandi verður
afhjúpaður af biskupinum, herra
Sigurbirni Einarssyni, er rétt að
fara nokkrum orðum um tildrög
verksins, og gerð minnisvarðans.
Þá er þar fyrst til að taka, að í
byrjun árs 1978 gaf Jón H. Þor-
bergsson að Laxamýri 100 þúsund
gamlar krónur, er varið skyldi til
sjóðstofnunar í því skyni að reisa
Þorvaldi víðförla og Friðriki bisk-
upi minnismerki hér á söguslóðum
þeirra í Húnávatnsþingi í tilefni af
þúsund ára afmæli kristniboðsins.
Hinn kunni bændahöfðingi og
lýðháskólamaður, Jón H. Þor-
bergsson, hafði margsinnis áður
sýnt hug sinn til eflingar kirkju og
kristni í landinu með gjöfum sín-
um, og hann fylgdi þeim eftir með
bænarkrafti og trúarhita. Jón H.
Þorbergsson lagði fyrstur manna
fram skerf sinn til þessa minnis-
varða. Jón andaðist í hárri elli 5.
janúar 1979, níutíu og sex ára
gamall.
Vil ég nú biðja viðstadda að
votta minningu hans virðingu og
þökk með því að rísa úr sætum.
Stjórn Prestafélags hins forna
Hólastiftis, sem fékk gjöfina til
varðveizlu og ávöxtunar kaus
þriggja manna nefnd til þess að
fylgja málinu eftir. í nefndinni eru
auk mín, séra Pétur Ingjaldsson
prófastur og bóndinn á Stóru-
Giljá, Erlendur Eysteinsson. Og
hefur nefndin unnið að tilhögun og
gerð minnisvarða í samráði við
biskup. Ragnar Kjartansson
myndhöggvari var fenginn til þess
að gera minnisvarðann. Og það vil
ég sérstaklega taka fram og þakka,
að Ragnar Kjartansson gefur hug-
verkið sitt — og er þar um mikla
rausn og fórnarhug að ræða.
Minnisvarðinn er steyptur úr
blágrýtismöl í Steinsmiðju Sigurð-
ar Helgasonar í Reykjavík. Varðinn
er 2 og 'ö meter á hæð og vegur 5
tonn. — Ragnar vann við að steypa
minnisvarðann og fylgdist með
verkinu þar til það var fullunnið. —
Ragnar getur því miður ekki verið
hér með okkur í dag, þar sem hann
veiktist af lungnabólgu í fyrri viku
og liggur í sjúkrahúsi en hér er á
meðal okkar í dag eiginkona hans
Katrín Guðmundsdóttir tveir synir
og tengdadóttir. Fyrir hönd okkar
þakka ég Ragnari og Sigurði
Helgasyni forstjóra mikið og vel
unnið verk. Sigurður Helgason
fylgdi minnisvarðanum norður og
sá um uppsetningu hans ásamt Er-
lendi bónda á Stóru-Giljá.
Menn urðu sammála um að ætla
steininum stað, þar sem hann er nú
niður kominn. Tvennt réði þar um,
að hann væri við alfaraleið og ekki
langt frá Gullsteini, sem er tengdur
sögu kristniboðanna. Hér er því í
vissum skilningi komnir tveir
bautasteinar, og spölurinn milli
þeirra eru spor þúsund áranna.
Með þessum orðum er ekki öll
forsagan sögð, um aðdraganda
þessarar hátíðar, því að á tímabili
starfaði nefnd Héraðsfundar
Húnavatnsprófastsdæmis að því að
undir búa þetta stóra afmæli. Var
það aðallega fyrir forgöngu séra
Gísla Kolbeins, er þá var prestur í
Melstaðarprestakalli, en er nú
prestur í Stykkishólmi. Með hon-
um í nefndinni voru Konráð Egg-
ertsson Haukagili og Guðrún
Jónsdóttir Hnjúki. Meðan þessi
nefnd starfaði var uppi hin sama
hugmynd um að reisa kristniboð-
unum minnisvarða.
