Dagur - 05.01.1982, Side 1
Mynd: H.Sv.
TRULOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
65. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 5. janúar 1982
1. tölublað
rfy ' \ *:AJbL
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar á Akureyri voru jólin
og áramótin afskaplega róleg.
Nokkrir árekstrar áttu sér stað í
bænum og á gamlárskvöld var
aðeins einn ökumaður tekinn
grunaður um ölvun við akstur.
„Jólin og áramótin verða sífellt
friðsamari,“ sagði Ólafur Ás-
geirsson, aðstoðaryfirlögregl-
uþjónn í samtali við Dag. „Það
var mun meira um að vera hér á
árum áður. Unglingavandamál í
líkingu við það sem þekkist á
sumum stöðum er óþekkt fyrir-
bæri á Akureyri. Raunar má segja
að samstarf lögreglu og unglinga
sé mjög gott. Um jólin voru dan-
sleikir í Dynheimum og í Lundar-
skóla sem fóru mjög ve! fram.
Sömu sögu er hægt að segja um
aðra dansleiki á Akureyriu og
nágrenninu."
Guðmundur Sæmundsson um forystu Einingar:
Einræðingsleg vinnu-
brögð, leiðinlegir fundir
„Mér hafa borist margar
munnlegar og skriflegar áskor-
anir Einingarfélaga af ýmsum
vinnustöðum og úr ýmsum
deildum félagsins um að vinna
að því að settur verði fram mót-
listi í komandi stjórnar- og
trúnaðarmannaráðskosningum
félagsins gegn þeim Iista, sem
stjórnin og trúnaðarmannaráð
munu setja fram. Ég hef ákveð-
ið að verða við þessum tilmæl-
um,“ segir Guðmundur Sæm-
undsson í yfirlýsingu, sem barst
blaðinu í gær. Tveir verða því í
framboði til formanns, Jón
Helgason, núverandi formaður
og Guðmundur Sæmundsson.
í yfirlýsingunni segir ennfremur:
„Óánægja ríkir með núverandi
forystu félagsins. Það sem fólk
virðist helst gagnrýna eru ein-
ræðisleg vinnubrögð, flokksholl-
usta forystunnar, leiðinlegir
fundir, ofríki gagnvart deildum
félagsins, skortur á upplýsingum
og fræðslu fyrir almenna félaga,
tengslaleysi forystunnar við fólkið
á vinnustöðunum og sitthvað
fleira. Þá er ríkjandi álit að foryst-
an hafi staðið sig illa í samninga-
málunum og verið tilbúin til að
éta ofan í sig kröfugerð félagsins
og ýmis stór orð, strax og forysta
ASÍ, stjórnmálaflokkarnir og
ríkisvaldið óskuðu þess.“
Guðmundur segist sammála
þessari gagnrýni í meginatriðum.
Hann hafi setið í stjórn Einingar í
eitt ár og reynt að koma málum
fram þar, án nokkurs teljandi
árangurs. Hann segist því hafa
gert það upp við sig fyrir nokkru
að sitja ekki áfram í stjórn sem
Jón Helgason hefði forystu fyrir
og undirtökin í. Að lokum segir
Guðmundur að þeir sem hafi sko-
rað á sig eigi nú leikinn. Nk. laug-
ardag verður haldinn opinn fund-
ur með „sem flestum áskorendum
og öðrum áhugamönnum um
mótframboð. Á þeim fundi verð-
ur tekin ákvörðun um hvort af
framboði verður, hver stefna list-
ans eigi að vera, hvernig hann
skuli skipaður og hvernig kosn-
ingabaráttunni verði hagað,“ seg-
ir Guðmundur Sæmundsson í yfir-
lýsingunni.
Mörg hundruð
manns missa
atvinnuna!
Fleiri hundrað manns sem
starfa að sjávarútvegi á
Norðurlandi hafa misst atvinnu
sína, eða gera það næstu daga.
Astæðan er verkfall sjómanna
sem skall á um hátíðirnar, en
það hefur þegar haft þau áhrif
að mikill fjöldi fólks sem starfar
að fiskvinnslu í landi hefur
misst kauptryggingu sína.
