Dagur - 27.10.1981, Qupperneq 5
DAGUR
Útgofandi: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
Skrifíitofur: Hafnarstræti 90, Akureyri
Ritstjórnarsímar: 24166 og 21180
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamenn: Áskell Þórisson,
Gylfi Kristjánsson
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SfGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Búseta og
sauðfjárrækt
Nýlega birtist athyglisverð grein í
tímaritinu Frey, þar sem fjallað er
um erfiðleikana sem nú blasa við í
sauðfjárrækt og hugsanlega bú-
seturöskun sem af gæti hlotist.
Bent er á að 10% útflutningsbætur
dugi nú ekki til og hafi reyndar
ekki gert í þrjú ár. Því þurfi annað
og meira að koma tii. Síðan segir í
greininni:
„í heilum sveitum hafa menn
sauðfjárrækt að aðalatvinnu og sé
nú fótunum kippt undan þessari
atvinnugrein verður ekki aðeins
mörgum byggðum hætt, heldur
líka atvinnu fjölmargra í þéttbýlinu
sem starfa við úrvinnslu úr sauð-
fjárafurðum. Hvað gerist ef dregið
verður úr stuðningi við sauðfjár-
ræktina? Byggð mun grisjast.
Hér þurfa allir hlutaðeigandi að
athuga sinn gang. Spurningin er
hver er að gera hvað ffyrir hvern,
bændur og annað strjálbýlisfólk,
sem leggja á sig að halda í byggð
þeim hluta landsins sem byggi-
legur má teljast, eða samfélagið,
sem nýtur góðs af þolgæði þessa
fólks. Ef kæmi til mikillar búsetu-
röskunar, en slíkt er vel hugsan-
legt, yrði gífurlega dýrt bæði fyrir
einstaklingana og þjóðfélagið að
finna mönnum húsnæði og at-
vinnu á nýjum stað. Ekki má held-
ur gleyma hinum mannlega þætti
og þeim andlegu þjáningum, sem
slíkt umrót og rótarslit hefði í för
með sér fyrir fjölda fólks.
Án alls efa verður hagkvæmara
fyrir þjóðfélagið að styðja þær
byggðir sem mest er hætt með því
að efla þar nýjar atvinnugreinar.
Má þar nefna loðdýrarækt, fiski-
rækt og iðnað. Þetta getur tekið
nokkurn tíma og á meðan verður
að leggja kapp á að leita hag-
kvæmra kjötmarkaða. Athugandi
er hvort erlend markaðskönnun-
arfyrirtæki geta ekki verið okkur
innan handar við það.“
„Við getum ekki sætt okkur við
að búseta í þessu landi verði eins
og á Grænlandi, þ.e. hér verði fá-
einar byggðir á stangli, veiði-
stöðvar og kaupstaðir, með stór-
um eyðiflákum á milli. Þess vegna
eigum við að gera allt sem í okkar
valdi stendur til að viðhalda þeirri
byggð sem nú er í landinu með
nauðsynlegum ráðstöfunum. Víða
um land verður búseta ekki tryggð
nema sauðfjárrækt verði studd
næstu ár, meðan verið er að
byggja upp aðrar búgreinar eða
atvinnugreinar í sveitum."
Frumsýning á „Jómfrú Ragnheiöi ‘ hjá Leikfélagi Akureyrar:
ÁHORFENDUR
GLEYMDU
STUND OG STAÐ
Ragnheiður (Guðbjörg Thoroddsen) ræðir við föður sinn, Brvnjólf biskup (Mar-
inó Þorsfeinsson). Mynd: K.G.A.
Leikfélag Akureyrar:
Jómfrú Ragnheiður
Leikstjóri: Bríet Héðinsdóttir
Leiksviðsstjóri:
Þráinn Karlsson
Tónlist: Jón Þórarinsson
Lýsing: David Walters
Leiktjöld og búningar:
Sigurjón Jóhannesson.
Leikfélag Akureyrar frumsýndi
s.l. föstudagskvöld leikritið Jóm-
frú Ragnheiður eftir Guðmund
Kamban í leikgerð Brétar Héð-
insdóttur. f fáum orðum sagt:
Leikararnir héldu athygli áhorf-
enda allan sýningartímann; á
stundum gleymdu áhorfendur
stund og stað og undirritaður er
ekki frá því að stöku tár hafi
hrunið af hvörmum salargesta.
