Dagur - 27.10.1981, Blaðsíða 8
OAGUR
Akureyri, þriðjudagur 27. október 1981
BÍLAVÍR - RAFGEYMAKAPLAR
LEIDSLUSKÓR - KAPALSKÓR
Fjölmargir gestir voru viðstaddir er Brauðgerðin var formlega tekin i notkun i nýja húsnæðinu sl. laugardag. Ljósm. H.Sv.
Brauðgerð KEA í nýja húsnæðinu:
Starfsemin hófst
formlega á laugardag
Brauðgerð KEA hóf formlega
starfsemi í gamia mjólkursam-
lagshúsinu við Kaupvangsstræti
á laugardag. Fjöidi manns var
saman kominn við þetta tæki-
færi og á borðum voru sýnishorn
af þeim 150-160 brauð- og
kökugerðum, sem framleiddar
eru í brauðgerðinni.
Brauðgerðin er á efstu hæð
gamla mjólkursamlagshússins, sem
jafnframt er jarðhæð til norðurs.
Niðurrif og hreinsun hófst í júlí í
fyrra og þá hófst jafnframt bygging
120 ferm. viðbyggingar, sem nýtt
skyldi sem efnisgeymsla og efnis-
móttaka. Jafnframt var ákveðið að
þrjár aðalmjöltegundirnar skyldu
geymdar í þar tií gerðum álgeym-
um, til sparnaðar á húsrými. Sam,
tals er flatarmál hinnar nýju
brauðgerðar um 850 ferm. Véla-
kostur og stór hluti innréttinga er
að mestu nýtt.
Allar teikningar að breytingum
og nýbyggingu voru gerðar á
teiknistofu Sambandsins. Aðal-
verktaki var Norðurverk h.f. Múr-
verk annaðist Gunnar Óskarsson,
pípulagnir Karl og Þórður, máln-
ingu Stefán Jónsson, raflagnir
Ljósgjafinn h.f., hita og loftræsti-
kerfi Blikk og Stál h.f., uppsetningu
kæli- og frystitækja svo og alla járn-
og vélsmíðavinnu annaðist Vél-
smiðjan Oddi h.f. Byggingarstjóri
var Gísli Magnússon, bygginga-
meistari hjá KEA.
Starfsfólk Brauðgerðar KEA er
nú 23 að tölu og brauðgerðarstjóri
er Páll Stefánsson.
Húsvíkingar ætla að
kaupa snjótroðara
SLÁTRUN
LOKIÐ Á
DALVlK
Dalvík 26. október
Slátrun er nú lokið á Dalvík og
hefur slátrunin gengið mjög vel,
þrátt fyrir erfitt tíðarfar, að sögn
Kristins Guðlaugssonar, slátur-
hússstjóra. Alls var slátrað 14.309
dilkum, þar af var 1.712 af full-
orðnu. Þetta eru aðeins fleiri dilkar
en í fyrra. Þyngsti dilkurinn vóg
28.8 kg„ eigandi Stefanía Kristins-
dóttir, frá Hrafnsstöðum, Dalvík.
Bestu meðalvigtina hafði Konráð
Gottliebsson, Ólafsfirði, 20.5 kg. af
50 dilkum. Rétt er að geta þess að
hér að ofan er miðað við blautvigt.
A.G.
HAFA
FRAMLEITT
50 ÞÚSUND
FISKIKASSA
Fiskkassaframleiðslan, sem hófst í
Plasteinangrun hf. á Akureyri í
mars í fyrravetur, hefur gengið
mjög vel. Búið er að framleiða um
50.000 kassa, og eru menn bjart-
sýnir á framhaldið. Fiskkassarnir
frá Plasteinangrun eru líka á lægra
verði en innfluttir kassar og stand-
ast vel samkeppnina við þá. Þá eru
í afhugun ýmsar hugmyndir um að
nýta tækjabúnaðinn, sem fenginn
var til verksmiðjunnr vegna fisk-
kassaframleiðslunnar, til fram-
leíðslu á fleiri sviðum, bæði til
aukinnar framleiðslu á trollkúlum
og e.t.v. einnig til að framleiða
flöskukassa og fleiri vörur.
Bæjarráð Húsavíkur hefur
ákveðið að heimila kaup á snjó-
troðara. Mun Skíðaráð Völs-
ungs beita sér fyrir almennri
fjársöfnun í bænum til kaup-
anna, en áætlað verð á troðar-
anum er allt að krónur 600 þús-
und. Bæjarsjóður ábyrgist þær
skuldbindingar sem til þurfa að
koma vegna kaupanna.
Eigendur veitingastaðarins Pizza-
húsið í Reykjavík hafa hug á að
koma á fót veitingastað á Akureyri.
Þeir höfðu m.a. hug á húsinu nr. 23
við Strandgötu þar sem áður var
verslunin Kleopatra, en það hús
var síðar selt öðrum aðila. Elías
Snorrason, eigandi Pizzahússins,
Þá hefur Bæjarstjórn Húsavíkur
ákveðið að láta framkvæma könn-
un á að koma upp nýju skíðasvæði í
nágrenni Húsavíkur, t.d. í Krubbs-
fjalli eða Gyðuhnjúk.
Könnunin á að taka til athugana
á snjóalögum, staðsetningu lyftna,
göngubrauta og stökkbrauta, vega-
og bílastæða, möguleika á að fá
rafmagn á svæðið, möguleika á
rekstri skíðaskóla o.fl.
sagði í viðtali við Dag að hann
hefði ekki í hyggju að gefast upp
við svo búið, en hann sagði jafn-
framt að það virtist vera erfitt að fá
húsnæði undir veitingastað á
Akureyri. Ætlunin er að selja ein-
göngu ítalskar pizzur í fyrirhuguð-
um veitingastað.
