Dagur - 03.12.1981, Qupperneq 1
TRÚLOFUNAR.
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
■■■■■■■■■
64. árgangur
■■■■■■■■■■■■■■■
Blönduvirkjun:
Geta allir fellt sig
við eignarnámsleiðina?
Þurfa bæði
virkjun og
verksmiðju
„Atvinnuástand hér er í svipuðu
fari og oft áður á sama tíma.
Byggingavinna er ekki mikii um
þessar mundir, en það eru líkur á
að farið verði í einhver verk um
áramótin. Þar á meðal er nýr
leikskóli á vegum bæjarins og
innrétting á húsnæði sem er í
eigu fjölbrautarskólans. Togar-
arnir og frystihusin eiga í veru-
legum erfiðleikum og um daginn
sigldu togarnir meira að sumra
mati en góðu hófu gegndi. En
húsin áttu í erfiðleikum með að
greiða fyrir fiskinn,“ sagði Jón
Karlsson formaður Verka-
mannafélagsins Fram á Sauðár-
króki, „en í dag er rekstrar-
grundvöllur iðnaðar í bænum og
sjávarútvegs mjög veikur.“
Jón sagði að íbúar á Sauðárkróki
væri flestir, ef ekki allir, sammála
um nauðsyn þess að reisa bæri
steinullarverksmiðju á Sauðár-
króki, svo atvinnuástand yrði
bærilegt næstu árin.
Jón sagði að menn væru mjög
óhressir með þann drátt sem átt
hefur sér stað í sambandi við
ákvarðanatöku í málefnum stein-
ullarverksmiðjunnar. Það kom
fram hjá Jóni að menn teldu að
ráðherra orkumála, Hjörleifur
Guttormsson, hefði í hyggju að láta
líklega með Blöndu og steinullar-
verksmiðjuna, „en draga svo annað
til baka á síðustu stundu. Segja að
annað sé nóg fyrir norðlendinga.
Tilfellið er að við þurfum hvort
tveggja ef vel á að fara.“
Dræm sala
á notuðum bflum
„Sala á bílum er dauf um þessar
mundir. Ég held að ástandið sé
heldur verra en á sama tíma und-
anfarin ár,“ sagði Gunnar Har-
aldsson, bílasali á Akureyri. Hann
bætti því við, að t.d. ef eldri bílar
seldust þá væri algengt að kaup-
endur fengju mikið lánað til langs
tíma. „Þetta er erfitt núna,“ sagði
Gunnar, „þú mátt segja það, vin-
Snemma á næsta ári verður 15
lóðum úthlutað sunnan Suður-
byggðar. Samkvæmt upplýsing-
um blaðsins er áhugi manna á
lóðum þessum mjög mikill og
Ijóst að umsóknir verða mun
fleiri en lóðirnar.
Jón Geir Ágústsson, bygginga-
fulltrúi Akureyrarbæjar, sagði
Á fundi samninganefndar rík-
isins og fulltrúa heimamanna
um Blönduvirkjun f fyrradag var
ákveðið, að stefnt skyldi að því
að ákveðið svar kæmi frá
heimamönnum eigi síðar en 16.
desember n.k. Þá kom fram, að
stefnt er að því að halda
sveitarfundi f þeim hreppum sem
ekki hafa enn tekið endanlega
afstöðu. Upplýsingar um virkj-
unina og samningsdrögin verða
send á hvern bæ í hreppunum
að hér yrði eingöngu um að ræða
einbýlishúsalóðir.
Undanfarin ár hafa verið til fjöl-
margar lóðir á Akureyri og bygg-
ingarnefnd hefur ekki átt í ýkja
miklum vandræðum að úthluta
þeim. Þegar kemur að úthlutun
umræddra lóða, getur farið svo að
það þurfi að velja á milli nokkurra
manna sem sækja um einu og sömu
lóðina. Jón sagði að bygginganefnd
sex, sem hagsmuna eiga að
gæta.
Mest óvissa er varðandi afstöðu
manna í Bólstaðarhlíðarhreppi,
en þar hefur meirihluta hrepps-
nefndar verið mótfallinn
virkjunarleið 1. Meirihluti hrepps-
nefndar Svínavatnshrepps er tilbú-
inn til að ræða samninga um þá
virkjunartilhögun. Samningamenn
Lýtingsstaðahrepps og Seylu-
hrepps munu vera jákvæðir, en þeir
eru ekki hreppsnefndarmenn,
þannig að einhver óvissa kann að
hefði ekki rætt það hvernig staðið
yrði að úthlutun á þessum lóðum
og tók það fram að störf nefndar-
innar á þessu sviði hefðu heppnast
vel á undanförnum árum.