í ágætri grein í leikskrá segir
Jakob Benediktsson m.a.:
„Guðmundur Kamban hafði bú-
ið sig vel undir að semja Skálholt;
hann kynnti sér heimildir um
sögu Brynjólfs biskups eftir föng-
um, las ógrynni af bréfum og
gögnum, tíndi saman allt sem
hann gat hendur á fest um málefni
þeirra Daða og Ragnheiðar... .
heimildir um Daða og Ragnheiði
eru ekki fjölskrúðugri en svo að
skáldið hafði frjálsar hendur að
yrkja í eyðurnar um flest nema
grófustu megindrætti. Ragnheið-
ur var látin sverja skírlífi sitt, og
réttum fjörutíu vikum síðar ól
hún Daða barn. Sór hún rangan
eið eða ekki? Sá grunur var miklu
hættulegri en barneignin. Kamb-
an reis gegn arfsögninni — grun-
semdinni um meinsæri — sem
fyrst kemur fram hjá Jóni Hall-
dórssyni, og sýndi að hún verður
ekki sönnuð; hann ætlaði sér að
hreinsa Ragnheiði af grun um
rangan eið og hefja ástir hennar
og Daða í hærra veldi. Skýring
Kambans verður ekki hrakin með
sögulegum rökum; í skáldverkinu
er hún dramatísk og sjálfri sér
samkvæm, burðarásinn í leikrit-
inu og fyrri helmingi skáldsög-
unnar.“
Leikgerðin er á þann hátt að
áhorfandinn fær mikla samúð
með þeim skötuhjúum og um leið
ákafa andstyggð á Brynjólfi, sem
leikinn var af Marinó Þorsteins-
syni. Marinó féll vel í hlutverkið og
sýndi það enn einu sinni að hann
er einn besti leikari síðari ára hjá
L.A. En það er annar leikari sem
á mikið lof skilið fyrir framistöðu
yfirleitt. Og það er rétt að fara
nokkrum orðum um leiktjöld og
búninga Sigurjóns Jóhannssonar.
Hluti búninga var fenginn að láni
frá Þjóðleikhúsinu og hluti af
leikmunum kom einnig þaðan.
Eflaust hefur fólk á I7. öld gengið
í svipuðum fatnaði, en tæplega
hafa fengist reimaðir skór með
nælonbotnum hjá kaupmönnum,
eins og eiðsvottarnir gengu í. Það
ber að hugsa jafnt um smæstu
atriðin og þau stærstu. Öðru vísi
næst ekki sá heildarsvipur sem er
nauðsynlegur.
Það var ánægjulegt að sitja í
Samkomuhúsinu á föstudags-
kvöldið og var að heyra á áhorf-
endum um leið og þeir gengu út
að leikendum hefði tekist
óvenjuvel upp. Ef önnur verkefni
L.A. í vetur verða áþekk hvað
varðar vandaðan leik og leik-
stjórn er óhætt að fullyrða að fé-
lagið er á réttri leið. á.þ.
sína. Guðbjörg Thoroddsen túlk-
aði Ragnheiði Brynjólfsdóttur af
ótrúlegum næmleik og miklu
innsæi. Leikfélagi Akureyrar var
mikill fengur að fá hana norður
til starfa og ætti að halda henni
eins lengi og nokkur er kostur.
Frammistaða annarra leikara var
yfirleitt á einn veg: Þeir léku.vel,
en að niínu mati hefði Hákon
Leifsson, í hlutverki Daða, mátt
vera ögn meira afgerandi. Hér er
á ferðinni ungur maður, sem ekki
hefur hlotið leiklistarmenntun,
en hann á eflaust eftir að ná sér á
strik í seinni sýningum.
Bríeti Héðinsdóttur hefur tekist
að móta vel þann efnivið sem hún
fékk í hendur. Leikurinn gekk
hnökralaust eins og vænta mátti.
Bríet mun vera kröfuharður leik-
stjóri, en sú harka er ekki meiri en
svo að leikararnir leystu hlutverk
sín af mikilli ánægju sem er for-
senda þess að leikrit heppnist
<
o
xc
■o
c
>.
s
„Gáfur, lærdómur, völd, allt var Brynjólfi betur gefið en tungu, — ósveigjanlegur og sannfærður um sjálfs sín rétt-
öðrum, og allt kom það fyrir ekki“, segir i leikskrá. „I iæti, óbifandi og miskunnarlaus i vissu sinni um að hann
leikritinu er hann mótvægi Ragnheiðar og Helgu f Bræðra- cinn sé færastur um að sjá sér og sinum forráð“.
