Dagur - 18.08.1981, Side 1
64. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 18. ágúst 1981
62. tölublað
mmmmmwmwmmMmmmmatwmuum
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
v SIGTRYGGUR
1 AKUREYRI
& PÉTUR
KodaK
MINKAR
FENGU
HEIMSÓKN
97 drepnir á
Melrakkasléttu
„Við drápum miklu meira en 97
minka, en það er engin leið að
segja til um hversu margir þeir
voru. Við notuðum sprengiefni,
og það var ekki alltaf svo gott að
komast að grenjunum eftir
sprengingarnar. Við fundum
bara þessi 97 skott“ sagði Arn-
kell Þórólfsson frá Hraunkoti í
Aðaldal, en hann var á dögunum
á minkaveiðum við Deildará og
Ormarsá á Sléttu ásamt Vil-
hjálmi Jónassyni frá Sílalæk.
Þeir voru þarna við veiðarnar í
hálfan mánuð. Vilhjálmur var einn
fyrri vikuna en síðan slóst Arnkell
með í förina. Voru þeir vel útbúnir
til veiðanna höfðu t.d. sprengiefni,
járnkarla, byssur og hunda með í
förinni og minkarnir sem hafa
fengið að hreiðra um sig í ró og
næði á bökkum ánna, fengu heldur
betur heimsóknina.
Arnkell sagði í samtali við DAG
að sennilega væri mikið eftir af
mink á þessum slóðum, veiði þar
hefði ekki verið sinnt sem skyldi.
Ekki væri ákveðið hvort þeir héldu
aftur á þessar slóðir í sumar, það
færi eftir því hvað bændur á þess-
um slóðum vildu kosta til veið-
anna.
Að sögn mun veiði í þessum ám
hafa verið með allra minnsta móti í
sumar. Ekki skal hér fjölyrt um
ástæður þess, en ekki er ólíklegt að
velmegun minkanna á árbökkun-.
um eigi þar einhvern hlut að máli.
Leggja niður „Kvenna-
fangelsið‘ ‘ á Akureyri
Dómsmálaráðuneytið athugar m.a. hvort ekki sé hægt
að vista kvenfanga í sveit
Þann 27. október 1980 kom
fyrsta konan í svokallað
„kvennafangelsi“ á Akureyri.
Síðan hafa verið þar 7 konur í
lengri og skemmri tíma. í
byrjun mánaðarins var ein
konan látin laus og önnur er
nú á sjúkrahúsi. Það dvelur því
enginn í „kvennafangelsinu“
og að sögn Þorsteins Jónsson-
ar, í dómsmálaráðuneytinu, er
ljóst að starfsemi þess verður
breytt, en umrætt fangelsi er
ekki talið hæft til að hýsa fólk
sem þarf að sitja af sér langa
dóma.
„Það er spurningin um það
hvort við finnum aðra lausn á
kvennafangelsismálunum. Það er
Ijóst að fangelsið á Akureyri
hentar ekki fyrir langtímagæslu,
hvort sem það eru karlmenn eða
kvenmenn. Hér á landi eru konur
sem þurfa langtímagæslu og við
erum að leita annarra leiða, en
enn hefur ekkert komið út úr
okkar athugunum. Afplánunar-
fangelsinu á Akureyri verður því
breytt í sama horf og áður — þ.e.
að menn séu þar í skamman
tíma,“ sagði Þorsteinn.
Athuganir starfsmanna dóms-
málaráðuneytisins ná m.a. til þess
hvort hægt sé að finna sveitabæi
þar sem kvenfangar, refsifangar,
gætu dvalið meðan þeir sitja af
sér langa dóma.
Hér á landi eru nokkrar konur,
sem eiga yfir höfði sér langa
dóma og svo getur farið að þeim
verði komið fyrir í Akureyrar-
fangelsinu til bráðabirgða, með-
an leitað er annarra leiða.