Stóra-Giljá kemur að vonum
oftast við sögu, þar sem Þorvaldur
var borinn og barnfæddur, — en
Gullsteinn og svæðið hér umhverf-
is, er í landi Kringiu sem er næsti
bær. Bœndurnir þar, Hallgrímur
Kristjánsson og Reynir Hallgríms-
son, veittu góðfúslega leyfi sitt til
þess að reisa minnismerkið í þeirra
landareign, — og kunnum við þeim
bestu þakkir fyrir það. Minnis-
merkið er u.þ.b. 25 metra frá miðju
akvegar, og er í beinni Iínu milli
Gullsteins og Þingeyrarkirkju.
Um fjárhagshliðina er það að
segja, að sjóðurinn, sem upphaf-
lega var 100 þúsund gamlar krónur
hefir nú hundraðfaldast, — og
nemur nú 100 þúsund nýkrónum.
Sjóðnum hafa borizt margar gjafir.
sem of langt mál yrði upp að telja.
En sjóðurinn þarf ennþá að vaxa
svo að hægt sé að greiða allan
kostnað við minnisvarðann.
Barmmerkið, sem er nákvæm
mynd af minnismerkinu, gerði ís-
spor í Reykjavík, — og ágóðinn af
sölu þess rennur í minnisvarða-
sjóðinn, og er nú á boðstólum í dag.
Minnisvarðinn rís hér á melnum
til að segja á sínu máli, það sem
skrifað stendur: „ Verið minnugir
leiðtoga yðar, þeirra, sem Guðs orð
hafa tilyðar talað ...“ Steinninn á
um aldur og ævi að minna á frum-
votta hins kristna siðar á íslandi, og
tala þeirra máli:
„Komið til hans, hins lifanda
steins, sem að sönnu var útskúfað af
mönnum, er hjá Guði útvalinn og
dýrmœtur. “
Að lokum þakka ég meðnefnd-
armönnum mínum í minnisvarða-
nefnd ágætt samstarf og hátíðar-
nefndinni allan undirbúning að
þessum hátíðisdegi. Okkur er það
mikil gleði að biskup gat orðið við
þeirri beiðni okkar að afhjúpa
minnisvarðann. Bóndanum á
Stóru-Giljá, Erlendi Eysteinssyni
þökkum við sérstaklega, en á hon-
um hefur mikið mætt undanfarna
daga.
Um aldur og æfi munu Þorvald-
ur víðförli og Friðrik biskup af
Saxlandi vera hér á varðbergi í
nýjum búningi. Þeir prédika enn á
sínu þögla máli í hljóðri bæn —
fyrir þeim sem um veginn fara.
„Nemið staðar við veginn og lit-
ist um og spyrjið um gömlu göt-
urnar, hver sé hamingjuleiðin, —
og farið hana.“
(Jer. 6,16.).
Skolþurrkur það sem koma skal?
Þórshamar á Akureyri hefur
tekið að sér að selja nýja gerð af
rúðuþurrkum á bifreiðar, en
þessar þurrkur, sem heildverslun
Árna Scheving flytur til lands-
ins, nefnast „skolþurrkur“.
Þegar þessar þurrkur eru settar á
bifreiðina er hið svokallaða „rúðu-
piss“ aftengt og með tilkomu nýja
útbúnaðarins er úr sögunni hið sí-
gilda og hvimleiða vandamál er
vatnsbunan fýkur til hliðar við
rúðuna eða upp á topp bifreiðar-
innar.
ísetning nýja útbúnaðarins er
ákaflega einföld, en skolþurrkurn-
ar vinna þannig að vatnsbunan
kemur úr blöðkum, ávallt á þann
Stað þar sem þurrkan vinnur hverju Hver þekkir ekki vandræði eins og þau sem efri myndin sýnir? ökumaðurinn á neðri
sinni. myndinni notar skolþurrkur.
6 - DAGUR -11. ágúst 1981