UNDIR FJÖGUR AUGU
Dagur á
bókamarkaði
Erlingur Davíðsson:
Undir fjögur augu
Útgefandi: Skjaldborg
Káputeikning og myndir:
Bernharð Steingrímsson
Prentun: Prentsmiðja Björns
Jónssonar, Akureyri.
Þetta er ein af fjórum bókum sem
Skjaldborg gefur út fyrir jólin
eftir Erling Davíðsson, fyrrver-
andi ritstjóra á Akureyri. í bók-
inni eru ellefu smásögur, „sem
bæði eru ástarsögur og dulrænar
ævintýrasögur," eins og segir á
kápu bókarinnar. „Bókin er óður
til ástarinnar og fegurðarinnar,
alls þess sem lifir og hrærist um-
hverfis okkur og oft er lítill
gaumur gefinn“ segir þar enn
fremur.
Fyrsta sagan nefnist „Þau
gengu til prestsins“ og segir hún
frá fermingarbörnum í afskekktri
sveit fyrir einhverjum árum eða
áratugum. Unglingarnir eru að fá
„hvolpavitið" og lýsir sagan sam-
skiptum þeirra og viðkvæmni
þessa aldursskeiðs, þegar ástin
kemur til sögunnar. Miðað við að
sagan virðist gerast fyrir all löngu
síðan eru viðhorf þeirra nútíma-
leg og frjálslynd. Eins og í sögun-
um öllum er mikið um náttúru-
lýsingar.
Önnur sagan heitir „Maí-
blómið“. Þetta er líklega besta
sagan í bókinni, eins konar
dæmisaga um ástina og eigin-
girnina. Á einum stað segir:
„Maíblómið hafði látið súg næt-
urinnar bera sig út um opinn
glugga á herbergi drengsins og
inn um opinn glugga eins ná-
grannans. Nágranninn tók blóminu
tveim höndum. Hann naut ilms
þess en fór um það hrjúfum
höndum því honum þótti ekki
vænt um það.... Þegar drengur-
inn fékk að þessu fregnir varð
hann enn hryggari en áður og
einnig reiður. Maíblómið hafði
svikið hann.“
{ sögunni „Lftil stund með
landnemum“ gefur höfundur
imyndunaraflinu lausan tauminn
og tekur tali stóran skoskan ána-
maðk í garðinum sínum. Ræða
þeir síðan heima og geima og þar
á meðal ástarlíf þeirra ánamaðk-
anna.
„Gestkoma við ána“ er saga
um veiðiferð í Laxá, útlendan
kventúrhest, jafnvel kínverskan,
sem reynist svo vera einhver dul-
arvera. í „Ævintýrið á Hoitinu“
er sagt frá samskiptum manns og
ERUNOJRDAVmsON
UndirfJi3ðuv
auðu n
I>om! bók »f óóitr III Móhniiét oy /•»uró»"nn»r.
»Wi þoti *' Htir 03 hiMflit umhvorlit oxkur
dýrs, í þessu tilviki lítillar stúlku
og rjúpu. „Hamingjudagar“ lýsa
upplifun stangveiðimannsins í
fagurri náttúru innan um fjöl-
skrúðugt dýralíf. „Dvergurinn
og köngulóin“ segir frá ferð upp
með Glerá og þeim verum sem
höfundur hittir þar og ekki er á
allra færi að koma auga á, hvað
þá að eiga orðaskipti við.
„Undir húsvegg“ er smellin
saga um kjaftatík og kærastann
hennar.
„Hann og hún“ eru orðræður
um ástina og segir þar m.a. á ein-
um stað: „Hinn mikli leyndar-
dómur, hið mikla og ómótstæði-
lega aðdráttarafl er aðeins það, að
láta karlmann njóta sín í návist
sinni. Það reyni ég að gera ef
hann býður af sér góðan þokka.“
Sagan „Næturgestir“ kemur á
óvart, því hún er eins konar
framhald sögunnar um ferming-
arbörnin tvö. Langur tími er lið-
inn og bjartsýni æskunnar hefur
vikið fyrir köldum raunveruleika.
Ástin er bjargvættur. Síðasta saga
bókarinnar „Hún kom til að
kveðja“ segir frá fuglum, einkum
einkum, sem þrátt fyrir fötlun og
kannske einmitt þess vegna, lærir
að bjarga sér og hann höfðar
sterkar til höfundarins en aðrir
vængjaðir vinir hans.