VILJA OPNA
PIZZA-STAÐ
Verkmenntaskóli á Akureyri:
Tíðarfar tefur
framkvæmdir
„Við hófum framkvæmdir við
grunn Verkmenntaskólans á
dögunum, strax og hlánaði, en
það er óhætt að segja að það
hefðum við gert fyrir tveimur
vikum ef tíðarfar hefði verið
þannig, að það hefði verið
mögulegt“ sagði Hörður Tulin-
ius, einn af eigendum bygginga-
fyrirtækisins Híbýli h.f. á Akur-
eyri í samtali við Dag.
Hörður tjáði Degi að Híbýli ætti
að skila 1. áfanga hússins til af-
hendingar 1. júní n.k. þá tilbúnu
undir tréverk. 1. áfangi byggingar-
innar er 1. hæð og kjallari að hluta.
Ekki vildi Hörður neitt segja
varðandi það hvort tíðarfarið að
undanförnu yrði til þess að af-
hending verksins myndi dragast frá
því sem áætlað hefur verið, en því
væri ekki að neita að veðurfar að
undanförnu hefði orðið til þess að
tefja byrjunarframkvæmdir.
Hvammstangi:
RÆKJUVEIÐAR
HAFA ALDREI
GENGIÐ EINS VEL
Hvammstanga 26. október.
Rækjubátarnir mokveiða um
þessar mundir og að sögn sjó-
manna hefur veiðin aldrei verið
jafn mikil. Tveir bátar eru gerðir
út á línu frá Hvammstanga og
hafa aflað nokkuð vel.
Alls eru fimm bátar gerðir út á
rækju frá Hvammstanga. Afla
tveggja bátanna er ekið til Blöndu-
óss. Skagstrendingar eru byrjaðir
rækjuveiðar og Hólmvíkingar um
það bil að byrja. Rækjan sem veið-
ist er bæði stór og falleg. P.M.
a.
% Klámmyndir
og barnaefni
Fyrir skömmu átti barn í
ónefndum bæ afmæli. Móðir
barnsins fór í eina af mynd-
segulbandsleigum bæjarins
og fékk spólu með barnaefni
og þegar gestir í afmælinu
höfðu fengið sér gos og gott
settust þeir fyrir framan sjón-
varpið, myndsegulbandstækið
var sett í gang og barnaefni
birtist á skjánum. Börnin voru
himinlifandi, skríktu og hlóu
enda var heilmlkið að gerast á
skermlnum. Móðirin var stödd
frammi í eldhúsi þegar hún
heyrði að allt datt í dúnalogn
inni í stofu. Ekki taldi hún að
það boðaði neitt gott og hrað-
aði sér inn, horfði fyrst á börnin
en síðan á skermlnn og sjá: þar
höfðu alldellis átt sér stað um-
skipti. f staðlnn fyrir hugijúfar
barnamyndir var komið harð-
asta klám. Að sjálfsögðu var
slökkti á tækinu og miður sín fór
móðirin með spóluna til sinna
heimahaga. f Ijós kom að
barnaefnið hafði verið tekið yfir
klámmynd, sem var mun lengri
en barnaefnið, og því fór sem
fór.
% Textavantar
Þelr sem búa svo vel að hafa
yfir að ráða myndsegulbandi
verða að gera sér að góðu
myndfr án íslensks texta. Mið-
að við hina ótrúlegu útbreiðslu
myndbanda virðist almenning-
ur gera sér ótextaðar myndir
að góðu. E.t.v. er hér komin
lelð fyrir íslenska sjónvarpið:
CJ-
hætta að texta myndir og nota
það fé sem sparast í eitthvað
annað.
% Stuttvaríþví
Dagur hafði fregnir af pilti sem
var ráðinn sem messagutt um
borð í eitt af varðskipum
landsmanna. Strákur var eitt
sinn að bera á borð og kallaði á
stýrimann, úr gati eldhússins,
að hérna væri diskurinn hans
kominn, hvort hann vildi ekki
sækja hann. Stýrimaðurinn
skipaði stráksa að koma með
diskinn á borðið, sem hann og
gerði, en spurði um leið: „Á ég
ekki að mata þig líka“? Þetta
var meira en yflrmaðurinn
þoldi og var strákur settur í
land næst þegar skipið kom til
hafnar.
% Lítil notkun
Lögreglan á Akureyri gerði í
gær könnun á því hversu
margir notuðu bílbelti á Akur-
eyri. Var þetta gert að beiðni
Umferðarráðs. Könnunin var
gerð að lokinni mestu umferð-
inni í hádeginu kl. 13.30-14.10
og voru bílar stöðvaðir á
gatnamótum Kaupvangsstræt-
is og Skipagötu. Niðurstaðan
var sú, að í 171 bíl notuðu 42
ökumenn bílbelti og í 4 bílum
voru bæði ökumaður og far-
þegi í framsæti með bílbelti. í
þessari könnun kom því í Ijós,
að 26,9% ökumanna notuðu
bílbelti. ’f könnun sem Dagur
gerði á mesta annatímanum
í umferðinni, á hádegi s.l.
þriðjudag, kom í Ijós að aðeíns
12% þeirra sem þar voru taldir
notuðu bílbelti.