Ekki er gott að segja til um það
nákvæmlega hversu margir þeir
eru sem nú eru atvinnulausir
vegna verkfallsins. Á sumum
stöðum hefur atvinna þegar
stöðvast, á öðrum stöðum verður
vinna eitthvað frameftir vikunni,
og þar sem lengst verður unnið
hefur fólkið vinnu fram í næstu
viku, en þar er unnið við saltfisk
og skreiðarverkun.
Samkvæmt lauslegri könnun
Dags frá í gær, er ekki fjarri lagi
að ætla að á Norðurlandi verði um
700 manns sem starfa að fiskvinn-
slu í landi orðnir án atvinnu þegar
kemur fram í næstu viku. Flest
starfar þetta fólk hjá Útgerðarfé-
lagi Akureyringa hf., en að sögn
Gísla Konráðssonar framkvæmd-
astjóra þess fyrirtækis sögðu þeir
upp um 100 manns, sem missa
atvinnuna frá og með fimmtudeg-
inum.
Margir sjómenn eru í verkfalli,
og þegar þetta er skrifað er engin
leið að segja til um hversu lengi
það verkfall kemur til með að
standa. Þar spilar inn í að ekki
hafa tekist samningar um
fiskverð, en skriður mun ekki
komast á samningaviðræður sjó-
manna og viðsemjenda þeirra fyrr
en það liggur fyrir. Þá mun vænt-
anlega hafa talsverð áhrif á samn-
ingaviðræðurnar til hvaða ráða
ríkisstjórnin grípur til þess að
tryggja hag útgerðarinnar og fisk-
vinnslunnar.
Þjófurinn
ófundinn!
„Það segir sig sjálft að ef þetta
upplýsist ekki þá hefur þetta
stórkostleg áhrif á okkar fyrir-
tæki. Það er ekki hægt að sitja
undir því að hægt sé að steia
svona frá manni án þess að lög-
reglan hafi nokkra einustu
möguleika á að upplýsa það“,
sagði Skúli Ágústsson hjá
Höldi hf, í samtali við Dag í
gær.
Eins og kunnugt er var brotist
inn hjá fyrirtækinu aðfararnótt
Þorláksmessu og stolið þaðan
Vilhelm Ágústsson við hurðina sem
boruð var upp. Ljósm. gk-
geysistórri upphæð í peningum,
ávísunum og nótum. Alls var stol-
ið upphæð sem nemur 340-360
þúsund krónum, en síðar fundust
norðan við bæinn töskur með
hluta ávísananna og nótum í að
upphæð um 110 þúsund krónum.
Tap fyrirtækisins, ef peningarn-
ir finnást ekki og þær ávísanir sem
ekki fundust í töskunum er því
230-250 þúsund krónur, og bætist
við 140 þúsund krónur sem stolið
var frá fyrirtækinu í ágúst sl.
„Það má segja að okkur hafi á
vissan hátt miðað við rannsókn
málsins, við vitum aðeins um
ferðir þjófsins en það er auðvitað
ekki nóg og á meðan við höfum
ekki handsamað þjófinn vinnum
við að rannsókn málsins“, sagði
Daníel Snorrason rannsóknarlög-
reglumaður.
Skúli sagði að fyrirtækið og
rannsóknarlögreglan á Akureyri
hefðu óskað eftir aðstoð Rann-
sóknarlögreglu ríkisins við að
leysa málið. Fyrirtækið bauðst til
að senda flugvél eftir lögreglu-
mönnunum en þeir voru ekki fá-
anlegir til að koma norður. „Þetta
er ekki hægt, Rannsóknarlög-
regla ríkisins er ekki bara fyrir
Reykja-víkursvæðið", sagði Skúli
Ágústsson.
Þess má að lokum geta, að
forráðamenn Höldurs hf. hafa á-
kveðið að verðlauna þann sem
getur gefið upplýsingar sem leiða
til þess að málið upplýsist. Nema
þau verðlaun alls 50 þúsund
krónum.