Dagur - 01.10.1981, Side 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDOIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
64. árgangur
FÍLMUhúsib akureyri
76. tölublað
BÆTIST I
HÓPINN
Nýlega bættist enn einn í hóp
þeirra bæjarbúa á Akureyri sem
uppvísir hafa orðið af þvi að
stela heitu vatni í bænum. Er
tala þeirra sem staðnir hafa ver-
ið að þessum þjófnaði því komin
upp í 10-12.
Að sögn Ófeigs Baldurssonar
rannsóknarlögreglumanns á Akur-
eyri er ekki útilokað að fleiri eigi
eftir að bætast í hópinn, því verið er
að athuga með fleiri hús þar sem
þjófnaður af þessu tagi gæti hafa
átt sér stað.
Ófeigursagði að enn hefðu engar
kærur verið gefnar út í þessum
málum, en það yrði gert. Ástæðan
fyrir því áð það hefði ekki verið
gert enn, væri sú að málin væru enn
í höndum rannsóknarlögreglunnar.
BÚIÐ AÐ
SELJA
„FLAKK-
ARANN“?
„Það er ekkert öruggt í þessu
máli fyrr en við sjáum hann sigla
út fjörðinn“ sagði Gunnar
Ragnars forstjóri Slippstöðvar-
innar á Akureyri í samtali við
Dag, um söluna á „Flakkaran-
um“ svokallaða.
Samningar hafa nú tekist um
sölu á skipinu, og er kaupandi
Hafliði Þórsson í Sandgerði. En
það ber að taka fram að samningar
voru undirritaðir með venjulegum
fyrirvara, og sagði Gunnar að nú
væri unnið að því að ryðja
hindrunum ,úr vegi. Starfs-
menn Slippstöðvarinhar vinna að
því þessa dagana að breyta skipinu
þannig að það verði tilbúið til tog-
veiða.
Áætfanir um útflutning á steinull standast ekki:
Verður verksmiðjustaður
ákveðinn í næstu viku?
Líkur eru taldar á því að á ríkis-
stjórnarfundi í næstu viku muni
það ráðast, hvar steinullarverk-
smiðju verður valinn staður. Sf-
fellt hefur sigið á ógæfuhliðina
fyrir sunnlendingum í þessu
rnáli, þvi eftir því sem Dagur
hefur fregnað þá ýmist standast
ekki áætlanir þeirra um út-
flutning á steinull eða forsendur
hafa brostið.
Þannig hefur heyrst að stór
kaupandi í Hollandi og dreifing-
araðili til annarra Evrópulanda
hafi tilkynnt fyrir skömmu, að fyr-
irtæki hans muni hætta’ að versla
með steinull eftir áramótin, vegna
erfiðleika á byggingamarkaði í
Evrópu. Þá munu hafa komið í ljós
veigamiklir gallar á útreikningum
varðandi flutningskostnað til ann-
ars heildsöluaðila í Evrópu, sem
talið var að gæti annast sölu á
steinull.
Eins og nú horfir virðist út-
flutningur á steinull úr sögunni, en
sem kunnugt er vilja sunnanmenn
setja á laggirnar stóra steinullar-
verksmiðju með útflutning í huga,
en Sauðkrækingar miða við innan-
landsmarkað og hugsanlegri
stækkun verksmiðjunnar síðar.
Allt virðist því benda til þess að
steinullarverksmiðja verði reist á
Sauðárkróki og hafa menn látið að
því liggja við Dag, að ekki vanti
nema um eitt prósent upp á að lík-
urnar verði alfarið með Króknum.
Talið er að iðnaðarráðherra og rík-
isstjórn muni leggja áherslu á að
afgreiða málið fyrir þingbyrjun.
Gangnamenn f Húnavatnssýslu. Myndina tók Magnús
Ólafson, Sveinsstöðum, af gangnamönnum og fararskjóta
eins þeirra. Til að fyrirbyggja misskilning skal tekið fram að
f fleygnum er mjólk.
Akureyri:
INNBROTAALDA
Innbrotaaida virðist nú ganga
yfir á Akureyri, en síðan um
helgi hafa verið framin 6 innbrot
í bænum.
Um helgina var brotist inn í Hið
gamla hús endurhæfingarstöðvar
Sjálfsbjargar við Hvannavelli og
stolið þaðan um 1200 krónum úr
peningakassa. Þá var einnig brotist
inn í lager Sjafnar og reynt að opna
þar peningaskáp en án árangurs.