Raunar má segja að í bókinni
„Undir fjögur augu“ séu fremur
lýsingar á raunverulegum og
ímynduðum upplifunum höf-
undar en smásögur. Höfundur er
nær alltaf nærri. Þetta er vafa-
laust forvitnileg bók fyrir marga.
H.Sv.
NAUMT TAP
FYRIR ÞRÓTTI
KA lék sinn þriðja leik í fyrstu
deild í handbolta á laugardag-
inn og nú við Þrótt í Laugar-
dalshöllinni.
Jafnræði var með liðunum
framan af leiknum og eftir 10
mín. leik var staðan jöfn. Þá kom
slæmur leikkafli hjá KA og þegar
flautað var til loka hálfleiksins
varstaðan 15gegn 10 fyrir Þrótt.
KA strákarnir komust tvíefldir til
leiks í síðari hálfleik og smám
saman tókst þeim að saxa á for-
skot Þróttar og þegar ein mín. var
eftir að leiknum var staðan orðin
23 gegn 22 fyrir Þrótt. KA hélst á
boltanum síðustu mínútuna en
þeir náðu ekki að jafna, og Þrótt-
ur sigraði því með einu marki.
Leikur þessi var nokkuð vel leik-
inn af KA hálfu, sérstaklega síð-
ari hálfleikurinn, en hann unnu
KA menn með fjórum mörkum.
Þróttarar fengu nokkur víta-
köst í leiknum en KA ekkert, og
er þetta því annar leikurinn af
þremur í deildinni sem ekkert
vítakast fæst. Sennilega þurfa
þeir að vera harðari á línunni.
Flest mörk KA gerðu Þeir Þor-
leifur Sigurður og Friðjón 5 hvor,
Guðmundur G. 3, og Erlingur og
Jóhann 2 hvor. Vegna keppnis-
ferðar landsliðsins o.fl. verður nú
þriggja vikna hlé á leikjum deild-
arinnar og geta KA menn notað
það til að skoða veikieika sinn og
bæta, en þeir hafa nú þegar tapað
tveimur leikjum mjög naumlega,
og það gegn sterkustu liðunum.
Körfuknatfleikur
Yfirburða-
sigur hjá
Þórsurum
Fyrsti leikur annarrar deildar
liðs Þórs í körfubolta á þessu
keppnistímabili var í íþrótta-
húsinu í Glerárhverfi á laugar-
daginn.
Andstæðingarnir að þessu
sinni voru leikmenn Tindastóls
frá Sauðárkróki. íþróttahúsið í
Glerárhverfi er heimavöllur
Tindastóls þar er ekki finnst
keppnisfær völlur í Skagafirðin-
um, en það er mjög bagalegt fyrir
þá, þar er þeir verða þá að æfa á
allt of litlum velli.
Leikmenn Þórs voru yfir-
burðamenn í þessum leik en þeir
skoruðu 73 stig á móti 46 hjá
Tindastóli.
Það var Valdimar Júlíusson
sem skoraði fyrstu stigin í leikn-
um, er hann komst inn í sendingu
hjá Tindastóli og brunaði upp og
skoraði.
Þórsarar náðu fljótlega yfir-
höndinni í leiknum og þegar fyrri
hálfleikur var um það bil hálfn-
aður höfðu þeir náð 10 stiga for-
ustu, og þegar flautað var til
leiksloka var munurinn einnig 10
stig, 35 gegn 25.
I síðari hálfleik jókst munur-
inn enn meir og jafnframt batn-
aði leikur Þórsara og þá var nán-
ast um einstefnu að ræða.
í byrjunarliði Þórs eru nú
komnir ungir og efnilegir strákar,
sem undanfarin ár hafa vermt
varamannabekkina, og lítið sem
ekkert fengið að spreyta sig.
Þessir strákar sýndu það í þessum
leik að þeir geta spilað körfu-
bolta, og í heild virtist liðið ágætt.