Hugsanlegt er að beita einhvers-
konar punktakerfi við úthlutun
lóðanna 15, en það kerfi er þó alls
ekki gallalaust. Þegar lóðum við
Norðurbyggð var úthlutað á sínum
vera um afstöðu í þeim hreppum.
Torfalækjarhreppur og Blöndu-
ósshreppur munu samþykkir virkj-
unarleið 1.
Menn hafa mjög velt fyrir sér
þeim möguleika, að krefjast eign-
arnáms, þó svo að þeirrar lausnar
sé ekki getið í ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar. Vafalítið mun verða
mikill þrýstingur frá þeim sem vilja
Blönduvirkjun strax, að sú leið
verði farin, ef einn eða jafnvel tveir
hreppar reynast vera á móti. Þá
hefur það flogið fyrir, að þeir sem
séu andvígir því að taka þátt í að
tíma var dregið um nöfn umsækj-
enda, væru þeir nokkrir um hverja
lóð, og þóttust þá starfsmenn
byggingafulltrúa sjá að sami aðil-
inn ætti 11 umsóknir um eina lóð-
ina. Greinilegt var að hann hafði
fengið vini og vandamenn til að
sækja um lóðina. Það má því ljóst
vera að „útdráttarfyrirkomulagið“
er ekki heldur gallalaust.
samþykkja virkjunarleið 1, með
tilheyrandi landsspjöllum, geti vel
fellt sig við eignarnámsleiðina.
Búist er við að boðað verði til
funda í hreppunum í næstu viku og
verður niðurstaða þeirra beðið
með mikilli eftirvæntingu, því mjög
mikið er í húfi. Virkjunarfram-
kvæmdir geta haft veruleg áhrif á
atvinnuuppbyggingu í Norðlend-
ingafjórðungi öllum og menn eru
þegar farnir að velta því fyrir sér,
hvaða atvinnustarfsemi gæti komið
í kjölfar virkjunarframkvæmdanna
sjálfra.
Leggst
UMFS
í
dvala?
— Enginn fæst
til að gegna
stjórnarstörfum
Leggst Ungmennafélag Svarf-
dæla í dvala? Margt bendir til
þess, því núverandi stjórnar-
meðlimir telja sig ekki hafa tíma
til að sinna félaginu eins og
þyrfti og vilja því losna úr
stjórninni. Sá er hængur á, að
ekki hefur tekist að finna neinn
sem vill koma í staðinn. I mörg
ár var starfsemi UMFS nær
engin og fyrir rösku ári tóku
nokkrir Dalvíkingar sig til og
endurreistu félagið. Þessir sömu
vilja nú koma starfseminni á
aðrar herðar.
Magnús Guðmundsson, for-
maður UMFS, sagði að eitthvað
væri bogið við staðinn ef ekki væri
hægt að starfrækja ungmennafélag
á borð við UMFS. „Þess er þó að
gæta," sagði Magnús „að hér á
Dalvík er fjöldinn allur af félögum
og menn hafa ekki tíma til að vera í
nema einu félagi." Aðalfundur
UMFS verður skömmu eftir ára-
mót og sagði Magnús að ákveðið
væri að félagið héldi áfram þangað
til að minnsta kosti.
Það má segja að handbolti verði
það eina sem UMFS komi nálægt
næstu vikurnar á meðan er leitað
leiða til að lífga félagið við — auk
þess að leita að fólki sem vill gegr.a
trúnaðarstörfum fyrir það. Þess má
geta að þegar núverandi stjórn tók
við skuldaði félagið talsvert af
peningum. UMFS tók að sér sorp-
hirðu fyrir Dalvíkurbæ til að
hreinsa skuldahalann og sagði
Magnús að það hefði tekist.
ur.
Horft i áttina til miðbæjarins.
Mynd:á.þ.
LÓÐUM SUNNAN SUDURBYGGD-
AR UTHLUTAÐ EFTIR ÁRAMÓTIN
Gífurlegur áhugi en aðeins 15 lóðum verður úthlutað
AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 21180