Um helgina voru einnig unnin
skemmdarverk í nýbyggingu Dags
við Strandgötu.
I fyrrinótt voru síðan framin þrjú
innbrot á Akureyri. Farið var inn í
tvö fyrirtæki á Óseyri. Haga þar
sem einhverju af peningum var
stolið, og fyrirtækið Úretan, þar
sem engu var reyndar stolið. Þá var
brotist inn í verslunina Esju við
Norðurgötu og stolið þaðan tóbaki.
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri vinnur nú að rannsókn þessara
mála. Hvetur hún alla sem geta
gefið upplýsingar um grunsam-
legar mannaferðir á kvöldin og um
nætur að undanförnu að láta vita,
en álitið er að unglingar séu hér að
verki.
Síldveiðar
ekki
stöðvaðar
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
ákveðið að leyfa lagnetaveiðar á
síld áfram til og með 4. október. Er
þetta gert vegna þess að veður hef-
ur hamlað veiðum og eins hefur
aflast mjög misjafnlega á einstök-
um verstöðvum.
M.A.
settur
Menntaskólinn á Akureyri verður
settur n.k. sunnudag á sal klukkan
14. Nemendur í reglulegu námi eru
tæplega 600 talsins, en nemendur í
öldungadeild eru nær 130. Að sögn
Tryggva Gíslasonar, skólameistara,
hafa nemendur aldrei verið fleiri í
skólanum. Nauðsynlegt reynist að
neita 60 manns um skólavist, bæði
vegna þrengsla í heimavist og
skólahúsnæði.
„Best að gefa bænum húsið‘
f
„Eða loka því“ — segir Sigurður Jóhannsson, forstjóri félagsheimilisins Tjarnarborgar á Ólafsfirði
vegna skattheimtu ríkisins á félagsheimili
„Skattstjóraembættið i Norður-
landsumdæmi eystra er búið að
skrifa okkur tvívegis. Við svör-
uðum þeim reyndar í millitíð-
inni, en í bréfum þeirra var sagt
að Félagsheimilið Tjarnarborg
muni verða skattlagt samkvæmt
lögum“ sagði Sigurður
Jóhannsson forstjóri félags-
heimilisins Tjarnarborgar í
Ólafsfirði í samtali við Dag.
„Ástæðan fyrir þessu er vafalaust
á rökum reist, þar sem það mun
hafa fallið niður í nýju skattalög-
unum ákvæði sem þar var áður um
að félgasheimili skuli vera undan-
þegin aðstöðugjaldi, eignarskatti
og öðru. Þetta féll niður einhverra
hluta vegna, hvort það er yfirsjón
þeirra sem með málið fóru veit ég
ekki, en það sem kemur mér mest á
óvart er að það hefur ekkert
félagsheimili í umdæmi skattstjór-
ans á Norðurlandi eystra fengið
bréf varðandi þetta mál nema
Tjarnarborg í Ólafsfirði.“
„Það sem ég hef gert í þessu máli
er að ég fór með þetta í Mennta-
málaráðuneytið, og ráðuneytið
mun vera að vinna eitthvað í þessu
máli eftir því sem ég best veit.
Einnig hef ég óskað eftir því við
þingmenn að þetta verði lagfært,
því ég held að þarna sé á ferðinni
mikið óréttlætismál.“
„Ef þessi félagsheimili eiga að
standa undir nafni sem menning-
arstofnanir og félagsmiðstöðvar þá
verður að stöðva þetta. Félags-
heimilin verða ekki rekin með
svona skattlagningu, þvi ég veit
ekki um það félagsheimili sem
hefur skilað hagnaði, án þess að
greiða þessi gjöld. Stjóm félags-
heimila á Norðurlandi hefur fjallað
um málið og mótmælt þessu harð-
lega.“
— Sigurður sagði að hans álit
væri, að hér væri verið af hálfu
Skattstjóraembættisins á Norður-
landi eystra að koma af stað próf-
máli. Eitt slíkt mál hefði verið rekið
á Reykjanesi, en þar tapaði félags-
heimilið Festi í Grindavík því máli.
„En ef þeir ætla að skattleggja
okkur svona, þá skulu þessir herrar
aðeins hugsa sinn gang og gera sér
grein fyrir afleiðingum þess. Þá
væri sennilega best að loka bara
þessum húsum. En réttasta svarið
ef þeir ætla að fara þá leið er auð-
vitað að gefa bæjarfélaginu húsin
því þeir geta ekki skattlagt bæjar-
félögin á þennan hátt.“
AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITST
4 $3íf\
1