Eiríkur og Jón Héðinsson eru
sterkir í fráköstunum, en það var
galli á leik Tindastóls að þeir
reyndu allt og mikið að skjóta úr
vonlausum færum og hittu þá
ekki, og þá voru Eiríkur og Jón
fljótir að hremma boltann. Betra
hefði verið að halda boltanum
lengur og reyna að leika upp á að
finna betri færi. Þá vantar til-
finnanlega hávaxna leikmenn
undir körfuna. Þegar flautað var
til leiksloka var staðan eins og
áður segir 73 gegn 46. Erlingur
var stigahæstur Þórsara með 16
stig, Eiríkur 14, Björn Sveinsson
12, Valdemar 8, Þórarinn 6, Einar
5, Karl 4, Jóhánn 4, Bjarni og Jón
2 hver. Allir leikmenn Þórs í
þessum leik skoruðu stig. Hjá
Tindastóli voru stigahæstir Alfreð
Guðmundsson með 19 stig, Björn
Björgvinsson 6 og Óskar og
Gústav 6 hvor. Dómarar voru
Hörður Tuliníus og Rafn Ben.
Það var markmaður Þórs í knatt-
spyrnu Eiríkur Eiríksson sem
kosinn var af KRA knattspyrnu-
maður Akureyrar 1981.
Eiríkur hlaut 21 stig af 25
mögulegum í þessari kosningu.
Næstur honum kom Jóhann
Jakobsson úr KA með 19 stig og
síðan markmaður KA Aðalsteinn
Jóhannsson með 15 stig.
Eiríkur var yfirburðamaður í
sínu liði s.l. keppnistímabil og er
því vel að þessari nafnbót kom-
inn.
Eiríkur hlaut í verðlaun glæsi-
lega styttu sem er farandgripur
gefin af Gullsmiðum Sigtryggs og
Pétri.
Baldvin Heiðarsson úr 3. fl. Þórs var
markakóngur Akureyrar fyrir 1981 og
hlaut að laununi veglegan farandhikar
gefinn af Bilaleigu Akureyrar.
KA - með
fleiri
sigra
Marinó Víborg formaður
Knattspyrnuráðs Akureyrar
skýrði frá því í hófi á vegum
ráðsins sem haldið var í Borg-
arbíó á laugardaginn, að á
vegum KRA hefðu á þessu
sumri verið leiknir 47 knatt-
spyrnuleikir, og í þeim hefði
verið skoruð 116 mörk. KA
sigraði í 17 leikum og gerði 59
mörk, en Þór í 13 og gerði 57
mörk. Jafntefli var í 17 leikj-
um.
Þór varð Akureyrarnieistari í
3., 4. og 6. flokki, en KA í 5., 2. og
kvennaflokki. Þá sigruðu strákar
úr Þór í bikarkeppni 6. flokks, en
þar var keppt um sérstakan bikar
gefinn af Ferðaskrifstofu Akur-
eyrar.
ENN ÓSIGUR
DALVÍKINGA
ÞÓRSSIGUR I
SLÓKUM LEIK
Ekkert virðist getað stöðvað Þór í
því að vinna þriðju deildina í
handbolta karla, en á föstudags-
kvöldið sigruðu þeir Keflvíkinga
og hafa nú aðeins tapað einu stigi
í fimm leikjum.
Leikurinn á föstudagskvöldið
bauð hins vegar ekki upp á mikla
skemmtan fyrir áhorfendur, en
Þór sigraði örugglega með 26
mörkum gegn 22, eftir að staðan í
hálfleik hafði verið 11 gegn 10
Þór í vil.
Rúnar var markahæstur hjá
Þór með 8 mörk, Sigtryggur gerði
7, Árni Stef. 4 og Guðjón 3.
Þrátt fyrir að Dalvíkingar séu
komnir í nýja og glæsilega
keppnisbúninga, og að leikur
þeirra á laugardaginn við
Keflvíkinga hafi verið betri en
fyrri leikir þeirra, urðu þeir að
sætt sig við tap 31 mark gegn
23, eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 13-12 Keflvíking-
um í vil.
í fyrri hálfleik voru Dalvíking-
ar betri aðilinn og léku oft á tíð-
um ágætlega saman, enda voru
þeir yfir alveg fram á síðustu mín.
hálfleiksins.
Þeir sprungu hins vegar á
limminu í síðari hálfleik og Kefl-
vikingar náðu þá yfirburða stöðu.
Dalvíkingar hafa fengið til liðs
við sig Jón Emil Ágústsson en
hann hefur í haust æft með KA,
og er hann liðinu mikill styrkur.
Þá setur það strik í reikninginn
fyrir þá að þjálfarinn, Magnús
Guðmundsson, hefur ekki getað
leikið með síðustu leiki vegna
meiðsla en vonandi fer hann að
koma inn á og stjórna sínum
mönnum þar.
4 - DAGUR - 27. október 1981
-DAGUR- 5