Þorsteinn sagðist ekki búast við
að endanleg ákvörðun um fram-
tíð kvenfanga, með langa dóma,
lægi fyrir í þessum mánuði. Á
sínum tíma voru 3 konur ráðnar í
2 fullar stöður kvenfangavarða og
getur svo farið að þeim verði sagt
upp innan tíðar.
Erlingur Pálmason, yfirlög-
regluþjónn á Akureyri sagðist
vera ánægður yfir því að nú ætti
að hætta að hýsa kvenfólk í fang-
elsinu til langs tíma. „Það eru
ýmsir annmarkar á þessu hús-
næði,“ sagði Erlingur og undir
þau orð geta víst allir tekið.
Ætli dúkkurnar séu á útsölunni? Ætli ég eigi nóga peninga? Þessa skemmtilegu mynd tók Kristján í miðbænum i siðustu
viku.
Krossanes:
Fyrsta
loðnan
Fyrsta loönan sem barst til
Krossanesverksmiðjunnar á
þessu sumri kom þangað s.l.
laugardag, en þá kom Jón
Finnsson þangað með 520 tonn.
Að sögn Péturs Antonssonar
forstjóra Krossanesverksmiðjunnar
á hann von á meiri loðnu. og
sennilega hefur hún borist þegar
þetta blað kemur út. Pétur sagði að
afköstin hjá verksmiðjunni væru
250-300 tonn á sólarhring, en þegar
stækkun verksmiðjunnar yrði lokið
myndu afköstin aukast verulega.
Talsvert hefur borist af loðnu til
hafna norðanlands að undanförnu.
Þannig var ástandið til dæmis s.l.
laugardag að verksmiðjurnar á
Siglufirði og Raufarhöfn gátu að-
eins tekið á móti afla eins báts til
viðbótar. Loðnuvertíðin í ár hefur
byrjað fyrr en venjulega og eru
menn bjartsýnir á góðan afla.
10 ára strákur á veiðum:
Beitti síld og fékk
fjórtán punda urriða
Tíu ára piltur, Ámundi Rúnar
Sveinsson frá Víðimel í Seilu-
hreppi fékk heldur betur á
krókinn er hann var að veiðum
í Húseyjarkvisl í Skagafirði
fyrir helgina. Hann fór í kjöl-
far veiðimanna frá Akureyri og
kastaði í hyl þar sem þeir
höfðu verið við veiðitilraunir
án árangurs. Strákur hafði svo
sannarlega erindi sem erfiði,
því 14 punda urriði beit á hjá
honum og var landað eftir
harða baráttu.
Frændi Ámunda, Jón Árnason
frá Sauðárkróki, var að veiðum í
Húseyjarkvísl um morguninn.
Hann leyfði tveimur dætrum sín-
um að taka í stöngina og þær
Hallfríður Bára sem er 16 ára og
Sigurlaug sem er 11 ára fengu
sinn laxinn hvor. Jón gaf síðan
Ámunda og frænda hans leyfi til
að veiða með einni stöng eftir
hádegið, og Ámundi hafði svo
sannarlega heppnina með sér.
Rúsínan í pylsuendanum er
síðan sennilega það að agnið sem
Ámundi notaði við „happadrátt-
inn‘ var hvorki maðkur, fluga eða
spónn, heldur beitti strákur síld.
Verða æ oftar
varir við hass
„Því er ekki að leyna að við
höfum heyrt meira talað um
hass en venja var. Einnig má
geta þess að á þessu ári hafa
komið upp óvenjumörg tilfelli
þar sem við höfum náð í efn-
in,“ sagði Daníel Snorrason
rannsóknarlögreglumaður á
Akureyri, en svo virðist sem
eiturlyf s.s. hass og skyld efni
gerist æ algengari á Akureyri.
Daníel sagði að Akureyrarlög-
reglan hefði nána samvinnu við
fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavik. Eins og skýrt var frá á
sínum tíma leiddu handtökur 3ja
manna að sunnan á Akureyri í
vor til þess að maður í Reykjavik
var handtekinn. Við nánari at-
hugun kom í Ijós að sá hinn sami
hafði umtalsvert magn af eitur-
efnum í sínum fórum.
AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 21180